Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Síða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Síða 15
21.7. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 vinna hér í Þjóðleikhúsinu,“ segir Ari, en meðal þeirra verkefna sem hann hefur lagt áherslu á er að fjölga ferðum leikhússins til að sýna verk um land allt. „Sjónarmiðið með þessum ferðum er list án aðgreiningar út frá búsetu og efnahag. Þær fjölskyldur sem búa við nauman efnahag verða oft að neita sér um að fara í leikhús. Þess vegna förum við út um allt land og bjóðum börnum á sýningar,“ segir Ari. „Nýlega var framkvæmd mjög stór könnun meðal allra stofn- ana í sviðslistum og Þjóðleikhúsið kom best út í þessari könnun. Hér er mikil starfsánægja, mikið traust á yfirstjórn, fá tilfelli áreitis, og svo framvegis, sem er mjög gleðilegt,“ heldur Ari áfram. „Það gefur til kynna að hér sé góður starfsandi og hér sé vinnustaðarstemning góð.“ Ari segir höfundastarf einnig öflugt innan leikhússins og skyldur Þjóðleikhússins við íslenska tungu séu ofarlega á baugi meðal stjórnenda þess. „Tæplega helmingur þeirra verka sem við sýnum er íslensk verk. Við erum á hverjum tíma með höf- unda að skrifa sérstaklega fyrir okkur, við erum að vinna að leik- gerðum upp úr skáldsögum og við leggjum áherslu á að finna glæsileg hlutverk fyrir konur, því það skortir í leikbókmennt- irnar,“ segir Ari. „Ég held að Þjóðleikhúsið eigi meiri hljóm- grunn meðal almennings núna en oft áður, sem birtist í aðsókn- inni. Þjóðleikhúsið má ekki vera einstrengingslegt sjónarmið eins manns heldur þarf það að endurspegla samfélagið sem við búum í; annars vegar með því að fjalla um málefni sem máli skipta og í öðru lagi með því að vera með sýningar sem vekja áhuga og fólk langar til að sjá.“ Ósætti hluti af starfinu Ferill Ara sem þjóðleikhússtjóri hefur ekki alltaf verið hæglátur. Kvartanir um erfið samskipti og hegðun hans hafa komið upp á yfirborðið og deilur við Félag íslenskra leikara (FÍL) ratað í fjöl- miðla. Ari hefur fengið á sig gagnrýni og ástandi innan Þjóðleik- hússins verið lýst sem viðkvæmu. „Ég virði og skil þá gagnrýni sem ég hef fengið á mig,“ segir Ari. „Þjóðleikhússtjóri þarf oft að taka ákvarðanir sem varða starfsframa listamanna og þeir eðlilega taka það nærri sér. Ég auðvitað hef alltaf reynt að taka þær ákvarðanir á málefnalegan hátt og eins vel og hægt er og stend alveg við þær þótt ég skilji að það séu ekki allir fullkomlega sáttir við það.“ Ari segist taka það nærri sér ef einhver er ósáttur við hann, en það sé hluti af starfi þjóðleikhússtjóra. „Ég verð að sætta mig við það að ekki sé alltaf sagt rétt frá samskiptum, en ég tek það til mín. Ég tek gagnrýninni þannig að ég hugsa um það sem að mér snýr og reyni að bæta það sem ég get bætt,“ segir hann. Afmælissýning í minningu Egners Ari telur að leikhúsið hafi sjaldan haft stærra hlutverki að gegna gagnvart andlegu lífi almennings á Íslandi en í dag. „Ég held að hin ótrúlega mikla aðsókn að Þjóðleikhúsinu sýni að við erum að svara einhverri þörf hjá almenningi. Þú færð í leikhúsinu dýpri og hreinni skilning á hlutskipti mannsins. Bíómyndir eru allt öðruvísi og verka allt öðruvísi á mann. Ég held að leikhúsið hafi mjög mikilvægum skyldum að gegna í dag. Það er eins og sam- félagsmiðlar dragi fram í okkur vonda þætti, sem eru dómharka og skortur á umburðarlyndi og virðingarleysi fyrir skoðunum annarra, og það sé enginn miðill annar en leikhúsið sem geti bet- ur svarað þessu. Ég hef trú á að leikhúsið hafi nær helgan til- gang.“ Þjóðleikhússtjórinn kveðst spenntur yfir komandi leikári, en sýningar í leikhúsinu hefjast í september með verkinu Brúð- kaupi Fígarós, sem unnið er með Íslensku óperunni. Leikhúsið heldur upp á 70 ára afmæli á næsta ári og af því til- efni verður Kardimommubærinn eftir Thorbjørn Egner settur upp á stóra sviðinu. „Ég held að ekkert leikskáld hafi verið Þjóðleikhúsinu jafn gjöfult og Thorbjørn Egner,“ segir Ari, en Egner gaf leikhúsinu sýningarrétt á verkum sínum í eitt hundrað ár. Hafa höfundar- réttartekjur sem hefðu annars runnið til Egners runnið í Egner- sjóðinn, sem nýttur er til að efla leikhússtarf á Íslandi, sér í lagi leikhússtarf fyrir börn og ungmenni. „Þetta verður ein stærsta sýningin sem við frumsýnum á því leikári og ástæðan er að heiðra minningu þessa mikla velgjörð- armanns íslensks leikhúss,“ segir Ari. Áður en við kveðjumst fáum við okkur göngutúr um leikhúsið. Ari gengur rösklega um og rifjar upp hvernig ásýnd Þjóðleik- hússins hefur breyst síðan hann kynntist því fyrst, sem nýút- skrifaður leikari, fyrir hartnær þrjátíu árum. Hann minnist þess að hafa leikið sitt fyrsta hlutverk eftir útskrift úr Leiklistarskól- anum í Gleðispilinu eftir Kjartan Ragnarsson, sem frumsýnt var á stóra sviði leikhússins árið 1991. Við röltum um húsið og kveðj- umst loks fyrir utan norðurhlið byggingarinnar, og Ari hverfur aftur inn í leikhúsið. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.