Morgunblaðið - 01.08.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.08.2019, Qupperneq 4
 Siðanefnd Alþingis álítur að Bergþór og Gunnar Bragi hafi brotið siðareglur alþingismanna á Klaustri í nóvember  Þingmennirnir gagnrýndu vinnu nefndanna  Sigmundur og Anna ekki brotleg Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Bráðabirgðaforsætisnefnd skipuð Steinunni Þóru Árnadóttur, þing- manni Vinstri grænna, og Haraldi Benediktssyni, þingmanni Sjálfs- stæðisflokksins, kemur saman klukkan tíu í dag og fundar um Klaustursmálið svokallaða. Eru lík- ur á að forsætisnefnd kynni nið- urstöðu um afstöðu sína í málinu að fundi loknum, en bæði hefur nefnd- inni borist álit siðanefndar og and- svör þingmannanna er málið varðar. Í áliti siðanefndar, sem Morgun- blaðið hefur undir höndum, er það niðurstaðan að Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson, þingmenn Miðflokksins, hafi gerst brotlegir við siðareglur alþingismanna með ummælum sem þeir létu falla á Klaustri bar 20. nóvember. Aðrir þingmenn sem tóku þátt í samtal- inu, Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son og Anna Kolbrún Árnadóttir úr Miðflokki og Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, sem voru í Flokki fólksins þegar samtalið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Miðflokkinn, brutu ekki gegn siða- reglum alþingismanna. Bergþór og Gunnar Bragi þóttu með ummælum sínum hafa brotið gegn c- og d-lið 1. mgr. 5. gr. og 7. og 8. gr. siðareglna alþingismanna, en þar segir m.a. að alþingismenn skuli sem þjóðkjörnir fulltrúar „leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heilbrigt starfsum- hverfi innan þings sem utan og hvarvetna þar sem þeir sinna störf- um sínum þar sem hafnað er hvers konar kynferðislegri eða kynbund- inni áreitni, einelti eða annarri van- virðandi framkomu“. Segir einnig í reglunum að þingmenn skuli ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með framkomu sinni. „Öll af sömu rótinni sprottin“ Siðanefnd fjallaði sérstaklega um ummæli Önnu, Bergþórs, Gunnars og Sigmundar. Í umfjöllun um um- mæli Bergþórs, sem m.a. fóru í há- mæli eftir að Klaustursupptökurnar svokölluðu voru gerðar heyrinkunn- ar, voru tiltekin ummæli hans um Ingu Sæland, formann Flokks fólks- ins, Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur alþingis- mann og Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráð- herra. Í umfjöllun um ummæli Gunnars Braga tiltók siðanefnd sér- staklega ummæli hans um Albertínu Friðbjörgu alþingismann, um Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menning- armálaráðherra og um Ragnheiði Runólfsdóttur, afrekskonu í sundi. Sagði siðanefndin um ummæli flokksbræðranna: „Eins og áður greinir getur hátterni sem telst ósiðlegt eða óviðeigandi af hálfu þingsins kastað rýrð á Alþingi og skaðað ímynd þess. Þar undir getur fallið ósæmileg framkoma eða van- virðing er lýtur að kynferði, kyn- þætti eða trúarbrögðum. Siðanefnd telur ekki þörf á að greina hvert og eitt atriði í ummælum [Bergþórs og Gunnars]. Þau eru öll af sömu rót- inni sprottin. Þau eru ósæmileg og í þeim felst vanvirðing er lýtur að kynferði þeirra kvenna sem um er rætt. Siðanefnd telur þau einnig til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess, auk þess sem þau sýna Alþingi, stöðu þess og störfum ekki virðingu.“ Ummæli flokksbræðranna um Al- bertínu alþingismann voru af svip- uðum meiði, þ.e. að hún hefði áreitt þá kynferðislega. Í bréfum sem þingmennirnir sendu forsætisnefnd, sem Morgun- blaðið hefur undir höndum, vegna umfjöllunar siðanefndar, segir Bergþór um ummæli þau sem hann lét falla um Albertínu að hann hafi síðan hvorki dregið orð sín til baka, né beðist afsökunar á þeim sér- staklega, enda hafi þarna verið „í engu orðum aukið það sem átti sér stað og í raun alveg galin staða að vera útmálaður í hlutverki geranda í þessu máli, þegar raunin er þver- öfug“. Skrifar hann enn fremur: „Þarna er ég að lýsa erfiðri reynslu sem ég varð fyrir í einkasamtali á meðal vina. Ég er að lýsa því þegar núverandi þingkona gekk svo nærri mér kynferðislega að ég var lengi að átta mig á því hvað hafði gerst. Og ég má ekki tala um það í einka- samtölum!“ Eru athugasemdir Gunnars Braga um ummæli hans um þing- konuna á sömu leið. „Allt það sem þar er sagt stend ég við en vil þó taka fram, líkt og ég gerði við við- komandi, að notkun á orðinu „nauðgun“ var of gróft og var hún beðin afsökunar á þeirri orða notk- un,“ skrifar hann. Aðrir ekki brotlegir Ummæli Sigmundar Davíðs og Önnu Kolbrúnar voru einnig tekin til skoðunar. Voru þar sérstaklega athuguð ummæli Önnu Kolbrúnar þegar hún uppnefndi Freyju Har- aldsdóttur stjórnmálakonu. Segir Anna Kolbrún í bréfi til forsæt- isnefndar að uppnefni séu oft við- höfð um stjórnmálamenn og í um- ræddu tilviki hafi uppnefnið ekki falið í sér illmælgi. Taldi siðanefnd að uppnefnið yrði ekki réttlætt með skýringum um að uppnefni hefðu oft verið viðhöfð um stjórnmálamenn og í þeim kynni að felast einhver broddur án þess að litið yrði á þau sem illmælgi. Þótti siðanefndinni að ummæli Önnu gætu skaðað ímynd Alþingis en erf- itt væri að slá því föstu. „Í ljósi af- mörkunar forsætisnefndar og hversu takmarkaðar upplýsingar liggja til grundvallar þessum um- mælum telur siðanefnd rétt að Anna Kolbrún Árnadóttir njóti vafans að þessu leyti,“ sagði í álitinu. Þá taldi siðanefndin ekki að um- mæli Sigmundar Davíðs, sem voru viðhöfð í tengslum við fullyrðingar annarra viðstaddra, hefðu brotið gegn siðareglum. Gerir Sigmundur í bréfi sínu til forsætisnefndar ekki athugasemd við niðurstöðu siðanefndar að þessu leyti. Þurftu ekki að aðhafast Að auki við umfjöllun um ummæli þingmannanna fjögurra tók siða- nefndin einnig til umfjöllunar hvort allir viðstöddu, þ.e. fjórir ofan- nefndu auk Karls Gauta og Ólafs Ís- leifssonar, hefðu brotið gegn siða- reglum með því að sitja athugasemdalaust undir ummælum annarra þingmanna, ekki sýnt for- dæmi og frumkvæði að því að styðja siðareglurnar í verki. Sagði siða- nefndin að ekki væri unnt að full- yrða að siðareglurnar geri þær kröfur til þingmanna að þeir aðhaf- ist með þeim hætti sem lýst er í af- mörkun forsætisnefndar, og töldust því þingmennirnir sex ekki hafa brotið gegn siðareglunum með þess- um hætti. Ólafur og Karl Gauti sendu for- sætisnefnd ekki bréf með athuga- semdum við álit siðanefndar. Bergþór og Gunnar brutu siðareglur Morgunblaðið/Hari Frá þingflokksfundi Þingmenn Miðflokksins. Frá vinstri sitja við borðið Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Anna Kolbrún Árnadóttir og Ólafur Ísleifsson. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 122.200 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Skemmtileg jólaferð til borgarinnar Regensburg í Bæjaralandi. Þessi miðaldaborg á sér meira en 2.000 ára sögu og hefur hún um árabil verið á heimsminjaskrá UNESCO. Farið verður í dagsferð til gömlu virkisborgarinnar Nürnberg. Aðventan er einstakur tími í Þýskalandi, þegar ljúfan ilminn af jólaglöggi og ristuðum möndlum leggur yfir og tendrar sanna jólastemningu í hjörtum fólks. Jólaferð til Regensburg 28. nóvember - 1. desember Fararstjóri: Aðalsteinn Jónsson Í siðanefnd sátu Margrét Vala Kristjánsdóttir, Róbert H. Haralds- son og Jón Kristjánsson en öll komu þau sem varamenn inn í nefndina. Jón Kristjánsson var for- maður nefndarinnar en í bókun hans við álit siðanefndar kemur fram að vegna stjórnmálaþátttöku hans á liðnum tíma, með eða á móti þeim aðilum sem fjallað er um í álitinu, hafi hann skort óhlut- drægni og því ekki tekið þátt í um- fjöllun nefndarinnar. „[...ég] skrifa því ekki undir efnislegar tillögur hennar,“ skrifar hann en áréttar að starfsmenn nefndarinnar og sérfræðingar hafi að hans dómi farið vandlega yfir stöðu mála og unnið málið faglega og af heið- arleika. Í bréfum bæði frá einstökum Miðflokksmönnum og í sameig- inlegu bréfi frá Önnu, Bergþóri, Gunnari og Sigmundi, sem sent var forsætisnefnd vegna máls- meðferðar siðanefndar, eru gerðar athugasemdir við verklag siða- nefndar og forsætisnefndar. Segir m.a. í bréfi frá fjórmenn- ingunum: „Í ljósi þess að Jón Kristjánsson, sem skipaður var formaður varasiðanefndar í mál- inu sagði sig frá því af pólitískum ástæðum vekur undrun að 7. og 8. varaforseti (ólöglega kjörnir) skuli telja sig bæra til að úrskurða um málið en báðir eru þeir starfandi pólitískir andstæðingar allra þeirra sem um er fjallað.“ Þá er málsmeðferðin einnig gagnrýnd og segir enn fremur í sama bréfi: „Erindi vara- siðanefndar til þingmanna þar sem þeim var gefinn kostur á að gera athugasemdir virðist hafa verið sent eftir að nefndin hafði komist að niðurstöðu. Í athugasemdum þingmannanna kom fram að ekki væri hægt að styðjast við illa feng- in gögn og að öðrum atriðum yrði ekki svarað fyrr en afstaða hefði verið tekin til þeirrar ábendingar. Siðanefndin vísaði þá á 7. og 8. varaforseta (ólöglega kjörinna) sem féllust á að ekki væri hægt að styðjast við umrædd gögn en þess í stað yrði stuðst við umfjöllun til- tekinna fjölmiðla! Þá þegar virðist niðurstaða siðanefndarinnar þó hafa legið fyrir án þess að gefið væri tækifæri til að bregðast við efnisatriðum málsins.“ Talar Bergþór í bréfi sínu, þessu álitaefni tengt, um fjölmiðlana Stundina, DV og Kvennablaðið sem séu þekktir fyrir að „fara nærri því að hatast við Miðflokk- inn“. Virðist í báðum atvikum vera vísað til þess þegar forsætisnefnd fór fram á það við siðanefnd, í samræmi við óskir þingmannanna fjögurra, að endurritum hljóð- upptaka í vörslu nefndarmanna og ritara siðanefndar yrði eytt. Varð siðanefnd við þeirri beiðni og afl- aði „ýmissa annarra gagna og upplýsinga sem hún taldi málið varða“, eins og það var orðað í áliti nefndarinnar. Segir einnig í athugasemdum þingmannanna að málið heyri „augljóslega ekki“ undir siða- reglur Alþingis og að það hafi frá upphafi verið pólitísks eðlis, „og gengið út á að nýta opinbera stöðu til að refsa flokki í minnihluta án stoðar í lögum og reglum“. Lýsa fjórmenningarnir sér sem þolendum alvarlegs brots á lögum og grundvallarreglum réttarríkja, þ.e. málsmeðferðarinnar, og segja „Í stað þess að verja þolendur al- varlegs glæps hafa fulltrúar lög- gjafans leitað allra leiða til að refsa þolendunum. Fordæmið sem fulltrúar Alþing- is, sjálfrar löggjafarstofnunar- innar, gefa með því að byggja á ólögmætum gögnum getur haft víðtæk og skaðleg áhrif til fram- tíðar.“ Styðjast við „illa fengin gögn“  Formaður siðanefndar skrifaði ekki undir álitið sökum pólitískrar þátttöku hans  Fjórmenningarnir ósáttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.