Morgunblaðið - 01.08.2019, Side 60

Morgunblaðið - 01.08.2019, Side 60
60 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019  Knattspyrnumaðurinn Birnir Snær Ingason gekk í gær í raðir HK frá Ís- landsmeisturum Vals á lokadegi fé- lagaskiptagluggans hér heima og skrifaði undir þriggja ára samning við Kópavogsfélagið. Birnir Snær kom til Vals frá Fjölni í haust en hefur ekki átt fast sæti á Hlíðarenda eftir að hafa leikið 64 leiki í efstu deild með uppeld- isfélagi sínu í Grafarvoginum. Læri- sveinar Brynjars Björns Gunn- arssonar hjá HK hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum.  Ísak Bergmann Jóhannesson, sex- tán ára knattspyrnumaður frá Akra- nesi, er í leikmannahópi Norrköping sem hefur verið tilkynntur fyrir leik sænska liðsins gegn Liepaja frá Lithá- en í 2. umferð undankeppni Evr- ópudeildarinnar í kvöld. Ísak er í hópn- um í fyrsta sinn fyrir mótsleik, en hann kom til félagsins síðasta vetur. „Hann hefur tekið ótrúlega miklum framförum og verður að sjálfsögðu að halda áfram að styrkja sig, en hann er einstaklega góður í fótbolta,“ er haft eftir þjálfaranum Jens Gustafsson á heimasíðu Norrköping.  Bakvörðurinn Davíð Ingvarsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiða- bliks. Hinn tvítugi Davíð var á láni hjá Haukum í fyrra en hefur spilað sjö leiki í efstu deild með Blikum í sumar þar sem hann hefur brotið sér leið inn í liðið og vakið verðskuldaða athygli.  Íslenska U18 ára landslið karla í körfuknattleik fór illa með Lúxemborg í lokaleik sínum í riðlakeppni B-deildar Evrópumótsins í Rúmeníu í gær. Ísland vann 96:38 þar sem strákarnir fengu aðeins á sig 13 stig allan síðari hálf- leikinn. Júlíus Orri Ágústsson var stigahæstur með 15 stig og tók auk þess 10 fráköst og gaf 8 stoðsend- ingar. Ísland hafnaði í fjórða sæti rið- ilsins og spilar um 9.-16. sætið.  Ejub Purisevic náði einstökum áfanga þegar hann stýrði Víkingi Ólafsvík gegn Þór í 1. deild karla í knattspyrnu í fyrrakvöld. Hann stýrði þá liði Víkings í 300. skipti í deild og bikar, en hann hefur þjálfað liðið sam- fleytt frá árinu 2003 að einu tímabili undanskildu. Hann tók við Ólafsvík- ingum sem botnliði í 3. deild en hefur síðan leikið þrjú tímabil í úrvalsdeild og komist tvisvar í undanúrslit bik- arkeppninnar.  Kylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR hefur farið upp um 1.087 sæti á heimslistanum í golfi fyrstu sjö mánuði ársins. Á nýja listan- um sem gefinn var út í þessari viku er Guðmundur í 576. sæti og fór niður um sjö sæti milli vikna, en í ársbyrjun var hann í 1.656 sæti listans. Guð- mundur er að nálg- ast besta árangur Íslendings á listanum frá upphafi, en Birgir Leifur Haf- þórs- son komst í 459. sæti fyrir tveimur árum. Eitt ogannað NOREGUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Norska knattspyrnuliðið Start frá Kristiansand er á góðri siglingu undir stjórn Skagamannsins Jóhannesar Þórs Harðarsonar í næstefstu deild karla. Er liðið nú í 3. sæti og hefur unnið fjóra leiki í röð. Jóhannes tók við liðinu þegar deildin var að byrja. Til stóð að ráðningin yrði til skamms tíma en fyrr í sumar var tilkynnt að hann myndi stýra liðinu út tímabilið hið minnsta. „Til að byrja með var ég ráðinn tímabundið og stjórnarmenn fóru í það ferli að skoða nokkra sem komu til greina og ég var svo sem einn þeirra. Það ferli dróst aðeins og við náðum að komast að samkomulagi um að ég myndi sinna starfinu út tímabilið og þá verður staðan tekin. Þá förum við yfir málin,“ sagði Jó- hannes þegar Morgunblaðið náði tali af honum og hann kvartar ekki undan úrslitunum í síðustu leikjum. „Okkur hefur gengið ágætlega og ágætur meðbyr verið frá byrjun. Það var ekkert stórmál þannig lagað að hoppa inn í starfið. Til að byrja með var þetta náttúrlega tímabundin ráðning. Þess vegna fylgdi manni allt- af að einhver annar gæti tekið við. Þá vissi maður ekki hvort það yrði dag- inn eftir eða eftir tvær vikur. Það gat gerst hvenær sem var og því var ágætt að fá það út úr heiminum þegar ákveðið var að ég myndi sjá um þetta út tímabilið. Þá gat maður farið á fullt í þau verkefni sem maður vildi fara í. Núna erum við að vinna í leikmanna- málum. Félagaskiptaglugginn er að opnast (í gær) og við þurfum að sinna því og sjá til þess að við séum með betra lið þegar glugginn lokast aftur. Það verða breytingar á hópnum. Flóki (Kristján Flóki Finnbogason) fór heim til Íslands og við erum búnir að fá sóknarmann í staðinn. Líklega verða einhverjar frekari breytingar á leikmannahópnum.“ Flóka mun vegna vel hjá KR Kristján Flóki er genginn í raðir KR-inga. Sýnir Jóhannes ákvörðun hans um að fara heim til Íslands skiln- ing? „Já ég geri það en það er synd að hlutirnir hafi ekki gengið almennilega upp hjá honum hérna hjá okkur. Flóki er frábær fótboltamaður og honum á eftir að vegna vel hjá KR. Ég held að það verði bara jákvætt skref fyrir hann,“ sagði Jóhannes sem síðast var meistaraflokksþjálfari þeg- ar hann stýrði ÍBV til skamms tíma árið 2015. Er hann ánægður með að vera kominn aftur í slaginn? „Jú það má alveg segja það. Þegar ég var kominn til Vestmannaeyja, og orðinn þjálfari ÍBV, þá tóku hlutirnir óvænta stefnu. Dóttir okkar veiktist og ég fór til baka til Noregs. Þá fór maður að hugsa hlutina aðeins upp á nýtt og metnaðurinn gagnvart þjálf- uninni róaðist aðeins, alla vega tíma- bundið. Ég fékk fljótlega vinnu aftur hjá Start og var fyrst um sinn í ung- lingaakademíunni. Ég kom inn í þjálf- arateymi aðalliðsins árið 2017 og hef verið þar síðan. En þegar mér var kastað inn í þjálfarastarfið í upphafi þessa tímabils þá gerðist það óvænt. Dóttir mín hefur náð sér vel og maður getur sinnt þessu af meiri krafti en ég gat um tíma.“ Flakk á milli deilda Jóhannes hefur búið erlendis með fjölskyldu sinni frá því hann gerðist atvinnumaður í Hollandi snemma árs 2001. Er Íslandstengingin ennþá sterk? „Já já, hún er mjög sterk. Ég fylg- ist vel með og fer heim reglulega. Maður veit aldrei hvernig hlutirnir fara á endanum en eins og er þá er ég bundinn hér. Þjálfarastarfið hjá Start er virkilega spennandi en um leið krefjandi verkefni vegna þess að stöð- ugleikann hefur vantað hjá liðinu síð- ustu tíu til tólf árin. Fjárhagurinn hef- ur verið erfiður og liðið hefur flakkað á milli úrvalsdeildarinnar og 1. deild- ar í mörg, mörg ár. Nú eru komnir nýir eigendur sem eru fjársterkir og hafa mikinn metnað. Við erum að byggja upp lið sem gæti farið upp um deild og spjarað sig í úrvalsdeildinni,“ útskýrði Jóhannes en eftir björgunina frá gjaldþroti glímir félagið þó við há- an kostnað vegna mannvirkjaleigu. Kostnaður vegna leikvangs „Við erum með frábæran leikvang sem Start átti til að byrja með. Þegar Start varð nánast gjaldþrota fyrir nokkrum árum keypti sveitarfélagið leikvanginn. Um leið var samið við sveitarfélagið um að félagið leigði leikvanginn. Því fylgir gríðarlegur kostnaður og ég held að félagið sé að borga 14 milljónir norskra króna (um 197 milljónir íslenskra) til sveitarfé- lagsins á hverju einasta ári til þess að geta notað leikvanginn. Hefur þetta rosalega mikil áhrif á rekstur félags- ins og möguleika okkar til þess að sækja leikmenn. Unnið er að því að semja upp á nýtt og auka skilning sveitarfélagsins á því hversu mikil áhrif þetta hefur á félagið. Mikil um- fjöllun hefur verið um þetta í bænum og vonandi munu þeir sem stjórna sýna þessu skilning,“ sagði Jóhannes Harðarson enn fremur. Gott gengi við krefjandi aðstæður í Kristiansand  Start hefur unnið fjóra leiki í röð undir stjórn Jóhannesar Harðarsonar  Lang- tímamarkmið að festa liðið í sessi í úrvalsdeild  Leikvangurinn er þungur baggi Ljósmynd/Ole Endre Kallhovd/IkStart Þjálfarinn Jóhannes Harðarson stjórnar sínum mönnum á hliðarlínunni. Start er í þriðja sæti norsku B-deildarinnar þegar keppnin þar er hálfnuð. Nú er orðið ljóst að Caster Sem- enya, heims- og ólympíumeistari í 800 metra hlaupi, grein Anítu Hin- riksdóttur, fær ekki tækifæri til að keppa á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem haldið verð- ur í Katar í september. Málið er allt hið óvenjulegasta en eins og fjallað hefur verið um í Morgunblaðinu og á mbl.is síðustu mánuðina mældist magn testó- steróns meira í Semenya en eðli- legt telst af náttúrulegum ástæð- um. Hún er sem sagt ekki grunuð um lyfjamisferli en þykir hafa for- skot á keppinauta sína. Alþjóðafrjálsíþróttasambandið bjó í fyrra til reglu um leyfilegt hámark testósteróns hjá konum í 400, 800 og 1.500 metra hlaupum eða einungis í hluta þeirra keppn- isgreina sem stórmót í frjálsum bjóða upp á. Meðfram nýrri reglu er Seme- nya, og þá öðrum sem gætu verið í sömu stöðu, boðið að taka lyf sem eiga að minnka testósterónmagnið. Semenya hefur ekki viljað una þessu og lagt á sig mikla baráttu gegn breytingunum. Málið fór fyrir alþjóðaíþróttadómstólinn og einnig fyrir dómstóla í Sviss en þar er íþróttadómstóllinn með aðsetur. Henni tókst ekki að fá reglubreyt- ingunni hnekkt en um tíma leit út fyrir að gildistökunni yrði frestað fram yfir HM en svo fór þó ekki. Fram kom hjá lögmanni Seme- nya í gær að baráttunni væri ekki lokið og myndi hún halda áfram á grundvelli mannréttindasjón- armiða. Caster Semenya er frá Suður- Afríku og er 28 ára gömul. Hún ætti því að vera á hátindi ferilsins ef mið er tekið af því hvenær flest íþróttafólk nær sínum besta ár- angri. Hún sigraði í greininni á ÓL 2012 og 2016 og á HM 2009, 2011 og 2017. kris@mbl.is AFP Keppir ekki Caster Semenya verður ekki með á heimsmeistaramótinu. Heimsmeistari fær ekki að keppa  Óvenjuleg staða Caster Semenya

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.