Morgunblaðið - 01.08.2019, Side 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
MONACO hægindastóll. Svart PU
leður. 99.900 kr. Nú 29.900 kr.
CACTUS krukka með krana. 8 lítrar.
3.995 kr. Nú 1.995 kr.
STOOL kollur. Svartur.
Ø34x45 cm. 9.900 kr. Nú 2.900 kr.
70%
70%
75%
YORKSHIRE felliborð og 2 fellistólar. 34.900 kr. Nú 14.950 kr.
57%
BALL MULTI loftljós. Hvítt með 7 kúplum.
Ø12 cm. 79.995 kr. Nú 19.999 kr.
50%
útsölulok
af ÖLLUM vörum
70%20-
SUMMER sessa.
40x40 cm. 3 litir.
1.495 kr./stk.
Nú 445 kr./stk.
70%
6. ágúst
Tríóið Meraki kemur fram á Freyju-
jazzi í Listasafni Íslands í dag kl.
17.15. Tríóið skipa Sara Mjöll Magn-
úsdóttir á píanó, Rósa Guðrún
Sveinsdóttir á saxófón og þver-
flautu og Þórdís Gerður Jónsdóttir
á selló. Þær leika djasslög eftir
ýmsa íslenska höfunda svo sem
Einar Scheving, Inga Bjarna Skúla-
son og Þorgrím Jónsson í bland við
eigin verk.
Meraki leikur í Lista-
safni Íslands í dag
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 213. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, miðju-
maður úr HK, var besti leikmað-
urinn í úrvalsdeild karla í fótbolta í
júlímánuði samkvæmt einkunna-
gjöf Morgunblaðsins. „Ég hef
enn þá hrikalega gaman af
þessu. Ég held að ég hafi notið
mín ágætlega eins og margir
liðsfélagar mínir,“ segir Ásgeir
Börkur en viðtal við hann og úr-
valslið júlímánaðar er að finna á
íþróttasíðum. »58
Hef enn þá hrikalega
gaman af þessu
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Jelena Ciric býður áheyrendum í
tónlistarferðalag um Serbíu í Mengi í
kvöld kl. 21. Með henni leika Margrét
Arnardóttir á harmonikku og Ásgeir
Ásgeirsson á gítar. Í kynningu er
bent á að Serbía, sem sé liggi á
krossgötum austurs og vesturs, eigi
sér ríka tónlistarhefð þar sem lifandi
taktar, dularfullar laglínur og litríkar
sögur heilli. Jelena, sem fæddist í
Serbíu, hefur búið og starfað hér-
lendis frá 2016 sem
tónlistarkona. Hún
lauk BA-gráðu í
klassískum söng
frá University of
Toronto og
mastersgráðu í
rytmískri tónlist
frá Berklee
College of
Music.
Söngvar frá Serbíu
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Veðurathugunarstöðin á Hjarðar-
landi í Biskupstungum er heitur
reitur. Veðrið í líðandi viku – og
raunar í allt sumar – hefur verið sér-
staklega gott; sól og bongóblíða nán-
ast upp á hvern dag. Síðastliðinn
mánudag fór hitastig á Hjarðarlandi
í hæstu tölu sem sést hefur á land-
inu bláa á þessu sumri, en klukkan
15 þann dag mældist hitinn á kvika-
silfursmælinum þar 26,5 gráður.
Það er sú opinbera tala sem miðað
verður við, þótt sjálfvirkur mælir
hafi sýnt 0,4 gráðum hærra.
Mestur hiti í ágúst 2004
Hjarðarland er langt inni í landi í
uppsveitum Árnessýslu, ekki langt
frá Gullfossi og Geysi, en þar inn við
hálendisbrúnina gætir oft megin-
landsloftslags, að sögn veðurfræð-
ings. „Mánudagurinn var mollulegur
að maður vissi varla hvort væri
betra að vera úti eða inni í hitanum.
Um miðjan daginn, þegar hitinn fór
hæst, var hér mjög hægur andvari
af austri og léttskýjað. Margir þætt-
ir fóru saman svo hér yrði jafn hlýtt
og tölur staðfesta,“ segir Kolbrún
Ósk Sæmundsdóttir
veðurathugunarmaður.
Kolbún Ósk og Egill Jónsson eig-
inmaður hennar hafa búið frá 1988 á
Hjarðarlandi þar sem veðurathug-
anir hafa verið gerðar frá árinu
1990. Kolbrún tók við starfi veður-
athugunarmanns árið 2004, en 10.
ágúst það sumar náði hitinn á
Hjarðarlandi hæstu tölu sem þar
hefur nokkru sinni sést; 28,5 gráð-
um.
„Þetta var nokkurra daga hita-
bylgja sem gekk yfir landið og metin
féllu víða. Tölurnar frá því á mánu-
daginn eru það sem næst kemst
þessu fimmtán ára gamla meti,“
segir Kolbrún Ósk. Hvorki hún né
Egill vilja dæma um hvort hitabylgj-
an nú tengist loftslagsbreytingum,
sem aðrir kalla hamfarahlýnun af
mannavöldum. Aðeins vísindamanna
eða annarra sérfróðra sé að kveða
upp úr með slíkt. Hinu megi þó
halda til haga að góð veðrátta styðji
við búskapinn á Hjarðarlandi, eins
og annars staðar. Heyskapur hafi
sjaldan gengið jafn vel og í sumar.
Veðurathuganir
fimm sinnum á sólarhring
Á Hjarðarlandi er veður athugað
fimm sinnum á sólarhring; klukkan
6, 9, 15, 18 og 21. Á þeim athugunum
byggjast veðurlýsingarnar af stöðv-
um hringinn um landið sem lesnar
eru á Rás 1 tvisvar á dag. Þá eru
gerðar sjálfvirkar mælingar á bæn-
um á klukkustundarfresti og þær
fara beint og stafrænt til veðurstof-
unnar. Raunar er sjálfvirknin orðin
ráðandi í athugunum á veðri og
mönnuðum stöðvum hefur fækkað
talsvert í seinni tíð.
„Mér finnst gaman að sinna veð-
urathugunum. Þú þarft að fylgjast
með umhverfi þínu og veðráttu og
sjálf spái ég oft – nánast ósjálfrátt –
í skýjafar á himni enda er það hluti
af því sem við þurfum að fylgjast
með og skrá. Þar finnst mér falleg-
ust vindsorfnu netjuskýin á kvöld-
himninum sem stundum eru roða-
slegin í sólarlaginu,“ segir Kolbrún
Ósk að síðustu.
Hjarðarland í hitanum
Hvergi mælst hlýrra á landinu í sumar 26,5 gráður
Heitt við hálendisbrún Bongóblíða í Biskupstungum
Morgunblaðið/Hari
Sumar Kolbrún Ósk og Egill léttklædd við hitamælinn á Hjarðarlandi, en þaðan bárust heitar fréttir í vikunni.