Morgunblaðið - 01.08.2019, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Víkingur R. og Breiðablik mættust
í Pepsi-deild karla á Víkingsvelli sl.
mánudagskvöld þar sem heima-
menn unnu frækinn sigur, 3:2. Búið
er að greina frá leiknum sjálfum í
blaðinu og verða úrslitin því ekki
tíunduð í þaula. Hér skal hins veg-
ar aðeins farið í ættfræðina og
greint frá skemmtilegum tengslum
leikmanna liðanna, þeirra Elfars
Freys Helgasonar, varnarmanns í
Breiðabliki, og Guðmundar Andra
Tryggvasonar, sóknarmanns Vík-
inga.
„Hann gladdi afa sinn“
Faðir Elfars er Helgi Helgason,
sem á árum áður lék í vörninni hjá
bæði Blikum og Víkingum, betur
þekktur sem Basli, og móðurafi
Guðmundar Andra er Gunnlaugur,
bróðir Helga, sem einnig var
varnarmaður í knattspyrnu á sínum
yngri árum og lék alla tíð með
Breiðabliki. Móðir Guðmundar er
Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir, sem
lék knattspyrnu með Breiðabliki, og
faðir hans er Tryggvi Guðmunds-
son, er lék með ÍBV, KR og fleiri
félögum. Foreldrarnir bæði marka-
hrókar á árum áður og Guðmundur
því með margföld fótboltagen.
Að sjálfsögðu mættu bræðurnir
á völlinn í Víkina til að sjá afkom-
endur sína spila. Ekki fór svo að
frændurnir mættust því Elfar var á
bekknum allan tímann og kom ekki
inn á, enda hefur hann verið að
glíma við smávægileg meiðsl. Hins
vegar fór Guðmundur á kostum,
lagði upp fyrsta markið og skoraði
hin tvö. Var valinn besti ungi leik-
maður 14. umferðar í Morgun-
blaðinu í gær.
„Það var gaman að sjá strákinn
skora. Hann gladdi afa sinn svaka-
lega mikið,“ segir Gunnlaugur um
markaskorarann og dóttursoninn.
Þegar slegið var á þráðinn til
Helga að leik loknum sagðist hann
alveg vera búinn að jafna sig, verra
hefði verið að sjá ekki Elfar spila
og þá frændur mætast fyrir alvöru.
„Maður getur sagt í gamni að
hefði Elfar spilað þá hefði hann lík-
lega aldrei látið frænda sinn skora
tvö mörk. En það var allan tímann
alveg ljóst að það var ekki hægt að
tapa þessum leik,“ segir Helgi,
léttur í bragði, en hann lék eins og
áður segir bæði með Breiðabliki og
Víkingi. „Blikarnir vinna bara
næst,“ bætir Helgi við en liðin
mætast aftur í bikarnum 15. ágúst
nk.
Mættust fyrir 43 árum
Leikurinn í vikunni er einnig
áhugaverður fyrir þær sakir að
rétt 43 ár eru liðin síðan Helgi og
Gunnlaugur mættust í efstu deild
með sömu liðum, þ.e. Breiðabliki
og Víkingi. Í Morgunblaðinu 16.
júní 1976 birtist meðfylgjandi
mynd af þeim bræðrum með frétt
um leikinn á Laugardalsvellinum,
sem Ágúst Ingi Jónsson blaðamað-
ur skrifaði. Unnu Víkingar þann
leik 1:0. Þá lék Helgi í vörn Vík-
inga en Gunnlaugur í vörn Blika.
„Ég man vel eftir þessum leik,“
rifjar Helgi upp, „ég hafði þá yfir-
gefið Breiðablik og við bræðurnir
mættumst. Ég var fjögur ár í Vík-
ingi en áður höfðum við spilað sam-
an í vörn Blikanna sem miðverðir,
fjarkinn og fimman. Ég kom síðan
heim aftur í Kópavoginn og við
spiluðum saman einhver ár þar til
við enduðum ferilinn báðir í
Augnabliki,“ segir Helgi.
Gunnlaugur rifjar upp að erfitt
hafi verið að kyngja félagaskiptum
Helga yfir í Víking. „Á þessum
tíma var sjaldgæft að leikmenn
skiptu um lið. Það var rétt svo að
maður byði honum í afmæli þarna
á eftir,“ segir Gunnlaugur og hlær.
Öll börnin með Breiðabliki
Þegar fjölskyldan hittist er lítið
talað um annað en knattspyrnu.
Gunnlaugur á þrjár dætur; Hrafn-
hildi, Helgu og Hlín. Allar spiluðu
þær með Breiðabliki og Hrafnhild-
ur lék einnig með KR. „Síðan á ég
barnabörn sem spila með KR, Val
og Víkingi, þannig að þetta hefur
dreifst ágætlega,“ segir Gunn-
laugur. Dóttir Helga, Melkorka,
lék sömuleiðis lengst af með
Breiðabliki en seinna með Stjörn-
unni.
Ættartengslin eru fleiri af þessu
tilefni þegar farið er að rifja upp
43 ára frétt úr Mogganum.
Tengdadóttir Helga og kona Elf-
ars, Harpa Sif Gísladóttir, er bróð-
urdóttir Ágústs Inga, blaðamanns
og félaga þeirra bræðra.
„Þetta er því allt komið í eina
hringavitleysu,“ segir Basli að end-
ingu og hlær.
Það var ekki hægt að tapa
Bræðurnir Helgi og Gunnlaugur Helgasynir fylgdust grannt með leik Víkinga og Breiðabliks
Léku áður með liðunum Helgi á son í vörn Blika og Gunnlaugur dótturson í sókn Víkinga
Morgunblaðið/Arnþór
Frændur Saman á góðri stund fyrir leik Víkinga og Breiðabliks í vikunni, f.v. Gunnlaugur Helgason, Guðmundur Andri Tryggvason, Elfar Freyr Helgason
og Helgi Helgason. Elfar settist síðan á bekkinn og lék ekki að þessu sinni. Guðmundur Andri fór hins vegar á kostum, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.
Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason
Hárprúðir Gunnlaugur Helgason (t.v.) og Helgi Helgason mættust í leik í
efstu deild 1976 er Gunnlaugur lék með Breiðabliki og Helgi með Víkingi.
Fyrir 43 árum Úrklippa úr íþróttasíðu Morgunblaðsins 16. júní 1976 þegar
sagt var frá leik Breiðabliks og Víkings. Ágúst Ingi Jónsson skrifaði fréttina.
Glæsilegir skartgripir
innblásnir af íslenskri sögu
G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R
Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is