Morgunblaðið - 01.08.2019, Qupperneq 12
Bæjarmynd Horft úr Vaðlareit til Súlna sem eru píramídarnir tveir á þess-
ari mynd, beint yfir byggðinni á Akureyri. Ytri-Súla er lengst til hægri.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Súlur eru bæjarfjall Akureyr-inga og af fjallinu er afarvíðsýnt. Það var löngutímabært að þar væri sett
upp útsýnisskífa svo fólk gæti
glöggvað sig á staðháttum,“ segir
Ingvar Teitsson, ferðagarpur og
læknir á Akureyri. Fyrir nokkrum
dögum var að tilstuðlan Ferðafélags
Akureyrar (FFA), þar sem Ingvar
var lengi í forystu, sett þar hringsjá
eða skífa með vísum á alls 47 fjöll og
staði sem sjást af Ytri-Súlu, sem er
nyrðri tindur Súlna.
Kennimörk í 360°
Talsvert umstang fylgdi því að
koma skífunni fyrir á fjallinu, sem er
í 1.144 m hæð yfir sjó. Aðdragandinn
var líka nokkur. Á vettvangi FFA
var ákveðið í fyrra að setja skífuna
upp, enda leggja margir leið sína á
fjallið. Mannskapur fór á fjallið síð-
asta sumar og teiknaði upp frum-
drög að útsýnisskífu; tók niður
helstu kennimörk sem sjást í 360° af
fjallinu.
„Þarna sér maður Kaldbak í
norðri, Torfufell við framdali Eyja-
fjarðar í suðri og í góðu skyggni
blasa við í austri Herðubreið og
Kverkfjöll. Af mörgu var því að taka
þegar við settum niður á blað það
sem fyrir augu bar. Og víst er rétt
sem Tómas Guðmundsson orti, að
landslag yrði lítils virði ef það héti
ekki neitt,“ segir Ingvar.
Stikuð leið og
hófleg hækkun
Árni Ólafsson arkitekt setti
frumdrög að skífunni á stafrænt
form og letrið var síðan greypt í
messingskífu í Logoflex í Reykjavík.
Skífan var svo krómhúðuð og Vél-
smiðja Steindórs smíðaði undirstöðu
eða stöpul úr ryðfríu stáli.
Smári Sigurðsson á Akureyri
flutti stykkin á tind Ytri-Súlu um
síðustu páska. Það var svo 20. júlí
síðastliðinn sem hópur á vegum
FFA fór á fjallið, steypti undirstöð-
una niður í klöpp og gekk frá öllu
sem þurfti.
Leiðin á Ytri-Súlu er greiðfær
og á flestra færi að ganga þangað
upp, að sögn Ingvars Teitssonar.
Fyrir tæpum þrjátíu árum lét FFA
stika gönguleiðina upp á Súlur frá
bílastæði við Heimari-Hlífá í aust-
anverðum Glerárdal. Félagið hefur
haldið stikunum við síðan, sett
göngubrýr á tvö mýrasund og
trébrú á einn læk á leiðinni, sem er
samtals um 6 km og hækkunin frá
bílastæðinu um 860 m. Hóflegt þykir
að ganga á Ytri-Súlu á tveimur til
þremur klukkustundum.
Í kortabókum
og gagnagrunnum
„Mjög margir leggja leið sína
upp á Ytri-Súlu, enda mikið og
glæsilegt útsýni af tindinum í góðu
veðri,“ segir Ingvar Teitsson, sem
hefur stundað útivist og fjallgöngur í
áratugi. „Þegar við fórum þarna upp
til að koma skífunni fyrir hittum við
allmarga og skiptum svo um gesta-
bókina á fjallinu. Hún hafði verið þar
í tólf mánuði og eru nöfnin í bókinni
samtals 1.446, þar af um helmingur
útlendingar. Þar kemur til að meðal
afþreyingar, sem farþegum á
skemmtiferðaskipum sem koma til
Akureyrar býðst, er að ganga á fjall-
ið, sem margir velja. Þá er þessa leið
að finna í ýmsum kortabókum og
gagnagrunnum. Slíkt skapar áhuga
fólks, sem nú nýtur þess að fræðast
af skífunni um hvað staðirnir sem
blasa við heita.“
Á netinu má finna lista yfir
hæstu fjöll á Íslandi og þar eru Súl-
ur í 48. sæti. Hæsta fjall við Eyja-
fjörð er Kerling, sem er innarlega í
firðinum vestanverðum. Það er 1.538
metrar á hæð og í 18. sæti á listanum
góða. Við mynni Eyjafjarðar að
austanverðu, er svo Kaldbakur, sem
bregður sterkum svip á allt um-
hverfi sitt og sést víða að, langt um-
fram hæðina, sem er 1.167 metrar. Á
landslistanum er Kaldbakur í 54.
sæti.
Hringsjá á útsýnisfjalli
Alls 47 fjöll og staðir eru merkt á skífu á Ytri-Súlu við Akureyri. Þaðan sést vel til Kaldbaks og Kverkfjalla og
raunar víðar um. Margir skrifa í gestabókina á fjallinu, en þangað er stikuð gönguleið sem er á flestra færi.
Fjallagarpar Frá vinstri talið: Ingvar Teitsson, Sigurgeir Haraldsson og
Halldór Brynjólfsson komu skífunni fyrir á Súlutindi á dögunum.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019
m.
Lítil og létt loftpressa. Kemur með
fjórum stútum sem passa á dekk,
bolta, vindsængur og fleira.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee ® M12™ rafhlöðu
Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu)
M12 Inflator
Alvöru loftpressa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Um verslunar-
mannahelgina
verður venju sam-
kvæmt blásið til
fjölbreyttrar úti-
leikjadagskrár á
Árbæjarsafni.
Dagskráin er opin
öllum þeim sem
ætla að njóta
þess sem Reykja-
vík hefur upp á að
bjóða, þessa mestu ferðahelgi ársins.
Bæði sunnudag og mánudag 4.-5.
ágúst geta krakkar til að mynda
keppt í pokahlaupi, stultuhlaupi og
reiptogi milli kl. 13 og 16. Á safninu er
fjölbreytt úrval af útileikföngum sem
krökkum býðst að nota að vild, svo
sem húlahringir, snú-snú, kubb og
stultur. Á gamaldags róluvelli eru ról-
ur, vegasalt og sandkassi með leik-
föngum.
Árbæjarsafn
Boðið í útileiki
Árbær Gleðin í
leiknum.
Hljómsveitin Greifarnir og Siggi Hlö
verða á Spot við Bæjarlind í Kópavogi
um verslunarmannahelgina, nú í 10.
sinn. Þar verða dansleikir á laugar-
dags- og sunnudagskvöld frá kl.
22.00 til 3.30 og brekkusöngur í
brekkunni fyrir neðan SPOT á sunnu-
dagskvöldinu frá kl. 22.30 til mið-
nættis. Frá löngum ferli Greifanna
kannast margir við lög sveitarinnar,
svo sem Útihátíð, Frystikistulagið og
Draumadrottninguna.
Greifarnir eru þekktir fyrir að vera
skemmtilegir á sviði og alveg öruggt
að þeir munu standa undir þeim
væntingum. Sigga Hlö þekkja svo
margir en segja má að hann hafi ver-
ið konungur 80’s-plötusnúðanna á Ís-
landi mörg undanfarin ár. Þá er hann
vinsæll útvarpsmaður.
Kátt í Kópavogi
Greifar á Spot
Greifarnir Standa vel fyrir sínu.
Unglingalandsmót UMFÍ verður sett
með formlegum hætti á íþróttavell-
inum á Höfn á morgun, föstudaginn
2. ágúst. Unglingalandsmótið er
vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð
sem haldin hefur verið frá árinu 1992
og unnið sér fastan sess hjá fjöl-
skyldum um allt land sem helsti við-
burðurinn um verslunarmannahelgi.
Mótið er fyrir 11-18 ára þátttak-
endur sem reyna sig við fjölda
íþróttagreina. Vinsælustu greinarnar
eru knattspyrna, frjálsar íþróttir og
körfubolti. Annað í boði er meðal
annars bogfimi, hlaupaskotfimi,
frisbígolf, glíma, götuhjólreiðar, mót-
orkross, stafsetning, upplestur og
kökuskreytingar. Þá verður hægt að
fara í brennibolta, fótboltapool,
ringó, ganga á stultum og margt
fleira.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, og Elíza Reid forsetafrú ætla
ásamt börnum sínum að taka þátt í
mótinu. Forsetinn er verndari ung-
mennafélagshreyfingarinnar. Guð-
mundur Hjaltason, langafi Guðna Th.
Jóhannessonar, var mikill og ötull
talsmaður hreyfingarinnar. Átti hann
drjúgan þátt í að koma henni á lagg-
irnar skömmu eftir aldamótin 1900
og var annar tveggja fyrstu ritstjóra
Skinfaxa, tímarits UMFÍ.
Auk íþróttaiðkunar kemur fjöldi
listamanna fram á mótinu sem og
vinsælar hljómsveitir.
Unglingalandsmót UMFÍ á Hornafirði
Unglingalandsmót Þátttakendum er tilhlökkunarefni að mæta á mótið góða.
Fótbolti og frjálsar íþróttir