Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019
40% afsláttur af sjóngleri með styrk
við kaup á Cébé útivistargleraugum
Eyesland | Grandagarði 13 | Glæsibæ | Sími 510 0110 | www.eyesland.is
S’TRACK M
Sérhönnuð hlaupagleraugu sem standast hörðustu kröfur
hlaupara, jafnt götuhlaupara og þeirra sem hlaupa utan vega.
Byltingarkennd tækni gerir það að verkum að gleraugun haldast
alveg stöðug. Glerin dökkna í sól og henta því við öll birtuskilyrði.
Hægt er að fá þau með einfókus og með margskiptum glerjum.
CB Wild 6
Einstaklega létt og fíngerð sportgleraugu sem henta vel í alls
kyns útivist og við flestallar aðstæður. Gleraugunum fylgja
þrenn pör glerja sem auðvelt er að skipta um. Dökk spegilgler
eru góð á björtum og sólríkum dögum. Ólituð gler henta vel að
næturlagi. Gul henta vel við slæm birtuskilyrði, auka skerpu og
draga úr augnþreytu.
Njóttu útiverunnar með þínum styrkleika
Fram undan er mikil ferðahelgi. Ís-
lendingar eru duglegir að nýta sér
verslunarmannahelgina til að
ferðast um landið, njóta útiveru og
samvista við ættingja og vini. Gott
helgarfrí er kjörið tækifæri til að
bæta heilsuna, bæði andlega og lík-
amlega, þegar hlé gefst á daglegu
amstri.
Óteljandi möguleikar
til heilsubótar
Á ferð okkar um landið eru ótelj-
andi möguleikar til heilsubótar.
Göngur eru góð hreyfing sem ekki
á að vanmeta.
Hver og einn vel-
ur sér hve langt
er gengið og hve
hratt. Nóg er af
gönguleiðum um
landið allt hvort
sem er í þéttbýli
eða dreifbýli,
merktir göngu-
stígar eða troðn-
ingar. Ekki þarf
glæsta búninga
og aðgangskort til að ganga úti.
Góðir skór og skjólgóð yfirhöfn dug-
ar vel, svo er bara að halda af stað.
Fjallgöngur eru skemmtilegar
fyrir þá sem vilja frekari áskoranir
en einnig góð samvera fyrir fjöl-
skyldur eða hópa. Skynsamlegt að
fara hægt af stað og bæta tindum í
safnið ekki þarf að byrja á hæstu
tindum, það vantar ekki fjöllin á Ís-
landi.
Vandamál leyst í sundlaugum
Sundlaugar um allt land eru
ómetanlegar heilsulindir fyrir okkur
Íslendinga. Hitinn í laugunum hefur
góð áhrif, við finnum minna fyrir
stirðleika og verkjum, það er léttara
að hreyfa sig í vatni. Um allt land
eru frábæra sundlaugar með heitum
pottum og jafnvel köldum. Margir
nota köldu pottana eftir áreynslu til
að slá á stirðleika og eymsli, köldum
pottum fjölgar hratt í laugum lands-
ins og eru vinsælir.
Ekki má gleyma hinu félagslega
hlutverki sundlauga, málin rædd og
hin flóknu vandamál lífsins jafnvel
leyst í heita pottinum auk þess sem
vöðvaverkir og stirðleiki hverfa.
Meðferð gengur
betur með hreyfingu
Lífstílssjúkdóma nútímans þekkj-
um við vel, offitu, streitu, hækkaðan
blóðþrýsting og blóðfitur, oft þarf að
meðhöndla þessa sjúkdóma með
lyfjum. Með reglubundinni hreyf-
ingu og skynsömu mataræði er
hægt að lækka blóðþrýsting og blóð-
fitur, jafnvel þannig að lyfja er ekki
þörf. Hvort sem þarf lyf eða ekki við
þessum kvillum og öðrum gengur
meðferð alltaf mun betur hjá þeim
sem hreyfa sig reglulega, það
þekkja læknar vel.
Hvað þarf þá að hreyfa sig mikið
til að gagn sé af? Við sjáum jákvæð
áhrif af eingöngu 20 – 30 mínútna
hreyfingu á dag 3–4 daga vikunnar.
Æskilegt er að hreyfa sig alla daga
vikunnar í að minnsta kosti 30 mín-
útur, gjarnan fjölbreytt hreyfing en
munum að allt er betra en ekkert.
Úrræði við kulnun,
kvíða og svefnleysi
Margvíslegar hindranir eru hjá
fólki að komast af stað í hreyfingu.
Verkir og stirðleiki, þrekleysi, þung-
lyndi og kvíði. Á öllum heilsugæslu-
stöðvum eru starfandi hreyfistjórar,
sjúkraþjálfarar sem hjálpa fólki að
bæta líðan með hreyfingu, finna
leiðir og úrræði, styðja við og hvetja.
Allir geta fengið hreyfiseðil á sinni
heilsugæslustöð.
Hreyfing og útivist er í dag fyrsta
og oft mikilvægasta úrræðið við
streitu, kulnun, kvíða og svefnleysi.
Allt eru þetta streitusjúkdómar nú-
tímans, óvinnufærni og vanlíðan
vegna þessara sjúkdóma eykst
hratt, við verðum að nota öll úrræði
til að fyrirbyggja streitu, þar er
reglubundin hreyfing mikilvæg.
Ofdrykkja gleður engan
Gætum hófs í áfengisdrykkju, að
skála af góðu tilefni í góðum fé-
lagsskap er annað en ofdrykkja,
sem engan gleður en hefur marg-
víslegar slæmar afleiðingar. Ekki
má gleyma hve drykkja hefur slæm
áhrif á aksturshæfni þessa miklu
ferðahelgi. Athygli og viðbragðs-
flýtir skerðist strax við minnstu
neyslu áfengis. Höfum í huga að eft-
ir einn ei aki neinn. Notum frídag-
ana til að byggja okkur upp fyrir
haustið með hreyfingu, útivist og
samveru.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tjaldbúar Sælt er að eiga sumarfrí, sveimandi út um borg og bí, er sungið í frægum íslenskum dægurlagaslagara.
Útivist og hollusta um
verslunarmannahelgi
Heilsuráð
Sigríður Dóra Magnúsdóttir,
heimilislæknir og framkvæmdastjóri
lækninga Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins.
Sigríður Dóra
Magnúsdóttir
Busl Sund er gæðastund fyrir krakka og aðra, því vatn skapar vellíðan.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Úlfarsfell Hjólreiðar eru fín hreyfing enda hefur verið sköpuð góð aðstaða.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Flúðir um
versló er haldin í fimmta sinn um
verslunarmannahelgina. Mikið verður
um dýrðir alla helgina, en dagskráin
öll miðast við að fjölskyldufólk geti
eytt tímanum saman og skapað góð-
ar minningar.
Af því sem er í boði á Flúðum má
nefna sveitamarkað og furðubáta-
keppni, kveikt verður í brennu og
brekkusöngur tekinn. Þá verða tón-
leikar með Pálma Gunnarssyni og Ey-
þóri Inga og traktoraforfæra Vél-
fangs á sinn fasta stað í dagskránni.
Þar verður til sýnis stærsta dráttar-
vél landsins.
Því til viðbótar verður fjölbreytt
næturlíf og verða allir fremstu tón-
listarmenn landsins þar sem fram
koma Hildur, Bríet, Aron Can, Made in
sveitin og Stuðlabandið. Alla helgina
verður starfrækt upplýsingamiðstöð
og á sama stað verður opið kaffihús.
Miðasala á tónleika og dansleiki er
á www.fludirumverslo.is. Öll dag-
skráin er tíunduð á Facebook-
viðburðinum Flúðir versló 2019.
„Hátíðin hefur jafnan tekist vel og
verið vinsæl. Traktorakeppnin og tor-
færan á laugardeginum er alltaf sá
dagskrárliður sem dregur flesta að,
en þá hafa stundum verið 10-12 þús-
und manna á svæðinu,“ segir Berg-
sveinn Theódórsson, skipuleggjandi
hátíðarinnar, í samtali við Morgun-
blaðið.
Fjölskylduhátíð á Flúðum um helgina
Torfæran alltaf vinsælust
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flúðir Aðstaðan er öll hin besta og veðurspáin fyrir komandi helgi góð.