Morgunblaðið - 01.08.2019, Side 30

Morgunblaðið - 01.08.2019, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Tekið verður á móti fyrstu gest- unum í nýbyggingum Hótels Geysis í Haukadal í dag, 1. ágúst. Alls eru 77 herbergi á hótelinu, öll vel búin þægindum, 29-90 fermetrar að flat- armáli. Eru herbergin í annarri tveggja meginálma bygginganna nýju sem eru um 9.400 fermetrar að flatarmáli. Í hinni álmunni eru gestamóttaka, eldhús og veit- ingasalir sem að hluta eru byggðir utan um eldri byggingar. Útveggir byggingar íþróttaskólans, sem lengi var starfrækur í Haukadal, eru eins konar sviðsmynd þegar gengið er á jarðhæð inn í veitingasalina, þar sem eru sæti fyrir um 450 manns. Vel fyrir öllu séð „Uppbygging þessi hefur verið langt en skemmtlegt ferli og gaman að sjá þessar glæsilegu byggingar reistar,“ segir Mábil Másdóttir hót- elstjóri. Móðir hennar, Sigríður Vil- hjálmsdóttir, ekkja Más Sigurðs- sonar, er eigandi hótelsins en með henni starfa Mábil og Sigurður bróðir hennar. Einnig koma að mál- um Elín Svafa Thoroddsen, eig- inkona Sigurðar, og Sigríður Alma, dóttir Mábilar. Má því segja að þetta sé dæmigert fjölskyldufyr- irtæki, með reyndar tugum starfs- manna annars staðar frá, og segir Elín þau Geysisfólk hafa verið sér- lega heppin með mannskap. Um fjögur ár eru síðan framkvæmd- irnar á Geysi hófust. Byggingarnar, sem Brynhildur Sólveigardóttir er arkitekt að, eru beint fyrir neðan hverasvæðið og var þess því sér- staklega gætt að þær féllu vel inn í umhverfið. Viðarklæðning á út- veggjum gefur skemmtilegan svip og litir falla vel að landi. Innan dyra er sömuleiðis allt mjög fagurlega útbúið og eftirtekt- arvert, samkvæmt hugmyndahönn- un Leifs Weldings sem hefur komið að mörgum sambærilegum verk- efnum. Þar má nefna að veggir eru lagðir íslensku grjóti og timbri. Herbergin eru þá björt og rúmgóð. Svíturnar eru sex; þar af fimm 60 fermetrar að stærð, með bjartri stofu, svefnberbergi, snyrtingu og góðum útsýnissvölum. Þá er vel fyr- ir öllu séð í veitingahúsi og eldhúsi, sem tekið var í gagnið fyrir nokkr- um misserum. Þar er allur búnaður sérvalinn af Bjarka Hilmarssyni, sem hefur verið matreiðslumeistari á Hótel Geysi í um aldarfjórðung. Þægindi og kröfur „Útlitið er bjart og bókanir á hót- elið nýja fara vel af stað, þótt við höfum ekki mikið kynnt okkur til þessa,“ segir Elín Svava Thorodd- sen. „Þótt nú sé aðeins rólegra en áður í ferðaþjónustunni tel ég okkur vera á hárréttum tíma með þetta hótel. Í þjónustu við ferðafólk, eins og öðrum atvinnurekstri, koma allt- af sveiflur og við erum því vel und- irbúin til framtíðar litið. Óvíða er byggt á jafn langri sögu og hér í að taka á móti ferðamönnum. Upphafið rekjum við til þess þegar Friðrik 8. Danakonugur kom í Íslands- heimsókn árið 1907, þá meðal ann- ars með viðkomu á Geysi eins og lengi var í minnum haft.“ Mábil Másdóttir tekur í sama dreng og Elín mágkona hennar og segir starfsemi nýja hótelsins hefj- ast á hárréttum tíma. „Áherslumál okkar er að gestir staldri hér ekki við í eina heldur tvær til fjórar næt- ur. Herbergin á hótelinu eru því bú- in öllum helstu þægindum, enda er það í samræmi við kröfur fólks sem hér gistir þar sem áhugaverðir við- komustaðir eru víða í nágrenninu.“ Umhverfi Skemmtilegt útsýni er af herbergissvölum m.a. yfir hótelgarðinn. Svipur Hótelið fellur vel inn í umhverfið, bæði hvað varðar arkitektúr og litaval. Morgunblaðið/Hari Geysiskonur Frá vinstri: Mábil Másdóttir hótelstjóri, Sigríður Vilhjálms- dóttir hótelstjóri, Elín Svafa Thoroddsen og Sigríður Alma Mábilardóttir. Eldhúsið Bjarki Hilmarsson matreiðslumeistari hótelsins til áratuga. Sviðsmynd Útveggir gamla íþróttaskólans eru nú inni í móttöku veitingasala hótelsins. Glæsihótel á Geysi opnað í dag  Sex svítur í 77 herbergja hóteli Glæsileg hönnun bygginga sem falla að umhverfinu  Gamlir útveggir eru inni í miðju húsi  Opnað á hárréttum tíma  Fjölskyldufyrirtæki í ferðaþjónustu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.