Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 1. ágúst 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.08 121.66 121.37 Sterlingspund 147.56 148.28 147.92 Kanadadalur 91.87 92.41 92.14 Dönsk króna 18.068 18.174 18.121 Norsk króna 13.857 13.939 13.898 Sænsk króna 12.68 12.754 12.717 Svissn. franki 122.22 122.9 122.56 Japanskt jen 1.1145 1.1211 1.1178 SDR 166.48 167.48 166.98 Evra 134.92 135.68 135.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.8311 Hrávöruverð Gull 1428.45 ($/únsa) Ál 1774.0 ($/tonn) LME Hráolía 63.91 ($/fatið) Brent unblaðið eftir viðtali við Má Guð- mundsson seðlabankastjóra. Hann gat ekki veitt það en bankinn sendi frá sér tilkynningu ásamt afriti af undanþágunni sem veitt var 9. febr- úar 2012. Í tilkynningunni segir að af lestri fréttar blaðsins hafi lesendur mátt draga þá ályktun að „annað hvort hafi Sigríður Benediktsdóttir brotið reglur sem tóku gildi hinn 8. febrúar 2012 um þátttöku starfsmanna bankans í viðskiptum vegna gjald- eyrisútboða og fjárfestingarleiðar eða að bankinn hafi brotið reglurnar með því að heimila Sigríði slíka þátt- töku. Hvorugt er rétt eins og út- skýrt er hér á eftir.“ Í kjölfarið er rakið að Sigríður hafi ásamt eiginmanni sínum sótt um þátttöku í fjárfestingarleiðinni 23. janúar 2012, rúmum þremur vik- um eftir að hún var ráðin fram- kvæmdastjóri hjá bankanum. „Yfir- stjórn bankans var ekki kunnugt um að Sigríður og eiginmaður hennar höfðu lagt inn umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið enda engin slík upplýsingaskylda á Sigríði. Um leið og reglur bankans voru kynntar 7. febrúar varð hins vegar ljóst að skera yrði úr því álitaefni hvort þær næðu til Sigríðar varðandi fyrsta út- boðið sem fór síðan fram 15. febrúar, þ.e. hvort hún væri í hópi þeirra starfsmanna bankans sem höfðu eða gátu haft upplýsingar um áætlun um losun fjármagnshafta eða upplýsing- ar um útfærslu og framkvæmd gjaldeyrisútboða og fjárfestingar- leiðar bankans sem ekki voru öllum aðgengilegar.“ Segir í tilkynningu bankans að við mat á því hvort Sigríður hafi fallið undir reglurnar eða ekki hafi verið nauðsynlegt að gæta meðalhófs og að umræddar reglur væru ekki „íþyngjandi umfram tilefni“. Í reglunum sem seðlabankastjóri setti er, ásamt honum sjálfum, að- stoðarseðlabankastjóra, aðalhag- fræðingi, aðallögfræðingi, fram- kvæmdastjórum bankans, nefndar- mönnum í peningastefnunefnd, starfsmönnum sem sátu í fram- kvæmdanefnd um fjárfestingarleið, starfsmönnum lánamála ríkissjóðs og starfsmönnum gjaldeyriseftirlits, þar sérstaklega tiltekið að þeir starfsmenn bankans sem komi að því að „meta áhrif áætlunarinnar á stöðugleika í peninga- og gengismál- um“ sé óheimil þátttaka í gjaldeyr- isútboðum í tengslum við fjárfest- ingarleiðina. Bankinn hefur ekki útskýrt hvernig Sigríður Benedikts- dóttir, þótt í hlutastarfi hafi verið á þessum tíma, hafi getað komist hjá því að koma að mati á áhrifum af- náms gjaldeyrishafta á stöðugleika í peninga- og gengismálum, þ.e. meg- inverkefni sviðsins sem hún veitti forstöðu allt frá ársbyrjun 2012. Í svörum við tveimur aðskildum fyrirspurnum Morgunblaðsins til Seðlabankans, sem sendar voru bankanum 24. og 30. júlí, ítreka starfsmenn bankans að Seðlabank- inn hafi aldrei veitt neinum starfs- mönnum „sem höfðu eða gátu haft upplýsingar um áætlun um losun fjármagnshafta eða upplýsingar um útfærslu og framkvæmd gjaldeyris- útboða og fjárfestingarleiðar bank- ans,“ undanþágu til þátttöku í um- ræddum gjaldeyrisútboðum. Veitti Sigríði undanþágu frá nýsettum reglum bankans Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Efnt var til gjaldeyrisútboða á vettvangi Seðlabankans í tengslum við fjárfestingarleiðina svokölluðu á árunum 2012 til 2015. Með henni var ætlunin að draga úr uppsöfnuðum og yfirvofandi þrýstingi á íslensku krónuna.  Sigríður Benediktsdóttir hagnaðist um 2 milljónir með þátttöku í gjaldeyrisútboði  Seðlabankinn segir að hún hafi engar upplýsingar haft á þeim tíma er hún tók þátt Sigríður Benediktsdóttir Már Guðmundsson Hagnaður Ís- landsbanka eftir skatta nam 4,7 milljörðum króna á fyrri árshelm- ingi. Dregst hagnaðurinn saman um 2,4 milljarða miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður bankans af reglu- legri starfsemi nam 5,7 milljörðum samanborið við 6,9 milljarða í fyrra. Hreinar vaxtatekjur jukust og námu 16,8 milljörðum samanborið við 15,3 milljarða á fyrri árshelmingi 2018. Vaxtamunur hélst óbreyttur eða 2,8%. Hreinar þóknanatekjur jukust einnig og voru 6,6 milljarðar, sam- anborið við 5,8 milljarða í fyrra. Virðisbreyting útlána var hins vegar neikvæð um tæpa 1,9 millj- arða en var jákvæð um rúma 1,9 milljarða á fyrri árshelmingi 2018. Stjórnunarkostnaður jókst um 4,7% milli ára og nam 14,4 milljörðum. Þá nam hlutdeild Íslandsbanka í tapi Borgunar, sem er dótturfélag bank- ans, 575 milljónum króna. Birna Einarsdóttir bankastjóri segir að ágætur gangur hafi verið á rekstri bankans það sem af er ári. „Kostnaðarhlutfall móðurfélags er nú 55% sem er í takt við markmið bankans. Þetta er jákvætt og end- urspeglar vinnu undanfarinna mán- aða við að auka tekjur og draga úr kostnaði en samsvarandi hlutfall fyr- ir samstæðu er 62%. Útlánavöxtur hefur haldist stöðugur og mælist eignasafn bankans sterkt í alþjóð- legum samanburði.“ Hagnaður bankans minnkar  Borgun dregur niður hagnað Íslands- banka milli ára Birna Einarsdóttir Morgunblaðið leitaði viðbragða Gylfa Magnússonar við fréttum af þátttöku Sigríðar Benediktsdóttur í gjaldeyrisútboði Seðlabankans í febrúar 2012. Gylfi baðst undan viðtali þar sem hann sagðist ekki hafa haft upplýsingar um málið. Það hafi ekki kom- ið inn á borð bankaráðsins frá því að hann tók sæti í því. Inntur eftir því hvort hann telji að málið verði tekið fyrir í bankaráðinu sagði hann líkur standa til þess. Samkvæmt upplýsingum frá honum mun bankaráðið koma næst saman 21. ágúst. Hann telur þó aðspurður litlar líkur á að mál- ið rati á borð ráðsins á þeim fundi. Skýringuna á því megi rekja til þess að fundurinn verði sá fyrsti sem haldinn er eftir að nýskipaður seðlabankastjóri, Ás- geir Jónsson, tekur við embætt- inu. Það gerist um miðjan mán- uðinn. Gylfi var meðal umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra sem auglýst var nú í vor og forsætis- ráðherra skipaði í 24. júlí. Gylfi var ásamt Ásgeiri og tveimur öðrum umsækjendum tal- inn hæfastur til þess að gegna embættinu. Sérstök hæfnisnefnd komst að þeirri niðurstöðu. For- maður nefndarinnar var Sigríður Benediktsdóttir, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fjármálastöð- ugleikasviðs. Hún gegnir nú kennslustöðu við Yale-háskóla í Bandaríkjunum en hún situr einn- ig í bankaráði Landsbankans. Formaður hafði ekki upplýsingar BANKARÁÐIÐ MUN FUNDA UM MÁLIÐ Gylfi Magnússon ● Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði í gær við- miðunarvexti um 25 prósentur, en lækkunin er sú fyrsta frá því í fjár- málakreppunni ár- ið 2008. Þá hefur bankinn gefið til kynna frekari til- slökun pen- ingastefnu reynist hún nauðsynleg. Í yfirlýsingu bankans segir m.a. að efnahagsleg óvissa á heimsvísu réttlæti ákvörðunina. Jerome Powell seðla- bankastjóri sagði að hvorki væri ákvörðunin upphaf hrinu lækkana, né lofaði bankinn því að vaxtalækkunin í gær yrði sú eina. Lækkuðu vexti í fyrsta sinn frá því árið 2008 Jerome Powell BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Már Guðmundsson seðlabankastjóri veitti Sigríði Benediktsdóttur, ný- ráðnum framkvæmdastjóra fjár- málastöðugleikasviðs bankans, und- anþágu til þátttöku í hinni svokölluðu fjárfestingarleið bank- ans. Þetta var gert með ákvörðun sem undirrituð var 9. febrúar 2012. Tveimur dögum fyrr hafði Már sett sérstakar reglur sem lögðu bann við því að tilteknir starfsmenn bankans og fjölskyldur þeirra tækju þátt í fjárfestingarleiðinni. Í þeim hópi sem féll undir regluverkið var fram- kvæmdastjóri fjármálastöðugleika- sviðs. Í hlutastarfi fyrstu mánuðina Sigríður tók við starfi fram- kvæmdastjóra við bankann 1. janúar 2012 en gegndi því í hlutastarfi til 23. apríl þegar hún tók við því í 100% starfshlutfalli. Í fyrrnefndri ákvörðun seðla- bankastjóra segir að reglurnar nái ekki til hennar þar sem hún sæki „ekki framkvæmdastjórafundi fyrir þann tíma [23. apríl]“. Þar segir enn fremur að hún hafi ekki tekið þátt í mótun áætlunar um losun gjaldeyr- ishafta né regluverks varðandi svo- kallaða fjárfestingarleið. „Þá hefur hún ekki fengið neinar upplýsingar um ofangreint á framkvæmdastjóra- fundum.“ Seðlabankinn hefur gert þessa ákvörðun Más opinbera í kjölfar þess að greint var frá því í Við- skiptaMogganum í gær að Sigríður hefði flutt fjármuni til landsins í fyrsta útboðinu sem Seðlabankinn efndi til í tengslum við fjárfesting- arleiðina. Í svari frá Sigríði til blaðs- ins kom fram að hún hefði tekið þátt í fjárfestingarleiðinni 15. febrúar 2012 en að hún hefði ekki komið til starfa hjá bankanum fyrr en 20. apríl sama ár. Í ítrekuðum svörum til blaðsins sagði hún að fjármagnið sem hún hefði flutt til landsins hefði numið 15 þúsund evrum. Hið rétta er að hún flutti inn 50 þúsund evrur á grund- velli leiðarinnar. Leiðréttingu þar um sendi Sigríður á blaðamann, að- faranótt miðvikudags, um klukku- stund eftir að Morgunblaðið fór í prentun. Afsláttur vegna þátttökunnar upp á tvær milljónir króna Samkvæmt upplýsingum um út- boðið má sjá að fjármunirnir sem Sigríður flutti inn til landsins námu ríflega 10 milljónum króna. Helm- ingi fjárhæðarinnar, eða 25 þúsund evrum var skipt á skráðu miðgengi evru á þessum tíma eða 161,9 en hin- um helmingnum á ákvörðuðu út- boðsgengi eða 240 krónur á móti hverri evru. Því er ljóst að geng- ishagnaður Sigríðar af þátttöku í út- boðinu, vegna þess afsláttar sem veittur var, nam rétt tæpum tveimur milljónum króna. Líkt og fram kom í gær átti það fjármagn sem Sigríður og eiginmað- ur hennar fluttu til landsins uppruna sinn sem launatekjur þeirra í Bandaríkjunum þar sem þau höfðu búið allt frá árinu 1998. Bankinn snýr blaðinu við Í kjölfar fyrrnefndrar fréttar í ViðskiptaMogganum óskaði Morg-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.