Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 41

Morgunblaðið - 01.08.2019, Síða 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 ✝ Jóna M. Helga-dóttir fæddist 19. september 1942 í Árbæ, Holtum, Rangárvallasýslu. Hún lést á dval- arheimilinu Lundi á Hellu 19. júlí 2019. Jóna ólst upp í Árbæ hjá fósturfor- eldrum sínum, Jóni Jónssyni, f. 7. júní 1901, d. 16. septem- ber 1978, og Þórhildi Júlíu Sig- urðardóttur, f. 17. júlí 1901, d. 10. júlí 1972. Uppeldissystir er Lóa Jónsdóttir, f. 25. apríl 1932. Foreldrar Jónu voru Helgi Ingólfur Eysteinsson, f. 30. maí 1925, d. 31. mars 2015, og Kristín eiga þau þrjár dætur, Jónu Krist- ínu, f. 11. janúar 2004, Svandísi Ósk, f. 11. janúar 2004, og Önnu Lísu, f. 10. maí 2005. Fyrir átti Þórhallur dóttur, Sigurveigu, f. 18. júní 1986. Móðir hennar er Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, f. 10. apríl 1967. Sigurveig er gift Sigurjóni Ólafssyni, f. 9. október 1982, og eiga þau einn son, Pétur, f. 9. desember 2015. Stjúpdóttir Þórhalls og dóttir Agnesar er Vigdís Finnboga- dóttir, f. 17. júní 1983. Vigdís er gift Sæmundi Sveinssyni, f. 29. ágúst 1984, og eiga þau tvo syni: Sigurð Ásgeir, f. 18. desember 2010, og Ólaf Odd, f. 5. mars 2013. Á Hellu hófu Jóna og Svavar búskap. Þrúðvangur 24 varð framtíðarheimili þeirra. Jóna vann við verslunarstörf alla sína starfsævi. Útför Jónu fer fram frá Odda- kirkju í dag, 1. ágúst 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. Olga Jónsdóttir, f. 28. nóvember 1923, d. 11. febrúar 2019. Systkini hennar eru: Eysteinn Ágúst, f. 24. sept- ember 1948, Matt- hildur, f. 16. desem- ber 1950, og Guðleif, f. 21. októ- ber 1956. Á Jónsmessu 21. júní 1961 giftist Jóna Svavari Kristinssyni, f. 29. febrúar 1936, d. 26. apríl 2000, frá Brúarlandi á Hellu. Þau eign- uðust einn son, Þórhall Jón, f. 13. desember 1960. Þórhallur er giftur Agnesi Ólöfu Thor- arensen, f. 5. október 1966, og Elsku Jóna mín. Það eru örugg- lega ekki margar eins og ég sem eru búnar að þekkja tengdamóður sína lengur en eiginmanninn, son þinn, en það átti við um okkur tvær. Ég fluttist á Hellu 1985 og byrjaði að vinna í Kaupfélaginu Þór. Þar var fyrir áberandi falleg kona sem maður tók strax eftir og bar af, hárið allaf flott uppgreitt og neglurnar alltaf lakkaðar og flottar og þannig var hún fram á síðasta dag. Við náðum vel saman mjög fljótt og var hún afar hjálpsöm og iðin við að leiðbeina þessari ungu óreyndu stelpu þegar við átti og unnum við saman í rúm 13 ár sem var góður tími sem aldrei bar skugga á. Svo gerðist það fyrir tæpum 24 árum að við sonur henn- ar hnutum hvort um annað og þá voru örlögin ráðin, hún varð tengdamóðir mín. Árið 2000 missti Jóna Svavar sinn sem varð henni gífurlega mikið áfall og haustið 2003 var svo fótunum skyndilega kippt undan henni aftur en þá greindist hún með krabbamein í lunga og var meinið þess eðlis að taka þurfti stóran hluta þess burt. Eftir þá aðgerð var henni tjáð að nú yrði hún að hætta að vinna og mjög sennilega fara á örorku en það var nú nokkuð sem hún gat ekki hugsað sér. Um leið og hún gat djöflað sér á lappir aftur fór hún að vinna aftur og var mætt í vinnuna sína í búðinni tveimur og hálfum mánuði síðar enda fannst henni alltaf gaman að vinna og hún kláraði starfævina sína 70 ára með sóma. Jóna var einstaklega hjartahlý kona og vildi allt fyrir sína gera, því kynntist ég sérstak- lega eftir að við eignuðumst stelp- urnar okkar þrjár sem voru auga- steinar ömmu sinnar frá fyrstu tíð. Þegar tvíburarnir okkar fæddust og komu heim kom hún nánast á hverju kvöldi til að taka þátt í umönnun þeirra, baða, skeina, mata, gefa pela og hátta. Henni fannst þetta best af öllu og ekki versnaði það þegar sú þriðja bætt- ist við rúmlega ári á eftir þeim. Henni fannst hún ríkust af öllum að eiga þessi gull sín eins og hún kallaði þær og fá að taka þátt í lífi þeirra, hlusta á alls konar sögur, fara á vorhátíðir, jólasýningar, skólaslit og ekki síst fimleikasýn- ingar síðustu árin. Þessi 16 ár sem hún fékk að vera með okkur eftir stóru aðgerðina eru svo sannar- lega blessun og er ég endalaust þakklát fyrir það en síðustu tvö til þrjú ár hafa verið henni erfið og þungbær. Lungun fóru að gefa eft- ir og versna og þrótturinn að dvína vegna meins í höfði sem rekja mátti til þeirra. Jóna var ótrúlega þrautseig kona og lét aldrei neinn segja sér hvað hún gæti eða ætti að gera, hún fór bara sínar leiðir og það var hennar leið. Ég á eftir að sakna hennar mikið og lengi því hún var líka besta vinkona mín í rúm 34 ár og það bar aldrei skugga á okkar vináttu. Ég er þér þakklát fyrir allt sem þú hefur gefið mér í gegnum árin okkar saman. Ást, hlýja og væntumþykja er það sem situr eftir þegar ég hugsa um þig, elsku Jóna mín. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Með hjartans þökk fyrir allt. Þín Agnes Ólöf Thorarensen (Lóa). Elsku besta amma. Það er mjög skrýtið að þú skulir ekki vera lengur með okkur, því þú varst ekki bara amma mín, þú varst líka besta vinkona mín því við náðum mjög vel saman. Þú hefur verið með okkur síðan ég man eftir mér. Þú dekraðir okkur mikið, gafst okkur nammi og eig- inlega bara allt sem okkur langaði í. Það sem ég mun sakna mest er spjallið okkar. Spjallið um ein- hverja stráka og spjallið um sög- urnar úr skólanum. Það sem var best við ömmu var það að hún var alltaf hreinskilin og sagði bara það sem henni fannst. Það þurfti ekki mikið til til þess að láta hana hlæja eða segja brandara. Það sem ég man og mun alltaf muna er hversu fín hún var og neglurnar alltaf lakkaðar og hversu góð hún var við alla í kringum sig. Hún var aldrei reið þótt við gerðum eitt- hvað sem við ættum ekki að gera. Ég elska þig elsku amma mín. Þín verður sárt saknað, elsku amma. Svandís Ósk. Elsku amma mín. Þú varst al- gjört yndi, það er mjög skrítið og erfitt að hugsa út í það að ég hitti þig aldrei aftur. Þú varst alltaf svo fín og sæt. Það var alltaf svo gam- an hjá okkur, á jólunum, í öllum sumarbústaðaferðunum, þegar við fórum öll saman í berjamó og fullt fullt meira. Svo var eitt sem mér fannst alltaf gaman að heyra en það var hvað fólki fannst ég lík þér í útliti. Ég á líka eftir að sakna þess að hitta þig ekki á kvöldin og borða með þér og spjalla. Svo er líka eitt sem ég gleymi seint og það eru öll prakkarastrikin sem við systurnar gerðum þegar við vorum í pössun hjá þér. Ég mun sakna þín ótrúlega mikið. Þín Anna Lísa. Ég kveð ömmu mína með mikl- um söknuði en fyrst og fremst þakklæti fyrir þann tíma sem við áttum saman og allar þær minn- ingar sem ég á um hana. Amma var mér afar kær og í henni átti ég góða vinkonu. Amma lagði mikið upp úr því að hafa fallegt í kringum sig. Á heim- ili hennar og afa var allt í röð og reglu, fallega var búið um rúmin, allt var hreint og strokið og hver hlutur á sínum stað. Hún amma mín var að sama skapi ávallt vel tilhöfð með varalit og lakkaðar neglur. Hún hafði gaman af því að elda og baka og gefa gestum góð- an mat. Þegar ég var barn dvaldi ég oft hjá ömmu og afa. Hún var þá búin að gera frómas og elda uppáhalds- matinn minn, sem var á þessum tíma grjónagrautur, slátur eða bjúgu með uppstúi sem afi bjó til, uppstú var eitt af því fáa sem afi minn gerði þegar kom að elda- mennsku. Það var alltaf mikil veisla þegar ég var hjá henni ömmu minni og ég fékk allt sem mig langaði í og meira til. Það var fastur liður að fara í búðina þar sem ég fékk að kaupa happa- þrennu sem mér fannst ævintýra- lega spennandi. Á kvöldin spiluð- um við oftar en ekki manna eða kana, eða sátum við eldhúsborðið og töluðum saman. Amma hafði góðan húmor og fannst skemmti- legt að spjalla og hlæja. Þegar ég var stelpa sendi amma mér reglulega bréf sem ég beið alltaf spennt eftir. Í bréfun- um var eitt sett, happaþrenna og smá peningur. Stundum sendi hún mér líka ullarsokka úr angóru. Amma var aldrei mikið fyrir ketti. Ef hún sá kött í garðinum hjá sér var hún vanalega stokkin af stað með vatnskönnu til að reka hann í burtu. Það vakti því mikla undrun þegar amma og afi tóku að sér kettling sem kisan mín hafði eignast og þurfti að koma fyrir. Þetta gerðu þau eftir mikið suð í mér og ég skil ekki enn hvernig mér tókst að telja þau á þetta. Amma hafði mikinn áhuga á því hvort ég ætti kærasta og brýndi reglulega fyrir mér mikilvægi þess að eiga góðan mann. Hún var hæstánægð með Sigurjón og með þeim myndaðist gott samband og þótti henni ekki minna vænt um hann en mig. Amma var óhrædd við að segja mér hvernig best væri að gera hlutina. Eftir að ég átti Pétur sneri það mest að barnauppeldi en hún bar alltaf virðingu fyrir því ef ég vildi gera hlutina á annan hátt. Þegar systur mínar fæddust færði það ömmu minni ómælda gleði. Hún naut þess að snúast með þær og hún hafði einstaklega gaman af því að tala um þær og hvað þeim gengi vel í skólanum og íþróttum. Amma var alltaf svo mikil amma. Hún hafði líka lag á að láta hlýða sér þótt það væri aldrei gert með látum. Amma var ákveðin og gat verið föst fyrir. Þegar Pétur sonur minn fæddist vorum við Sigurjón búsett í Bandaríkjunum, en hún lét það ekki stoppa sig í að sjá langömmu- barnið sitt. Þetta var langt og erf- itt ferðalag fyrir hana í janúar. Pétur var frá upphafi hrifinn af langömmu sinni og hún af honum. Amma var mjög dugleg og kvartaði aldrei. Hún hafði mikið dálæti á því að fara í búðir og þá sérstaklega til þess að skoða föt. Þegar við fórum saman í búðir átti ég oft fullt í fangi með að fylgja henni eftir. Ömmu fannst alla tíð gaman að vinna og henni fannst mjög mikil- vægt að ég væri með vinnu og væri dugleg að vinna. Hún naut sín í sínu starfi og nálgaðist það með sömu virðingu og hún sýndi öllum hlutum. Ég verð ömmu minni ævinlega þakklát fyrir allt það sem hún var mér. Sigurveig Þórhallsdóttir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Elsku frænka, takk fyrir sam- fylgdina, minning þín mun lifa með okkur um ókomna tíð. Við biðjum að heilsa Svavari og fleiri góðum þarna uppi. Þau hafa tekið vel á móti þér og við trúum ekki öðru en það sé setið að góðu spjalli, enda eflaust margt að frétta. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur elsku Þórhallur, Lóa og fjölskylda, hugurinn er hjá ykkur á þessum erfiða tíma. Jóna Sigríður, Kristinn, Margrét og fjölskyldur. Góður engill Guðs oss leiðir gegnum jarðneskt böl og stríð, léttir byrðar, angist eyðir, engill sá er vonin blíð. (Helgi Hálfdánarson) Vinkona mín Jóna Helgadóttir lést 19. júlí sl. á dvalarheimilinu Lundi, Hellu. Hún hafði átt við erfið veikindi að stríða. Hún var aðeins stuttan tíma á Lundi, þráði að vera heima eins og flestir. Jóna ólst upp á Árbæ í Holtum. Eiginmaður hennar var Svavar Kristinsson. Sonur þeirra er Þór- hallur Jón. Svavar lést árið 2000. Þórhallur og fjölskylda hafa reynst Jónu einstaklega vel í veik- indum hennar. Jóna var glæsileg kona og átti fallegt heimili á Þrúð- vangi 27. Garðurinn var ávallt vel hirtur og blómum skrýddur. Jóna ræktaði sín sumarblóm sjálf. Jóna ólst upp í nágrenni við mig. Á Hellu höfum við verið ná- grannar í rúm 50 ár, unnum á sama vinnustað í 22 ár. Ég vil þakka Jónu gott nágrenni og margar góðar stundir. Þórhalli, Lóu, dætrum þeirra og öðrum aðstandendum sendi ég samúðarkveðjur. Blessuð von, í brjósti mínu bú þú meðan hér ég dvel, lát mig sjá í ljósi þínu ljómann dýrðar bak við hel. (Helgi Hálfdánarson) Hvíl þú í friði. Guðríður Bjarnadóttir. Jóna M. Helgadóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Jóna. Við áttum margar notalegar stundir saman, t.d. þegar ég kom að gista hjá þér þá var ég yfirleitt tekin í kennnslu í naglasnyrtingu. Hún dekraði alltaf við okk- ur þegar við komum og allt- af þegar við vorum að fara að sofa makaði hún allt andlitið á okkur með júgur- smyrsli. Svo spiluðum við mörg lúdó. Oft bauð hún okkur í mat og ef við klár- uðum ekki af disknum vor- um við eltar inn í stofu með diskinn. Þín verður saknað mikið og lengi. Jóna Kristín. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, STEFÁN HAUKUR ÓLAFSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði laugardaginn 27. júlí. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 2. ágúst klukkan 14. Guðrún Ásbjörg Stefánsd. Tryggvi Sigtryggsson Stefán Haukur Tryggvason Guðbjörg Gísladóttir Jakob Ólafur Tryggvason Hanna Mjöll Ólafsdóttir Heiðrún Tryggvadóttir Fjölnir Ásbjörnsson Ásta Tryggvadóttir Paul Eric Fuller langafa- og langalangafabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR ÁMUNDASON verkfræðingur, Norðurbakka 17a, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 28. júlí. Útförin verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 2. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög. Þuríður Edda Gunnarsdóttir Gunnar Ág. Beinteinsson Auður Erla Gunnarsdóttir Jón R. Björnsson Ásta Björk, Auður Ýr, Andrea Helga, Rebekka og Helga Sif Okkar kæri ÞÓRIR HELGASON læknir verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 6. ágúst klukkan 13. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Auður Jónsdóttir Hilda Klara Þórisdóttir Bogi Andersen Anna Sesselja Þórisdóttir Helga Þórisdóttir Theodór Jóhannsson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, Sléttuvegi 23, er látin. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 7. ágúst klukkan 13. Jóhann Guðmundsson Guðrún G. Kristinsdóttir Helga Guðmundsd. Sördal Bjarnfríður Guðmundsdóttir Guðmundur Ingi Haraldsson Ófeigur Guðmundsson Friðgerður María Friðriksd. barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur sonur okkar, bróðir, barnabarn, mágur og frændi, ERLINGUR PÁLL BERGÞÓRSSON, Háabarði 15, lést mánudaginn 29. júlí. Karitas Erlingsdóttir Bergþór Bergþórsson Valgeir Helgi Bergþórsson Hildur Jóna Bergþórsdóttir Hákon Ingi Jörundsson Jörundur Þór og Sverrir Þór Anna Halldórsdóttir Okkar ástkæri BALDVIN TRYGGVASON, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, lést að kvöldi mánudagsins 29. júlí. Halldóra J. Rafnar Sveinbjörn I. Baldvinsson Jóna Finnsdóttir Tryggvi M. Baldvinsson Vilborg R. Einarsdóttir Jónas Fr. Jónsson Lilja Dóra Halldórsdóttir Magnús Jónsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.