Morgunblaðið - 01.08.2019, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 01.08.2019, Qupperneq 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 steinn Ingi fór því hann hikaði ekki við að gefa af sér og naut þess að sjá aðra vaxa. Hann var upprunninn í stór- fjölskyldu í Eyjum og það var stutt í náttúrubarnið, dýravininn og umhverfissinnann. Þeir eru spes, Eyjapeyjarnir, vaxnir upp í söltu sjávarlofti með ægifegurð Suðurlandsjöklanna fyrir augum, sprangandi og háfandi lunda í svimandi hæðum og bjargandi ráðvilltum lundapysjum í pappa- kassa á síðsumarsnóttum. Þótt okkar manni gengi vel að háfa átti hann svoítið erfitt með að snúa prófastana úr hálsliðnum, það gerði hann svo kurteislega að þeir undu ofan af snúningnum strax og hann sleppti þeim og tóku óð- ara flugið fram af bjargbrúninni. Þorsteinn Ingi naut menntun- ar við bestu háskóla heims og átti margþætt samstarf við kollega um allan heim, sem aðrir munu rekja. Þegar hann nálgaðist sextugt sýndi Þorsteinn Ingi mér þann heiður að spjalla við mig um líf sitt og störf, svo úr varð kafli í bókinni Þekkingin beisluð. Nú þegar ég horfi eftir mínum kæra vini, þessum síkvika og stóra anda, og langar að draga upp þá mynd sem ég sá, leita ég til baka í samtal okkar. Ég gef honum sjálfum orðið. Ekkert lýsir betur hugmyndaauðgi hans. Hann vatt sér formálalaust í djúpu laugina þegar samtalið hófst: „Næsta stóriðja okkar getur orðið blágrýtis-Álafoss! Það má spinna blágrýti með því að bræða það og pressa í gegnum gatasigti. Þá verða til hundruð eða þúsund- ir örþráða sem spinna má saman og nota til styrkingar í ýmiss kon- ar afurðir. Hugsaðu þér verð- mætaaukninguna! … Svona vinnsla gæti orðið alveg laus við kolefnismengun og vonandi verð- ur græn basaltvinnsla að veru- leika fyrr en varir. Svo er ég með hérna inni á skrifstofunni minni svolítið af óhreinum æðardúni. Mér datt í hug að þvo hann með ofurkrítísku CO2. Ef koltvíildi er hitað og sett undir ákveðinn þrýsting myndast nýr fasi, sem virkar eins og leysi- efni. Neskaffi notar þetta til að ná koffeini úr baunum; mér datt í hug að nota þetta til að hreinsa æðardún, því það er svo mikið vesen að þvo hann.“ Eftir nánari lýsingu bætti hann við: „Ég hef verið að skoða patent í þessu, sem væri gaman að gefa þjóðinni.“ Loks þessi orð, sem eru einkar lýsandi fyrir sýn Þorsteins: „Það er nú svo að þekkingin vex við að deila henni – hún er eins og út- sæði. Það þarf að koma henni í góðan jarðveg og leyfa henni að vaxa, en svo þarf maður sjálfur ekki að standa yfir hverju strái. Þau spretta sjálf og það þýðir ekki að toga í þau. Ég hef alltaf brýnt fyrir nem- endum mínum að gera réttu hlut- ina. Finndu hvað skiptir máli – og vandaðu þig svo við það. Verðu ekki tíma þínum í að finna billj- ónasta aukastafinn, ef hann skipt- ir engan neinu.“ Vertu sæll, elsku vinur og bróðir. Megi öll þau fræ sem þú sáðir ná að blómstra. Guðrún Pétursdóttir. Ég kynntist Þorsteini Inga fyrst að gagni þegar ég stundaði MPhil-nám í Cambridge 1979- 1980. Hann var þá í doktorsnámi í eðlisfræði. Það fór strax vel á með okkur. Við vorum við sama garð – Darwin College. Við vorum jafn- aldrar upp á mánuð. Faðir hans hafði kennt mér stærðfræði og var að mínu mati frábær kennari sem átti sinn þátt í því að stærð- fræðin lá vel fyrir mér. Þorsteinn náði auðvitað lengra en faðir hans enda lauk hann doktorsprófi frá Cambridge árið 1982 og áorkaði síðan miklu á sínu sviði. Ég minnist þess að það var mjög gaman að koma á heimili Þorsteins og Bergþóru í Cam- bridge. Þau voru bæði skemmti- leg viðræðu. Þorsteinn spurði mig í þaula um mitt fag. Ég reyndi eitthvað á móti á sviði eðlisfræðinnar enda var það hitt fagið sem kom til greina þegar ég valdi mér ævistarf. En Þorsteinn hafði vinninginn. Þau voru líka opin og vel tengd og hitti ég ým- islegt áhugavert fólk á heimili þeirra. Sérstaklega minnist ég indversks „gúrús“ sem reyndi að sannfæra mig um að orka væri uppspretta alls auðs og að orku- eining ætti að vera grundvöllur peningakerfisins. Þorsteinn hafði gaman af. Leiðir lágu minna saman eftir Cambridge en það urðu alltaf fagnaðarfundir þegar við hitt- umst, hvort sem það var á manna- mótum, afmælum okkar beggja eða nú í seinni tíð í flugvélum. Á síðustu árum nefndum við það nokkrum sinnum okkar á milli að við ættum sameiginlega að láta að okkur kveða í Cambridge-Ox- fordfélaginu sem starfar hér á landi. En við vorum alltaf svo uppteknir að ekki varð af því og nú er það of seint. Með Þorsteini Inga er fyrir aldur fram fallinn frá mikill atorkumaður og hugsuður sem lagði mikið til samfélags okkar. Um það eru aðrir betur færir um að vitna en ég. Við Elsa sendum Bergþóru og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Már Guðmundsson. Kynni mín af Þorsteini þegar ég bjó erlendis voru ekki mikil en ég skynjaði fljótt af því sem ég las mér til að þarna fór maður sem jafnframt fræðimennsku sinni var óragur við að láta reyna á hvernig fræðin gætu nýst í þágu tækniframfara, betra umhverfis og betra samfélags. Nýting auka- afurða úr kísilmálmvinnslu, vetni- svæðing samgangna og varma- vinnsla úr lághita eru dæmi um verkefnasvið sem Þorsteinn fóstraði um langan tíma með mik- illi elju og þolinmæði þar til hverj- um steini hafði verið snúið við. Við Þorsteinn áttum samleið í rúman áratug sem yfirmenn stofnana þar sem snertipunkt- arnir eru margir, eins og t.d. ný- sköpun í orkumálum, hagnýting íslenskra jarðefna, orkunýtnar og heilnæmar byggingar og svo mætti lengi telja. Þorsteinn hafði alltaf jákvæða og leitandi nálgun á hlutina og var jákvæður gagn- vart nýjum hugmyndum og lausnum, þótt þær væru utan hans sérfræðisviðs. Hann var fljótur að sjá hvaða möguleikar gætu falist í því að varmadælu- væða sjávarpláss á köldum svæð- um og hvernig fólk í dreifbýli gæti bætt afkomu sína með eigin orkuvinnslu og bættri nýtingu orkunnar. Það var bjartur dagur í byrjun sumars í Vestmannaeyjum þegar nýja varmadælustöðin var vígð. Hún nýtir lögmál varmafræðinn- ar til þess að sjá Vestmannaeyj- um fyrir hagkvæmri orku til hit- unar sem unnin er úr jarðsjó sem þannig kólnar og sér fiskiðnaðin- um fyrir orku til kælingar á sama tíma. Þetta var síðasti fundur okkar en það er ánægjulegt að minnast hans þar í gleði sinni og stolti yfir því að sjá þetta verkefni ryðja brautina á hans gömlu heimaslóðum. Ég vil að lokum færa mínar hugheilu samúðarkveðjur til eig- inkonu, fjölskyldu og vina Þor- steins. Guðni A. Jóhannesson. „Pabbi! Hvernig virkar atóm- sprengja?“ – spyr sjö ára snáði. „Hringdu núna í Þorstein frænda þinn,“ er svarið, og hinum megin á línunni er Þorsteinn föðurbróðir tilbúinn að gefa barninu tíma sinn og setur stórar hugmyndir í búning sem barn getur skilið. Öðru sinni á veitingastað í Am- eríku – í einu margra sameigin- legra fjölskyldufría – leiðist barninu innan um orðaskipti full- orðna fólksins. Hugurinn fer að reika og finnur sér þjáningar- bróður í Þorsteini frænda, sem veitir barninu einn athygli. Hann lyftir tómatsósuflösku upp af borðinu, snýr henni við og spraut- ar á bert borðið. „Sérstakt efni!“ segir Þor- steinn í einkennandi hlýjum og leiksömum rómi með bros á vör. Hann útskýrir fyrir barninu hvernig hinar ólíku sameindir í efninu hegða sér og gera það að verkum að það loðir við borðið og fær ýmsa aðra eiginleika. Hann gæddi hversdaginn töfr- um. Við systkinin fengum þennan töframann í vöggugjöf. Hann gaf sér alltaf tíma fyrir hvert okkar frá bernsku og til fullorðinsára. Forréttindin að eiga slík tengsl eru mikil og komu ekki síður með Beggu og börnunum sem eru uppeldissystkini okkar, sam- ferðafólk í lífinu og kærir vinir. Hvert okkar á dýrmætar minningar um það hvernig Þor- steinn gaf af sér og sýndi einlæg- an áhuga. Í stað þess að liggja yfir hversdagshjali um einstakar per- sónur og leikendur hafði Þor- steinn einstakt lag á því að horfa á allan sjóndeildarhringinn og draga samræðurnar á æðra plan. Hugmyndir, hugsjónir og djúpar samræður færðu manni nýja sýn á viðfangsefnið sem sneri oftar en ekki að okkar persónulegu verk- efnum. Á sama tíma gat Þor- steinn verið svo hressandi hrein- skilinn að hann gat rifið hvern mann upp úr sjálfsblekkingu – ætíð með einlægum kærleika og skilningi. Með góðu fordæmi sýndi hann sjálfstraust og það að hvíla vel í sjálfum sér, leyfa sér að vera for- vitinn og hræðast ekki álit ann- arra. Hlýja Þorsteins var svo alltum- lykjandi að fyrstu textaskilaboð að morgni brúðkaupsdags eins okkar komu frá Dódó frænda sem gáði til veðurs og sendi með mynd af fallegum himninum sem virtist myndu hanga þurr – með hlýrri kveðju og tilhlökkun fyrir degin- um. Mýmörg eru slík dæmi. Sama hvar Þorsteinn var staddur í heiminum gat hann allt- af tekið símtal frá okkur. „Ég er staddur í Rússlandi að fara í loft- ið.“ – Við gætum hringt síðar, hváðum við. „Nei, nei, alls ekki. Núna er góður tími.“ „Núna“ var nefnilega alltaf góður tími. „Núna“ er það eina sem við höfum meðan jarðneskt líf leyfir. Nú er tími hans á jörðu á enda runninn en tíminn sem hann gaf okkur heldur áfram að gefa. Við leitum huggunar í því að arfleifð hans til samfélagsins sem hugsuður og manneskja mun margfaldast um ókomna tíð í gegnum Beggu, Davíð, Dagrúnu, Þorkel og þeirra fjölskyldur. Hugur okkar og hjarta dvelur hjá þeim í sorginni. Aldís Kristín, Védís Hervör, Guðmundur Egill og Sigfús Jóhann Árnabörn. Leiðir okkar Þorsteins Inga lágu saman fyrir nærri aldar- fjórðungi. Það var mikil gæfa fyr- ir mig að njóta þess að vinna með honum alla tíð síðan og saman ætluðum við að útrýma notkun jarðefnaeldsneytis á Íslandi. Við vissum báðir að hvorugum okkar myndi endast ævin í það verkefni en það dró aldrei úr ákefðinni. Drifkraftur Þorsteins Inga, þekk- ing, samskiptahæfileikar, alþjóð- leg tengsl, innsæi og svo mætti lengi telja var hvatning fyrir okk- ur sem nutum þess að vinna með honum. Framlags hans til notk- unar á vistvænu eldsneyti, sér- staklega vetni, verður minnst á alþjóðlegum vettvangi til langs tíma enda var hann afar vel virtur á þeim vettvangi og kom að fjölda verkefna um allan heim. Afar lýs- andi kveðju sendi dr. Sunita Sa- tyapal, framkvæmdastjóri deild- ar vetnis og efnarafala, orkumála- ráðuneyti Bandaríkjanna: „Við munum sakna mikið hins ein- staka persónuleika hans, þar sem saman fór tæknileg dýpt, öflug þekking og léttleikandi gleði.“ Fyrrverandi yfirmaður Norsk Hydro, Christopher Kloed, skrif- aði: „Við höfum sannarlega misst meistara.“ Þessum verkefnum er hvergi nærri lokið og unnið verð- ur að þeim áfram og þar mun minning um góðan mann lifa. Við sögðum fyrir 20 árum að árið 2020 ættu 10% alls eldsneytis á Íslandi að vera vistvæn – og að árið 2050 yrði það 100%. Fyrra markmiðið er að nást. Þegar því seinna verður náð mun fólk líta til baka og minnast þess að ef ekki væri fyrir frumkvöðla eins og Þorstein Inga værum við enn á steinöld. Ég sendi Bergþóru, börnum og öðrum aðstandendum mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Jón Björn Skúlason. Lífið er ekki bara vísindi. Þessi orð féllu þagar við Þorsteinn sát- um saman á veitingastað í Kaup- mannahöfn, strandaðir vegna gossins í Eyjafjallajökli. Tveir vinnufélagar sem höfðu ekki gefið sér tíma til að kynnast í amstri dagsins. Þá viku fengum við tæki- færi til þess. Nei, lífið er ekki bara vísindi, það er fólkið sem við kom- um af og þeir staðhættir sem það lifði við og við drukkum í okkur. Um þetta ræddum við og margar sögur voru sagðar, enda báðir ættaðir frá Vestmannaeyjum. Feður okkar voru kunningjar og félagar og afar okkar samstarfs- menn í Eyjum. Sögur sagðar sem tengdu okkur saman, úteyjarnar, gosið og lífið í Eyjum þegar afar okkar og þeirra samferðamenn voru að skapa samfélag sem varð undirstaða þekkingar og velmeg- unar, tíminn þegar önnur iðnbylt- ingin var í algleymingi. Í dag lif- um við tíma frjáls flæðis skoðana á samfélagsmiðlunum án gagn- rýni og raunhæfra skoðanaskipta og fjórða iðnbyltingin er í al- gleymingi, nokkuð sem við Þor- steinn höfðum gaman af að ræða um. Við vorum ekki alltaf sam- mála en bárum virðingu hvor fyr- ir öðrum. Ég votta ættingjum hans samúð mína. Eiríkur Þorsteinsson. Árin 2007 og 2008 unnum við Þorsteinn Ingi Sigfússon náið saman vegna íslenskrar útgáfu bókarinnar Planet Hydrogen. Flestar helgar og frístundir voru helgaðar verkinu, ekki síst í kjall- aranum á heimili Þorsteins Inga. Það var mikill heiður að kynnast honum og fjölskyldunni. Það kom fljótlega í ljós að Þor- steini Inga var léð ýmislegt sem ekki var í vörslu hinna. Á því tímabili sem við unnum saman vann hann að innleiðingu vetnis sem orkugjafa á Íslandi, leitaði nýrra leiða til orkuöflunar á Ís- landi, rannsakaði aðferðir við að umbreyta koldíoxíði í eldsneyti, skrifaði fræðibækur fyrir al- menning á ensku og íslensku, tók virkan þátt í alþjóðasamstarfi og veitti ráðgjöf umfram skyldu- störf. Flestir menn hefðu verið stoltir af því að valda einu þessara viðfangsefna. Rifjast þá upp sú lýsing Einars Benediktssonar á Matthíasi Joch- umssyni skáldbróður sínum að hann hefði þurft að geta ferðast hnattanna á milli, væri sú leið fær, til að finna andagift sinni far- veg. Ríkisstjórnin ætti að gera það að forgangsmáli sínu að heiðra framlag Þorsteins Inga, Braga Árnasonar og fleiri góðra manna til vetnismála. Þorsteinn Ingi var frumlegur maður. Það birtist í nýyrðum eins og ósvirkjun og í athuga- semdum sem seint gleymast. Eitt sinn vorum við saman ásamt hópi Íslendinga í fjarlægu landi að hlýða á erlendan valdsmann. Sá hafði sölsað undir sig mikil auðæfi og fór ekki leynt með það. „Það er fallegt hérna á Sikiley,“ hvíslaði Þorsteinn Ingi þá í eyru Íslendings sem við hlið hans stóð. Hitti þetta beint í mark. Þorsteinn Ingi hafði líka með- fædda pólitíska hæfileika. Það kom vel í ljós á alþjóðlegu orku- þingi á Ítalíu hversu auðvelt hann átti með að vinna menn á sitt band. Mikil virðing var borin fyrir honum. Það var skoðun hans að áhersla samtímans á auðsöfnun sem afl- vaka allra verka væri takmörkuð í eðli sínu. Slík smættarhyggja næði ekki utan um mannsandann. Á margan hátt var hann eins og endurreisnarmaður. Líf hans vitnaði um að fegurðarþráin og þekkingarþorstinn eru af sömu rót sprottin. Þorsteinn Ingi sagði eitt sinn um kollega sinn Einstein að hann hefði verið hinn Guðs innblásni maður. Sjálfur fékk Þorsteinn Ingi miklar gjafir. Ég sendi fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur. Baldur Arnarson. Hann var stór í sniðum á allan hátt, mikill vexti, með geislandi gáfur, vídd og dýrmætar hug- myndir í þágu vísindanna. Þor- steinn Ingi Sigfússon prófessor var glæsimenni, uppfyndinga- maður, ljúfur og hlýr, traustur og tryggur og er hans sárt saknað fallins frá langt fyrir aldur fram. Þorsteinn Ingi minnti um margt á Heimaklett; gnæfði upp úr umhverfinu, með hugmyndir og vangaveltur, minnti á grósku, styrk og væntingar. Þegar við frændur Eyjapeyjarnir lékum okkur forðum daga gaf Þorsteinn Ingi mikið út á það að verkstýra. Honum fórst það vel úr hendi enda átti hann við erfiða að eiga og þar var hann bestur. Einhvern tíma sat ég á spjalli við athafnamanninn og frum- kvöðulinn Gísla á Grund, sem var engum líkur. Hann vildi tala um hugmyndir mínar um jarðgöng milli lands og Eyja sem honum leist mjög vel á, en síðan fór hann að ræða um Gísla J. Johnsen, stórkaupmann og útgerðarmann, afabróður okkar Þorsteins Inga, sem hafði m.a. mikil umsvif er- lendis. Í stuttu máli sagði hann: Gísli Johnsen átti aldrei að koma aftur til Íslands, Ísland var allt of lítið land fyrir hugmyndir hans, framkvæmdagleði og þrá. Stund- um á leiðinni hefur mér fundist þetta eiga við um frænda minn Þorstein Inga. Hún Begga, Bergþóra Ketils- dóttir, eftirlifandi kona Þorsteins, er yndisleg persóna. Þau voru jafnokar til alls og börnin þeirra, Davíð, Þorkell og Dagrún, lifandi eftirmyndir mannkosta þeirra. Þorsteinn Ingi var húmoristi að upplagi en gat orðið háalvar- legur eins og prófessor sæmdi. Fyrir mörgum árum urðu á tíma- bili nokkur slys á íslenskum tog- urum þar sem sjómenn féllu út- byrðis á Vestfjarðamiðum og voru erfiðleikar við að finna þá og bjarga. Þorsteinn fann þá upp neyðarljós sem svipaði til um- fangs kreditkorts. Það var sett á axlir flotgalla og ef það fór í sjó kviknaði sterkt ljós með glömp- um. Þorsteinn Ingi gerði tilraunir með neyðarljósið í austankælu í fjörunni við Stórhöfða. Með hon- um var til fulltingis Gísli Óskars- son, kvikmyndatökumaður og skólabróðir Þorsteins. Þeir fé- lagar voru báðir mjög trúhneigðir og spjallið fór út í trúmál. Skyndi- lega skellir Gísli kvikmyndatöku- vélinni á öxl sér, hefur töku og segir: „Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessor, hverjir sjá ljósið?“ Þorsteinn svaraði á stundinni: „Hinir trúuðu.“ „Nei, ekki það ljós,“ sagði Gísli þá, „hitt ljósið.“ Megi ljósið og krafturinn sem alltaf hefur fylgt Þorsteini fylgja honum í ranni Herra hans því auðvitað verða margar víddir til umræðu. Við biðjum Guð að varðveita vin okkar, Beggu og alla fjöl- skyldu þeirra. Innilegar samúðarkveðjur frá Dóru og Árna í Höfðabóli. Árni Johnsen. Það er með miklu þakklæti fyr- ir samfylgdina sem við sendum honum Þorsteini Inga Sigfússyni hinstu kveðju. Við munum minn- ast hans stóra faðms, hlýs bross og húmorsins og hans umvefjandi nærveru. Við áttum alltaf stað inni á heimili Þorsteins og Berg- þóru og fyrir það verðum við ævinlega þakklátar. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur elsku Bergþóra, Dagrún, Davíð, Þorkell og fjölskyldur. Þú ert liðinn, ljúfi vinur – lifir þó í draumi björtum: ekkert glatast, ekkert hrynur, allt er geymt í vorum hjörtum. (Daníel Tómasson frá Kollsá) F.h. æskuvinkvenna Dagrúnar, Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, Kristína Lentz og Stella Rún Steinþórsdóttir. Hinn 15. júlí, í léttu spjalli hjá frænda í eldhúsinu í Suðurgarði, hringdi síminn. Þá laust niður, af óvægu afli, sorgarfregninni um andlát elskulegs frænda míns Þorsteins Inga Sigfússonar. Innanbrjósts sortnuðu himnar, tungl villtust af braut, tómið hel- tók og sorgin nísti. Á heimleiðinni framhjá Gvendarhúsi til Þor- laugargerðis eystra gegnumlýsti dagsbirtan stráin, bláklukkur hnigu og jaðrakan veinaði. Skarð var nú fyrir skildi, milli okkar fjölskyldna eru sterk ættartengsl og trygg vinátta; ég kveið því að bera foreldrum mínum sorgar- fréttina og um leið örmagnaðist augnablikið. Þessar slóðir í Ofanbyggjara- girðingunni í Vestmannaeyjum voru líka kærir átthagar Þor- steins Inga bæði á fullorðinsárum og endur fyrir löngu sameiginleg- ur leikvangur okkar stóra frænd- systkinahóps um sumrin löng. Það var í leiknum sem Þorsteinn Ingi naut sín; fyrir honum var allt músík og leikur einn. Í hópnum var hann innsti kjarninn sem fyrirhafnarlaust laðaði okkur frændsystkinin að sér sem sjálf- kjörinn leiðtogi, hvort sem við vorum í einhverri dularfullri berjaleit í Ofanleitishrauninu eins og í Fimmbókunum eða í gáska- fullum afmælisleikjum á Kirkju- bæjarbraut 17 hjá foreldrunum Siffa frænda og Stínu og systk- inunum Árna, Margréti, Gylfa, Þór og Sif. Allt í kringum Þorstein Inga varð rafmagnað, seiðmagnað og spennandi, fullt af skapandi orku og uppgötvunum. Og svo var það þessi undursamlega mildi hans og glettni; ómótstæðilegir persónu- töfrar sem voru honum í blóð bornir og eru svo ríkjandi hjá hans yndislegu fjölskyldu. Í mars síðastliðnum hittumst við af tilviljun í Leifsstöð, ég á heimleið til að fagna merkisaf- mæli mömmu, hann á leið til Bandaríkjanna að halda fyrirlest- ur í boði virts háskóla. Þorsteinn Ingi hjó strax eftir fréttum af for- eldrum mínum og hvernig gengi hjá okkur hjónum hér ytra, en mest spurði hann um Ingibjörgu Iris, dóttur okkar. Honum var umhugað um að henni gengi vel að feta sig á framabrautinni, hann fylgdist vel með henni á mennta- veginum og fannst hún frábær. Svona var hann frændi alltaf ein- staklega umhyggjusamur, alltaf hvetjandi, alltaf geislandi af kær- leika. Við kvöddumst þá óvitandi í síðasta sinn. Brátt kall hans héð- an virðist ótímabært nú þegar umheiminn vantar svo tilfinnan- lega lausnir á aðsteðjandi vanda og yfirburði hans sem leiftrandi alþjóðlegs vísindamanns og glæsilegrar mikilsmetinnar per- sónu. Við minnumst okkar kæra frænda Þorsteins Inga með þakk- læti og ást og vottum fjölskyldu hans og ástvinum samúð okkar í óbærilegri sorg og söknuði. Blessuð sé minning Þorsteins Inga Sigfússonar. Guðrún Dager Garðars- dóttir, Max Dager.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.