Morgunblaðið - 01.08.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 01.08.2019, Blaðsíða 50
Morgunblaðið/Ófeigur MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Verslunarmannahelgin hefst á morgun og eflaust eru margir á leið á útihátíð eða í útilegu. Það getur verið mikil áskorun að líta þokkalega út á útihátíð, eins og þeir sem hafa farið þekkja. Það er jafnvel enn meiri áskorun þegar maður kýs að nota snyrtivörur. Hér er listi yfir það helsta sem skal pakka fyrir ferðalag helg- arinnar. Farði og handhægur hreinsir Smartland leitaði til Snyrtipenn- ans Lilju Óskar Sigurðardóttur og fékk ráð um hvaða vörum væri best að pakka fyrir helgina ef leiðin liggur á útihátíð. Lilja segir að Clinique Moisture Surge Sheer Tint sé hinn fullkomni farði fyrir helgina. Hann er með létta áferð og þar að auki sól- arvörn, sem er mik- ilvægt. Hún mælir með að þrífa hann af með Micellar Cleans- ing water Anti Pollu- tion frá Chanel. Það þarf ekki vatn með honum og því til- valið að pakka honum í töskuna fyrir útileguna. Fjölnota vörur Það er einnig lykilatriði að velja snyrtivörur sem hægt er að nýta á fleiri en einn hátt. Gosh 3-1 Hybrid Eyes er í senn augn- skuggi, augnblýantur og augabrúnalitur. Andlitspallettan Ess- ential Face Palette frá ILIA er einnig gott dæmi um vöru sem má nota á kinnar og varir. Í pallettunni er bæði að finna sólarpúður, ljóma og kinnalit. Það má nota putt- ana í þessar vörur því þær eru allar í kremformi. Neon-augnblýantar Neon-augnblýantar eru það flottasta í förðunarheim- inum í dag og ef þú ert á leiðinni á útihátíð er ein- staklega skemmtilegt að nota neon-augnblýant til að skreyta sig. Smartland mælir með blý- öntunum frá Urban Decay sem fást meðal annars í Hagkaup. Ferðastærðir af öllu Þegar maður fer í ferðalag vill oft svo til að plássið er af skornum skammti. Það er því um að gera að skilja stóru brúsana eftir heima. Það má annaðhvort kaupa litla brúsa og dollur í öllum helstu apó- tekum eða kaupa ferðastærðir af uppáhaldsvörunum þínum. Smart- land mælir með ferðastærð af sjampói og hárnæringu frá Davines. Það er einnig hægt að fá líkamssápu og ýmislegt annað í Body Shop. Þurrsjampó frá Kevin Murphy er einnig gríð- arlega gott fyrir þau ykkar sem ekki vilja bleyta hárið oft yfir helgina. Hlý peysa Þótt spáin sé góð eru kvöldin yfirleitt svöl. Hlý peysa er því þarfaþing. Það er skemmtileg tilbreyting að prófa að fara í eitt- hvað annað en klassísku lopapeysuna um helgina. 66° Norður er með flott- ar og hlýjar flíspeysur sem vert er að kíkja á. Vesti Það er enginn maður með mönnum á útihátíð nú til dags nema vera í vesti. Vesti eru sjúklega töff í dag og ef þú vilt vera aðalmanneskjan í vinahópnum mælum við með vesti frá 66° Norður eða The North Face. Sokkar Það er fátt verra en að vera blautur og kaldur á fótunum. Það er því mikilvægt að sokka sig vel upp um helgina. Þessir ótrú- lega fallegu sokkar frá Farmers Market eru málið um helgina. Hleðslubanki Það er mikilvægt að geta skrá- sett allar góðu minningarnar um helgina. Fyrir þá sem vilja ekki verða straumlausir er einstaklega mikilvægt að taka hleðslubanka með í ferðalagið. Þeir fást hjá öll- um helstu símafyrirtækjunum. Það er snúinn leikur að pakka niður fyrir útihátíðina. Smartland auð- veldar þér vinnuna og hefur tekið saman það sem má ekki gleymast. Sokkar Hlýir og góðir sokkar frá Farmers Market . Farðu áhyggjulaus á útihátíðina Fjölnota Gosh 3-1 Hybrid Eyes er fjölnota snyrtivara. Flíspeysa Ómissandi flík í ferðalagið frá 66° Norður. Farðahreinsir Hreinsivatnið frá Chanel krefst ekki notkunar á vatni. Þurrsjampó Kevin Murphy fyrir þá sem vilja ekki þvo hárið um helgina. Andlit And- litspalettuna frá ILIA má bera á með fingrunum. Léttur farði Farði með sólarvörn frá CLINIQUE. Ómissandi Dúnmjúkt vesti frá North Face.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.