Morgunblaðið - 01.08.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 01.08.2019, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019 Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Umsjónarmenn námskeiðsins voru þau Hinrik Carl Ellertsson og Fanney Dóra Sigurjónsdóttir sem bæði eru þaulreynd í matreiðslu og kennslu í henni þar sem þau kenna bæði í matreiðsludeild Mennta- skólans í Kópavogi. Að sögn Hin- riks voru krakkarnir algjörlega frá- bærir og þau fengu mikið af snöppum og myndum eftir nám- skeiðið af krökkunum að elda. Þátt- takendur voru á aldrinum 10-14 ára. „Upplagið hjá okkur var matur sem fær kannski ekki alltaf mikla athygli. Reyna þannig að beina sjónum þeirra á óhefðbundnar slóð- ir. Þannig vorum við með sjáv- armeti, blómkál, risarækjur og ferskan maís en svo auðvitað líka þetta hefðbundna eins og kjúkl- ingaspjót og banana.“ Hinrik segir jafnframt að krökkunum hafi þótt maturinn spennandi og verið óhræddir við að prófa eitthvað nýtt. „Markmiðið var að fá þau til að hugsa aðeins út fyrir kassann og ég held að það hafi tekist.“ Hinrik segir að krakkarnir geti miklu meira í eldhúsinu en margur heldur. „Sjálfur á ég átta ára son sem ég hef verið að gera prófanir á í gegnum tíðina. Ég heyrði eitt sinn sögu frá Grænlandi sem ég hef haft að leiðarljósi en þar er talað um að börn fái hníf í hendurnar allt niður í tveggja ára aldur. Þau skeri sig að- eins einu sinni en eftir það fari þau varlega. Mér hefur fundist þetta eiga vel við og sumir krakkarnir voru auðvitað óvanir og auðvitað voru einhverjir sem skáru sig smá- vegis eða brenndu sig. En það sem ég er að reyna að segja er að krakkarnir læra og þetta er hluti af því ferli. Krakkarnir voru að öllu leyti til algjörrar fyrrimyndar og þetta var góð þjálfun fyrir þá. Ég hef áður verið með grill- námskeið fyrir fullorðna og þetta voru sambærilegar uppskriftir – engar barnaútgáfur – þannig að þau útskrifuðust sem afbragðsgrill- arar og eru fær í flestan sjó. Þau geta miklu meira en við höldum en það verður að leyfa þeim að prófa og læra. Þannig kemur lærdóm- urinn.“ Krakkarnir kunna þetta Á dögunum voru haldin námskeið fyrir krakka þar sem kennd voru helstu handtökin í grill- mennsku. Það var Snarl- ið, samfélagsverkefni Krónunnar, sem stóð að námskeiðunum, sem slógu rækilega í gegn. Skemmtilegt verkefni Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumeistari segir að krakkarnir hafi verið ótrúlega duglegir á námskeiðinu. 800 g kjúklingalundir 1 flaska bbq-sósa grillspjót olía salt kryddjurtir til að skreyta með eins og kóríander eða kerfill Setjið lundirnar í eldfast mót og hellið olíu yfir og saltið eftir smekk, þræðið lundirnar upp á grillspjót. Hitið grillið í 220°C. Setjið því næst lundirnar á heitt grillið, ekki snúa fyrr en eftir þrjár mínútur, þá ætti kjúklingurinn ekki að festast lengur við. Þegar þú ert búin/n að snúa honum máttu setja bbq-sósuna á kjúklinginn. Berðu 2-3 sinnum sósu á hann áð- ur en hann er fulleldaður, það tekur um það bil 12 mín. Borið fram með öllu því sem þér dettur í hug. Kjúklingaspjót með bbq-sósu Klikka aldrei Kjúklingaspjót eiga alltaf vel við og allir aldurshópar elska þau. 400 g risarækjur 100 g blandað salat 1 stk. mangó 1 stk. granatepli 2 stk. ástríðuávöxtur 4 msk. sæt chilisósa salt og pipar olía Leggið risarækjurnar í sætu chili- sósuna ásamt salti, pipar og olíu. Leyfið þessu að liggja í nokkrar mín. Á meðan skerið þið niður mangó og ástríðuávextina. Hitið grillið í 220°C. Grillið því næst rækjurnar í 2 mín. á hvorri hlið. Dreifið fallega úr salatinu á disk. Dreifið næst mangó, ástríðuávöxtum og rækjum yfir. Takið að lokum granateplin og bankið úr þeim með ausu. Passið ykkur; þetta gæti verið subbulegt, en samt svo skemmtilegt. Berið fram heitt eða kalt. Grillaðar risarækjur með suðrænu salati Gott á grillið Risarækjur eru fremur einfaldur en bragðgóður grillmatur. 1 stk. seljurót olía karríduft salt Seljurótin er skorin í strimla, ekki of þykka en heldur ekki of þunna; u.þ.b. 1,5 x 5 cm. Blandið því næst saman olíu, karrídufti og salti og hrærið smá. Setjið seljurótina út í látið marínerast alls staðar í 2 mín. Hitið grillið í 220°C. Leggið frönskurnar á grillið með töng og snúið á 2 mín. fresti þar til þær hafa eldast í gegn og eru mjúkar. Kemur á óvart Franskar verða allir að prófa. Seljurótarfranskar Er ferðavagninn rafmagnslaus? TUDOR TUDOR Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu örugg t start með TUDO R Frístunda rafgeymar í miklu úrvali, AGM þurr rafgeymar eða lokaðir sýrurafgeymar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.