Morgunblaðið - 01.08.2019, Side 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2019
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
JAPANSKIR HNÍFAR
Allt fyrir eldhúsið
Hágæða hnífar og töskur
Allir velkomnir
Einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
„ÉG HEF TAPAÐ ÖLLU SJÁLFUTRAUSTI.” „KOMDU MEÐ ALLA PENINGANA EÐA HANN BYRJAR AÐ SPILA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að prenta út alla
tölvupóstana frá
honum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GEISP! VELD ÉG ÞÉR LEIÐA? JÁ, TAKK
TAKTU ÞÉR TAK! HELDURÐU VIRKILEGA AÐ ÉG
SENDI ÞIG Í ÓVINNANDI ORRUSTU?
SKO, ÞÚ KYNNTIR HANN FYRIR
FYRRI KONUNNI HANS!
við það að sjá hið jákvæða í fólki
og njóta lífsins til fullnustu en um
leið reyna að reynast öðrum vel í
lífinu – raunar finnst mér hver
dagur, hversdagurinn, stærsta
ævintýri lífsins.“
Eiginmaður Eddu er Einar Eyj-
ólfsson, fríkirkjuprestur í Hafn-
arfirði, f. 26. nóvember 1958.
Hann er sonur Ingu Rósu Sigur-
steinsdóttur húsmóður og Eyjólfs
Einarssonar listmálara. Stjúpfaðir
Einars er Þorvarður Elíasson,
fyrrverandi skólastjóri Verzl-
unarskóla Íslands. Kona föður
hans, Eyjólfs, er Sigríður Jóna
Þorvaldsdóttir myndlistarkennari.
Þau eru öllu búsett í Reykjavík.
Börn Eddu og Einars eru: 1)
Einar Andri, kennari og þjálfari
meistaraflokks Aftureldingar í
handbolta karla, yfirþjálfari yngri
flokka hjá félaginu og þjálfari U21
landsliðs karla í handbolta, f. 21.
maí 1981. Maki hans er Helga Sig-
mundsdóttir, lögfræðingur hjá
Umboðsmanni Alþingis. Dóttir
þeirra er Elísabet Edda, f. 2015.
2) Inga Rakel, yfirþroskaþjálfi hjá
Hafnarfjarðarbæ, f. 14. janúar
1988. Maki hennar er Kristján Ó.
Davíðsson, BA í stjórnmálafræði,
löggiltur fasteignasali og íþrótta-
stjóri KLÍ. Börn þeirra eru Björn
Andri, f. 2012, og Ólöf Edda, f.
2018.
Systkini Eddu eru: Margrét
Kristín Möller, f. 1948, maki henn-
ar Guðmundur Jakob Guðlaugs-
son; Alma Möller, f. 1952, maki
hennar Ólafur Valur Ólafsson;
Thomas Möller, f. 1954, maki hans
Bryndís María Tómasdóttir; Ásta
Möller, f. 1957, maki hennar
Haukur Þór Hauksson. Þau eru
öll búsett á höfuðborgarsvæðinu.
Edda Möller
Jóhann Georg Möller
kaupmaður á Blönduósi
Katrína Alvilda María Thomsen
húsfreyja á Blönduósi
William Thomas Möller
póst- og símamálastjóri í Stykkishólmi
Margrét Jónsdóttir Möller
húsfreyja í Stykkishólmi og síðar Reykjavík
Agnar Möller
vann lengst af hjá IBM á Íslandi
Jón Jónsson Johnsen
bóndi og útgerðarmaður
á Suðureyri v. Tálknafjörð
Gróa Indriðadóttir
húsfreyja á Suðureyri v. Tálknafjörð
Elías Elíasson
bóndi Gálutröð, Snæf.
Anna Svandís Jónasdóttir
húsfreyja í Gálutröð, Snæf.
Lárus Elíasson
hafnarvörður og sjómaður í Stykkishólmi
Ásta Þorbjörg Pálsdóttir
frá Höskuldsey, húsmóðir í Stykkishólmi
Metúsalem Páll Guðmundsson
bóndi á Ögri, bóndi og formaður
í Höskuldsey
Ástríður Helga Jónasdóttir
húsfreyja á Ögri og Höskuldsey
Úr frændgarði Eddu Möller
Lea Rakel Lárusdóttir Möller
áður starfsmaður Eimskips,
bús. í Garðabæ
Á mánudag skrifaði PéturStefánsson í Leirinn: „Það er
um 25 stiga hiti hjá mér í dag á
sólpallinum“:
Sólin hún ljómar og öllum vill orna,
eldheitt er núna hér og í grennd.
Úti í garði allt er að þorna,
uppáhaldsrósin er visin og brennd.
Helgi Zimsen sagði „Eldheitt –
jaseiseijá“:
Vítishiti veður uppi.
Vondum pínslum ofurseld
brennum við frá hausi að huppi.
– Helst að veitist náð í kveld.
„Ég elska hitann,“ kvað Sig-
mundur Benediktsson:
Heitunnenda fylli flokk
finnst mér í hann varið,
mýkir gamlan giktarskrokk
og gleður lundarfarið.
Helgi Zimsen svaraði að
bragði: „Norðlægir syndaselir
kunna sjálfsagt líka að meta hita-
farið.“
Heims er víða hitna svið
hreppir kulvís feginn
tækifæri að venjast við
varmann hinum megin.
Gústi Mar sagði:
Við garðslátt ég puðaði og poka ég
dró
pungsveittur strauk á mér skallann.
Hjartað í brjóstinu hraðamet sló
hitinn þá gagntók mig allan.
Þetta kveikti í Helga Zimsen:
Úti ég sveiflaði orfi og ljá,
örmagna nærri var kafnaður.
Heiðskír var samviska í hitanum þá
og heyskapur kolefnisjafnaður.
Áfram var haldið – Sigmundur
Benediktsson kvað:
Hitann skulum djarfir dá
dulið afl hans greina.
Sælt ef vindur syndum frá
samviskuna hreina.
Ingólfur Ómar skaut inn vísu:
Glóey varma gefur mér
gróður skrælir allan,
hitabrækjan búin er
að brenna á mér skallann.
Áfram var kveðist á og enn
héldust hlýindin á þriðjudag.
Gústi Mar orti:
Hitametin fara að falla
fuglar busla á leirunum.
Bakar sólin brjóst og skalla
brennur húð af eyrunum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sólskin, garðrækt
og kolefnisjöfnun