Morgunblaðið - 06.08.2019, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019
✝ Steinar PállIngólfsson
fæddist 10. febr-
úar 1990 í Reykja-
vík. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 26.
júlí 2019.
Foreldrar Stein-
ars eru Ingólfur
Arnarson, f. 23.
apríl 1963, og Sif
Jóhannesdóttir, f.
3. ágúst 1964.
Systkini Steinars Páls eru:
1) Þorbjörg Hekla, f. 9. júní
1994, maki hennar er Sig-
urður Gunnar Sigurðsson, f. 2.
maí 1992, sonur þeirra er
Birkir, f. 24. sept-
ember 2018. 2)
Jón Örn, f. 30.
nóvember 2000. 3)
Helgi Valur, f. 23.
nóvember 2002.
Steinar Páll ólst
upp í Hafnarfirði.
Hann lauk prófi í
golfvallarumsjón
frá Winston Uni-
versity í Þýska-
landi 2014 og
starfaði við það auk fleiri
starfa.
Steinar Páll verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju í
dag, 6. ágúst 2019, klukkan
13.
Okkur foreldra Steinars Páls
langar í fáum orðum að þakka
honum fyrir samveruna og allar
góðu stundirnar.
Steinar Páll hafði einstaklega
fallega framkomu, vildi öllum
vel, hann var hjálpsamur, ætíð
snyrtilegur, talaði aldrei illa um
fólk og öfundaði aldrei nokkurn
mann.
Hann var svo stoltur af systk-
inum sínum og vinum og því
sem þau voru að gera og vildi
hag allra sem mestan.
Ef Steinari Páli áskotnaðist
brjóstsykur eða lítið nammi sem
lítill drengur þá byrjaði hann
alltaf á að gefa mömmu sinni og
ef hann fékk tvö þá voru þau
fyrir mömmu og pabba, hann
vildi mæta afgangi.
Við þökkum þér elsku Steinar
Páll fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman, ferðalög
um landið, Aðalvíkurferðir og nú
síðast frá því í vor, ferðina til
Berlínar.
Í dimmum skugga af löngu liðnum
vetri
mitt ljóð til þín var árum saman
grafið.
Svo ungur varstu, er hvarfstu út á
hafið
hugljúfur, glæstur, öllum drengjum
betri.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn
þína
sem hefði klökkur gígjustrengur
brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi
lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast æv-
inlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson)
Mamma og pabbi elska þig
alltaf og við biðjum þig að fylgja
okkur um ókomna tíð. Við hitt-
umst aftur þegar okkar tími
kemur og þá tekur þú á móti
okkur. Elskum þig og söknum
óendanlega mikið.
Mamma og pabbi.
Elsku stóri bróðir. Ég skil
ekki alveg. Þetta er svo öfug-
snúið. Hvernig getur lífið verið
svona ósanngjarnt? Þú varst
tekinn í burtu frá okkur allt of
snemma.
Ég hef alla mína tíð verið svo
stolt að segja frá því að ég sé
litla systir þín. Þú varst stjarna í
mínum augum. Við gerðum allt
saman og minningarnar eru
óteljandi margar.
Fyrir 10 mánuðum bættist
Birkir við í fjölskylduna okkar.
Þið voruð svo góðir vinir og
maður sá hvað þú varst stoltur
stóri frændi. Sú hugsun að það
eru einungis tvær vikur síðan
Birkir sat í fanginu þínu að
klóra í skeggið þitt er óbærileg.
Elsku Steinar, takk fyrir að
hafa hugsað svona vel um mig í
gegnum tíðina. Þú varst bestur
allra og ég gat alltaf treyst á
þig, sama hvað.
Elska þig og sakna. Sys,
Þorbjörg Hekla
Ingólfsdóttir.
Ferð þín er hafin.
Fjarlægjast heimatún.
Nú fylgir þú vötnum
sem falla til nýrra staða.
Og sjónhringar nýir
sindra þér fyrir augum.
(Hannes Pétursson)
Þegar Steinar Páll var lítill
drengur lærði hann utan að
kvæðið Ó blessuð vertu sum-
arsól og flutti það til að gleðja
ömmu sína. Núna á hápunkti
þessa fallega sumars þurfum við
að kveðja hann. Steinar hafði
sérstaklega fallega framkomu
og sýndi alltaf hversu vænt hon-
um þótti um okkur sem stóðum
honum nærri, hann vildi alltaf
gera allt fyrir mig sem hann gat.
Það er mikið áfall fyrir mig og
okkur öll að sjá á eftir honum.
En minningar eru dýrmætar og
við getum yljað okkur við þær.
Steinar Páll naut sín með föl-
skyldu sinni, frændum sínum og
frænkum, mér er minnisstætt
hversu ánægður hann var þegar
við fórum vestur á Ísafjörð að
heimsækja hann og Grétar.
Ég veit að honum líður vel
núna og ég bið guð að vera með
okkur öllum og styðja foreldra
hans og systkini.
Hans elskandi amma Magga.
Margrét Eiríksdóttir.
Elsku frændi okkar Steinar
Páll er nú fallinn frá allt of ung-
ur. Við sem stóðum honum
nærri vitum að hann var ljúfur
og góður drengur sem vildi öll-
um vel og heilsaði ávallt hlýlega.
Hann sýndi fólki ósvikinn áhuga
og mundi alltaf eftir hinum
minnstu smáatriðum úr lífi
fólks.
Hann var mikill fjölskyldu-
maður og leið best hjá sínum
nánustu sem hafa alltaf staðið
með honum og veitt honum alla
þá ást og alúð sem til er. Öll
sáum við hvað þau systkinin
áttu vel saman og hvað hann
lagði mikla áherslu á að vernda
og hlúa að þeim. Steinar Páll
var hæglátur og hlýr, með fal-
lega framkomu, brosmildur og
fyndinn. Hann var myndarlegur
maður og fallegt barn með
dökka liðaða lokka og stór falleg
augu.
Hann var mikill náttúruunn-
andi og elskaði landið sitt og
vildi njóta þess. Hann tók fal-
legar fuglamyndir og flæktist
víða um landið við myndatökur.
Hann tengdist íslenskri sveit
vel, sérstaklega þegar hann
dvaldist löngum stundum á
Mýri í Bárðardal þar sem hann
bast Guðrúnu, Tryggva og
Sveinbirni vinaböndum og átti
þar góðar stundir. Steinar Páll
var einn af þeim sem hafa
sjötta skilningarvitið þegar dýr
og náttúran eru annars vegar.
Hann var mjög hæfileikaríkur
í öllu sem hann tók sér fyrir
hendur, hvort sem það voru
íþróttir, nám eða annað. Til eru
margar sögur af afrekum hans í
íþróttum. Hann skoraði á þraut-
þjálfaða menn og sigraði þá án
vandræða hvort sem var í snók-
er eða pílukasti en golfið var
hans sérgrein. Þar hefði hann
hæglega getað orðið einn besti
kylfingur landsins en kaus að
nálgast þá íþrótt mjög afslappað
og var aðalatriðið að hafa gaman
af hverju höggi, fara aldrei
öruggu leiðina að holunni heldur
þá sem bauð upp á meiri
skemmtun og spennu. Frændur
hans á sama aldri náðu vel sam-
an og efndu gjarnan til lítilla
golfkeppna með sínum nánustu
og voru það alltaf skemmtileg
mót.
Við stórfjölskyldan vorum
dugleg að ferðast um landið
saman og nú þegar við skoðum
myndir frá fjölskylduferðum
okkar sjáum við hversu mikil-
vægar þær voru því þær gáfu
okkur ómetanlegar samveru-
stundir með elsku Steinari okk-
ar. Eftir lifir minningin um hlýj-
an og góðan frænda sem mun
lifa í hjörtum okkar allra.
Elsku Ingó, Sif, Þorbjörg,
Sigurður, Jón Örn, Helgi Valur
og Birkir, við sendum ykkur
okkar hlýjustu samúðarkveðjur
og styrk.
Föðursystkini Steinars Páls,
Eiríkur, Örn, Sveinn,
Hekla, Kristín og
fjölskyldur þeirra.
Elsku Steinar Páll. Ég trúði
fréttunum ekki þegar ég fékk
símtalið, hugsaði strax að þetta
hlytu að vera mistök. Ég hlýja
mér við minningarnar, sem ég á
sem betur fer nóg af.
Ég minnist gamalla tíma þeg-
ar við vorum litlir guttar á
Hellisgötunni hjá ömmu og afa
sem var okkar heimavöllur í
barnæsku. Ég minnist allra golf-
hringjanna sem við spiluðum
saman á æfingavellinum á Keili,
ferðanna með afa í gömlu Sund-
höllina, fótboltaleikjanna í bíl-
skúrnum og alls hins grallerís-
ins.
Ég minnist líka allra sumr-
anna sem við vorum saman í Að-
alvík og þar er mér sérstaklega
minnisstæð tveggja daga gang-
an þegar við, ásamt feðrum,
fengum far með bátnum yfir í
Fljótavík og gengum til baka.
Það var frábært veður og ég
man hvað ég var ánægður með
mig því þetta var lengsta ganga
sem ég hafði farið í. Ég er ekki
viss um að þú hafir pælt jafn-
mikið í því en rúllaðir henni upp
þrátt fyrir að hafa bara verið 10
ára.
Þú varst falleg og gömul sál,
talaðir og skrifaðir kjarngóða ís-
lensku og hafir gaman af því að
yrkja. Ég þykist vita það að þú
hefðir unað þér best í sveitalíf-
inu hér fyrr á tímum eins og þú
sýndir vel þegar þú bjóst á Mýri
og í golfvallaumsjóninni þar sem
landgræðslan lék í höndunum á
þér. Síðustu ár upplifði ég þig
sáttan í eigin skinni sem mér
fannst gott að sjá.
Það sem stendur eftir hjá
mér þegar ég hugsa til baka er
hversu innilega stoltur þú varst
alltaf af fjölskyldu þinni og vin-
um, varst alltaf óspar á hrósin
til allra í kringum þig og þau
eru okkur ómetanleg í dag.
Hvíldu í friði kæri frændi,
Óskar Ingi Magnússon.
Elsku Steinar Páll. Þú komst
í heiminn sá fjórði í röðinni af
níu börnum okkar systra. Þið
voruð öll svo náin, eins og upp-
eldissystkin, og við systurnar
eins og mæður ykkar allra.
Þú varst fallegt og blítt barn
og góðmennskan og fallega
framkoman þín fylgdi þér alla
tíð. Þér var margt til lista lagt
og laghentari maður var vand-
fundinn.
Ég er ekki búin að ná því að
þú sért horfinn á braut í sum-
arlandið, mér finnst eins og þú
hafir brugðið þér frá og sért
væntanlegur á hverri stundu.
Samtöl okkar í gegnum tíðina
voru gefandi, við ræddum um
sókn og sigra, skin og skúrir,
gleði og sorg. Ekki endilega
sammála en alltaf til í að hlusta
hvort á annað. Elsku Steinar
Páll minn, sumarlandið bíður
þín með sveitabæ til að búa á,
fuglum til að mynda og landi til
að græða.
Ég sakna þín.
Signý.
Við vorum óaðskiljanleg sem
börn. Tvíburarnir, Jón og
Gunna, Knoll og Tott, úti að
leika, klifra og ærslast. Á
Sunnuvegi, Smárahvammi og
Hellisgötu. Í útilegu, sumarbú-
stað og Aðalvík. Ég geymi ótal
minningar um ljúfan dreng, ynd-
islegan vin og leikfélaga. Á ung-
lingsárum skildi leiðir. Þú valdir
þér erfiðu leiðina en ég fór þá
hefðbundnu.
En þó að tilveran hafi á
stundum reynst þér erfið varstu
alltaf sami góði ljúfi drengurinn
sem var svo ótrúlega stoltur af
og ánægður með alla í kringum
sig og þá sérstaklega litlu systk-
ini sín. Myndarlegur og glæsi-
legur varstu og hæfileikaríkur
með eindæmum, flinkur í hönd-
unum og íþróttamaður góður.
En því miður auðnaðist þér ekki
að nýta alla þá hæfileika til fulls.
Ég er svo heppin að eiga
svona yndislega og samheldna
fjölskyldu. Nú tökumst við sam-
an á við erfiðasta verkefnið
hingað til. Elsku Sif, Ingó, Þor-
björg Hekla, Jón Örn og Helgi
Valur. Missir ykkar er mikill og
höggið er þungt. Saman kom-
umst við í gegnum áfallið, á end-
anum.
Elsku fallegi frændi minn, nú
er baráttan við hugans púka á
enda, hann angrar þig ekki
meir.
Takk fyrir allt og allt, hvíldu í
friði og ró.
Þín
María Lind.
Mjök erum tregt
tungu at hræra
eða loptvætt
ljóðpundara;
esa nú vænligt
of Viðurs þýfi
né hógdrægt
ór hugar fylgsni.
Elsku Steinar Páll. Mér
finnst við hæfi að gera upphafs-
orð Egils Skallagrímssonar í
Sonatorreki að mínum. Mjög er
mér tregt tungu að hræra og
orð eru ekki hógdræg úr hugar-
fylgsni. Fréttin um andlát þitt
kom eins og þruma úr heiðskíru
lofti og ég hef átt erfitt með að
átta mig á að þú gangir ekki
lengur um götu mína.
Ég hef fylgst með þér vaxa úr
grasi í afar samrýndum frænd-
systkinahópi, börnum okkar og
systra konu minnar. Á hverju
sumri áttum við öll saman 10
daga í Aðalvík, náin saman í litlu
húsi, nutum náttúrunnar og
samvistanna.
Þú varst góður drengur, ætíð
boðinn og búinn að rétta hjálp-
arhönd. Aldrei lá þér illt orð til
nokkurs manns heldur gladdist
innilega yfir velgengni þeirra
sem voru í kringum þig. Það var
gott að leita til þín – „Þú bara
hringir ef þú þarft aðstoð“ var
viðkvæðið og ef ég hringdi
varstu mættur eftir smástund
og snöggur að taka til hendinni,
hraustur og öflugur.
Mér fannst gott að geta
glaðst með þér þegar vel gekk
og rætt sameiginleg áhugamál,
en við deildum áhuga á nátt-
úrunni og sérstaklega fuglum.
Mér þótti gaman að fylgjast
með þér taka þín fyrstu skref í
fuglaljósmyndun og sjá þig
fanga mörg falleg augnablik. Við
fórum saman að skoða fugla
suður með sjó og ræddum þá
um heima og geima, bæði okkar
hjartans mál jafnt sem heims-
málin. Ég sakna þessara stunda
og finnst afar sárt að þær skuli
ekki eiga eftir að verða fleiri.
Fljúgðu með fuglunum elsku
Steinar Páll, þú aðstoðar mig við
vængjatökin þegar þar að kem-
ur.
Magnús Ingi.
Hjartað mitt er brostið, svona
á lífið og tilveran ekki að vera,
foreldrar eiga aldrei að þurfa að
jarða börnin sín, aldrei.
Steinar Páll var yndislegur,
góður og hjartahlýr strákur.
Fallegur að innan og utan. Mér
þótti svo óskaplega vænt um
hann, hann kom oft yfir til mín
til að spjalla og sagði mér frá
draumum sínum og framtíðar-
áformum.
Við fluttum í næsta hús við
hann og fjölskyldu hans í árs-
byrjun 2001. Þá var Steinar á
tólfta ári og við bjuggum þar í
18 ár eða þar til fyrir tæpum
tveimur árum þegar við fluttum
á Akranes.
Þegar þú býrð við hliðina á
góðu fólki verður það eins og
hluti af fjölskyldu þinni. Það er
alla vega mín upplifun og mínar
tilfinningar hvað varðar Steinar
og hans fjölskyldu. Þessi ár á
Lóuhrauninu, í næsta húsi við
Steinar og hans fjölskyldu, var
blómaskeið í okkar lífi. Þarna ól-
um við börnin okkar upp saman
með afar kærum nágrönnum og
miklum samgangi, deildum sorg-
um og gleði.
Mig svíður í hjartað og á ekki
orð til að lýsa tilfinningum mín-
um fyrir ykkar hönd, kæra fjöl-
skylda.
Sorgin er erfið fylgd en minn-
ing um góðan dreng lifir í hjört-
um okkar sem þekktu hann.
Mér fannst ég alltaf eiga
pínulítið í honum og hann mun
alltaf eiga stóran stað í hjarta
mínu. Svo ég skrifi af einlægni
þá hélt ég á tímabili að hann
yrði tengdasonur minn.
Megi allir góðir vættir og
himnaherskarar fylgja honum
og ykkur öllum, elsku fjölskylda
og vinir.
Þið eruð mér öll afar dýrmæt
og ég sakna þess alltaf að hafa
ykkur ekki í næsta húsi. Hugur
minn, tár mín og samúð er hjá
ykkur, elsku vinir.
Minning þín, elsku Steinar,
varðveitist áfram hjá okkur öll-
um sem þekktu þig.
Hvíl í friði elsku hjartans vin-
ur og takk fyrir ljúf og mikilvæg
kynni.
Þín vinkona,
Stella María
Arinbjargardóttir.
Hann er fagur álitum og
bjartur svo að lýsir af honum.
Svo er ásnum Baldri lýst í
Gylfaginningu og þrátt fyrir
dökkt yfirbragð þitt á þessi lýs-
ing svo sannarlega einnig við um
þig. Það var brosið og þetta glit
í augunum sem gat lýst upp um-
hverfið svo erfitt var að gera
annað en að verða glöð og brosa
sínu breiðasta á móti. Þú varst
alltaf svo jákvæður, hlýr og ein-
lægur. Ást þín á fjölskyldu þinni
og stolt af systkinum fór heldur
ekki framhjá neinum.
Þú varst sannkallað náttúru-
barn og undir þér vel í líkam-
legri vinnu undir berum himni.
Þú fórst þínar eigin leiðir og
hélst út í nám í stjórnun og
rekstri golfvalla og á milli þess
sem golfvellir landsins nutu
hæfileika þinna áttir þú góðar
stundir sem vinnumaður á
sveitabænum Mýri. Þinn draum-
ur var að eignast þinn eigin
bóndabæ. Hugsa um dýrin,
rækta landið og gerast sjálfbær.
Nokkuð sem við hin ættum að
taka til fyrirmyndar.
Elsku Steinar, þú kvaddir
okkur allt of fljótt, svo fljótt að
við fáum það ekki skilið. Og líkt
og goðin grátum við góðan
dreng, harminum verður ekki
komið í orð.
Elsku Sif, Ingó, Þorbjörg
Hekla, Jón Örn og Helgi Valur,
ég votta ykkur mína dýpstu
samúð á þessum erfiðu tímum.
Renata.
Steinar Páll hafði mikil áhrif
á mig og verður alltaf með mér í
hug og hjarta. Hann er ástæðan
fyrir því að ég fór á fullt í golf-
íþróttina þegar ég var orðinn
hálfþrítugur. Á Ísafirði bjuggum
við á sama tíma, á móti hvor
öðrum í sömu blokkinni. Ég að
þjálfa handbolta á svæðinu og
Steinar Páll starfaði sem vall-
arstjóri hjá Golfklúbbi Ísafjarð-
ar. Eirðarlaus handboltaþjálfari
að sumri til leitaði þá til Stein-
ars til að finna félagsskap og
verkefni. Duglegi vallarstjórinn
gaf mér lítil verkefni við völlinn
og taldi síðan stjórn klúbbsins á
að gefa mér fríspil á golfvell-
inum í staðinn. Eftir vinnudag-
inn hans spiluðum við reglulega
níu holur saman þar sem var
skellt upp í létta keppni. Steinar
fór þá létt með að sigra mig
þrátt fyrir að spila djarft og
hugsa meira um skemmtanagildi
hvers höggs. Hann „drive-aði“
eins fast og hægt var, eða lék
sér að því að stjórna flugi bolt-
ans, og ef það gekk eftir átti
hann oftar en ekki auðveldan
möguleika á fugli. Ef ekki þá
náði hann að töfra fram par eða
í versta falli skolla með hug-
myndaríkum höggum í kringum
flötina.
Ef það væri ekki fyrir
skemmtilegu stundirnar okkar á
Ísafirði, þá væri ég ekki á þeirri
vegferð sem ég er á í dag.
Ég mun hugsa til Steinars
Páls í hvert skipti sem ég hlusta
á Led Zeppelin eða The Doors
og þegar ég spila golf.
Steinar, ég sakna þín, og
þrátt fyrir að þú sért ekki með
okkur lengur þá lifir minningin
þín áfram með mér og öllum
sem þekktu þig, þá sérstaklega
hjá þinni frábæru fjölskyldu.
Ingó, Sif, Þorbjörg, Jón Örn
og Helgi Valur, hugur minn er
hjá ykkur öllum. Þessi enda-
lausa ást sem þið berið hvert til
annars er öllum til eftirbreytni
og Steinar Páll var heppinn að
eiga ykkur að.
Þinn frændi og vinur,
Grétar Eiríksson.
Steinar Páll
Ingólfsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON,
Hraunbæ 176,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 31. júlí. Útförin fer fram
frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 8. ágúst klukkan 13.
Sigrún R. Eymundsdóttir
Halldór Jónsson
Ómar Jónsson Guðrún B. Magnúsdóttir
J. Helena Jónsdóttir Guðmundur Símonarson
Björgvin S. Jónsson Rakel Þórisdóttir
Þóra Guðrún Karlsdóttir Páll Júlíus Gunnarsson
Örvar Karlsson Aðalheiður Rut Önundardóttir
barnabörn og barnabarnabörn