Morgunblaðið - 06.08.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
VATNSHELDIR
SKÓR
Lytos Cosmic Run er léttur
alhliða útivistarskór
Verð 22.995
Stærðir 36 - 47
Innsóli: Anatomico Ortholite
Sóli: Vibram Skyrunning Advanced
Þyngd: 361 gr (í stærð 42)
Páll Vilhjálmsson bendir á aðáköfustu talsmenn viðurkenni
óvissuna um orkupakkann sinn.
Fjöldahreyfing vill stöðva innleið-
ingu pakkans, almennir sjálfstæð-
ismenn andmæla stefnu foryst-
unnar, þjóðin er á móti og fylgið
hrynur af flokknum. „Óvissa“ sé
vægt orð um pólitískar hamfarir:
’’
Móðurflokkurinn er í sömu
stöðu og strax eftir hrun,
bjargarlaus og rökþrota. Sjálf-
stæð-
isflokk-
urinn er
við það
að tapa
forystu-
hlutverki
sínu í ís-
lenskum stjórnmálum. Himinn og
haf er á milli ráðherra flokksins
sem kalla orkupakkann þýðing-
arlaust smámál en er stór-
hættulegt valdaframsal á fullveldi
þjóðarinnar í augum andstæðinga
pakkans.
Forysta Sjálfstæðisflokksins ereinangruð í málinu. Öll rök
falla til Dýrafjarðar og sá fjörður
er í fullvalda Íslandi. Eftir það sem
á undan er gengið yrði versta nið-
urstaða Sjálfstæðisflokksins að fá
orkupakkann samþykktan. Á yfir-
borðinu liti samþykkt út eins og
stórsigur. En þegar sæstrengs-
umræðan fer á fullt í kjölfarið mun
opinberast að varnir Íslands eru
stórum veikari, einmitt vegna
orkupakkans.
Sjálfstæðisflokkur sem skipulegaveikir fullveldi landsins er
skrímsli sem eyðir sjálfu sér. For-
ysta Sjálfstæðisflokksins hefur fá-
eina daga til að vakna og bregðast
við áður en óbætanlegt tjón hlýst
af. Annars verður ,,smámálið“,
orkupakkinn, litla þúfan sem veltir
fylgishlassi Sjálfstæðisflokksins og
dreifir því um víðan völl.“
Skekur „smámál“
stóran flokk?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Áform nígerskra stjórnvalda um að
lækka innflutningstolla á þurrkuðum
þorskhausum úr 20% í 10% eru uppi
á borðinu og
myndu umrædd-
ar lækkanir koma
sér vel fyrir ís-
lenska útflytj-
endur í geiranum.
Í norska sjáv-
arútvegsmiðl-
inum Fisk-
eribladet er sagt
frá umræddri
tollalækkun en í
samtali við Morgunblaðið segir Vík-
ingur Þórir Víkingsson, fram-
kvæmdastjóri fiskþurrkunarfyr-
irtækisins Haustaks, að hann hafi
fengið tilkynningu um þessar áætl-
anir en þær hafi þó ekki enn komið til
framkvæmda. Gjarnan þurfi að taka
fréttum sem þessum með fyrirvara.
Myndi hjálpa mikið
„[Nígeríumenn] hafa verið að tala
um þetta og gefa þetta út, en þetta er
ekki komið í gegn. Því miður,“ segir
Víkingur og segist hafa fengið bréf
með tilkynningu frá Nígeríu um um-
rædd áform. Hann hafi í kjölfarið
haft samband við sitt fólk þarlendis
og fengið upplýsingar um að ófá
viðlíka bréf hefðu áður verið send út,
án þess að þeim fylgdi endilega
tollalækkun.
Spurður hvaða áhrif það hefði ef
umrædd tollalækkun yrði að veru-
leika segir Víkingur að það myndi
hjálpa heilmikið. „Við erum að fram-
leiða ódýra vöru. Allt svona hjálpar,
sérstaklega fyrir kaupendamark-
aðinn.“
Hann segist ekki vera mjög von-
góður um að þessari tilkynningu fylgi
tollalækkun og segir: „Maður er bú-
inn að fá þetta oft. En svo gæti þetta
auðvitað allt í einu dottið inn.“
Spurður hverja hann telji vera
ástæðuna fyrir því að umrædd tolla-
lækkun hafi lengi verið uppi á borð-
inu en ekki komist í framkvæmd
nefnir hann efnahagsástandið í Níg-
eríu og segir að væntanlega þyrfti
það að batna til að til tollalækunar-
innar gæti komið. „Þá munar um
þessi tíu prósent í ríkiskassann.“
Segir hann þó að ástandið sé
skárra þar í landi en var fyrir nokkr-
um árum en bætir við: „En það er
svolítið í land enn þá.“
Tekur fréttunum
með fyrirvara
Víkingur Þórir
Víkingsson
Nígeríumenn boða tollalækkun
Við komu Norrænu til Seyðis-
fjarðar á fimmtudag fundu toll-
verðir umtalsvert magn fíkniefna í
fólksbíl. Var fólksbíllinn tekinn í
sundur svo næðist í efnin.
Tveir erlendir karlmenn voru
úrskurðaðir í tveggja vikna gæslu-
varðhald í Héraðsdómi Austur-
lands vegna málsins.Þeir hafa ver-
ið fluttir til Reykjavíkur.
Alls fundust 45 kíló af amfeta-
míni og kókaíni í fólksbílnum, en
það var fíkniefnahundurinn frá
Egilsstöðum sem rann á lyktina.
Samkvæmt heimildum mbl.is er
um að ræða verðmætasta magn
fíkniefna sem lagt hefur verið hald
á hér á landi frá upphafi. Þá er
einnig um eitt mesta magn fíkni-
efna, sem lagt hefur verið hald á
hér á landi, að ræða.
Verst allra fregna
Lögreglan á Austurlandi fer
með rannsókn málsins í samvinnu
við lögregluna á höfuðborgarsvæð-
inu. Hún segir rannsóknina á við-
kvæmu stigi og hyggst ekki veita
frekari upplýsingar að svo stöddu.
Mesta magn af sterkum fíkni-
efnum sem lagt hefur verið hald á
var í Papeyjarmálinu fyrir rúmum
tíu árum. Hlutu sex menn dóm
fyrir að smygla til landsins 55
kílóum af amfetamíni og 9.400 e-
töflum.
Verðmætasta magn efna frá upphafi
Tveir útlendingar reyndu að smygla 45 kg af amfatamíni og kókaíni
Ljósmynd/Pétur Kristjánsson
Smygl Fíkniefnin voru vel falin bíl
sem kom með Norrænu.