Morgunblaðið - 06.08.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.08.2019, Blaðsíða 20
Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9- 16. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opið hús t.d. spil kl. 13-15. Brids kl. 12.30. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12-16. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Brids og kanasta kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. ENGINN SALATBAR Í DAG, verður á morgun miðvikudag 7. ágúst. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomn- ir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Tölvu- og snjallsímakennsla kl. 10.30. Opin handverkstofa alla virka daga. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegismatur frá kl. 11.30 til 12.30 alla daga vikunnar og kaffi frá kl. 14.30 til 15.30 alla virka daga. Verið hjartanlega velkomin á Vitatorg. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 alkort. Gullsmári Myndlistahópur kl. 9-11.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.fl. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019 ✝ BrynhildurJónsdóttir fæddist á Akur- eyri 27. febrúar 1924. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 25. júlí 2019. Foreldrar Bryn- hildar voru hjónin Guðný Ólöf Magn- úsdóttir húsfreyja, f. 10. júlí 1896, d. 17. júlí 1977, og Jón Bene- diktsson prentari, f. 15. júní 1898, d. 14. nóvember 1982. Systkini Brynhildar voru 1) Heiðbjört Unnur, f.11. sept- ember 1922, d. 20. febrúar 1981, lést 10 daga gamall og Þráinn Haraldsson, f. 1984. 2) Hulda Maggý, f. 1957, eig- inmaður Ingvar Björn Ólafs- son, börn: Birna Ruth Jó- hannsdóttir, f. 1978, Sóley Ragnarsdóttir, f. 1984 og Gunnar Sær Ragnarsson, f. 1995. Langömmubörn Bryn- hildar og Gunnars eru 12. Brynhildur ólst upp á Ak- ureyri en flutti til Reykjavíkur um 25 ára aldurinn og bjó þar alla tíð síðan. Hún starfaði lengst af við afgreiðslustörf og hvað lengst í söluturninum við Hálogaland eða hinni þekktu „Teitssjoppu“. Áhugamál Brynhildar voru mörg, starfaði hún lengi vel með Kvenfélagi Laug- arnessóknar og gegndi hinum ýmsu trúnaðarstörfum. Útför Brynhildar fer fram frá Ás- kirkju í dag, 6. ágúst 2019, klukkan 13. 1981. 2) Áslaug, f. 3. apríl 1928, d. 2. september 2008. 3) Kári Bragi, f. 21. júlí 1930, d. 14. september 2013. Brynhildur gift- ist hinn 14. desem- ber 1952 Gunnari Sumarliðasyni, f. 4. júlí 1927, d. 19. janúar 2015. Dætur þeirra eru: 1) Guðný Jóna, f. 31. maí 1953, eiginmaður hennar er Haraldur Þráinsson, börn: Björn Steindórsson, f. 1970, Brynhildur Steindórsdóttir, f. 1974, Þráinn Haraldsson, f. Nú hefur ástkær móðir okkar lokið lífsgöngu sinni og kvatt í hinsta sinn. Mamma sem alltaf hefur verið til staðar fyrir okkur systur, börnin okkar og barna- börn. Það er erfitt að kveðja og einhvern veginn er maður aldrei viðbúinn þeirri kveðju. Mamma var sterkur persónu- leiki sem lá ekki á skoðunum sínum, dugleg og vinnusöm, má eiginlega segja að henni hafi aldrei fallið verk úr hendi. Hún var útivinnandi húsmóðir og var kannski aðeins á undan sinni samtíð og jafnréttissinni hvað varðaði heimilisstörfin því hún og pabbi sinntu heimilisþrifum, uppvaski og öðru tilheyrandi saman sem var ekki algengt hér fyrr á árum. Í minningabrotum okkar systra eru ógleymanlegir kjól- arnir, peysurnar og annar fatn- aður sem mamma fór létt með að sauma og prjóna á okkur, hún var handlagin mjög. Mat- urinn hennar mömmu klikkaði ekki frekar en baksturinn, bak- arameistari mikill. Mamma var stolt af að vera Akureyringur, átti yndislega foreldra og góðar minningar úr æsku með þeim Heiðu og Ásu systrum sínum og Kára bróður. Mamma naut þess að ferðast jafnt innanlands sem utan, eig- um við margar góðar minningar frá ferðalögum með mömmu og pabba. Á hverju sumri var brun- að til Akureyrar í Þórunnar- stræti í ömmu- og afahús og öll stórfjölskyldan saman komin og átti saman gleðistundir. Utanlandsferðirnar voru ófá- ar með Ásu systur sem var mömmu mjög kær og svo seinna gat hún platað pabba í sólar- landaferðir sem hann hafði ekki áhuga á í fyrstu en lét tilleiðast og þar við sat, þau nutu þessara ferða og pabbi ekki síður. Það er ekki hægt að minnast mömmu án þess að tala um sundlaugar, hún elskaði að synda og sótti sundlaugarnar í Laugardal nær daglega í ára- tugi, var hálfómöguleg ef hún komst ekki í sundið sitt. Mamma og pabbi hafa líklegast heimsótt flestallar sundlaugar landsins. Elsku mamma, sunddrottn- ingin mikla, nú syndir þú á vit nýrra ævintýra ásamt pabba sem bíður þín við sundlaugar- bakkann og saman munuð þið synda í landi ljósanna. Elsku mamma, takk fyrir all- ar minningarnar sem við sköp- uðum saman og við varðveitum í hjörtum okkar. Guðný Jóna og Hulda Maggý. Það er erfitt að kveðja ömmu, sem alltaf hefur staðið sem traustur klettur í lífi okkar. Það er með sorg í hjarta en þakklæti í huga sem við ritum þessi minningarorð. Við söknum hennar mikið því amma var ein- stök kona með stórt hjarta, auð- mjúk og hafði alltaf tíma fyrir okkur. Ég hef ávallt verið stolt af því að bera nafn hennar. Við minnumst heimsókna okkar til ömmu og afa á Klepps- veginn með þakklæti og eftirsjá. Ávallt var tekið vel á móti manni með þéttu faðmlagi. Við eigum góðar minningar um yndislegar stundir með ömmu. Það var setið löngum stundum og spiluð hin ýmsu spil enda amma mikil spilakona. Samhliða spili var spjallað um heima og geima. Það var hægt að ræða um allt við ömmu og hún gaf alltaf góð ráð. Hún ræktaði vel fólkið sitt og hafði stóran faðm fyrir fjölskylduna sína. Gesta- gangur var mikill og veisluhöld. Amma sá um að bera á borð dýrindis veitingar og afi var með viskustykkið á öxlinni og sá um uppvaskið. Amma var við góða heilsu, þar til nú síðustu ár, og ef til vill má þakka því að hún og afi fóru í sund nánast á hverjum morgni til margra ára. Þær eru ófáar sundferðirnar sem við höfum farið í með þeim. Ömmu leið vel í vatninu, var öflug sundkona og síðari ár stundaði hún sundleik- fimi í lauginni sinni, Laugar- dalslaug. Amma elskaði að fara utan í sólina og nutum við barnabörnin svo sannarlega góðs af því. Amma og afi gáfu öllum barna- börnum sínum utanlandsferð í fermingargjöf. Þær voru marg- ar ferðirnar sem amma fór í meðal annars til Spánar og hún naut þess að baða sig þar í sól- inni. Það var alltaf gaman í ferð- um með ömmu og hún var til í alls konar sprell með okkur, svo sem salíbunur í vatnsrenni- brautagörðum. Hún ferðaðist einnig oft með Ásu systur sinni, bæði innan lands og utan, enda voru þær mjög nánar systur og amma missti mikið þegar hún féll frá. Akureyri skipaði stóran sess í huga hennar, enda bjó hún þar fram yfir tvítugt og þótti henni óskaplega vænt um bæinn sinn. Hún var stolt af því að vera Ak- ureyringur. Amma og afi fóru margar ferðir norður og þar þótti henni gott að vera. Við fengum stundum að fara með og ekki leiddist okkur það. Við biðjum góðan Guð að styrkja elsku mömmu og Maggý frænku í sorginni. Minningin um góða ömmu mun ávallt lifa með okkur. „Nú varir trú, von og kærleikur. Þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur.“ (1. Kor. 13.13) Brynhildur, Þráinn og fjölskyldur. Elsku amma. Það verður skrítið að halda áfram án þín. Þú hefur alla tíð verið klettur í mínu lífi og ég minnist með mik- illi gleði allra þeirra stunda sem við eyddum saman þegar ég var yngri við það að spila, spjalla saman og læra að prjóna. Ekki síst allra stundanna sem ég eyddi í að láta þig dekra við mig með bestu pönnukökum í heimi, besta grjónagraut í heimi, eggjakökum og mínútugrills- samlokum um leið og ég smellti fingrum. Þér fannst það nú lítið mál að „Sóleyin þín“ fengi það sem hún vildi þegar hún vildi og þú sagðir aldrei nei. Í staðinn baðstu stundum um að ég semdi fyrir þig ljóð eða syngi fyrir þig Maístjörnuna. Ekki slæmur díll fyrir mig. Þið afi fóruð í sund á hverj- um morgni og nenntuð alltaf að taka litlu mig með ykkur þótt ég vaknaði nú yfirleitt í seinni kantinum fyrir ykkar smekk. Þú og afi gátuð meira að segja gert fínustu skemmtun úr því að brjóta saman þvott, sem er nokkuð sem ég þori að veðja að allir myndu vilja vita hvernig þið fóruð að. Ég hef alla tíð vit- að að ég ætti í þér konu sem trúði á mig, taldi mig geta allt og elskaði mig skilyrðislaust og þannig elskaði ég þig til baka. Þú hefur, öll mín 35 ár, verið ein af mínum helstu fyrirmynd- um og einn fallegasti persónu- leiki sem ég hef kynnst. Sakna þín og hugsa endalaust til þín, elska þig. Sóley. Elsku besta og yndislega langamma Adda eins og þú varst alltaf kölluð. Nú kveðjum við þig í hinsta sinn með tárvot augu og bros á vör á meðan minningarnar streyma um hug okkar systkina. Það er alltaf jafn erfitt að kveðja en á sama tíma erum við ánægð og þakklát að hafa haft þig í þennan langa tíma og geta kynnst þér. Allar heimsóknirnar og matarboðin hjá þér og langafa Gunnari á Kleppsveginum þar sem möndlugrauturinn var í uppá- haldi hjá okkur systkinum klukkan sex á Þorláksmessu- kvöld, það var sko ekki bara ein mandla heldur nokkrar, það var heil mandla án hýðis og með hýði, hálf mandla án hýðis og með hýði, og alltaf fengum allir krakkarnir eitthvað lítið og fal- legt. Ekki má gleyma Nóa-Síríus- rjómasúkkulaðinu sem var iðu- lega til og þið buðuð upp á, þú passaðir alltaf að við fengjum nóg af súkkulaði og helst meira en við torguðum. Það var alltaf gaman að kíkja í heimsókn til ykkar á Kleppsveginn enda leið manni alltaf vel hjá Öddu lang- ömmu og langafa Gunnari. Sundferðirnar í Laugardals- laugina voru þó nokkrar með ykkur langafa. Síðustu árin þín heimsóttum við þig á Skjól, þar varstu yfirleitt alltaf hress en stundum fussaðirðu og sveiaðir yfir sumu starfsfólkinu eða vist- mönnum. Rjómasúkkulaðið var á sínum stað í skúffunni og ekki mátti gleyma að skrifa í gesta- bókina. Langamma minntist iðulega á hversu falleg við værum og spurði reglulega hvort maður væri kominn með kærasta eða kærustur og hvort við systkinin værum nú ekki trúlofuð. Það var alltaf stutt í grínið og húm- orinn hennar langömmu leyndi sér ekki. Langamma var hjarta- góð og hlý og þegar maður kom til hennar og tók um hönd hennar sagði hún iðulega „þér er svo kalt, elskan“ og maður svaraði „já það er svolítið kalt úti“, þá horfði hún á mann og sagði „kaldar hendur, hlýtt hjarta“, hló og brosti af ánægju. Við munum geyma allar þær minningar sem við eigum um elsku langömmu Öddu í hjarta okkar um ókomna tíð og vitum að núna er hún komin yfir í sumarlandið til langafa Gunn- ars. Að lokum minnumst við orðanna þinna sem þú sagðir við okkur oftar en einu sinni og oft- ar en tvisvar: „Enginn ræður sínum næturstað“ og það er svo sannarlega rétt, við vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Þín langömmubörn, Svandís Birna, Benedikt Svavar og Steindór Máni. Þá er elsku amma öll, 95 ára gömul. Það er vissulega hár ald- ur og ég er þakklát fyrir að hafa fengið að hafa ömmu svo lengi hjá mér. En samt sem áður er tilfinningin skrýtin að nú sé hennar tími liðinn. Einhvern veginn var maður farinn að halda að amma yrði 100 ára. Hraust var hún þó svo að legg- irnir hafi verið orðnir lúnir. Hún heyrði vel og sá og naut fé- lagsskapar sinna nánustu. Á blíðviðrisdögum eins og þeim sem við höfum upplifað undanfarið er ekki annað hægt en að hugsa til þess hvað amma hefði verið að gera. Það er alveg á hreinu, Laugardalslaugin var hennar staður. Þar gat hún leg- ið og baðað sig í sólinni, dag eft- ir dag. Enda fóru hún og afi nánast daglega í sund, vetur, sumar, vor og haust. Og þangað fór ég í margar sundferðirnar með ömmu og afa. Minningarn- ar hrannast upp á þessum tíma- mótum og glefsur héðan og það- an skjótast upp í hugann. Laugardalslaugin, kóngabrjóst- sykur, súkkulaðikleinuhringir, Atrix-handáburður, Lada, Blanda ávaxtasafi, Akureyri, Litli-Garður, Þórunnarstræti 93, köld sturta, mjúkar hendur, ull- arbolur, Ólsen Ólsen, krossgát- ur, Mallorca, kvöldbænir. Dýr- mæt minningarbrot sem ylja á kveðjustund. Amma elskaði að vera á Spáni og ég er nokkuð viss um að þannig sá hún himnaríki fyrir sér. Hún var þess fullviss að afi biði eftir sér á ströndinni og ég trúi því að þau séu sameinuð á ný, á hlýrri og sólríkri strönd, í sínu eigin himnaríki. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson) Birna Ruth. Brynhildur Jónsdóttir Önnu kynntist ég þegar ég var um það bil tveggja ára gömul þegar við foreldrar mínir fluttum í sama stigagang og þau Jón, eiginmaður hennar, bjuggu. Það má segja að börnin í stigaganginum og þá sérstak- lega ég og seinna bróðir minn höfum laðast að Önnu og Jóni, Anna Kristín Jónsdóttir ✝ Anna KristínJónsdóttir fæddist 3. júní 1931. Hún lést 12. júlí 2019. Útför Önnu fór fram 2. ágúst 2019. enda voru þau ein- stök þegar kemur að börnum þótt þau hafi ekki eign- ast börn sjálf. Á tímabili leið varla dagur án þess að ég segði við mömmu og pabba að ég ætlaði „upp til Önnu og Jóns“ og það þurfti ekk- ert sérstakt tilefni heldur var það bara til þessa að eiga notalega stund í smá dekri hjá þeim. Á þessum tíma þró- aðist vinskapur með þeim hjón- um og okkur, mér og foreldrum mínum. Það voru auðvitað for- réttindi að eiga hana Önnu að fyrir svona stelpuskottu sem var oft ein heima eftir skóla á daginn á meðan foreldrarnir voru enn að vinna, en Anna var heimavinnandi og alltaf til taks. Hún kenndi mér hinar ýmsu vísur og hún söng mikið fyrir mig, fléttaði hárið mitt og átti alltaf eitthvert góðgæti. Svo fæddist Jakob bróðir minn nokkrum árum seinna og áttu þau Anna og Jón alveg einstakt samband við hann frá upphafi. Hann þvældist með þeim hing- að og þangað um landið í ferðir með Kvæðamannafélaginu og öðrum félagsskap sem þau hjónin voru í, alveg frá unga aldri. Og það má segja að hann hafi tekið við af mér þegar ég komst á gelgjuna og farið að skreppa „upp til Önnu og Jóns“ í tíma og ótíma. Sambandið við þau hjónin þróaðist út í mjög dýrmætan vinskap og miklu meira en það. Þau urðu partur af okkar fjöl- skyldu og deildu með okkur öll- um hátíðum og viðburðum. Það hefur alltaf reynst mér nokkuð erfitt að útskýra tengsl mín við Önnu fyrir fólki þar sem mér finnst „vinkona“ ekki nægilega lýsandi fyrir þetta samband. Anna hefur verið mér og bróð- ur mínum sem eins konar auka- amma og eldri börnin mín, sem eru unglingar í dag, héldu lengi vel að hún væri ein af lang- ömmuhópnum þeirra. Í dag fylgjum við því Önnu eða ömmu til grafar og kveðj- um í hinsta sinn og ég ætla að trúa því að nú sért þú, Anna mín, komin til hans Jóns þíns og ég segi við þig eins og þú sagðir við mig nokkrum dögum fyrir andlát þitt, „ég bið að heilsa“. Fanney Friðþórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.