Morgunblaðið - 06.08.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.08.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2019 KRINGLAN – DUKA.IS Greensaver box 1,6l - 3.390,- Greensaver box 4,3l - 4.490,- Greensaver box 5l - 5.190,- Salatvinda lítil - 6.490,- Salatvinda stór -7.390,- 40 ára Valgarð ólst upp á Seltjarnarnesi en býr nú í Reykjavík. Hann er með BSc í við- skiptafræði frá Háskól- anum í Reykjavík og MSc í hagfræði og fjár- málum frá Copen- hagen Business School. Hann starfar nú sem sjóðstjóri hjá Landsbréfum. Maki: Brynja Brynjarsdóttir, f. 1980, flugfreyja hjá Icelandair og hár- greiðslukona á Unique. Börn: Garðar, f. 2009, Brynjar, f. 2013 og Birta, f. 2017. Foreldrar: Garðar Briem, f. 1956, lög- fræðingur og Áslaug Viggósdóttir, f. 1955, fyrrv. skrifstofustjóri. Valgarð Briem Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Slakaðu aðeins á, þér hættir til að gera of mikið úr einföldustu hlutum, eins og að mála eða færa húsgögnin. Sýndu sveigjanleika. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert vonsvikin/n vegna þess að fólk stendur ekki undir væntingum þín- um. Allt er best í hófi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Taktu hlutunum eins og þeir eru sagðir og reyndu ekki að kryfja þá til mergjar. Ekki dæma þann sem þú þekkir ekki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér berst hugsanlega óvænt gjöf í dag. Hver gefandinn er veldur þér heilabrotum. Ekki grípa fram fyrir hendurnar á öðrum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Sköpunarkraftur þinn er mikill þessar vikurnar, nýttu þann tíma vel. Launaðu illt með góðu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fólkið í kringum þig leggur sitt af mörkum til þess að auka lífsgæði þín. Þú kærir þig kollótta/n um kjafta- sögur sem þú heyrir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sýndu sveigjanleika í samskiptum þínum við aðra því það ber bestan ár- angur. Þig langar að fara í nám. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fylgdu hjartanu. Að öðrum kosti kann allt að fara i handaskolum. Stundum kaupir maður köttinn í sekkn- um. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ástvinir munu reyna að troða sínum reglum upp á þig, en átta sig á að það er tímaeyðsla. Heilsan er það dýrmætasta sem þú átt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gættu þess að hafa fólk í kringum þig sem fyllir þig gleði og krafti. Nöldur hrífur ekki á þig. Þú gengur með góða hugmynd í mag- anum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fólk fær að láni frá þér, sem er viðurkenning í sjálfu sér. Margir eru tilbúnir til að styðja þig. Skoðaðu möguleikana eins og þær eru. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er eitt og annað sem þú átt ógert en verður að ráða fram úr áður en haustið gengur í garð. Reyndu að sinna skrokknum eins og þú getur. ingur þingfunda, atkvæðagreiðslur og annað sem tengdist þinghaldinu, varð sífellt fyrirferðarmeira og á end- anum aðalviðfangsefni mitt.“ Helgi varð varaskrifstofustjóri 1993 og skrifstofustjóri Alþingis í janúar 2005. „Þetta hefur verið skemmti- legur tími, mikil forréttindi að vinna fyrir æðstu og elstu stofnun þjóð- félagsins. Þar hef ég kynnst af- bragðsgóðu fólki, bæði í starfsliði og ekki síður þingmannahópnum. Al- þingi hefur, eins og jafnan áður, á að skipa mjög öflugu fólki, og ég undrast hve dómharðir Íslendingar eru í garð þingsins og þingmanna. Ég held raunar að það sé fremur umræðu- háttur sem hefur fest sig í sessi á löngum tíma, en síður alvarlegt og raunverulegt mat manna á stofn- uninni og þingmönnum. Rangar skoðanir eiga sér jafnan ekki rót í heimsku og illgirni. Það er verðmæt lífsreynsla að sitja á Alþingi. Það hef- ur oft verið skemmtilegt að fylgjast með nýgræðingum þroskast og eflast í vandasömum og krefjandi störfum í þinginu og hinu pólitíska ati. Þing- mennskan er erfið og tekur á, krefst langra vinnudaga. Það verður enginn, held ég, samur eftir setu á Alþingi.“ En hvað er eftirminnilegast í starf- inu? „Starf skrifstofustjóra Alþingis er afar margþætt og umfangsmikið og fátt um næðisstundir. En á þess- um 15 árum sem ég hef verið skrif- stjórum sem þá unnu á blaðinu.“ Helgi fluttist til Eyja 1978 en eftir fjögur ár fór hann aftur til Reykjavík- ur og varð starfsmaður við ensk- íslensku orðabók Arnar og Örlygs 1982-83. Sumarið 1983 var hann á ný ráðinn á skrifstofu Alþingis sem deildarstjóri og hefur unnið í Alþing- ishúsinu síðan. „Það skipti sköpum fyrir mig í nýju starfi að hafa þá reynslu sem ég öðlaðist áður hjá Al- þingi. Ég fékkst fyrst við útgáfumál og ýmis skrifstofustörf en þing- störfin, skipulag þeirra, undirbún- H elgi Bernódusson, skrifstofustjóri Al- þingis, er fæddur í Vestmannaeyjum 6. ágúst 1949. „Þetta var laugardaginn í Þjóðhátíð. Ég var ógurlegur burður og fæddur stór og þungur. Móðir mín var þó inni í Herj- ólfsdal fram yfir miðnætti kvöldið áð- ur, horfði á brennuna á Fjósakletti, en fór svo heim, háttaði krakkana og fæddi mig svo eldsnemma um morg- uninn! Ég var sjöunda barn foreldra minna.“ Helgi er staddur á æskuslóð- um í Eyjum í dag. „Við fjölskyldan höfum dvalist hér yfir Þjóðhátíðina, og vissulega fer vel á því að halda upp á afmælið á hátíðinni, svo tengdur henni sem ég er. Ég var þó ekki mikill þjóðhátíðarmaður á táningsárum, stundaði ekki hið ljúfa líf í Dalnum, heldur var í bisness og drýgði þannig sumartekjurnar. Ekki veitti af því að ekkert var aflögu heima og ég varð sjálfur að kosta mig í skóla í Reykja- vík, oftast með því að púla í sól- arlausum frystihúsum á sumrin.“ Helgi lauk kennaraprófi 1970, stúd- entsprófi 1971, BA-prófi í íslensku 1976 og cand. mag.-prófi í íslensku 1982. „Þetta var barningur, ég varð í senn að vinna fyrir mér og stunda námið, sumpart utanskóla. Ég kenndi í Eyjum veturinn 1970-71 og var bókavörður þar 1978-82. Aðalgrein mín í háskóla var málfræði, íslensk og almenn. Ég var í hópi fyrstu stúdenta í almennum málvísindum og er af Chomsky-kynslóðinni. Chomsky hreif marga er hann hratt af stað byltingu í setningafræði og hún skil- aði miklu. Þau fræði eru nú eflaust komin í geymsluskúrinn. Ég hafði frábæra kennara í háskólanum.“ Helgi hóf að vinna fyrir Alþingi undir árslok 1973, við Alþingistíðindi, frágang og prentun þingskjala og gerð efnisyfirlita. „Það var ekki auð- velt að samræma vinnuna há- skólanámi, hún fór oftast fram á kvöldin, stundum fram á nótt, og mesta álagið var fyrir jól og að vori, einmitt þegar prófin stóðu yfir.“ Helgi var sumarmaður á Morgun- blaðinu 1974-77. „Það var spennandi að kynnast blaðamennsku og þeim skemmtilegu blaðamönnum og rit- stofustjóri var „hrunið“ erfiðast, óeirðirnar fyrir framan þessa gömlu og sögufrægu byggingu og árásirnar á hana. Okkur leið stundum hræði- lega illa.“ Helgi hefur tekið þátt í marg- víslegu alþjóðlegu samstarfi þing- starfsmanna, norrænu, evrópsku og alþjóðlegu. „Já, ekkert hefur gagnast mér meira í starfi en erlent samstarf. Ég þekki starf þjóðþinga á Norður- löndum, í Evrópu og raunar víðar, all- vel, og það er nauðsynlegt ef maður á að verða að liði við æskilega þróun þingstarfa hér heima, í veröld sem sí- fellt breytist.“ Helgi hefur dvalist er- lendis við nám, bæði í Danmörku og í Bandaríkjunum. Fjölskylda Kona Helga er Gerður Guðmunds- dóttir, MA, fv. menntaskólakennari. Hún er fædd á Hellissandi 9.3. 1948. Foreldrar hennar voru Magnea Sö- rensdóttir frá Hellissandi, f. 7.1. 1921, d. 7.7. 1995, talsímakona, og Guð- mundur Á. Böðvarsson, kaupmaður og sveitarstjóri á Selfossi, f. 1.1. 1916, d. 1.1. 1978. Stjúpfaðir: Einar Snæ- björnsson frá Hellissandi, f. 20.11. 1921, d. 19.3. 1998, bátsmaður og síð- ar verslunarmaður í Reykjavík. Synir Helga og Gerðar eru: 1) Árni, lögmaður, f. 25.7. 1981; kona hans er Sigríður Dögg Guðmunds- dóttir markaðsfræðingur, f. 16.1. 1981. Börn þeirra eru Auður Freyja, f. 6.3. 2008, Sólveig Katla, f. 23.6. 2013, og Kári Hrafn, f. 12.1 2017. 2) Kristinn, háskólanemi, f. 27.6. 1988. Systkini Helga eru Birna Berg, f. 8.3. 1938, Þorkell Birgir, f. 14.11. 1939, d. 17.3. 1943, Elínborg, f. 4.12. 1940, Þóra Birgit, f. 8.12. 1942, d. 26.1. 2013, Aðalbjörg Jóhanna (Lilla), f. 28.5. 1944, Birgir, f. 4.4. 1946, d. 1.3. 1979, Jón, f. 18.2. 1952, Þuríður, f. 13.11. 1954; hálfsystkin: Jóhannes, f. 1.11. 1959, Elín Helga, f. 16.9. 1963. Foreldrar Helga voru Aðalbjörg Jóhanna Bergmundsdóttir verka- kona, f. í Vestmannaeyjum, f. 27.12. 1919, d. 8.9. 2003, ættuð úr Álftaveri og Norðfirði, og Bernódus Þorkels- son skipstjóri, f. í Vestmannaeyjum 3.6. 1920, d. 11.2. 1957, ættaður úr Fljótshlíð. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis – 70 ára Morgunblaðið/Ómar Þing Skrifstofustjóri Alþingis situr þingfundi og er forsetum til aðstoðar, segir í þingsköpum. Helgi tók við embætti 2005 og lætur af störfum í lok ágúst. Enginn samur eftir setu á Alþingi Barnabörnin Kári Hrafn, Sólveig Katla og Auður Freyja Árnabörn. Myndin er tekin á tröppum sum- arbústaðar fjölskyldunnar í Úthlíð í Biskupstungum. 60 ára Sveinn Yngvi er Reykvíkingur og menntaður hér á landi og í Skotlandi. Hann er prófessor í íslenskum bók- menntum við Háskóla Íslands og hefur helg- að sig rannsóknum á skáldskap 19. ald- ar. Maki: Ragnheiður I. Bjarnadóttir, f. 1961, kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir á kvennadeild Landspítala. Börn: Þorbjörg, f. 1984, Brynja, f. 1987, og Hólmfríður, f. 1995. Foreldrar: Egill Sveinsson, f. 1930, bankamaður, og Brynja Tryggvadóttir, f. 1932, d. 2018, píanókennari. Sveinn Yngvi Egilsson Til hamingju með daginn Ragnhildur Helga fæddist í Reykjavík 20. desember 2018 á viku 30+5. Hún vó 1468 g og var 41 cm. Foreldrar hennar eru þau Guðný Vilmund- ardóttir og Geir Hansson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.