Morgunblaðið - 27.08.2019, Page 2

Morgunblaðið - 27.08.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Reyna áfram að ná samkomulagi  Ráðherra furðar sig á hótunum bresks þingmanns um viðskiptaþvinganir vegna aukins makrílkvóta Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við höfum ekki fengið neinar meldingar um viðskiptaþvinganir. Það er enda ekki einstakra þing- manna að gefa þær,“ segir Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Greint var frá því í Morgun- blaðinu í gær að fiskveiðinefnd Evr- ópuþingsins muni ræða mögulegar viðskiptaþvinganir vegna „einhliða töku Íslands og Grænlands á makr- íl“ á fundi hinn 4. september næst- komandi. Kristján Freyr Helgason, formaður samninganefndar Íslands um deilistofna strandríkja við Norður-Atlantshaf, upplýsti í sam- tali við blaðið að meðal þess sem falist gæti í slíkum viðskiptaþving- unum væri að loka höfnum fyrir Íslendingum og reyna að loka mörkuðum fyrir vörur. „Ég hefði álitið að ef menn fara yfir þetta mál af einhverri sann- girni þá sé ólík- legt að þeir fari að grípa til slíkra óyndisúrræða. Nær væri að eyða tíma og orku í að ná samkomulagi eins og Íslending- ar hafa ítrekað reynt að gera og munu að sjálfsögðu halda áfram að gera,“ sagði Kristján Þór sjávar- útvegsráðherra í samtali við Morg- unblaðið í gær. Hart hefur verið deilt um makríl- kvóta á Norður-Atlantshafi og hef- ur Evrópusambandið lýst óánægju með ákvarðanir Íslendinga, Græn- lendinga og Rússa um kvótaaukn- ingu. Chris Davies, formaður fisk- veiðinefndar Evrópuþingsins, hefur tjáð sig um þær ákvarðanir og sagt þær óábyrgar. „Mér finnst reyndar hreinlega með ólíkindum að heyra haft eftir þessum manni að Íslendingar stundi óábyrga fiskveiðistjórnun. Íslendingar eru að sjálfsögðu reiðu- búnir að upplýsa með hvaða hætti við höfum stundað hér veiðar með sjálfbærum hætti. Þegar kemur að umræðum um sameiginlega veiðistofna þá er það með ólíkindum að Noregur, Fær- eyjar og Evrópusambandið meini Íslendingum, og raunar Grænlend- ingum líka, að taka þátt í ákvörð- unum um úthlutun úr þessum mik- ilvæga stofni sem makríllinn er. Það er með öllu óréttmætt og ég læt ekki bjóða okkur Íslendingum það að gerð sé krafa á eitt ríki að draga einhliða úr veiðum á sameig- inlegum veiðistofni,“ segir Kristján Þór Júlíusson. Athygli vekur að í áðurnefndum hótunum um viðskiptaþvinganir af hendi fiskveiðinefndar Evrópu- þingsins er aðeins vísað til Íslands og Grænlands en ekki Rússlands, þótt staða Rússa þyki sambærileg við stöðu hinna landanna tveggja hvað veiðarnar varðar. Kristján segist aðspurður ekki vita hverju þetta sætir og vísar á Chris Davies. „Þetta er ágætis spurning. Hann verður bara að svara því sjálfur,“ segir Kristján sem sjálfur bíður eft- ir að heyra frá Davies. „Ég hef boð- ið þessum þingmanni og formanni fiskveiðinefndar ESB að koma til fundar og kynna sér málstað og röksemdir okkar. Það hefur ekkert svar borist við því boði ennþá.“ Makríllöndun Evrópusambandið er ósátt við makrílkvóta Íslendinga. Kristján Þór Júlíusson Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í gærmorgun breytingar á reglugerð og munu sveitarfélög, einstaklingar og óhagnaðardrifin félög á lands- byggðinni fljótlega geta tekið lán hjá Íbúðalánasjóði til húsnæðisupp- byggingar á stöðum þar sem önnur fjármögnun er ekki í boði. Undirrit- unin fór fram á Drangsnesi í Stein- grímsfirði. Vestfirðir eru dæmi um landsvæði þar sem markaðsbrestur veldur því að ekki er byggt íbúðar- húsnæði þrátt fyrir mikla eftirspurn. Í tilkynningu frá félagsmálaráðu- neytinu segir að það hafi komið fram að bæta þurfi aðgengi að lánsfjár- magni á landsbyggðinni til að bregð- ast við húsnæðisvanda og stöðnun í húsbyggingum sem þar ríkir. Fjár- mögnunin sé háð því að um nýbygg- ingar sé að ræða og hún sé aðeins í boði þar sem opinber húsnæðisáætl- un, staðfest af Íbúðalánasjóði, sýni að skortur sé á húsnæði af því tagi sem byggja á. Til að geta fengið áðurnefnd lán er sett það skilyrði að lántaki sýni fram á að hann fái ekki lán hjá öðrum lánastofnunum eða fái einungis lán á verulega hærri kjör- um en almennt bjóðast á öðrum markaðssvæðum. Markmið lánveitinganna er að tryggja eðlilega fjölgun íbúða á þess- um svæðum, aukið húsnæðisöryggi óháð búsetu auk þess að stuðla að heilbrigðum húsnæðismarkaði og viðskiptum með íbúðarhúsnæði. „Það liggur fyrir að á mörgum stöðum hefur ekkert eða mjög lítið verið byggt um árabil, þrátt fyrir að eftirspurnin sé mikil og greiðslugeta hjá íbúum svæðisins góð. Sveitar- félögin hafa sérstaklega bent á skort á viðeigandi leiguhúsnæði,“ er haft eftir Ásmundi Einari. „Ég hlakka til að sjá fólk komast í viðeigandi hús- næði sem starfar og býr á þeim svæðum sem lánaflokkurinn tekur til.“ gudni@mbl.is Lán til bygginga úti á landi  Félagsmálaráðherra breytti reglugerð um íbúðalán Ljósmynd/Stjórnarráðið Undirritun Ásmundur Einar Daða- son skrifaði undir á Drangsnesi. Aðalsjúkraflugvél Mýflugs rakst á gæsager í flugtaksbruni á Reykja- víkurflugvelli í gær. Engan um borð sakaði, en vélin er töluvert skemmd að sögn Leifs Hallgrímssonar, fram- kvæmdastjóra Mýflugs. Leifur segir að tveir sjúklingar hafi verið um borð, en verið var að flytja þá frá Reykjavík til Akureyr- ar. Flugvirkjar Mýflugs munu koma frá Akureyri í dag til að kanna skemmdirnar á vélinni, en þær eru umtalsverðar. Leifur segir það mildi að enginn hafi slasast í atvikinu. „Það er aðalatriðið,“ segir hann. Farþegi sem var um borð og fylgdi eiginkonu sinni í sjúkraflugi lýsti því við Ríkisútvarpið, sem greindi fyrst frá, að flugvélin hefði verið komin út á brautarenda er hún fékk á sig högg og hristist. Flug- mennirnir stöðvuðu vélina strax. „Það er bara alltaf sama sagan þegar flugvél flýgur í fuglahóp og sérstaklega ef það eru gæsir, þær eru svo stórar og þungar. Það er beyglað og bogið og blóðugt og brot- ið,“ segir Leifur. Hann býst við því að flugvélin verði frá í einhverja daga eða vikur vegna skemmdanna. arnarth@mbl.is Sjúkravél lenti á gæsageri  Ónothæf um tíma vegna skemmdanna Málverk af Geir H. Haarde, fyrrverandi for- manni Sjálfstæðisflokksins, var afhjúpað á laugardaginn var. Hefð er fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn láti mála myndir af fyrrverandi formönnum og eru þær á heið- ursstað í bókastofu Valhallar. F.v. hjónin Geir H. Haarde og Inga Jóna Þórðardóttir og Stephen Lárus sem málaði myndina af Geir. Málverk af Geir H. Haarde afhjúpað Ljósmynd/HAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.