Morgunblaðið - 27.08.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 27.08.2019, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019 BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarmaðurinn Sara Riel hef- ur unnið hörðum höndum að því að mála verk framan á gömlu spenni- stöðina við Austurbæjarskóla með aðstoðarkonu sinni, Helgu Páleyju, frá því snemma í ágúst og er stefnt að verklokum um miðjan næsta mánuð. Þá verður verkið afhjúpað formlega. Íbúar hverfisins kusu vegglista- verk til framkvæmda sem er hluti af íbúalýðræðisverkefni borgarinn- ar, „Hverfið mitt“, og verk Söru, „Flóra Íslands (2019)“, er sérstak- lega gert fyrir spennistöðina og fé- lagsmiðstöðina 100og1 með tilliti til staðsetningar, skólastarfsins og vegglistahefðar á veggnum, skv. tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Verkið er samansett af plöntum sem nemendur Austurbæjarskóla, frá sex til sextán ára aldurs, völdu sem sinn staðgengil og spurt var: „Ef þú værir planta, hvaða planta værir þú og af hverju?“ Ólíkir teiknistílar „Krakkarnir tóku þátt í ferlinu,“ segir Sara um verkið og ferlið að baki því. Leikur sé fólginn í því ferli og börnin hafi mátt velja sér hvaða plöntu sem er, innlenda jafnt sem erlenda og þurft að út- skýra valið. „Ég fékk frá öllum skólanum vænan bunka af plöntu- teikningum eftir nemendur og aft- an á áttu þau að skrifa af hverju þau völdu þessar plöntur,“ segir Sara. Hún hafi skoðað teikning- arnar og lesið yfir textann og þótt áhugavert að vinna með svo ólíka stíla, þ.e. teiknistíla barna á svo ólíkum aldri. „Ég lagðist yfir þetta og teiknaði sjálf upp þrjú plöntu- kort með öllum þessum plöntuteg- undum sem þau völdu,“ segir Sara og að kortin hafi að geyma mikil smáatriði, séu falleg og í anda gamalla, teiknaðra plöntukorta. „Ég fór að skoða þetta plöntu- val, hvað þau völdu og fór mikið að spá í það því þetta er mjög fjöl- þjóðlegur skóli. Þau máttu velja hvað sem er og völdu allar tegund- irnar af sóley, gleym mér ei og allt þetta íslenska, túndrugróðurfarið en líka dalíur, rósir, bjöllur og lúp- ínan er þarna líka,“ segir Sara. Hennar spurning sé, þar af leið- andi, hver sé flóra Íslands. Exótískar plöntur líka með „Þetta gróðurfar er eiginlega hjá öllum, í görðunum okkar, við þekkjum þessar plöntur og búum með þeim því þær eru í görðunum. Svo opnarðu næstu dyr og ferð inn til okkar. Þau völdu nefnilega líka pálmatré, kaktusa og þessar rosa- lega exótísku plöntur sem við bú- um öll með í rauninni. Það er þriðja gróðurfarið og bara mjög erlent. Við búum öll dálítið í gróð- urhúsum þannig að „Flóra Ís- lands“ er náttúrlega að vísa til þess að við ættum kannski ekki að vera alveg jafnþröngsýn á hver flóra Íslands í rauninni er því ef við horfum okkur nær þá er þetta öðruvísi en hreina flóra Íslands- plakatið hans Eggerts Péturs- sonar,“ segir Sara. – Þetta er þá líka pólitískt verk? „Já, það er pólitísk spurning á bak við þetta,“ svarar Sara, „þetta eru mjög skýr skilaboð.“ Hún segir verkið m.a. tengjast Útlendinga- stofnun og hælisleitendum sem sé vísað úr landi. „Þarna set ég öll börnin saman í einn stóran blóm- vönd því þannig erum við falleg- ust.“ Eitt samfélag „Flóra Íslands (2019)“ er ekki eina vegglistaverk Söru sem fjallar um fjölþjóðlegt samfélag. Verk hennar „Fjöður“, sem prýðir gafl fjölbýlishúss við Asparfell, er t.d. þess eðlis. Fjöðrin sem þar var máluð er samsett úr fjöðrum ólíkra fugla, farfugla og innlendra af því að inni í byggingunni eru bæði Íslendingar og útlendingar sem saman mynda eina heild, sem íbúar hússins og sem samfélag. „Ég er alltaf að spá í staðinn og samfé- lagið þar sem veggverkin mín fara upp,“ útskýrir Sara. „Það er alltaf samtal við bæði arkitektúrinn eða rýmið og svo samfélagið.“ Að þessu sögðu má sjá að verk Söru vekja fólk líka til umhugs- unar um fordóma og vekja spurn- inguna um hvenær einhver eða eitthvað telst íslenskt. „Hvenær verður aloe vera-plantan sem hippamamman kom með árið 1972 að íslenskri aloe vera-plöntu? Það eru allir með hana, afleggjara og nota hana til að græða sig. Þetta er góð planta,“ segir Sara. „Hve- nær verður nýbúi íbúi? Eru Íslendingar líka brúnir?“ bætir hún við. Og spurningar Söru blasa við víða um borgina því veggverk hennar eru orðin æði mörg, m.a. við Nýlendugötu og á SÍM-húsinu. Frekari upplýsingar um Söru má finna á vefsíðu hennar á slóð- inni sarariel.com. Ljósmyndir/Jón Halldór Jónasson Í vinnslu Sara með gömlu spennistöðina í bakgrunni þar sem verkið er smám saman að taka á sig mynd. Samstarf Sara að störfum með samstarfskonu sinni Helgu Páleyju. Hver er flóra Íslands?  Sara Riel málar margslungið vegglistaverk á gömlu spennistöðina við Austurbæjarskóla  Nemendur svöruðu spurningunni „ef þú værir planta, hvaða planta værir þú og af hverju?“ Harvey Weinstein var leiddur fyrir dómara í New York í gærmorgun þar sem honum var kynntur vitnis- burður leikkonunnar Önnubellu Sciorras. Frá þessu greinir The Guardian. Þar kemur fram að ekki sé ljóst hvort vitnisburður Sciorras leiði til enn einnar ákæru á hendur honum eða hvort vitnisburðurinn verði notaður til að sýna fram á til- tekið hegðunarmynstur ákærða. Weinstein hefur þegar verið ákærður fyrir nokkrar alvarlegar kynferðisárásir og nauðganir, en alls hafa yfir 80 konur greint frá því að hann hafi misboðið þeim kyn- ferðislega á síðustu fjórum áratug- um. Réttarhöldin yfir Weinstein hefjast í janúar á næsta ári. Hann hefur ávallt neitað allri sök. Yrði hann fundinn sekur er reiknað með að Weinstein þyrfti að eyða því sem eftir er æv- innar bak við lás og slá. Verjendur hans hafa gagn- rýnt réttarhöldin harðlega og segja ákæruvald- ið uppteknara af því að sakfella Weinstein, sama hvað það kosti, en að leita réttlætis. Lögfræðiteymi Weinsteins hefur óskað eftir því að réttarhöldin fari ekki fram á Man- hattan þar sem kviðdómendur á því svæði séu undir mikilli pressu fjöl- miðla og stjórnmálamanna um að sakfella Weinstein og því litlar lík- ur á að málsmeðferðin verði réttlát. Weinstein leiddur fyrir dómara Harvey Weinstein Bandaríska leik- konan Scarlett Johansson er með hæstu laun allra leikkvenna vestanhafs annað árið í röð, sam- kvæmt úttekt viðskiptaritsins Forbes, það sem af er þessu ári. Hefur Johansson aflað sér 56 millj- óna Bandaríkjadala eða jafnvirði um 7,1 milljarðs króna. Er það einkum að þakka hlutverkum í Marvel-ofurhetjumyndum þar sem Johansson hefur leikið Svörtu ekkj- una. Í öðru sæti yfir launahæstu leikkonurnar er Sofia Vergara sem þekktust er fyrir leik sinn í sjón- varpsþáttunum Modern Family. Johansson og Vergara eru einu konurnar á lista yfir tíu launahæstu leikara og leikkonur og er sú fyrr- nefnda í áttunda sæti þess lista, sæti neðar en Adam Sandler. Launahæstur allra er Dwayne Johnson sem hefur fengið greiddar 89,4 milljónir dollara það sem af er ári, um 11,4 milljarða króna. Johansson launahæsta leikkonan Scarlett Johansson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.