Morgunblaðið - 27.08.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.08.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Platinum Litur: Magma red, svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque. FX4 off-road pakki, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaður pallur, fjarstart, trappa í hlera, airbag í belti í aftursæti VERÐ 11.390.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 F-350 Limited 35” breyttur Litur: Perluhvítur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque. Breyttur með 35” dekk, 20” felgur og brettakanta. Með FX4 off-road pakka, top- pljós (ekki á mynd), upphituð/loftkæld sæti, heithúð- aðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 12.490.000 m.vsk 2019 Chrysler Pacifica Hybrid Limited Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, t.d. hita/ kæling í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél, Dvd spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl. o.fl. 3,6 L Hybrid. VERÐ 7.990.000 m.vsk Once Upon a Time in Hollywood 1 2 Good Boys Ný Ný Dora and the Lost City of Gold Ný Ný The Lion King 2 6 Héraðið 3 2 Angry Birds 2 bíómyndin 4 3 Toy Story 4 6 10 Fast & Furious: Hobbs & Shaw 5 4 Scary Stories to Tell in the Dark 7 3 Spider-man: Far From Home 8 8 Bíólistinn 23.–25. ágúst 2019 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Bíóaðsókn helgarinnar Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Ógnarstórar teikningar með furðu- verum í bland við hversdagslegar andstæður og þungir skúlptúrar sem sameina tákn úr náttúrunni og yfirnáttúrunni er það sem tekur á móti manni í Hverfisgalleríi á Hverfisgötu um þessar mundir þar sem samsýning listamannanna Matthíasar Rúnars Sigurðssonar og Sigurðar Ámundasonar, Val- heimur, hefur verið frá því hún var opnuð á menningarnótt. Þrátt fyrir að listamennirnir tveir hafi óvænt verið leiddir sam- an tala verk þeirra vel saman, enda sækja þeir báðir innblástur í epísk- ar frásagnarhefðir, furðuheima og goðsagnir. Segja þeir að þrátt fyrir að verkin setji nokkurn ramma sé áhorfandanum sett í sjálfsvald að túlka verkin og upplifa eigin til- finningu fyrir þeim. Gamlir vinir „Við erum gamlir vinir, en svo var það Sigga, [Sigríður L. Gunn- arsdóttir eigandi Hverfisgallerís], sem hafði samband við okkur,“ segir Matthías og Rúnar samsinnir. Á gólfinu er stór steinstöpull, og ofan á honum situr skúlptúr eftir Matt- hías, skorinn út í stein. Hrafnshöfuð og mannshöfuð flæða saman og seg- ir Matthías, spurður um verkið: „Ég byrjaði á því að mig langaði að gera fugl. Svo leiðir eitt af öðru og mað- ur byrjar að skissa niður og þá koma fleiri hugmyndir. Og svo ger- ist þetta svolítið líka á meðan ég er að vinna í verkinu.“ Verkið var hann fjóra mánuði að vinna og eru verkfærin slípirokkur, fræsari, hamar og meitill. Eins og áður segir eru teikningar Sigurðar stórar og íburðarmiklar. Margt í gangi á hverri mynd og í myndunum blandast oft saman margar aðstæður, sem virðast kannski í fyrstu óskyldar. Tröll- kallar í bland við skíðamenn og fleira í þeim dúr. Sigurður segist ekki byrja með neina skissu þegar hann hefst handa við verkin, en að sama pæling sé alltaf undirliggjandi í verkunum. Segir hann aðspurður það auðvitað geta verið ógnvekjandi að byrja á svona stóru verki án undanfarandi uppdráttar, sem dæmi tók það hann sex mánuði að vinna stærsta verkið sem til sýnis er á sýningunni, en Meitillinn mætir kúlupennanum  Valheimur nefnist nýopnuð samsýning í Hverfisgalleríi Morgunblaði/Arnþór Birkisson Vinir Matthías og Sigurður á sýningu sinni í Hverfisgalleríi sem opnuð var á Menningarnótt, 24. ágúst. segir: „Ég myndi ekki nenna að teikna þetta ef ég byrjaði á því að skissa. Þetta kemur bara óvænt. Það er ekkert fyrirfram ákveðið.“ Kúlupenni og trélitir eru verkfæri Sigurðar, og finnst honum þau mest heillandi. Enda kann hann ekkert að mála, eins og hann orðar það sjálf- ur. Goðsagnareðlið umlykjandi Spurður hvort hann teikni upp sín verk áður en hann hefst handa með meitilinn segir Matthías að allur gangur sé á því. Stundum teikni hann eitthvað upp á blað og stund- um ekki. Stundum teikni hann jafn- vel á steininn áður en hann heggur í hann. Það sem sameinar verk lista- mannanna tveggja eru meðal annars vísanir í goðsögur, og segja þeir að þrátt fyrir að engar beinar vísanir séu í slíkar sögur séu þær alltaf undirliggjandi. Goðsagnaeðlið sé alltumlykjandi. Nefnir Sigurður í þessu dæmi hinn látna bandaríska bókmenntaprófessor Joseph Camp- bell. „Hann talaði mikið um mýtur og hvernig þær geta hjálpað fólki að setja sig í hlutverk goðsagnaper- sóna.“ Bendir hann í sömu andrá á persónur í teikningum sínum og skýtur Matthías inn í: „Það er engin mjög skýr merking á bak við verk- in. Það er bara undir þér komið sem áhorfandi hvað þú sérð. Það er bara ein saga sem hægt er að segja, það er saga áhorfandans.“ Segja þeir að það sem mest áhrif hafi á sköpunina sé líðanin „þann daginn“. Hlustaði aldrei á kennarann Listamennirnir tveir kynntust í Listaháskóla Íslands, þar sem þeir voru við nám og segir Matthías, spurður um sinn listabakgrunn: „Ég hjó fyrst í stein 2010. Síðan fór ég í Listaháskólann og þar hjó ég ekki mikið í stein. Ég var meira bara að einbeita mér að teikningu. En eftir að ég klára listaháskólann 2013 fór ég að höggva meira í stein, og frá því upp úr 2016 er ég búinn að einbeita mér mest að því.“ Spurður hvort stefnan sé þar með sett á höggmyndalistina kveð- ur Matthías já við og segir að stefnan sé að gera stærri úti- listaverk. Segist hann sem dæmi hafa unnið eitt slíkt í Hveragerði í sumar og segir: „Ég væri til í að gera stórar styttur.“ Aðspurður segist Sigurður ætíð hafa ætlað sér að fara í kvik- myndagerð, en teikning hafi hins vegar alltaf átt hug hans og hjarta. „Í Hagaskóla og FB var ég aldrei að hlusta á kennarann, ég var allt- af bara að teikna. Ég sé ekkert eft- ir því í dag,“ segir hann við og hlær. „Það var alltaf auðveldara að teikna en að fá fólk til þess að leika í kvikmyndum hjá mér.“ Virðist þó kvikmyndaáhuginn skína í gegn í teikningum Sigurðar, enda mikið í gangi á hverri mynd, margir karakterar og sterkar sen- ur. Segist hann sækja innblástur í kvikmyndir, „og svo hlusta ég mik- ið á óperu, og sæki sem dæmi „ele- ment“ í það.“ Líkt og Matthías hefur Sigurður ekki í hyggju að minnka verkin. „Ég mun alltaf gera svona stórar teikningar.“ Segist hann þó einnig hafa áhuga á annars konar list, „mig langar líka að gera stutt- myndir eða gjörninga. En ég verð alltaf með teikningu í gangi.“ Mímir Skúlptúr eftir Matthías úr grágrýti, stærð 28 x 28 x 35 cm. Magi Verk eftir Sigurð, trélitir og kúlupenni á pappír, 150 x 150 cm. Pétur Rúnar Heimisson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Borgarleikhúss- ins. Pétur hefur undanfarin ár starfað hjá Nova, fyrst sem rekstr- arstjóri verslana og síðar sem verkefnastjóri í markaðsdeild og áður starfaði hann hjá auglýsingastofunum Pipar/ TBWA og Hvíta húsinu. Pétur Rúnar er með BS-próf í sálfræði með markaðsfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands. Nýr markaðsstjóri Borgarleikhússins Pétur Rúnar Heimisson Í tilefni af 200 ára fæðing- arafmæli Jóns Árnasonar, þjóð- sagnasafnara og landsbókavarð- ar, hefur bók- menntamerking verið sett á Lauf- ásveg 5, húsið sem Jón og eig- inkona hans byggðu og bjuggu í til æviloka. Hefur húsið stundum verið nefnt Jónshús. Jón var frumkvöðull í söfnun þjóðsagna og hóf það starf sitt árið 1845 með Magnúsi Gríms- syni og árið 1852 kom út safn þeirra Íslenzk ævintýri. Bókmenntamerk- ing á Jónshúsi Jón Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.