Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 65
DÆGRADVÖL 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
„GETUM VIÐ SEINKAÐ FUNDINUM? ÉG ER
ALGERLEGA RÍGBUNDINN.” „hó, hó, hó.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hafa hann í huga
sér.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GÆTIRÐU HÆTT AÐ
FARA ÚR HÁRUM?
SJÁLFSAGT! ÉG SET ÞETTA Á DAGSKRÁ HJÁ
MÉR Í OKTÓBER NÆSTKOMANDI
FÍLAR HANNIBALS ERU FÚLIR
OG SKEMMA ALLT SEM FYRIR
VERÐUR!
„FÚLIR”? MEINARÐU EKKI
„STURLAÐIR”?
ÉG VEIT
VEL
HVAÐ ÉG
SAGÐI!
skáldsögum, ævisögum og efni sögu-
legs eðlis. Hann spilar golf, skokkar
sér til heilsubótar eins og vera ber
en horfir líka mikið á fótbolta; Ars-
enal og Keflavík eru hans lið.
Fjölskylda
Maki Sigurbjörns er Jenný
Sandra Gunnarsdóttir, f. 19. apríl
1963, skrifstofustjóri hjá Eignamiðl-
un. Foreldrar hennar eru Herdís
Hall, f. 29. júlí 1939, og Ingi Ú.
Magnússon (fósturfaðir), gatna-
málastjóri í Reykjavík, f. 2. apríl
1921, d. 16. nóvember 2004.
Börn Sigurbjörns eru: 1) Hildur
Sigurðardóttir (stjúpdóttir), f. 22.
september 1987, þjónustufulltrúi hjá
Rubix, býr í Kópavogi. Hún á soninn
Brynjar Frey f. 2012. 2) Skúli Sig-
urðsson (stjúpsonur), f. 30. desem-
ber 1990, verkfræðingur hjá Marel.
Sambýliskona hans er Rakel Björk
Björnsdóttir f. 1995, leikkona. Þau
búa í Kópavogi. 3) Berglind María, f.
23. júlí 1998, háskólanemi í Reykja-
vík. 4) Silja Rún f. 17. desember
2002, skiptinemi í Frakklandi.
Systkini Sigurbjörns eru: Magn-
ús, f. 4. janúar 1953, d. 12. desember
1979, verslunarstjóri, bjó í Keflavík;
Ragnheiður Guðrún, f. 9. maí 1954,
framhaldsskólakennari, býr í
Reykjanesbæ; Sveinn Sigurður, f. 7.
ágúst 1955, d. 20. september 1975,
nemi, bjó í Keflavík; Gísli Benedikt,
f. 20. maí 1962, grunnskólakennari,
býr í Reykjanesbæ.
Foreldrar Sigurbjörns voru
Gunnar Sveinsson, f. 10. mars 1923,
d. 4. júlí 2015, kaupfélagsstjóri, og
kona hans Guðrún Fjóla Sigur-
björnsdóttir, f. 6. febrúar 1930, d.
14. ágúst 2011, húsmóðir og
verslunarmaður. Þau bjuggu í
Keflavík.
Sigurbjörn Gunnarsson
Björg María Sölvadóttir
húsfreyja á Borgarlæk á Skaga
Jón Jónsson
bóndi á Borgarlæk á Skaga
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir í Reykjavík og síðar í Kefl avík
Sigurbjörn Jósepsson
verslunarmaður í Haraldarbúð í
Reykjavík, síðar búsettur í Kefl avík
Fjóla Sigurbjörnsdóttir
húsmóðir og verslunarmaður í Kefl avík
Kristín Hansdóttir
húsfreyja á Hörgshóli og
víðar, síðar í Reykjavík
Jósep Gunnlaugsson
bóndi á Hörgshóli í Vesturhópi og víðar
Oddída Jónsdóttir
húsfreyja á Sæbóli í Aðalvík
Magnús Finnbjörnsson
bóndi á Sæbóli í Aðalvík
Guðríður Magnúsdóttir
húsfreyja á Góustöðum í Skutulsfi rði
Sveinn Guðmundsson
bóndi á Góustöðum í Skutulsfi rði
Ólöf Sveinsdóttir
húsfreyja á Hafrafelli
við Skutulsfjörð
Guðmundur Helgi Oddsson
bóndi á Hafrafelli við Skutulsfjörð
Úr frændgarði Sigurbjörns Gunnarssonar
Gunnar Sveinsson
kaupfélagsstjóri í Kefl avík
Ekki er öll vitleysan eins,“segir Helgi R. Einarsson og
bætir við: „Óskiljanlegt“:
Loðinn er hann um ló’ana
og langar að kaupa snjóana.
Vill framvindu sjá,
því furðar sig á
að fá ekki eskimóana.
„Ætli að það sé ekki að birta
og batna fyrir norðan!“ spurði
Ólafur Stefánsson á Leir á sunnu-
dag:
Þegar rok á Reykjum hvín,
og rignir ketti og hundum*
birtist Fíu falleg sýn
á flóa og mýrarsundum.
*Es regnet Hunden und Kat-
zen, er sagt á þýsku.
„Ha, ha, ha hvílík undur!!!“
sagði Sigmundur Benediktsson:
Af gelti og mjálmi þar greinist kliður,
geimsins undur þau séð ei hef.
Hundar og kettir af himnum niður
holskeflast yfir Ólaf Stef.
En að norðan barst þessi
kveðja frá Birni Ingólfssyni: „Hér
var löngum haft til orðs að rigndi
hrosseistum og brennisteini þeg-
ar mest gekk á fyrir veðrinu.“
Þótt veðrið hér sé ljúft og lygnt
og löngum verði fátt að meini
í verstu hörkum hefur rignt
hrosseistum og brennisteini.
Það er gott hljóð í Davíð
Hjálmari í Davíðshaga:
Nálgist haust með rollurag,
roðni lyng í móa,
brosi sólin breitt í dag:
Bráðum fer að snjóa.
Anna Dóra Gunnarsdóttir var
með á nótunum:
Fátt er í veröldu verra
en vondir og fávísir menn,
sem telja sig háttsetta herra,
en hafa ekki fullorðnast enn.
Benedikt Jóhannsson sagði:
Við reynum hér að rækta góða siði
í ró og friði,
en töffararnir takast á og stríða
já, Trump er víða.
Og að lokum varpaði Guðrún
Bjarnadóttir fram enn einni hug-
mynd vegna vinar okkar fyrir
vestan:
Við ættum við Dönum að ýta,
öngla fram veskin og tweeta
boð á Trump,
bjóða slump
í Baltimore og Flórída.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Birtir fyrir norðan
en rignir syðra
www.gilbert.is
GEFÐU TÍMA
ÍSLENSKT ÚR MEÐ SÁL
101 ART DECO