Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 57
MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019 Hákon! Hvar ertu Hákon!? Hvert ertu eiginlega farinn? Það er svo mikið sem við þurfum að ræða. Ég fékk hugmynd Hákon. Ég þarf að segja þér frá hugmyndinni minni Hákon. Ég þarf að segja þér frá henni, áður en ég ræði hana við nokkurn annan. Hvað finnst þér Hákon? Ég er að lesa bók Hákon. Ég þarf að segja þér frá henni. Hún fjallar einmitt um það sem við vor- um að ræða Hákon, svo oft þarna um árið. Manstu Hákon? Ég þarf að segja þér hvað mér finnst Há- kon. Ég horfði á myndina Hákon. Ég er sammála þér Hákon. Hvað með þessa nýju Tarrantino mynd? Þurfum við ekki að sjá hana Hákon? Ræða pósterinn. Ég vil heyra álit þitt Hákon. Sjá þig leika eftir. Segja „epískt“. Hvað ertu að teikna Hákon? Hvernig gengur að smíða Hákon? Hvaða tónlist ertu með Hákon? Hvaða mynd á ég að horfa á í kvöld Hákon? Eigum við að fara í bíltúr Hákon? Hvað um heiminn og geiminn Hákon? Það er svo margt sem við þurfum að ræða Hákon. Ég hitti þig í Madríd Hákon. Fylgdi þér inn í logandi eldinn Hákon. Ég þarf að segja þér hvað er að gerast Hákon. Hvað það er hræðilega sárt Hákon. Eigum við ekki að ræða aftur hvað þú ert frábær Hákon. Hvað þú ert að standa þig vel Hákon. Að þú átt allt skilið Hákon. Hvað þú ert sterkur Hákon. Hvað ég elska þig mikið Hákon. Erindi þitt á þessari jörð. Það er mjög mikilvægt reyndar, Hákon. Ég veit það. Ég hef áttað mig á því að manneskja er svo miklu meira en líkaminn Hákon. Þú ert alls staðar Hákon. Þú situr hjá mér Hákon, laus allra áhyggja. Glaður. Draugarnir eru flúnir Hákon. Hraktir á brott. Myrkrið hafði betur Hákon, en aðeins að þessu sinni. Þú hefur sigrað það Hákon. Þú hlærð framan í það. Gefur því fingurinn. Brosið þitt yfirgnæfir það. Það á ekki roð í þig Hákon. Þú ert hetjan mín Hákon. Andrea Júlía Gunnlaugsdóttir. Þú kveiktir áhuga minn á fót- bolta þegar ég fékk að fara með upp á Akranes að horfa á þig spila á Lottó-Búnaðarbankamótinu, þú sex ára gamall og ég þriggja ára. Við æfðum okkur hvern einasta dag á bílaplaninu sem var á móti gamla húsinu sem við ólumst upp í á Hafnarbrautinni í Kársnesinu og lékum eftir hetjuleg „móment“ í fótboltasögunni á borð við sig- Hákon Guttormur Gunnlaugsson ✝ Hákon Gutt-ormur Gunnlaugsson fæddist 19. maí 1991. Hann and- aðist 10. ágúst 2019. Minningarathöfn um Hákon Guttorm fór fram 22. ágúst 2019. urmark Zinedine Zidane á móti Bay- ern Leverkusen árið 2002, líkt og við vær- um sjálfir að spila úrslitaleikinn í Meistaradeildinni. Prakkarastrikin okkar eru sennilega hvað ljúfustu minn- ingarnar sem ég á. Hólinn sem var á vesturhlið garðsins notuðum við sem virki til þess að kasta snjóboltum í bíla. Við bjugg- um til gúmmítúttubyssur úr raf- magnsrörum sem þú skarst út sem byssuhlaup og notaðir þum- alinn á uppþvottahanska til þess að toga aftur berin sem við settum ofan í hlaupið og skutum út um all- ar trissur. Upp æsku- og unglingsárin fylgdist ég með þér með blandi af aðdáun og öfund, oft var erfitt að greina þar á milli, yfir því hvað þú varst mikill töffari. Þú keyptir rafmagnsgítar og varst allt í einu búinn að stofna rokkband – Magnum! Þú keyptir sérsniðin hjólabretti fyrir okkur í gegnum ShopUSA þegar dollar- inn var fallinn í 60 og við fórum út um allt Kársnesið og fundum staði til þess að hoppa niður stiga og „skate-a“ á. Þú varst svo fljótur að ná færni í öllu sem þú tókst þér fyrir hend- ur, á rafmagnsgítarinn, hjóla- brettinu, í fótboltanum, teikning- unum, á tölvunni, já það bara skipti ekki máli hvað það var, allt kom svo náttúrulega til þín. Ég vildi alltaf gera allt sem þú varst að gera og fara með þér hvert sem þú varst að fara og allt- af tókst þú mig með þér, aðeins ör- fáum sinnum þurfti ég að væla í mömmu og pabba yfir því að fá ekki að fara með þér. Það var fullkomið fyrir okkur tvo þegar mamma og pabbi fluttu heimilið árið 2006 í nýja húsið í Kársnesinu. Nú vorum við nánast við hliðina á sparkvellinum og gát- um hoppað út á hann hvenær sem við vildum og tekið tækniæfingar. Við keyptum okkur X-box leikja- tölvu sem við fengum síðar að- stöðu fyrir úti í bílskúrnum. Við töldum niður dagana þar til við myndum fá nýja Call of Duty-leik- inn á aðfangadag og gætum spilað alla nóttina, það var okkar jóla- hefð. Í gegnum unglingsárin og inn í fullorðinsárin varst þú mér svo ótrúlega dýrmætur og góður. Þú varst alltaf til staðar til þess að hlusta, leiðbeina og gefa af þér. Samtölin okkar urðu dýpri og heimspekilegri og þú varst minn áttaviti í gegnum oft erfiðan og ruglingslegan tíma. Ég hafði alltaf vitað að þú gætir orðið snillingur í hvaða starfi sem þú hefðir kosið, svo hæfileikaríkur og klár varstu, en í gegnum þetta tímabil áttaði ég mig á því að þinn helsti styrk- leiki og mannkostur var þín góð- mennska og háa tilfinningagreind. Nærveran þín var alltaf svo hlý, það breyttist aldrei og ég er svo þakklátur fyrir að hafa átt þig sem eldri bróður, þann besta sem hægt er að ímynda sér. Ég leit svo ótrúlega mikið upp til þín, elsku stóri bróðir, þú varst, ert og verður alltaf mín helsta fyr- irmynd í lífinu. Höskuldur Gunnlaugsson. Stjörnuþokan okkar, Vetrar- brautin, mun vera um 14 milljarða ára gömul. Tíminn sem það tekur sólina okkar að snúast um með stjörnuþokunni einn hring er kall- aður „galactic“ ár eða „cosmic“ ár og telur um 250 milljón jarðár. Jörðin mun vera um 4,5 millj- arða ára gömul svo hún ásamt sól- inni hefur þegar snúist um 18 hringi með Vetrarbrautinni. Sólin hefur takmarkaðan líftíma og á nú eftir um fimm milljarða ára og það þrátt fyrir að brenna um 600 millj- ón tonnum af vetniseldsneyti á sek- úndu. Setjum þetta horoskóp í ósköp venjulega 12 tíma eldhúsklukku. Til einföldunar gef ég mér að sólin okkar og þar með jörðin eigi eftir sex milljarða ára en ekki fimm. Klukkan sex að kveldi var líftím- inn hálfnaður en klukkan um 11 hefst dauðastríðið. Klukkan 12 eru ragnarökin á enda. Fyrir aðeins broti úr millisek- úndu á eldhúsklukkunni sem ekki verður greint með mannlegu auga skreið sjávardýr nokkurt í líki fisks á land sem í gegnum aragrúa kyn- slóða gaf af sér okkur, ásamt hin- um mjög svo geðþekka náfrænda mínum sem við nú syrgjum. Hinn ungi frændi minn var nokkuð liðtækur á gítar en átti þó a.m.k. ekki alveg samleið, 28 ára gamall, með Jimy Hendrix í hinum umtalaða 27 Club members, sem hefur innan sinna vébanda Kurt Cobain, Amy Winehouse og marga aðra. Tíminn gildir aðeins fyrir tak- markað skynsvið mannshugans. Ef tíminn var núll í þann mund er svonefndur Miklihvellur hljóp af stokkunum, hví var þá enginn tími til staðar fyrir þann tíma? Engin svör er að finna við því. Varla mun það þó Óminnishegranum að kenna. Nýlega var frumvarp um svo- nefnt þungunarrof samþykkt á Al- þingi og það án nokkurrar teljandi umræðu utan múra þess. Fóstri má eyða allt fram á ætlaðan fæð- ingardag og það án þess að gefin sé upp nokkur ástæða. Hins vegar ef fóstrið á því láni að fagna að sleppa lifandi eftir um níu mánuði úr móðurkviði, í rang- látan og ósanngjarnan heiminn, þá kveður gjarnan við hneykslan og dómharka ef það tekur sjálft upp á því síðar á lífsleiðinni að hverfa af vettvangi þessa heims. Er þetta ekki eilítil hræsni? Jarðlíf okkar er ekki endalaust, reyndar mjög stutt, í bestafalli rúm 100 ár. Er tilgangur lífsins enginn? Er lífið eftir allt saman bara tilviljun og tilgangsleysi og þar með hið stutta æviskeið hins látna frænda míns? Nei, fyrir mitt leyti tel ég svo hreint ekki vera þó svo að skil- vit míns mannlega huga sé ekki fært um að sanna að svo sé. Í það minnsta birtir yfir í sálinni að hugsa til þín, minn kæri frændi. Daníel Sigurðsson. „Er hann Hákon nokkuð frændi þinn?“ spurðu stóru kórst- rákarnir og bentu á sex ára snáð- ann sem sat í rólunni í fyrstu frí- mínútunum sínum í Kársnesskóla. Hákon horfði á mig dálítið ugg- andi og aldrei gleymi ég svipnum á honum þegar ég fullvissaði krakkana á skólalóðinni um að Hákon væri uppáhaldsfrændi minn. Það var nefnilega engin furða að blessað barnið teldi þenn- an kennara náskyldan sér og sinni tilveru. Eldri systur hans þrjár höfðu verið burðarásar í þremur barnakórum Kársnesskóla og heimilislífið hjá fjölskyldunni meira og minna snúist um kóræf- ingar, kórsöng, kórferðalög, kór- búninga og kórtónleika. Ósjaldan hafði Hákon spjallað við kórstjór- ann í síma þegar það þurfti að minna einhverja systurina á ein- hvern söng og stöku sinnum hafði hann komið með á kóræfingar. Því var hann sjóaðri kórstrákur en jafnaldrar hans þegar hann hóf upp raust sína í Litla kór. Þegar byrjað var að æfa jólalögin nokkr- um vikum síðar gekk hann að því vísu að einsöngurinn í 3. erindinu í jólasálminum Nóttin var sú ágæt ein félli honum í skaut. Það var hefð í skólakórunum að einsöng- urinn í erindinu um fjármennina sem fundu bæði Guð og mann til- heyrði systkinunum við Hafnar- brautina. Hákon var einstaklega ljúfur strákur, háttvís og prúður og ég minnist þess ekki að hafa nokkru sinni þurft að atyrða hann eða áminna. Tónlistarhæfileikarnir voru ótvíræðir og við bættist ein- lægur áhugi, samviskusemi, glað- lyndi og orðheldni. Það eiga þau sameiginlegt öll systkinin. Hákon og Ingvi Rafn, besti vinur hans, fylgdu stóru systrum sínum í ung- lingakórinn þegar þeir voru á ell- efta ári og voru allt í senn litlu lukkutröllin okkar, raddskörung- arnir í altinum og prakkararnir sí- kátu sem nutu þess að atast örlítið í gelgjunum í sópraninum. Við tóku tónleikaferðir innan- lands og utan og ekkert tónverk eða viðfangsefni reyndist Hákoni of erfitt. Hann var alltaf glaður og fannst allt skemmtilegt. Meira að segja var hann sáttur þegar það eina sem hann gat borðað í æf- ingabúðum var pylsubrauð, kart- öflur eða spaghetti með tómatsósu því aldrei gat kórstjórinn munað að þau systkinin borðuðu ekki kjöt. Fáar fjölskyldur á Kársnes- inu hafa verið mér jafn kærar og fjölskylda þeirra Ragnheiðar og Gunnlaugs, enda þau foreldrarnir klettar sem studdu krakkana sína í einu og öllu. Það er sárara en orð fá lýst að Hákon sé horfinn okkur og mig skortir orð til að lýsa samúð minni með yndislegum foreldrum hans, dásamlegum systkinum og fjöl- skyldunni allri. Minninguna um einstaklega fallegan og hæfileika- ríkan dreng mun ég varðveita í hjarta mínu. Guð blessi minningu elsku Hákonar. Þórunn Björnsdóttir (Tóta). Hákon, Hákon konungur, eins og nafn hans merkir, niðji hins göf- uga. Hkon, Kux, Kox, Schölle, Schölle’de’c’hon, Shocon. Nafni hans, Hákon gamli Noregskonung- ur, og Hkon vinur okkar áttu það eitt sameiginlegt að þeir voru báðir helvítis kóngar. Öll þessi nöfn eru nöfnin þín. Frá fyrstu stundu hafði Hkon sérkennilegt aðdráttarafl, eitthvað óútskýranlegt sem ekki var hægt að horfa framhjá. Hugmyndaflug Kox var botn- laust og er það minnisstætt þegar Hkon fór að gera myndasögur. Hann var frábær teiknari og skap- aði nýjar víddir. Hann gerði skrif- legan útgáfusamning við systur sína og fékk smá aur fyrir hvert eintak sem hann sendi til hennar. Þessi snilld vakti áhuga fólksins í kringum hann og gerðust nokkrir svo frægir að fá að leggja hönd á plóg. Schölle útbjó samning við við- komandi og borgaði samviskusam- lega af launum sínum fyrir afköst- in, sama hversu léleg þau kunnu að vera. Allir fengu að vera með, það var konunglegt. Konungurinn keypti sér raf- magnsgítar. Hann gat lagt stolt sitt og sjálf til hliðar og vildi læra af öðrum. Ekki er víst að nafni hans Noregskonungur hafi haft slíka kosti. Frá fyrstu nótu hafði Hkon sér- stakan hljóm. Hljómsveitarmeð- limir fengu skýr fyrirmæli; hann sýndi trommaranum hvaða taktur virkaði, gaf rytmagítarleikaranum hljómagang svo melódíur og söng- ur hans fengju fullkominn hljóm- grunn. Að auki benti hann bassaleikar- anum á hvaða grunnnótur væru í hverjum hljómi svo heild lagsins kæmi heim og saman. Lagasmíð- arnar voru flóknar og fallegar þó svo textarnir bæru þess merki að hljómsveitarmeðlimir væru ungir að árum. Enginn er fullkominn, en þú fórst helvíti nálægt því Schölle- ’de’c’hon. Hvað er konunglegra en gott partí? Jú, betra partí. Margt var brallað á unglingsár- unum. Við kunnum sannarlega að skemmta okkur saman og oftar en ekki var boðið upp á öl. Málglaðir tóku til máls, leyndarmál voru sögð og tilfinningar fengu að fljúga. Það er okkur minnisstætt að konungur vor hóaði hersveit sinni saman í ránsferð með skotheldu plani. Okk- ar maður hafði tekið eftir glufu í öryggiskerfi ónefnds skemmtistað- ar sem við gátum nýtt okkur til góðs. Uppskeran var ölkútur. Seinna þennan mánuð átti Hkon okkar 18 ára afmæli og blásið var til veislu. Fólk hvaðanæva úr bæn- um kom til að heiðra nærveru Kux sem stýrði hátíðarhöldunum með silkihönskum. Skemmtu gestir sér konunglega enda var nóg í boði fyr- ir alla. Boðið var upp á þýfi, jú því það er það sem alvöru kóngar gera. Hkon var einn sá allra fyndnasti. Húmorinn var lúmskur og smaug inn að beini og það var alltaf gott að vera í kringum Schölle. Hann bjó yfir þeim eiginleika að draga fólk út á mikið dýpi og sýna því stærra samhengi. Oft kom þessi mannlega speglun okkur í opna skjöldu, skyndileg sprenging í heilahvelið. Hákon Guttormur fékk okkur til að hugsa. Hlýr, traustur, hjálpsamur og óbrigðull vinur vina sinna. Öll eigum við okkar sögu af hjálpsemi konungsins. Minning- arnar streyma fram og ljóst hversu mikilvægur hluti hann var af lífi okkar allra. Elsku Hákon okkar, það er þyngra en tárum taki að þurfa að kveðja þig. Þú verður allt- af í hjarta okkar og við verðum ævinlega þakklát fyrir þig og allt sem þú hefur gefið okkur. Nær- vera þín verður ávallt hluti af okk- ur. Við elskum þig og söknum þín. Þínir vinir, Agnar, Arnar, Aron, Glódís, Ingvi, Jóhann, Steinar, Þorsteinn & Ævar. Meira: mbl.is/minningar Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, SIGURGEIRS JÓNSSONAR framhaldsskólakennara. Guðrún S. Óskarsdóttir Óskar Sigurgeirsson Ragnheiður Þorkelsdóttir Arnar Jón Sigurgeirsson Helena Árnadóttir Harpa, Emma og Orri Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR GUÐNASON rafeindavirkjameistari, Sléttuvegi 23, lést á heimili sínu miðvikudaginn 21. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Sveinfríður Ragnarsdóttir Líba Ásgeirsdóttir Guðmundur Ásgeirsson Embla Dís Ásgeirsdóttir Kristín Guðjónsdóttir Hildur Guðjónsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR KRISTINN KARLSSON, Dvergabakka 36, frá Miðkoti í Þykkvabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 26. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Auður Þorsteinsdóttir Karl Svavar Þórðarson Ásta Gísladóttir Halldór Magni Þórðarson Elísabet Linda Þórðardóttir Frosti Friðriksson barnabörn og barnabarnabörn Hún Sigrún systir mín er látin. Við þetta hefur myndast tómarúm sem vand- fyllt verður. Hún barðist erfiðri baráttu við krabbamein síðustu 2 árin og tók sú barátta tollinn sinn. Ekki vildi hún samt gefast upp. Minningarnar hrannast upp á stund sem þessari og það eru þær sem við höfum við ferðalok. Við systkinin bárum gæfu til að hafa gaman af því að ferðast saman um landið okkar og kom þar ekki síst til áhugi Sigrúnar og Hilmars. Segja má að við höfum ferðast um Sigrún Jónína Jensdóttir ✝ Sigrún JónínaJensdóttir fæddist 13. sept- ember 1941. Hún lést 2. ágúst 2019. Sigrún var jarð- sungin 14. ágúst 2019. land allt. Sá háttur var hafður við að við skiptumst á að ráða hvert ferðinni væri heitið. Flestar úti- legurnar voru með þátttöku allra systk- ina og barna og að ógleymdri mömmu meðan hennar naut við. Þar sem boðið var upp á útilegurn- ar um þessa helgi minnkaði áhugi unglinganna á að fara á útihátíðir. Þótti okkur það ekki verra. Að auki má rifja upp öll gamlárskvöldin sem við áttum saman í Hörgatúninu. Sigrún mín, við eigum eftir að sakna þín öll og erum þakklát fyr- ir eljuna þína og dugnaðinn. Við vottum Hilmari Loga, Helgu, Haf- dísi og þeirra fjölskyldum innilega samúð. Kristín og Jens.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.