Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 61
Heston Blumenthal aðferðin
dregur nafn sitt af samnefndum
kokki sem hann þróaði í leit sinni að
hinni fullkomnu heimapitsu, en hún
er þannig að pottjárnspanna er hit-
uð á hellu og pitsan síðan bökuð á
botninum á henni þétt upp við grill-
ið í ofninum sem stilltur er á mesta
hita. (Óhætt er að mæla með þátt-
um Heston Blumenthal – In search
of perfection).
Dæmt var út frá heildarútliti
pitsu, hversu stökk hún var, áferð,
útliti osts og að sjálfsögðu bragði.
Til þess að dómnefndin gæti ein-
beitt sér sem mest að eldunar-
aðferðinni var ákveðið að hafa allar
pitsurnar margarita og voru þær
sömu stærðar og með jafn miklu af
sósu og osti.
Til að gera langa sögu stutta þá á,
samkvæmt dómurum, bara að
sleppa því að baka pitsu á ofnplötu í
ofninum, en sú pitsa lenti í lang-
neðsta sæti í öllum flokkum með
112 stig. Sú aðferð sem skilaði bestu
pitsunni var að nota Uuni Koda-
pitsuofn (171 stig) en rétt þar á eftir
var aðferð Heston Blumenthal að
nota pottjárnspönnuna með 168
stig. Það að grilla pitsu á pitsusteini
(155 stig) skilar svo betri útkomu en
að baka hana í ofni á pitsusteini (141
stig).
En smekkur manna á pitsum get-
ur verið ansi misjafn. Sumir vilja
hnausþykkan botn með fullt af
sósu meðan aðrir vilja stökka
neopólítanska pitsu.
Ef þú ert meira fyrir seinni
kostinn og mikil pitsuáhugamann-
eskja þá gæti verið þess virði að
skoða það að fjárfesta í pitsuofni
eða að prófa aðferð Hestons við að
gera hina fullkomnu heimapitsu.
Innipitsa fyrir grillara Þessi pitsa var bökuð
í ofni á steini sem er fremur snjöll notkun
á pitsusteini og virkar vel.
Sigurvegarinn Hér má sjá pitsuna sem var
bökuð í Uuni-ofninum en hún hlaut flest stig
dómnefndar og bar sigur úr býtum.
Vinsæl Hér má sjá pitsuna sem var grilluð
á steini en sú aðferð hefur notið mikilla vin-
sælda hér á landi.
Heston í verki Hér má svo sjá pitsuna sem
var bökuð í ofni á pottjárnspönnu sem er for-
hituð á hellu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
OAKLEY-UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI
Óskum Arnari Péturssyni
til hamingju með
glæsilegan sigur í
Reykjavíkurmaraþoninu 2019