Morgunblaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2019
Háttvirti
þingmaður.
Eins og stundum
áður eruð þið þing-
menn kallaðir til þings
utan hefðbundins
tíma. Það sýnir vel
hvaða ábyrgð hvílir á
ykkur þegar vá steðj-
ar að eða þjóðin
stendur á krossgötum.
Nú má segja að
hvort tveggja eigi við: Váin – orku-
pakki 3 – og valið: Krossgötur okk-
ar til framtíðarinnar. Ég þarf ekki
að segja þér að þessi mál eru sam-
ofin. Mikið ríður nú á að taka með
ákveðnum og afgerandi hætti á báð-
um. Ef þið, kjörnir fulltrúar okkar,
gerið það ekki þá verða aðrir til
þess. Þá verður valið byggt á sér-
hagsmunum, fégræðgi og und-
irlægjuhætti við erlent „vald“. Þá
verður stjórnarskrá, drengskap-
arheit og hagur lands og þjóðar
víðsfjarri. – Því skrifa ég þér.
Orkupakkinn
Fannst þér ekki mikið um álit og
skýrslur frá mörgum sérfræðingum
sem voru kallaðir til, mest af stjórn-
völdum og félagssamtökum? Eða
skrýtið hvernig sérfræðingarnir,
allir virtir, með sömu menntun og
svipaða starfsreynslu, komust að
ólíkri niðurstöðu? Til dæmis hvort
hægt sé að vísa Íslandi úr EES ef
við höfnum orkupakkanum? Sumir
sögðu nei, aðrir já. Utanríkis-
ráðherra sagði: „Það er ekki veg-
ferð sem okkur langar til að fara“!
Mér fannst – og líklega þér líka –
erfitt að mynda mér skoðun á því
þegar sérfræðingunum
bar ekki saman; og það
gerðist oft og víða.
Hefur þú séð riftunar-
ákvæði EES samnings-
ins? En refsiákvæði
hans? Ekki ég. Eru
þau kannski ekki til
staðar – á hverju er þá
byggt?
Fjöldi samtaka og
einstaklinga hefur
ítrekað bent á ótal
hættur sem fylgja
orkupakkanum. Má ég
nefna þér fullyrðingar fólks sem vill
að Alþingi samþykki orkupakkann
og reynir að róa þá sem eru á móti
því. Finnst þér rökin með pakk-
anum standast skoðun? Ég set mín-
ar athugasemdir í sviga.
„Það verður Íslendingum til að
hagsbóta að fá að kaupa raforku af
Evrópu skv. orkupakka 3 því þar
ríkir samkeppni.“
(Hvaða blekkingaleikur er nú
þetta? Það er búið að segja okkur
að rafmagn muni hækka á Íslandi.
Engin þjóða Evrópu getur framleitt
jafn hreint rafmagn og við eða jafn
mikið miðað við fjölda neytenda. Ís-
lendingum verður ætlað að kaupa
raforku – okkar „eigin orku“ – í
samkeppni við milljónaþjóðir sem
ramba á barmi rafmagnsleysis en
geta boðið langt um hærri upphæðir
fyrir orku en við Íslendingar getum
einu sinni nálgast! Við Íslendingar
verðum að kaupa „okkar eigin raf-
orku“ af EES/ESB á verði sem þeir
ákveða – og ráðstafa, ef skortur er í
öðru landi á raforkusvæði ESB.
Sama rafmagnsverð allsstaðar!)
„Hræðsla þeirra sem eru á móti
pakkanum er óþörf, hann er okkur
ekkert hættulegur“.
(Ósatt, og jafnvel þó að það væri
rétt þá er það eitt og sér ekki
ástæða að samþykkja orkupakka 3.
Hver er hagnaður íslensku þjóð-
arinnar? Er til einhver viðskipta-
áætlun sem sýnir tekjur og gjöld í
þeim risavöxnu viðskiptum sem
samþykkt orkupakka 3 er ætlað að
liðka fyrir? Hefur þú séð hana? Hef-
ur hún verið kynnt fyrir alþingis-
mönnum? Ef ekki, hvernig átt þú og
aðrir þingmenn að geta myndað
ykkur skoðun?)
Krossgötur
Vilt þú ekki hafa hag íslensku
þjóðarinnar sem mestan og bestan?
Gott, þá erum við á sama máli. Þeg-
ar Ísland gekk í EES þá var sá fé-
lagsskapur einmitt það: Evrópskt
efnahagssamband. Verslunarsam-
band þeirra evrópsku þjóða sem
ekki vildu ganga í ESB við lönd inn-
an ESB.
ESB tók upp eigin gjaldmiðil,
evruna, ríkjum í sambandinu fjölg-
aði og eru nú hátt á þriðja tug. Af-
skipti ESB af „innanríkismálum“
ríkja í sambandinu hafa farið vax-
andi – við mismikla ánægju heima-
manna. En þessa sögu þekkja þing-
menn auðvitað. Hitt er rétt að rifja
upp að ESB hefur árum saman
beitt ýmsum aðferðum til að fá enn
fleiri ríki í raðir sínar, þ. á m. Ís-
land.
Nú reynir ESB að ná í nýja með-
limi með óbeinni aðferð: ESB send-
ir árlega urmul fyrirmæla og reglu-
gerða gegnum EES sem ætlast er
til að séu þýddar og felldar inn í lög
og reglugerðir viðkomandi ríkis.
Stangist þetta efni á við lög og
reglugerðir sem fyrir eru skal það
víkja og reglur ESB/EES koma í
þess stað.
Svona má koma reglum og fyrir-
mælum ESB „bakdyramegin“ inn í
ríki sem aldrei hugðust ganga í
ESB – þangað til flest er inn komið
nema umsóknin sjálf!
Svona hefur ESB gegnum EES
sett reglur um hvíldartíma öku-
manna á stórum flutningabílum,
vinnu unglinga og fjölda fyrirtækja
í raforkudreifingu, svo fátt eitt sé
nefnt. Erum við ekki komin ansi
langt frá viðskiptum og tollanið-
urfellingum? Eða heldur nokkur að
hér verði hætt? Er ekki vatnið
næst? Og svo „fisk-pakki“? Hvað
finnst þér um þetta afsal rafork-
unnar til útlanda svo þar megi verð-
leggja hana og selja okkur aftur á
stórhækkuðu verði? Glórulaust.
Krossgötur. Hvað veljum við,
hvernig framtíð viljum við sjá börn-
in okkar í? Ein gatan liggur til Esb
með stuttri viðkomu í EES. Ekki
líst mér á þá leið, en þér? Hvernig
Ísland vilt þú að þínir afkomendur
eignist eftir þinn dag? Þín vakt er
núna – hvernig vilt þú skila henni af
þér?
Er þetta okkar leið?
Orkan okkar er ein af undir-
stöðum lífshátta okkar, framleiðslu
og velgengni. Fæðuöryggi krefst
líka raforku, bæði til framleiðslu,
geymslu, dreifingar – og matreiðslu.
Sömuleiðis heilbrigðisþjónustan. Því
má ekki tefla í tvísýnu. Ég tel
ósannað með öllu að sjálfræði þjóð-
arinnar í orkumálum sé tryggt í
orkupakka 3. Ég met það svo að
ekki sé fullsýnt hvort brottvísun úr
EES liggur við ef við höfnum orku-
pakka 3 eins og gefið hefur verið í
skyn. Væntanlega þyrfti dómsmál
til að úrskurða þar um. Þar sem við
getum ekki búið við óvissu um hvort
og hvaða refsing liggur við ef við
höfnum „pökkum“ og fyrirmælum
EES, nú og í framtíðinni, tel ég
öruggast að við samþykkjum ekki
orkupakka 3 heldur höfnum honum
öllum og algerlega.
Pantaður eftirlaunadómari frá
Evrópudómstóli var fenginn til að
skrifa skýrslu um stöðu okkar gagn-
vart ESB. Hann var síðan fenginn
til landsins og sagði utanrík-
ismálanefnd að ef við ekki segðum
já þá myndi ESB væntanlega refsa
okkur; takmarka réttindi okkar í
EES og sýna hörku, m.a. vegna
þess að ESB vantar orku – þar höf-
um við það!
Nei, þetta er ekki rétti tíminn til
að „lúffa“. Þetta er tíminn til að
segja nei og sjá sjá hver réttarstaða
okkar raunverulega er.
Ef þeir geta í fullum rétti, á
grundvelli t.d. EES-samningsins,
beitt okkur refsingum þá viljum við
vita það sem fyrst. Ef þessi verður
niðurstaða dómstóls er kveðjustund
Íslands og EES/ESB runnin upp
því undir slíkt ok gangast Íslend-
ingar aldrei.
Opið bréf til þingmanna
Eftir Baldur
Ágústsson » Orkan okkar er ein
af undirstöðum þjóð-
félagsins. Fæðuöryggi
krefst raforku, sömu-
leiðis heilbrigðisþjón-
ustan og tölvur. Því má
ekki tefla í tvísýnu.
Baldur Ágústsson
Höfundur er fv. forstjóri, flugumferð-
arstjóri og forsetaframbjóðandi 2004.
baldur@landsmenn.is