Fréttablaðið - 21.09.2019, Qupperneq 4
Veður
Austan og suðaustan 5-15 í dag,
hvassast við S-ströndina. Dálítil
væta vestast, allvíða þokuloft við
ströndina en annars þurrt. Hiti 8 til
17 stig, hlýjast NA-lands í dag.
SJÁ SÍÐU 36
Allsherjarverkfall fyrir loftslagið
Mikill fjöldi tók þátt í allsherjarverkfalli fyrir loftslagið í gær. Boðað var til mótmæla um allan heim en í Reykjavík var gengið frá Hall-
grímskirkju niður á Austurvöll. Meðal þeirra sem f luttu ávörp voru Kári Stefánsson, Sævar Helgi Bragason og Hildur Knútsdóttir.
Börn og ungmenni hafa staðið fyrir mótmælum á föstudögum frá því 22. febrúar en í gær tóku fullorðnir líka þátt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
HEILBRIGÐISMÁL Þjóðfræðingurinn
Eiríkur Valdimarsson segir veðurfar
geta haft mikil áhrif á ýmsa sjúk-
dóma. Vel þekkt sé að dýr hagi sér á
ákveðinn hátt áður en slæm veður
skella á. Hestar raði sér til að mynda
upp á sérstakan hátt, forystukindur
fari ekki út úr húsi og mýs grafi holur
sínar í skjóli.
„Við erum líka dýr og lútum nátt-
úrunni, þó svo við teljum okkur trú
um eitthvað annað í huganum,“ segir
Eiríkur.
Hann segir gigtina mikilvæga í
gömlum heimildum og alþýðlegum
veðurspám því gigtveikt fólk hafi
farið að kvarta áður en slæm veður
skullu á. Slitgigt hafi verið mjög
algeng á þeim öldum sem Íslend-
ingar hafi stritað dægrin löng.
„Í bók Jónasar frá Hrafnagili,
Íslenskir þjóðhættir, stendur að
ískrað hafi í gigt gamla fólksins á
undan vondum veðrum.“
Eiríkur, sem starfar hjá Rannsókn-
arsetri Háskóla Íslands á Hólmavík,
rannsakaði sjálfur orsakatengsl veð-
urs og gigtar sem hluta af MA-verk-
efni sínu árið 2010. Aðalkveikjan
að því að Eiríkur fór að skoða þessi
mál var heimsókn til stuðningshóps
vefjagigtarsjúkra, hjá Gigtarfélagi
Íslands.
„Þarna voru 20 manns á öllum
aldri og ég fann að þessi hópur fær
ekki mikinn skilning í þjóðfélaginu,“
segir Eiríkur.
Hafa þessi tengsl helst verið sett í
samhengi við breytingu á loftþrýst-
ingi. „Ég hef rætt við veðurfræðinga
sem hafa litla trú á þessu og sögðu að
ef loftþrýstingur gæti haft svo mikil
áhrif á gigtarsjúklinga ættu þeir
að vera sárþjáðir við að keyra yfir
Hellisheiðina,“ segir Eiríkur.
Veður geti haft mikil
áhrif á gigtarsjúklinga
Samkvæmt þjóðtrú ískraði í gamla fólkinu þegar slæmt veður var handan við
hornið. Þjóðfræðingur segir tengsl veðurs og gigtar mikil. Gigtarlæknir segir
suma gigtarsjúklinga næma en að rannsóknir séu ófullkomnar á þessu sviði.
Gigt er ekki eini sjúkdómurinn
eða kvillinn sem er undir sam-
kvæmt Eiríki, heldur til dæmis tann-
pína, höfuðverkir, botnlangaköst og
þunglyndi. „Það sem varðar andlegu
hliðina er eitthvað sem við getum öll
tengt við. Sem dæmi hef ég heyrt að
kennarar finni að nemendur verða
niðurlútir og lítið áhugasamir áður
en slæm veður skella á.“
Arnór Víkingsson, gigtarlæknir
á Landspítalanum, segir að þær
rannsóknir sem gerðar hafa verið,
til dæmis í Hollandi, séu ófullnægj-
andi og sýni misvísandi niðurstöður.
Ábyggilegt sé hins vegar að veður-
breytingar hafi áhrif á ákveðinn
hluta gigtarsjúklinga.
„Það er erfitt að negla niður líf-
eðlisfræðilegar skýringar á þessu og
þetta er mjög einstaklingsbundið,“
segir Arnór. „Ég tel að veðrabreyting-
in sjálf skipti mestu og hún kemur
gjarnan samfara loftþrýstingsbreyt-
ingu.“ Nefnir hann einnig hitastigið
og þess vegna velji margir sjúklingar
að fara í heit eða köld böð, og hafa
gert árþúsundum saman. Einnig
gæti rakamettun lofts skipt máli.
Um fimmtungur þjóðarinnar
þjáist af gigt af einhverri tegund
en Arnór segir að þeir sem eru með
útbreidda og verkjamikla gigt séu
næmari fyrir veðurbreytingum. 60
til 80 prósent af til dæmis slit- og
vefjagigtar sjúklingum séu næm.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Notkun frístundakorts
Reykjavíkurborgar til íþrótta- og
tómstundanáms er langminnst
í hverfi 111. Aðeins 66 prósent
stúlkna og 69 prósent drengja nýta
sér kortið í hverfinu en meðaltalið
er um 82 prósent í öðrum hverfum
borgarinnar. Kolbrún Baldurs-
dóttir, borgarfulltrúi Flokks fólks-
ins, lagði fram tillögu um að borgin
fari í sérstakt átak í hverfinu til að
stemma stigu við vandanum.
„Í Fella- og Hólahverfi er eitt
mesta f jölmenningarsamfélag
borgarinnar til staðar. Það er
margt sem bendir til þess að stór
hópur barna í hverfinu sé félags-
lega einangraður og margir glíma
við fátækt. Líklega kjósa efnalitlir
foreldrar frekar að ráðstafa and-
virði kortsins í að greiða fyrir vist á
frístundaheimili og eiga þá ekkert
af lögu til íþrótta- og tómstunda-
starfs. Ég hef verið óhrædd að lýsa
því yfir á vettvangi borgarstjórnar
að félagsleg blöndun hafi mistekist
í þessu hverfi. Ég fæ engar undir-
tektir en ekki heldur mótmæli. Að
mínu mati er aðgerða þörf þegar í
stað,“ segir Kolbrún. – bþ
Segir félagslega
blöndun hafa
mistekist í 111
S TJ Ó R N S Ý S L A Sig u r ðu r I ng i
Jóhannsson, samgöngu – og sveitar-
stjórnarráðherra, lagði fram nýtt
frumvarp sem felur í sér heildar-
endurskoðun á lögum um Þjóðskrá
og almannaskráningu en fyrri lögin
eru frá 1962. Meðal annars skal lagt
mat á samfélagslegan ávinning þess
að gera aðgang að grunngögnum
Þjóðskrár gjaldfrjálsan.
Endurskoða lög
um Þjóðskrá
Rekstrarkostnaður Þjóðskrár
er um 1,9 milljarðar á ári og af lar
stofnunin sér tekna með sölu upp-
lýsinga fyrir um 930 milljónir
króna. Mismuninn yrði að brúa
með fjármögnun úr ríkissjóði. – bþ
Sigurður Ingi
Jóhannsson.
595 1000
STÖKKTU Í HELGARFERÐ
Róm
1. NÓVEMBER Í 4 NÆTUR
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
r
Frá kr.
79.995
Flug frá kr.
59.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri
Það er erfitt að
negla niður lífeðlis-
fræðilegar skýringar á þessu
og þetta er mjög einstakl-
ingsbundið.
Arnór Víkingsson
gigtarlæknir
+PLÚS
Kolbrún
Baldursdóttir,
borgarfulltrúi.
Haustlægðirnar gætu haft áhrif á gigtarsjúklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
82%
að meðaltali nýta sér frí-
stundakortið í öðrum
hverfum borgarinnar.
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-4
6
7
4
2
3
D
6
-4
5
3
8
2
3
D
6
-4
3
F
C
2
3
D
6
-4
2
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K