Fréttablaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 33
Starfsfólk Rekstrarlands tekur vel á móti viðskiptavinum í versluninni í Vatnagörðum 10. Frá vinstri: Ólöf Helga- dóttir, Mar- grét Unnur Sigtryggs- dóttir hjúkr- unarfræðingur, María Elísabet Steinarsdóttir sjúkraliði og Hólmfríður Karlsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Ástæður þvagleka geta verið af margvíslegum toga, svo sem sjúkdómum, með- göngu, fæðingu og tíðahvörfum,“ upplýsir Ólöf Helgadóttir, sölustjóri Rekstrarlands í Vatna- görðum 10. Þvagleki þurfi ekki að vera mikill til að valda óþægindum. „Fólk á öllum aldri getur glímt við þvagleka en hjá sumum kemur hann eingöngu við ákveðnar aðstæður. Þvagleki er algengari hjá eldra fólki en til okkar leitar einnig íþróttafólk í fremstu röð vegna áreynsluleka, fólk sem hefur nýlega farið í skurðaðgerðir og konur fyrir og eftir meðgöngu,“ útskýrir Ólöf. Hún segir milljónir manna á heimsvísu glíma við þvagleka en sem betur fer séu ýmsar góðar lausnir í boði. „Sumir fá lausn sinna mála með skurðaðgerð en aðrir treysta á hjálparvörur sem í f lestum tilfellum eru orðnar mjög þægi- legar í notkun og hannaðar til að valda sem minnstum óþægindum. Hjá okkur í Rekstrarlandi fást þvaglekavörur frá danska fram- leiðandanum Abena en þær eru ákaflega vandaðar og framleiddar úr hágæða hráefnum í verksmiðju þeirra í Danmörku,“ útskýrir Ólöf. Umhverfisvænar og góðar til daglegra nota Abena framleiðir eitt mesta úrval þvaglekabinda og -bleia í heim- inum. „Hjá Abena er að finna alhliða lausnir fyrir alla sem glíma við þvagleka en bindin fást í mörgum stærðum og gerðum, með mis- mikla rakadrægni og lögun svo flestir ættu að geta fundið lausn sem þeim hentar,“ segir Ólöf. Abena-vörurnar eru allar ofnæmisprófaðar og FSC-merktar, sem þýðir að efni sem notuð eru í vörurnar koma úr sjálf bærum skógum. Þá eru flestar vörur Abena Svans-vottaðar. „Abena leggur sig fram um að nýta hráefnin til hins ítrasta og endurvinna nánast allt sem frá fellur í framleiðsluferlinu. Vörurn- ar í Rekstrarlandi eru framleiddar með öndunarefni á bakhlið sem eykur mjög á þægindi notenda. Þær eru mjúkar viðkomu, þægi- legar og umfram allt lítt áberandi en það skiptir fólk miklu máli og Nærgætni og fagmennska Þvagleki getur verið hvimleitt og viðkvæmt vandamál ef ekki er brugðist við á réttan hátt. Í Rekstr- arlandi er þörfum hvers og eins mætt af virðingu og vinsemd af fagfólki með vörum frá Abena. gerir þær þægilegri til notkunar dagsdaglega,“ upplýsir Ólöf. Með samninga við Sjúkratryggingar Íslands Rekstrarland er með samning við Sjúkratryggingar Íslands og eru þvaglekavörurnar frá Abena sam- þykktar af þeim. „Læknar og sérfræðingar leggja mat á hvert tilvik fyrir sig og sækja um niðurgreiðslu frá Sjúkratrygg- ingum Íslands. Þeir sem fengið hafa heimild geta leitað beint til Rekstrarlands og fengið aðstoð hjá sérfræðingum okkar við val á vöru sem hentar hverjum og einum,“ segir Ólöf. Hún segir sumum þykja erfitt að tala um vandamálið en að hjá Rekstrarlandi starfi reynt fagfólk, svo sem hjúkrunarfræðingur og sjúkraliði. „Í versluninni starfar sérhæft starfsfólk sem tekur vel á móti viðskiptavinum og veitir þeim góð ráð. Því er engin ástæða til að þykja umræðuefnið óþægilegt. Í versluninni er viðtalsherbergi þar sem hægt er að ræða við fagfólk okkar í næði og einnig er hægt að hringja og fá ráðgjöf símleiðis. Við bjóðum líka sýnishorn ef fólk vill prófa vörurnar og er landsbyggðin þar engin undantekning og um að gera að hafa samband við okkur og fá sýnishorn sent,“ segir Ólöf. Sent heim að dyrum Hjúkrunar- og dvalarheimili, sem og einstaklingar, kaupa Abena- vörur frá Rekstrarlandi. „Flestir viðskiptavina okkar panta vörurnar reglulega hjá okkur og fá þær heimsendar. Bíl- stjóri á okkar vegum keyrir þær heim innan höfuðborgarsvæðisins og fólk á landsbyggðinni fær vör- urnar heimsendar með póstinum sér að kostnaðarlausu hafi það heimild frá Sjúkratryggingum fyrir kaupunum,“ upplýsir Ólöf. Ýmislegt annað sem snýr að per- sónulegu hreinlæti fæst í verslun Rekstrarlands, þar á meðal þvotta- froða, þvottakrem, blautklútar, græðandi krem og margt annað. Sérhæfðar lausnir Úrval af þvaglekavörum frá Abena er mikið í Rekstrarlandi. „Fólk er afar ánægt með úrvalið enda hentar sumum að eiga nokkrar mismunandi tegundir. Þvagleki getur verið misjafn eftir tímabilum í lífi fólks og aðstæður mismunandi. Ein gerð af bindum hentar kannski heima við en önnur á ferðalögum eða þegar veikindi herja á,“ segir Ólöf og býður alla velkomna í Rekstrar- land. „Okkur þykir mikilvægt að veita faglega og persónulega þjónustu og við bjóðum upp á sérhæfðar lausnir sem mæta þörfum hvers og eins.“ Rekstrarland er í Vatnagörðum 10. Sími 515 1100. Nánari upplýsingar á rekstrarland.is Sumum þykir erfitt að tala um vandamálið en það er engin ástæða til. Í versl- uninni er viðtalsher- bergi þar sem hægt er að ræða við fagfólk okkar, hjúkrunarfræðing og sjúkraliða, í næði. Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is Svörum fyrirspurnum fúslega í síma 515 1100 eða á heilbrigdi@rekstrarland.is PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 83 0 88 ABENA ÞVAGLEKAVÖRUR FÁST Í REKSTRARLANDI samþykktar af Sjúkratryggingum Íslands og Ríkiskaupum OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 8–17. Abena hjálparvörurnar við þvagleka eru alhliða lausnir fyrir alla þá sem glíma við þvagleka. Sérfræðingar okkar aðstoða við rétt val og veita persónulega og faglega þjónustu. Skírteinishafar geta leitað beint til Rekstrarlands. Við komum vörunum heim til notenda. KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 EFRI ÁRIN 2 1 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 9 6 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 D 6 -7 C C 4 2 3 D 6 -7 B 8 8 2 3 D 6 -7 A 4 C 2 3 D 6 -7 9 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.