Fréttablaðið - 21.09.2019, Qupperneq 33
Starfsfólk
Rekstrarlands
tekur vel á móti
viðskiptavinum
í versluninni í
Vatnagörðum
10. Frá vinstri:
Ólöf Helga-
dóttir, Mar-
grét Unnur
Sigtryggs-
dóttir hjúkr-
unarfræðingur,
María Elísabet
Steinarsdóttir
sjúkraliði og
Hólmfríður
Karlsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Ástæður þvagleka geta verið af margvíslegum toga, svo sem sjúkdómum, með-
göngu, fæðingu og tíðahvörfum,“
upplýsir Ólöf Helgadóttir,
sölustjóri Rekstrarlands í Vatna-
görðum 10.
Þvagleki þurfi ekki að vera
mikill til að valda óþægindum.
„Fólk á öllum aldri getur glímt
við þvagleka en hjá sumum kemur
hann eingöngu við ákveðnar
aðstæður. Þvagleki er algengari
hjá eldra fólki en til okkar leitar
einnig íþróttafólk í fremstu röð
vegna áreynsluleka, fólk sem hefur
nýlega farið í skurðaðgerðir og
konur fyrir og eftir meðgöngu,“
útskýrir Ólöf.
Hún segir milljónir manna á
heimsvísu glíma við þvagleka en
sem betur fer séu ýmsar góðar
lausnir í boði.
„Sumir fá lausn sinna mála
með skurðaðgerð en aðrir treysta
á hjálparvörur sem í f lestum
tilfellum eru orðnar mjög þægi-
legar í notkun og hannaðar til að
valda sem minnstum óþægindum.
Hjá okkur í Rekstrarlandi fást
þvaglekavörur frá danska fram-
leiðandanum Abena en þær eru
ákaflega vandaðar og framleiddar
úr hágæða hráefnum í verksmiðju
þeirra í Danmörku,“ útskýrir Ólöf.
Umhverfisvænar og
góðar til daglegra nota
Abena framleiðir eitt mesta úrval
þvaglekabinda og -bleia í heim-
inum.
„Hjá Abena er að finna alhliða
lausnir fyrir alla sem glíma við
þvagleka en bindin fást í mörgum
stærðum og gerðum, með mis-
mikla rakadrægni og lögun svo
flestir ættu að geta fundið lausn
sem þeim hentar,“ segir Ólöf.
Abena-vörurnar eru allar
ofnæmisprófaðar og FSC-merktar,
sem þýðir að efni sem notuð eru
í vörurnar koma úr sjálf bærum
skógum. Þá eru flestar vörur
Abena Svans-vottaðar.
„Abena leggur sig fram um að
nýta hráefnin til hins ítrasta og
endurvinna nánast allt sem frá
fellur í framleiðsluferlinu. Vörurn-
ar í Rekstrarlandi eru framleiddar
með öndunarefni á bakhlið sem
eykur mjög á þægindi notenda.
Þær eru mjúkar viðkomu, þægi-
legar og umfram allt lítt áberandi
en það skiptir fólk miklu máli og
Nærgætni og fagmennska
Þvagleki getur verið hvimleitt og viðkvæmt vandamál ef ekki er brugðist við á réttan hátt. Í Rekstr-
arlandi er þörfum hvers og eins mætt af virðingu og vinsemd af fagfólki með vörum frá Abena.
gerir þær þægilegri til notkunar
dagsdaglega,“ upplýsir Ólöf.
Með samninga við
Sjúkratryggingar Íslands
Rekstrarland er með samning við
Sjúkratryggingar Íslands og eru
þvaglekavörurnar frá Abena sam-
þykktar af þeim.
„Læknar og sérfræðingar leggja
mat á hvert tilvik fyrir sig og sækja
um niðurgreiðslu frá Sjúkratrygg-
ingum Íslands. Þeir sem fengið
hafa heimild geta leitað beint til
Rekstrarlands og fengið aðstoð hjá
sérfræðingum okkar við val á vöru
sem hentar hverjum og einum,“
segir Ólöf.
Hún segir sumum þykja erfitt
að tala um vandamálið en að hjá
Rekstrarlandi starfi reynt fagfólk,
svo sem hjúkrunarfræðingur og
sjúkraliði.
„Í versluninni starfar sérhæft
starfsfólk sem tekur vel á móti
viðskiptavinum og veitir þeim
góð ráð. Því er engin ástæða til að
þykja umræðuefnið óþægilegt. Í
versluninni er viðtalsherbergi þar
sem hægt er að ræða við fagfólk
okkar í næði og einnig er hægt að
hringja og fá ráðgjöf símleiðis. Við
bjóðum líka sýnishorn ef fólk vill
prófa vörurnar og er landsbyggðin
þar engin undantekning og um að
gera að hafa samband við okkur og
fá sýnishorn sent,“ segir Ólöf.
Sent heim að dyrum
Hjúkrunar- og dvalarheimili, sem
og einstaklingar, kaupa Abena-
vörur frá Rekstrarlandi.
„Flestir viðskiptavina okkar
panta vörurnar reglulega hjá
okkur og fá þær heimsendar. Bíl-
stjóri á okkar vegum keyrir þær
heim innan höfuðborgarsvæðisins
og fólk á landsbyggðinni fær vör-
urnar heimsendar með póstinum
sér að kostnaðarlausu hafi það
heimild frá Sjúkratryggingum
fyrir kaupunum,“ upplýsir Ólöf.
Ýmislegt annað sem snýr að per-
sónulegu hreinlæti fæst í verslun
Rekstrarlands, þar á meðal þvotta-
froða, þvottakrem, blautklútar,
græðandi krem og margt annað.
Sérhæfðar lausnir
Úrval af þvaglekavörum frá Abena
er mikið í Rekstrarlandi.
„Fólk er afar ánægt með úrvalið
enda hentar sumum að eiga
nokkrar mismunandi tegundir.
Þvagleki getur verið misjafn eftir
tímabilum í lífi fólks og aðstæður
mismunandi. Ein gerð af bindum
hentar kannski heima við en
önnur á ferðalögum eða þegar
veikindi herja á,“ segir Ólöf og
býður alla velkomna í Rekstrar-
land.
„Okkur þykir mikilvægt að veita
faglega og persónulega þjónustu
og við bjóðum upp á sérhæfðar
lausnir sem mæta þörfum hvers
og eins.“
Rekstrarland er í Vatnagörðum 10.
Sími 515 1100. Nánari upplýsingar
á rekstrarland.is
Sumum þykir
erfitt að tala um
vandamálið en það er
engin ástæða til. Í versl-
uninni er viðtalsher-
bergi þar sem hægt er að
ræða við fagfólk okkar,
hjúkrunarfræðing og
sjúkraliða, í næði.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
Svörum fyrirspurnum fúslega í síma 515 1100
eða á heilbrigdi@rekstrarland.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
83
0
88
ABENA ÞVAGLEKAVÖRUR
FÁST Í REKSTRARLANDI
samþykktar af Sjúkratryggingum Íslands og Ríkiskaupum
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17.
Abena hjálparvörurnar við þvagleka eru alhliða
lausnir fyrir alla þá sem glíma við þvagleka.
Sérfræðingar okkar aðstoða við rétt val og veita
persónulega og faglega þjónustu. Skírteinishafar
geta leitað beint til Rekstrarlands.
Við komum vörunum heim til notenda.
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 EFRI ÁRIN
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
D
6
-7
C
C
4
2
3
D
6
-7
B
8
8
2
3
D
6
-7
A
4
C
2
3
D
6
-7
9
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K