Fréttablaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 76
Sahar K hodoayar i var stuðningsmaður vinsæl-asta liðs Írans, Est eghlal, og vildi sjá leik með liðinu í mars gegn Al-Ain enda var það stórleikur í Meist- aradeild Asíu. Konur mega ekki fara á völlinn í landinu og dulbjó Sahari því sig sem karlmann. Margar konur beita því ráði. Því miður fyrir Sahar þá sá sið- ferðislögregla við henni og var hún leidd út af leikvellinum í járnum og hent í hið alræmda Shahr-e Rey fangelsi. Það er gamalt kjúklingabú, samkvæmt frétt Amnesty, og eru konur geymdar þar sem voga sér að brjóta hin heilögu lög landsins. Fangelsið er yfirfullt og aðstæður allar heldur ógeðfelldar, segir enn fremur á heimasíðu Amnesty. Sahar dvaldi í fangelsinu í tvo daga áður en henni var sleppt. Sam- kvæmt viðtali við systur Sahar sem Human Right Watch vitnar í glímdi Sahar við geðhvarfasýki og sagði systir hennar að heilsu hennar hefði hrakað mikið eftir dvöl hennar innan veggja fangelsisins. Henni var gert að mæta fyrir dóm vegna glæpa sinna þann 2. sept- ember. Ákærurnar voru tvær. Að fara út meðal almennings án hijab slæðu og móðga lögreglumann. Málinu var reyndar frestað en hún átti yfir höfði sér sex mánaða dóm hið minnsta, samkvæmt f lestum fréttum. Sahar gekk út úr dómshúsinu í Teheran, hellti bensíni yfir sig og kveikti í. Hún var f lutt á sjúkra- hús en lést þar viku síðar af sárum sínum. Alþjóða knattspyrnusamband- ið, FIFA, sendi samúðarkveðju í örstuttri yfirlýsingu degi síðar og ítrekaði kröfu sína um að konum yrði leyft að fara á leikvelli í land- inu. Yfirlýsingin var stutt og ekki birt á heimasíðu FIFA. Það er ekki einu sinni vitað hvort þetta sé opinber yfirlýsing frá FIFA almennt eða bara nokkur orð á Twitter frá samskipta- deild sambandsins. Yfirlýsingin féll í grýttan jarðveg á samfélagsmiðl- um og þar tætti fólk hana almennt í sig. Síðan hefur sambandið þagað á meðan heimsþekktir leikmenn og félög hafa tjáð sig. Sahar fékk fljótt viðurnefnið Bluegirl, því litir Esteg- hlal eru bláir. Meira að segja knattspyrnumenn í Íran tjáðu sig um dauða hennar. Fyrirliði landsliðsins, Masoud Shojaei, sagði eftir að liðið tapaði fyrir Hong Kong 11. september; Samúðarkveðjur, stúlkur Írans. Í dag töpuðum við því Sahar var ekki með okkur. Uppáhaldsliðið hennar, Esteg- hlal, var með mínútu þögn á æfing- arsvæði sínu og spilaði í búningi sérmerktum Bluegirl í vikunni. Það gerði Persepolis, aðalkeppinautarn- ir í Teheran, einnig. Meira að segja Paul Pogba, leikmaður Manchester United tísti um málið. Pogba er ein stærsta stjarna knattspyrnunnar þó hann sé eins og f lestir aðrir knatt- spyrnumenn uppfullir af sjálfum sér. Að hann léti í sér heyrast þóttu sterk skilaboð því knattspyrnu- menn eru einstaklega hræddir við að tjá sínar persónulegu skoðanir af einhverjum ástæðum. Ítalska félagið Roma og þýska félagið Fortuna Dusseldorf, sem Atli Eðvaldsson lék með forðum daga, breyttu liðsmerkjum sínum í blátt til minningar um Sahar. Chelsea og Barcelona sögðu að allir ættu að geta séð fótbolta á vellinum í tístum. Svona mætti áfram telja. Knattspyrnukonur hafa einn- ig látið þetta mál sig varða. Mark- vörðurinn Hedvig Lindahl, sam- herji landsliðsfyrirliðans Söru Bjarkar, hjá Wolfsburg og reyndar fjölmargar sænskar landsliðskonur hafa bent á óréttlætið og krafist svara. Fifa hefur sem fyrr þagað þunnu hljóði. Bláa stúlkan Sahar Khodayari kveikti í sér eftir að hún var handtekin fyrir að horfa á fótboltaleik í Íran. Andlát hennar vakið athygli á veruleika íranskra kvenna og leikmenn og áhorfendur minnast Sahar. Vonast er til þess að alþjóðasamfélagið taki höndum saman og fái Írani til að aflétta þessu fáránlega banni. Samstaða fólks með málstað íranskra kvenna er sterk. Mega mæta í október? FIFA krafðist þess reyndar fyrr í sumar að Íran sendi frá sér áætlun um hvenær konum verður leyft að kaupa miða á leiki í undankeppni heimsmeistaramótsins. Þá er á áætlun FIFA að kíkja á næstu vikum til landsins, en þó kom fram að það væri ekki vegna dauða Sahar. Ráð- herra íþróttamála í Íran, Jamshid Tahizade, hefur látið hafa eftir sér að engin sérstök tímamörk hafi verið sett, en yfirvöld þar í landi séu að vinna að nauðsynlegri innviða- Um allan heim hefur fólk minnst Sahar. Margir deila myllumerkinu; #bluegirs og #NoBan4Wo- men. MYND/SKJÁ- SKOT Ást Sahar á fótbolta dró hana á völlinn. Hún hlaut sex mánaða dóm, gekk út úr dómshúsinu og kveikti í sér. Íranskar konur dulbúa sig til að fylgjast með fótbolta. LEIKVANGURINN uppbyggingu til þess að hægt sé að hleypa konum inn á leikvanga. Hver sú uppbygging er var ósagt. Lög FIFA eru skýr hvað varðar að mismuna konum og getur sam- bandið refsað Íran með sekt eða brottvísun frá mótum. Í júní varaði forseti FIFA, Gianni Infantino, Írani við því að viðhalda banninu. Íranir hafa ákveðið að á næsta heima- leik landsliðsins á Azadi-vellinum fái konur að mæta og hvetja liðið áfram. Trúlega verður það gegn Kambódíu í október. Þó handtók siðferðislögreglan fjórar konur fyrir að mæta á völlinn síðast í ágúst. Í frétt BBC frá því í maí 2018 kemur fram að konur í Íran mæti töluvert á völlinn og leggi þvílíkt á sig til að dulbúast og sleppa þannig frá siðferðislögreglunni. Þær líma á sig skegg, setja á sig hárkollur og ýmislegt fleira. Þá segir að 35 konur hafi verið handteknar á síðasta ári fyrir að fara á völlinn. Ekki bara á fótboltavöll heldur einnig til að sjá blak, körfubolta og aðrar innan- hússíþróttir. Konur máttu horfa á körfuboltaleik í Teheran í fyrra en urðu að sitja á sér svæði, fjarri karl- mönnum. Ekkert í lögunum Það merkilega er að lög um að banna konur frá íþróttavöllunum er hvergi að finna í lagabókstaf Írans samkvæmt BBC. Þetta er bara eitt- hvað sem hefur verið við lýði síðan byltingin var gerð 1979 og er fram- fylgt af hörku. Snemma á þessu ári var 2.000 manns bætt í siðferðislög- reglu landsins. Philip Luther, lög fræðingur Amnesty, sagði í vikunni að dauði Sahar væri enn eitt dæmið um hvernig lagaumhverfi í Íran væri sett upp til að ná til kvenna. „Eini glæpur hennar var að vera kona í landi þar sem þeim er mismunað og refsað grimmilega. Við vitum ekki um neitt annað land sem bannar konum að mæta á leiki, hvað þá refsar þeim fyrir það.“ Í lögum Írans er sagt hvernig konur eigi að klæða sig og ef kona ætlar að yfirgefa landið þurfa þær leyf i frá eiginmönnum sínum. Þannig gat fyrirliði Íranska kvenna- landsliðsins í futsal, Niloufar Ardal- an, ekki keppt á Asíuleikunum árið 2015 því eiginmaður hennar leyfði það ekki. Í grein í The New York Times segir að handtökuskipun hafi verið gefin út á Saba Kamali, sem er fræg leikkona í Íran, því hún skrifaði á Instagram til stuðnings Sahar. Sagði þar að Sahar hefði þjáðst meira en Hussain ibn Ali, barna- barn Múhameðs spámanns. Hún fjarlægði færsluna. Foreldrar Sahar stigu fram í vikunni í viðtali við The Financial Times og viðurkenndu að þau hefðu frekar viljað að dóttir þeirra hefði horft á leikinn í sjónvarpinu en ást hennar á fótbolta hefði dregið hana á völlinn. „Á meðan þeir sem stálu landinu okkar ganga frjálsir þurfti saklaus stúlka að fara í fangelsi og svo deyja. Hvernig er hægt að með- taka það án þess að vilja deyja úr sorg?“ var meðal annars haft eftir móður hennar, Zari. Knattspyrna er gríðarlega vin- sæl í Íran og sagði Ali Karimi, sem er af mörgum talinn vera besti leikmaður Írans frá upphafi og stundum kallaður Maradona Írans, að hann ætlaði ekki að mæta oftar á völlinn þar til breytingar yrðu gerðar. Fyrrverandi formaður knattspyrnusambands Írans, Dar- iush Mostafavi, sagði að handtaka Sahar hefði skaðað orðspor Írans í knattspyrnunni. Orð að sönnu því knattspyrnuheimurinn horfir nú til Írans með undrunarsvip og hneykslast á framferði landsins gegn konum. Gallinn er að á meðan FIFA gerir lítið í því að framfylgja sínum eigin lögum eru konur áfram lamdar, áreittar og handteknar fyrir að mæta á völlinn í Íran. Sahar er syrgð um víða veröld og vonast er til að alþjóðasamfélagið taki höndum saman og fái Írani til að af létta þessu fáránlega banni. Hvort það takist mun tíminn leiða í ljós. Þangað til þurfa konur að líma á sig skegg, setja á sig hárkollur og ýmislegt f leira ætli þær sér að sjá uppáhaldslið sín spila. Leikmenn minnast Sahar í búningi merktum Bluegirl. Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 5 F B 0 9 6 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 D 6 -5 F 2 4 2 3 D 6 -5 D E 8 2 3 D 6 -5 C A C 2 3 D 6 -5 B 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.