Fréttablaðið - 21.09.2019, Síða 76
Sahar K hodoayar i var stuðningsmaður vinsæl-asta liðs Írans, Est eghlal, og vildi sjá leik með liðinu í mars gegn Al-Ain enda var það stórleikur í Meist-
aradeild Asíu. Konur mega ekki fara
á völlinn í landinu og dulbjó Sahari
því sig sem karlmann. Margar
konur beita því ráði.
Því miður fyrir Sahar þá sá sið-
ferðislögregla við henni og var hún
leidd út af leikvellinum í járnum
og hent í hið alræmda Shahr-e Rey
fangelsi. Það er gamalt kjúklingabú,
samkvæmt frétt Amnesty, og eru
konur geymdar þar sem voga sér
að brjóta hin heilögu lög landsins.
Fangelsið er yfirfullt og aðstæður
allar heldur ógeðfelldar, segir enn
fremur á heimasíðu Amnesty.
Sahar dvaldi í fangelsinu í tvo
daga áður en henni var sleppt. Sam-
kvæmt viðtali við systur Sahar sem
Human Right Watch vitnar í glímdi
Sahar við geðhvarfasýki og sagði
systir hennar að heilsu hennar hefði
hrakað mikið eftir dvöl hennar
innan veggja fangelsisins.
Henni var gert að mæta fyrir dóm
vegna glæpa sinna þann 2. sept-
ember. Ákærurnar voru tvær. Að
fara út meðal almennings án hijab
slæðu og móðga lögreglumann.
Málinu var reyndar frestað en hún
átti yfir höfði sér sex mánaða dóm
hið minnsta, samkvæmt f lestum
fréttum.
Sahar gekk út úr dómshúsinu í
Teheran, hellti bensíni yfir sig og
kveikti í. Hún var f lutt á sjúkra-
hús en lést þar viku síðar af sárum
sínum.
Alþjóða knattspyrnusamband-
ið, FIFA, sendi samúðarkveðju í
örstuttri yfirlýsingu degi síðar og
ítrekaði kröfu sína um að konum
yrði leyft að fara á leikvelli í land-
inu.
Yfirlýsingin var stutt og ekki birt
á heimasíðu FIFA. Það er ekki einu
sinni vitað hvort þetta sé opinber
yfirlýsing frá FIFA almennt eða bara
nokkur orð á Twitter frá samskipta-
deild sambandsins. Yfirlýsingin féll
í grýttan jarðveg á samfélagsmiðl-
um og þar tætti fólk hana almennt í
sig. Síðan hefur sambandið þagað á
meðan heimsþekktir leikmenn og
félög hafa tjáð sig. Sahar fékk fljótt
viðurnefnið Bluegirl, því litir Esteg-
hlal eru bláir.
Meira að segja knattspyrnumenn
í Íran tjáðu sig um dauða hennar.
Fyrirliði landsliðsins, Masoud
Shojaei, sagði eftir að liðið tapaði
fyrir Hong Kong 11. september;
Samúðarkveðjur, stúlkur Írans. Í
dag töpuðum við því Sahar var ekki
með okkur.
Uppáhaldsliðið hennar, Esteg-
hlal, var með mínútu þögn á æfing-
arsvæði sínu og spilaði í búningi
sérmerktum Bluegirl í vikunni. Það
gerði Persepolis, aðalkeppinautarn-
ir í Teheran, einnig. Meira að segja
Paul Pogba, leikmaður Manchester
United tísti um málið. Pogba er ein
stærsta stjarna knattspyrnunnar þó
hann sé eins og f lestir aðrir knatt-
spyrnumenn uppfullir af sjálfum
sér. Að hann léti í sér heyrast þóttu
sterk skilaboð því knattspyrnu-
menn eru einstaklega hræddir við
að tjá sínar persónulegu skoðanir af
einhverjum ástæðum.
Ítalska félagið Roma og þýska
félagið Fortuna Dusseldorf, sem
Atli Eðvaldsson lék með forðum
daga, breyttu liðsmerkjum sínum
í blátt til minningar um Sahar.
Chelsea og Barcelona sögðu að allir
ættu að geta séð fótbolta á vellinum
í tístum. Svona mætti áfram telja.
Knattspyrnukonur hafa einn-
ig látið þetta mál sig varða. Mark-
vörðurinn Hedvig Lindahl, sam-
herji landsliðsfyrirliðans Söru
Bjarkar, hjá Wolfsburg og reyndar
fjölmargar sænskar landsliðskonur
hafa bent á óréttlætið og krafist
svara. Fifa hefur sem fyrr þagað
þunnu hljóði.
Bláa stúlkan
Sahar Khodayari kveikti í sér eftir að hún var handtekin fyrir að
horfa á fótboltaleik í Íran. Andlát hennar vakið athygli á veruleika
íranskra kvenna og leikmenn og áhorfendur minnast Sahar.
Vonast er til þess að alþjóðasamfélagið taki höndum saman og fái Írani til að aflétta þessu fáránlega banni.
Samstaða fólks með málstað íranskra kvenna er sterk.
Mega mæta í október?
FIFA krafðist þess reyndar fyrr í
sumar að Íran sendi frá sér áætlun
um hvenær konum verður leyft að
kaupa miða á leiki í undankeppni
heimsmeistaramótsins. Þá er á
áætlun FIFA að kíkja á næstu vikum
til landsins, en þó kom fram að það
væri ekki vegna dauða Sahar. Ráð-
herra íþróttamála í Íran, Jamshid
Tahizade, hefur látið hafa eftir sér
að engin sérstök tímamörk hafi
verið sett, en yfirvöld þar í landi séu
að vinna að nauðsynlegri innviða-
Um allan heim
hefur fólk
minnst Sahar.
Margir deila
myllumerkinu;
#bluegirs og
#NoBan4Wo-
men. MYND/SKJÁ-
SKOT
Ást Sahar á fótbolta dró hana á völlinn. Hún hlaut sex mánaða dóm, gekk út úr dómshúsinu og kveikti í sér.
Íranskar konur dulbúa sig til að fylgjast með fótbolta.
LEIKVANGURINN
uppbyggingu til þess að hægt sé að
hleypa konum inn á leikvanga. Hver
sú uppbygging er var ósagt.
Lög FIFA eru skýr hvað varðar
að mismuna konum og getur sam-
bandið refsað Íran með sekt eða
brottvísun frá mótum. Í júní varaði
forseti FIFA, Gianni Infantino, Írani
við því að viðhalda banninu. Íranir
hafa ákveðið að á næsta heima-
leik landsliðsins á Azadi-vellinum
fái konur að mæta og hvetja liðið
áfram. Trúlega verður það gegn
Kambódíu í október. Þó handtók
siðferðislögreglan fjórar konur fyrir
að mæta á völlinn síðast í ágúst.
Í frétt BBC frá því í maí 2018
kemur fram að konur í Íran mæti
töluvert á völlinn og leggi þvílíkt á
sig til að dulbúast og sleppa þannig
frá siðferðislögreglunni. Þær líma
á sig skegg, setja á sig hárkollur og
ýmislegt fleira. Þá segir að 35 konur
hafi verið handteknar á síðasta ári
fyrir að fara á völlinn. Ekki bara á
fótboltavöll heldur einnig til að sjá
blak, körfubolta og aðrar innan-
hússíþróttir. Konur máttu horfa á
körfuboltaleik í Teheran í fyrra en
urðu að sitja á sér svæði, fjarri karl-
mönnum.
Ekkert í lögunum
Það merkilega er að lög um að
banna konur frá íþróttavöllunum er
hvergi að finna í lagabókstaf Írans
samkvæmt BBC. Þetta er bara eitt-
hvað sem hefur verið við lýði síðan
byltingin var gerð 1979 og er fram-
fylgt af hörku. Snemma á þessu ári
var 2.000 manns bætt í siðferðislög-
reglu landsins.
Philip Luther, lög fræðingur
Amnesty, sagði í vikunni að dauði
Sahar væri enn eitt dæmið um
hvernig lagaumhverfi í Íran væri
sett upp til að ná til kvenna. „Eini
glæpur hennar var að vera kona í
landi þar sem þeim er mismunað og
refsað grimmilega. Við vitum ekki
um neitt annað land sem bannar
konum að mæta á leiki, hvað þá
refsar þeim fyrir það.“
Í lögum Írans er sagt hvernig
konur eigi að klæða sig og ef kona
ætlar að yfirgefa landið þurfa þær
leyf i frá eiginmönnum sínum.
Þannig gat fyrirliði Íranska kvenna-
landsliðsins í futsal, Niloufar Ardal-
an, ekki keppt á Asíuleikunum árið
2015 því eiginmaður hennar leyfði
það ekki.
Í grein í The New York Times
segir að handtökuskipun hafi verið
gefin út á Saba Kamali, sem er fræg
leikkona í Íran, því hún skrifaði
á Instagram til stuðnings Sahar.
Sagði þar að Sahar hefði þjáðst
meira en Hussain ibn Ali, barna-
barn Múhameðs spámanns. Hún
fjarlægði færsluna.
Foreldrar Sahar stigu fram í
vikunni í viðtali við The Financial
Times og viðurkenndu að þau hefðu
frekar viljað að dóttir þeirra hefði
horft á leikinn í sjónvarpinu en ást
hennar á fótbolta hefði dregið hana
á völlinn. „Á meðan þeir sem stálu
landinu okkar ganga frjálsir þurfti
saklaus stúlka að fara í fangelsi og
svo deyja. Hvernig er hægt að með-
taka það án þess að vilja deyja úr
sorg?“ var meðal annars haft eftir
móður hennar, Zari.
Knattspyrna er gríðarlega vin-
sæl í Íran og sagði Ali Karimi, sem
er af mörgum talinn vera besti
leikmaður Írans frá upphafi og
stundum kallaður Maradona Írans,
að hann ætlaði ekki að mæta oftar
á völlinn þar til breytingar yrðu
gerðar. Fyrrverandi formaður
knattspyrnusambands Írans, Dar-
iush Mostafavi, sagði að handtaka
Sahar hefði skaðað orðspor Írans
í knattspyrnunni. Orð að sönnu
því knattspyrnuheimurinn horfir
nú til Írans með undrunarsvip og
hneykslast á framferði landsins
gegn konum.
Gallinn er að á meðan FIFA gerir
lítið í því að framfylgja sínum eigin
lögum eru konur áfram lamdar,
áreittar og handteknar fyrir að
mæta á völlinn í Íran.
Sahar er syrgð um víða veröld og
vonast er til að alþjóðasamfélagið
taki höndum saman og fái Írani til
að af létta þessu fáránlega banni.
Hvort það takist mun tíminn leiða
í ljós. Þangað til þurfa konur að líma
á sig skegg, setja á sig hárkollur og
ýmislegt f leira ætli þær sér að sjá
uppáhaldslið sín spila.
Leikmenn minnast Sahar í búningi merktum Bluegirl.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
D
6
-5
F
2
4
2
3
D
6
-5
D
E
8
2
3
D
6
-5
C
A
C
2
3
D
6
-5
B
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K