Fréttablaðið - 21.09.2019, Blaðsíða 12
BANDARÍKIN Mark Zuckerberg,
forstjóri Facebook, fundaði með
Donald Trump Bandaríkjaforseta
í Hvíta húsinu á fimmtudag til að
ræða persónuverndarmál, hlut-
drægni og fyrirhugaða rafmynt
tæknirisans. Hefur Trump og ríkis-
stjórn hans haft áhyggjur af þróun
Facebook hvað þessi mál varðar.
Talsmaður Facbebook sagði fund-
inn hafa verið „uppbyggilegan“
en hann var einn af mörgum sem
Zucker berg sótti með þingmönnum
þennan dag. Hafa margir þingmenn
haft áhyggjur af yfirburðastöðu
Facebook á markaðinum, til dæmis
öldungadeildarþingmaðurinn Josh
Hawley, sem spurði Zuckerberg
hvort það kæmi til greina að selja
samfélagsmiðlana Instagram og
Whatsapp.
Trump sjálfur hafði mestar
áhyggjur af hlutdrægni samfélags-
miðilsins gegn hægriskoðunum en
nýlega ákvað Zuckerberg að taka
hart á hatursorðræðu og bannaði
nokkra háværa öfgahægrimenn.
Í vor tilkynnti Zuckerberg að ný
rafmynt væri væntanleg á markað
en hún á að heita Libra. Prófanir
myndu hefjast í lok árs og myntin
yrði sett á markað snemma árið
2020. Ekki eru allir sáttir við þessar
áætlanir, til að mynda Ravi Menon,
seðlabankastjóri Singapúr, sem
segir að myntin myndi raska hinu
alþjóðlega fjármálakerfi og að ríkis-
stjórnir heimsins verði að koma sér
saman um viðbrögð. „Áhættan nær
til alls heimsins. Enginn einn lög-
gjafi getur tekist á við þetta,“ sagði
Menon. Bruno Le Maire, fjármála-
ráðherra Frakklands, hefur einnig
varað við myntinni. – khg
Viðruðu áhyggjur af
málefnum Facebook
Forstjóri Facebook fundaði með Bandaríkjaforseta og þingmönnum vegna
áhyggja þeirra af ýmsu sem tengist tæknirisanum. Forsetinn lýsti áhyggjum
af aðgerðum gegn hatursorðræðu en persónuverndarmál voru líka rædd.
Mark Zuckerberg er enn og aftur undir smásjánni. NORDICPHOTOS/GETTY
Áhættan nær til alls
heimsins. Enginn
einn löggjafi getur tekist á
við þetta.
Ravi Menon,
seðlabankastjóri
Singapúr
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
atvinnuleikhópa
Umsóknarfrestur til 1. október
Styrkir til
Leiklistarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi
atvinnuleikhópa á árinu 2020. Veittir eru styrkir til einstakra
verkefna eða starfssamninga til tveggja ára.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2019.
Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is.
Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn.
Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa
getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna.
Samkvæmt leiklistarlögum nr. 138/1998 skilar leiklistarráð
tillögu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins um
úthlutun fjár til stuðnings atvinnuleikhópum.
Nánari upplýsingar:
Guðmundur Ingi Markússon og
Ragnhildur Zoëga, sími: 515 5838.
atvinnuleikhopar@rannis.is,
www.rannis.is
Hægara er að styðja en reisa
Sjávarútvegsdagurinn 2019
Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávar útvegi
og Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu,
miðvikudaginn 25. september kl. 08:00 til 10:00.
Farið verður yfir afkomu sjávarútvegsfyrirtækja á árinu 2018
og rýnt í stöðu og horfur í greininni á komandi misserum.
Dagskrá hefst á léttum morgunverði kl 8:00
en fundur hefst klukkan 8:30.
Setning
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja árið 2018
Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte
Hvert stefnir fiskvinnslan?
Friðrik Gunnarsson, hagfræðingur SFS
Seðlabankinn og sjávarútvegur
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri
Fundarstjóri er Edda Hermannsdóttir,
markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka
Skráning á skraning@deloitte.is | Aðgangur 3.500 kr.
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-5
5
4
4
2
3
D
6
-5
4
0
8
2
3
D
6
-5
2
C
C
2
3
D
6
-5
1
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K