Fréttablaðið - 21.09.2019, Síða 16
Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Það sem þá
þótti næsta
sjálfsagt er
fordæmt í
dag, oft af æði
miklum ofsa.
Það er enginn skortur á styttum af konum í Wales. Sjá má konur um allt. Þær eru tákngervingar og líkneski, englar og mæður, friður og réttlæti. Í
öllu landinu er þó ekki að finna eina einustu styttu af
nafngreindri konu, ókonungborinni, sem uppi var í
alvörunni. Á því verður þó senn breyting. Á næsta ári
verður reist í miðbæ Cardiff stytta af Betty Campbell,
fyrsta svarta skólastjóra Wales, sem lést árið 2017
en hún helgaði líf sitt mennta- og jafnréttismálum.
Campbell var valin úr hópi fimm kvenna í samkeppn-
inni „Huldar hetjur“ um hver yrði fyrsta nafngreinda
konan í Wales til að verða að styttu.
Það eru þó ekki aðeins stytturnar í Wales sem eru
nafnlausir tákngervingar.
Féll á hnífinn
Hin þrjátíu og þriggja ára Charlotte Huggins fagnaði
nýja árinu á hverfispöbbnum með vinum. Síðar sömu
nótt ruddist fyrrverandi kærasti Huggins, Michael
Rolle, inn á heimili hennar og stakk hana til bana
með hníf. Rolle hafði séð Huggins í félagsskap annars
manns og orðið af brýðisamur. Fyrir rétti hélt Rolle
fram að hann hefði ekki stungið Huggins heldur hefði
hún einfaldlega fallið á hnífinn.
Faraldur breiðist út í Bretlandi. Á götum Lundúna
og víðar fer hnífstunguárásum fjölgandi. Daglegar
fréttir berast af ástandinu þar sem reynt er að greina
vandann. Eru ástæðurnar félagslegar? Aukin ítök
gengja í lífi ungs fólks? Niðurskurður í lögreglunni?
En þrátt fyrir áhuga fjölmiðla á hnífaárásum var
umfjöllun um morðið á Charlotte Huggins aðfaranótt
nýársdag lítil sem engin.
Sandra Walklate, prófessor í af brotafræðum við
Háskólann í Liverpool, telur sig hafa skýringu. Hnífa-
árásir eru vissulega faraldur á götum úti. En það sama
er uppi á teningnum innan veggja heimilisins. Um
það ríkir hins vegar þögn því „of beldi gegn konum er
oftast ósýnilegt“.
Nýjar tölur sýna að morðum sem rekja má til heim-
ilisof beldis hefur fjölgað síðustu fimm ár í Bretlandi.
Á síðasta ári voru fórnarlömbin 173, 32 fleiri en árið
áður. Þrír fjórðu fórnarlambanna voru konur sem
féllu fyrir hendi karlmanns. „Þetta eru hin ósýnilegu
fórnarlömb hnífaárása,“ sagði Sandra Walklate í sam-
tali við BBC.
Rangt frumlag
„Kona féll fram af svölum“ var fyrirsögn sem vakti
hörð viðbrögð í íslenskum fjölmiðlum í vikunni. Við
nánari athugun kom í ljós að konunni hafði verið
hrint fram af svölum og liggur hún nú alvarlega slösuð
á sjúkrahúsi. Þingmaðurinn Guðmundur Andri
Thorsson ritaði á Facebook: „Það er rangt frumlag í
þessari setningu, það sjáum við öll, gerandinn hefur
verið fjarlægður, nýtur verndar. Of beldið er ekki
óhjákvæmilegt, ekki eðlilegur hluti lífsins, heldur
samfélagsleg og menningarleg meinsemd.“
Konur eru nafnlausir tákngervingar, almenn hug-
mynd en ekki einstaklingar, ekki fórnarlömb heldur
tölfræði. Þær verða fyrir hnífum og falla fram af
svölum eins og hafið fellur að og sólin hnígur í vestri.
Jörðin snýst um möndul sinn. Svona lagað gerist. Þetta
er ekkert persónulegt. Þetta var bara kona.
Það glittir þó í von. Konur Bretlands voru Boris
Johnson forsætisráðherra huldar sýnum þegar hann
frestaði óvænt þinghaldi nýverið. Féll af dagskrá
þingsins lagafrumvarp um heimilisof beldi sem
hafði verið lengi í smíðum og ríkti um þverpólitísk
samstaða. Biðlað var til Borisar um að flytja málið á
dagskrá næsta þings en hann varð ekki við þeirra ósk.
Aldrei þessu vant ætlaði allt um kolla að keyra. Svo
hörð voru viðbrögð kvenna í Bretlandi að Boris – sem
býr sig nú undir kosningar – sá að honum var ekki
stætt á að gera ekki neitt. Með hraði skipaði hann sér-
stakan umboðsmann um heimilisof beldi.
Konur eru nefnilega ekki líkneski, hugmynd eða til-
gáta. Þær eru einstaklingar af holdi og blóði með andlit,
raddir, nöfn – og kosningarétt; gleymum því ekki.
Þetta var bara kona
Sennilega er það svo að samtíminn er hverju sinni sannfærður um að hann hafi höndlað sannleikann og kunni allar leikreglur. Um leið þykir næsta sjálfsagt að fussa og sveia yfir fortíðinni og fólkinu sem lifði í henni og kunni ekki skil á hinum réttu leikreglum.
Þannig er sáraeinfalt að þefa uppi alls kyns gjörðir og
demba þeim yfir fólk áratugum seinna og saka það til
dæmis um rasisma.
Forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, fór ungur
maður í partí, þar sem þemað var Þúsund og ein nótt,
og klæddi sig sem Aladdin og litaði andlit sitt dökkt
til að vera í stíl við gervið. Eins og hæfir tilefni eins
og þessu var tekin af honum mynd. Svo liðu átján ár.
Ungi maðurinn var orðinn frjálslyndur og vel metinn
forsætisráðherra og líða fór að kosningum og vonandi
endurkjöri. Þá var myndin grafin upp og skandall var
opinberaður: Forsætisráðherrann var rasisti. Fleiri
myndir birtust síðan af honum þar sem hann hafði
á sínum yngri árum svert andlit sitt. Enn ein sönnun
um rasískt eðli forsætisráðherrans.
Skiljanlegt væri ef einhverjum hefði svelgst illilega
á hefði Trudeau farið á sínum yngri árum á grímuball
klæddur Ku Klux Klan-búningi. Ekkert slíkt gerðist.
Hann fór sem Aladdin með dökkt andlit. Aladdin er
ævintýrapersóna, sveipuð ljóma. Það er ekkert rangt
við að vilja vera í sporum hans í boði þar sem fólk
mætir í búningi.
Trudeau varð að svara gagnrýnendum sínum og
sagðist ekki hafa áttað sig á því á sínum tíma að uppá-
tæki hans væri rasískt. Auðvitað ekki, enda er ekkert
sem bendir til að hann hafi verið að hæða og spotta
Aladdin, hann virðist einmitt hafa verið að hylla
hann. Nú segist hann vita að gjörningurinn hafi verið
rasískur. Auðvitað segir hann það. Hann er forsætis-
ráðherra í viðkvæmri stöðu og verður að reyna að
hafa sem flesta góða þegar kosningar eru í vændum.
Trudeau bugtar sig og beygir fyrir hinum gólandi
gagnrýnendum. Sjálfsagt gerir hann það í þeirri trú að
það borgi sig að gera sér sér upp iðrun um leið og hann
vonar að fárinu sloti.
Mál Trudeau hefur verið blásið upp. Hann er ekki
stjórnmálamaður sem hefur hrellt heiminn með
rasískum ummælum, ólíkt ýmsum ráðamönnum
heims. Gervið á grímuballinu er ekki þess eðlis að
ástæða sé til að froðufella yfir því. Trudeau hefur
sjálfur sagt að hann hafi gaman af alls kyns gervum.
Það að hann hafi svert andlit sitt á sínum yngri árum
gerir hann ekki að óhæfum stjórnmálamanni og með
því ætlaði hann sér örugglega ekki að gera lítið úr
blökkumönnum. Þetta voru aðrir tímar og það sem
þá þótti næsta sjálfsagt er fordæmt í dag, oft af æði
miklum ofsa.
Og var það á þessum tíma eða kannski stuttu eftir
það sem hér á landi voru seldir negrakossar? Full-
orðið fólk keypti þetta sælgæti og börn og unglingar
hámuðu það sömuleiðis í sig. Hugsanlega eru einhvers
staðar til gamlar myndir af því viðurstyggilega áti.
Líklega er löngu orðið tímabært að þeir seku biðjist
afsökunar á rasísku áti sínu á negrakossum.
Aðrir tímar
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum við gigtar- og liðverkjum.
Bætir hreyfigetu og dregur úr stirðleika.
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki Viðurkennt af Ly astofnun
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-2
D
C
4
2
3
D
6
-2
C
8
8
2
3
D
6
-2
B
4
C
2
3
D
6
-2
A
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K