Fréttablaðið - 21.09.2019, Page 18
Við liggjum á
ótrúlega frambæri-
legu svæði sem erlendir
sérfræðingar sem hingað
koma segja allir að geti orðið
að heimsklassa
íþróttasvæði.
Þórður M.
Sigfússon, skipu-
lagsfræðingur
Handboltalandsliðið hefur verið á undanþágu frá 1989. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem
úthlutað verður árið 2020 í samræmi við ákvæði laga
nr. 57/2009.
Umsóknarfrestur rennur út 1. október.
Úthlutað verður úr eftirfarandi sjóðum:
launasjóður hönnuða
launasjóður myndlistarmanna
launasjóður rithöfunda
launasjóður sviðslistafólks
launasjóður tónlistarflytjenda
launasjóður tónskálda
Allar umsóknir eru nú einstaklingsumsóknir; í vinnuáætlun
er hægt að tilgreina samstarf sérstaklega.
Nota þarf rafræn skilríki við umsóknina. Eingöngu verður
tekið við rafrænum fylgigögnum.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn
aðeins tekin til umfjöllunar ef loka- eða framvinduskýrslu
vegna síðustu úthlutunar hefur verið skilað til stjórnar
listamannalauna, sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun
nr. 57/2009.
Vakin er athygli á að atvinnuleikhópar sækja til leiklistarráðs
(styrkir til atvinnuleikhópa); umsóknin getur einnig gilt til lista-
mannalauna.
Umsóknareyðublað og eyðublað fyrir framvinduskýrslu
ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn og stefnu stjórnar,
má finna á vefslóðinni www.listamannalaun.is.
Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Zoëga
og Guðmundur Markússon á skrifstofu Rannís,
listamannalaun@rannis.is.
Stjórn listamannalauna, ágúst 2019
Umsóknarfrestur 1. október
Listamannalaun
2020
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
ÍÞRÓTTIR „Séu þjóðarhallir bornar
saman þá er Laugardalshöllin
sú þriðja elsta í Evrópu. Georgía
ætlar að vígja nýja höll árið 2021
þegar Eurobasket fer fram og á
hún að rúma 10 þúsund manns. Þá
verðum við með næstelstu þjóðar-
höll Evrópu. Elsta þjóðarhöllin er í
Úkraínu og þar er kominn ný höll
á teikniborðið. Við erum með með
langselstu þjóðarhöllina í Vestur-
Evrópu og eftir 4-6 ár verðum með
þá elstu í Evrópu. Það er staðreynd
sem íþróttahreyfingin hlýtur að
vera hugsi yfir,“ segir Þórður M. Sig-
fússon skipulagsfræðingur.
Þórður er einn helsti sérfræðing-
ur landsins þegar kemur að nýjum
Laugardalsvelli og þjóðarhöll. Hann
heldur úti stórskemmtilegu bloggi, Bæði KKÍ og HSÍ hafa ítrekað óskað eftir nýrri fjölnota íþróttahöll undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Höllin verður
aldursforseti
innan skamms
Laugardalshöll er þriðja elsta þjóðarhöll Evrópu.
Aðeins hallirnar í Georgíu og Úkraínu eru eldri.
Báðar þjóðir eru með nýjar hallir á teikniborðinu
og því stefnir í að elsta þjóðarhöll Evrópu verði í
Laugardalnum á næstu árum.
sem kallast nyfjolnotaithrottaholl.
blogspot.com. Þá fjallaði MS-ritgerð
hans um framtíðarmúsík í Laugar-
dalnum og kallaðist hún Staðar-
valsgreining fyrir þjóðarleikvang
innanhússíþrótta á höfuðborgar-
svæðinu.
Þórður komst að því að í Laugar-
dalnum er hægt að vera með
heimsklassa íþróttasvæði en einnig
er mögulegt að byggja í Safamýri og
Vetrarmýri í Garðabæ. En allt er til
alls í Laugardalnum þó svæðið sé að
grotna niður og flest öll mannvirki
séu á undanþágu frá sínum alþjóða-
samböndum. Fyrst var fjallað um
undanþágu HSÍ í blöðunum 1989.
Hann er sammála því að skrefin
sem hafa verið tekin varðandi upp-
byggingu í Laugardalnum hafa
verið fá og stutt. „Það þarf að eiga
sér stað samtal milli stjórnvalda og
íþróttahreyfingarinnar. Mér finnst
ríkið draga lappirnar í þessu því
borgin hefur verið að standa sig vel
í uppbyggingu íþróttamannvirkja
í einstökum hverfum borgarinnar.
Ég skil vel að borgin vilji ekki stað
ein að fjármögnun mannvirkja sem
samkvæmt skilgreiningunni eru
þjóðarleikvangar.“
Telur vænlegast að miðstöð
íþrótta verði í Laugardalnum
Þórður segir að framtíðarmúsíkin í
Laugardalnum sé að stækka skipu-
lagt íþróttasvæði án þess að ganga
á græn svæði. „Ég myndi vilja að
allur Laugardalurinn verði lagður
undir þar sem íþróttasvæðið verður
stækkað. Það er lítið mál þar sem
frambærilegt svæði liggur meðfram
Suðurlandsbrautinni og er það illa
nýtt. ÍBR hefur m.a. skoðað það.
Íþróttasvæði Laugardalsins er
samtals rúmir 22 hektarar að stærð
en með þessu er hægt að stækka
það í 42 hektara án þess að ganga
á grænu svæðin sem eru rúmir 40
hektarar."
Hann segir að erlendir sérfræð-
ingar horfi löngunaraugum á Laug-
ardalinn og öfundi Íslendinga að
hafa svona svæði í miðri borg. „Við
liggjum á ótrúlega frambærilegu
svæði sem erlendir sérfræðingar
sem hingað koma segja allir að geti
orðið að heimsklassa íþróttasvæði.
Þetta er auðlind sem við eigum að
horfa til. Dalurinn er í miðri borg
umkringdur gróðri og verður í góðri
tengingu við Borgarlínuna. Það vilja
öll sambönd vera þar. Ef litið er á
Noreg þá er ekkert svona alhliða
svæði til. Ulleval-leikvangurinn er
í norðanveðri borginni, höllin er
✿ Elstu þjóðarhallir
Evrópu
Palace of Sports
Úkraína 1960
Tblisi Sports Palace
Georgía 1961
Laugardalshöll
Ísland 1965
Sala Polivalente di Serravalle
San Marínó 1969
Höllin á Hálsi
Færeyjar 1970
Palace of Youth and Sports
Kosóvó 1977
Cottonera Sports Complex
Malta 1978
Karen Demirchyan Sports
and Concerts Complex
Armenía 1983
AccorHotels Arena
Frakkland 1984
Globen
Svíþjóð 1989
í nokkurra kílómetra fjarlægð og
frjálsíþróttaleikvangurinn er á enn
öðrum stað.
Hér er hægt að hafa þetta algjör-
lega einstakt. Þjóðarleikvangar í
einum hnapp með sameiginlegri
þjónustu og bílastæðum og svo
framvegis.“
Viljayf irlýsing um byggingu
nýrrar hallar í Laugardalnum var
undirrituð árið 1988 og segir Þórður
að hún gæti verið enn í gildi. Þá átti
að rísa um átta þúsund manna höll
og átti hún að vera hringlaga. Teikn-
ingar voru gerðar og fyrirmyndin
var Jo Hall í Osaka. „Það strandaði
á að borgin sagði nei. Það lá fyrir
viljayfirlýsing 1988 frá stjórnvöld-
um og borginni að það yrði byggð
stór íþróttahöll í tengslum við HM
í handbolta 1995.
Þetta er eina viljayfirlýsingin sem
gerð hefur verið. Það getur verið að
hún sé enn í gildi.“
benediktboas@frettabladid.is
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-3
C
9
4
2
3
D
6
-3
B
5
8
2
3
D
6
-3
A
1
C
2
3
D
6
-3
8
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K