Fréttablaðið - 21.09.2019, Side 34
Kannanir sýna að þegar við eldumst erum við minna snert. Samt höfum við sömu
þörf fyrir nánd og snertingu og
áður. Því segi ég við starfslið okkar,
og geri það oft sjálf, að taka utan
um axlir gamla fólksins og strjúka
því um vangann. Ég má það líka
gagnrýnilaust sem kvenprestur og
gamla fólkið verður svo innilega
glatt þegar því eru sýnd blíðuhót.“
Þetta segir séra Auður Inga Ein-
arsdóttir, prestur heimilisfólksins
á hjúkrunarheimilinu Grund.
„Það er svo mikilvægt að taka
utan um gamla fólkið okkar og
gefa sér tíma til að vera hjá því
og hlusta í amstri dagsins. Það
er nokkuð sem yngra fólkið ætti
líka að gera af gleði og þakk-
læti til þessarar merkilegu elstu
kynslóðar Íslendinga. Kynslóðar
sem lifað hefur mestu breytingar
í mannkynssögunni því engin
kynslóð hefur upplifað annað eins
og hún. Þetta er þakklátasta kyn-
slóðin sem lifir. Fólk af henni er
þakklátt fyrir allt; að maður yrði
á það, faðmi það og setjist hjá því,
jafnvel þótt það sé ekki nema í tíu
mínútur,“ segir Auður Inga sem
fyrir prestskap var umsjónarkenn-
ari í grunnskóla.
„Þar má segja að mætist tvær
ólíkar kynslóðir hvor með sína
öfgana. Börn í 7. bekk þekkja rétt
sinn og gera kröfur í hvívetna á
meðan elsta kynslóðin þakkar
fyrir allt sem að henni er rétt. Af
henni má svo ótalmargt læra og
sögurnar sem eldra fólkið segir eru
svo ótrúlegar að börnin halda að
þau ýki þegar þau lýsa fyrir þeim
bernsku sinni og því sem þau upp-
lifðu á Íslandi í gamla daga.“
Margir hringja í vinalínur
Auður Inga segir eldri borgara
landsins á mismunandi stað í
lífinu, enda séu þeir á stóru aldurs-
bili, allt frá 65 ára upp í meira en
100 ára.
„Þarfirnar eru mismunandi og
á meðan yngri eldri borgarar eru
enn á fleygiferð og hafa nóg fyrir
stafni eru eldri eldri borgarar
farnir að tapa heilsu og getu. Þeir
einangrast oft heima og þurfa þá
sárlega innlit, umhyggju og að
þeim sé sinnt. Mér skilst að margir
hringi í vina- og hjálparlínur því
þá vantar einhvern að tala við. Í
dag á margt eldra fólkið börn sem
búsett eru í útlöndum og þá ríkir
tómarúm í lífi þeirra. Þetta hefur
breyst mikið á þeim tíu árum sem
ég hef starfað sem prestur á Grund
en þá voru sárafáir í þessum
aðstæðum. Ég bjó áður í Banda-
ríkjunum og Svíþjóð þar sem
algengt er að eldri borgarar eigi
börn sem búa í órafjarlægð en ég
held að smæð íslensks þjóðfélags
hjálpi okkur að vera nær gamla
fólkinu. Það eykur nándina, við
erum til staðar og getum þjónu-
stað það betur.“
Á hjúkrunarheimilinu á Grund
búa um 180 einstaklingar.
„Allt heimilisfólkið þráir heim-
sóknir og bíður þeirra í ofvæni og
yfirleitt standa aðstandendur sig
vel í að heimsækja foreldra sína og
ættingja. Við erum auðvitað með
sneiðmynd af þjóðfélaginu hér á
Grund, rétt eins og í litlu sveita-
þorpi; líka fólk sem hefur brennt
allar brýr að baki sér. Flestir eiga
þó í góðum samskiptum við
börn sín og ættingja og hlakka til
hverrar stundar með ástvinum
sínum,“ segir Auður Inga.
Börn og ungmenni komi oft-
sinnis á Grund til samfunda við
ömmur sínar og afa, langömmur
og langafa.
„En af því að ég er amma sjálf
veit ég að til þess að barnabörnin
heimsæki mig þarf ég að rækta
samskiptin við þau. Þau koma ekki
nema þeim hafi verið sýnd ræktar-
semi og mér finnst elsta kynslóðin
hafa gefið barnabörnum sínum
mikinn tíma. Hér fárast margar
konur yfir ungum mæðrum í dag
og hversu lítinn tíma þær hafa
fyrir börn sín. Þær hafa áhyggjur
af börnum og unglingum þessa
lands; hvernig fjölskyldutengsl
verða æ minni og fjarlægari með
félagslegri einangrun símanna sem
svo valda enn minni nánd innan
fjölskyldunnar. Þessi kynslóð veit
upp á hár hvað skiptir máli í lífinu
og er með á hreinu að það er fjöl-
skyldan,“ segir Auður Inga.
Trúað fólk og óttalaust
Á Grund eyðir ævikvöldinu elsta
kynslóð Íslendinga. Hvernig hún
nýtur efri áranna segir Auður Inga
fara eftir heilsufari hvers og eins.
„Margir eru orðnir langþreyttir
og lúnir og þrá það heitast að
deyja. Þegar lífsgæðin eru næstum
engin og fólk þarf orðið hjálp með
allt við daglegt líf talar það um
að Lykla-Pétur hafi gleymt sér og
hvað sé að almættinu að gleyma
þeim svo lengi. Hjá okkur býr líka
fólk sem orðið er hundrað ára,
feykihresst og fer í daglega göngu-
túra. Góð heilsa er því númer eitt,
tvö og þrjú,“ segir séra Auður Inga.
Sunnudagsmessurnar hennar á
Grund eru þétt setnar.
„Það mæta allir til messu sem eiga
þess kost og upp undir hundrað
manns við hverja messu. Þetta er
svo trúað fólk og óttalaust yfir því
sem tekur við. Það trúir á upp-
risu og eilíft líf og trúin er sterkt
haldreipi þegar endalokin nálgast.
Það trúir því að beðið sé eftir því
hinum megin og að við taki líf
eftir þetta í faðmi ástvina sem fóru
á undan. Það hlakkar til endur-
fundanna og lítur á dauðann sem
vin sinn.“
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Séra Auður Inga hefur verið prestur á Grund í áratug. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Allir þrá heimsókn og hlýju
Séra Auður Inga
Einarsdóttir er
heimilisprestur á
Grund. Hún segir
mikilvægt að
snerta, hlusta og
vera til staðar.
Á heimasíðu samtakanna, sem stofnuð voru árið 1985, er að finna hafsjó af hjálplegum
og ítarlegum fróðleik um allt sem
viðkemur heilabilun. „Markmið
samtakanna er að miðla upp-
lýsingum til fólks með heilabilun,
aðstandenda, fagaðila og annarra
sem láta sig málefnið varða,“ segir
Sigurbjörg.
Eftirsótt ráðgjöf
Helstu verkefni Sigurbjargar,
sem er iðjuþjálfi að mennt, eru að
fræða og leiðbeina einstaklingum
sem greinst hafa með Alzheimer
eða aðra heilabilun, ásamt mökum
þeirra og fjölskyldu. Boðið er upp
á fjölbreytta þjónustu sem hentar
flestum, óháð fjölskyldugerð,
búsetu eða framvindu sjúkdóms.
„Við veitum ráðgjöf og stuðn-
ingsviðtöl fyrir einstaklinga og
maka og fjölskyldufundi ef óskað
er eftir því. Það skiptir ekki máli
hversu langt einstaklingurinn er
genginn í ferlinu, það eru allir vel-
komnir í ráðgjafarviðtal,“ útskýrir
Sigurbjörg. „Ef þú kemst ekki til
okkar þá bjóðum við upp á fjar-
fundarbúnað eða símaviðtal. Þetta
er ókeypis fyrir alla félagsmenn
sem ganga í samtökin.
Við erum með ráðgjafarsíma
sem er opinn alla daga nema föstu-
daga en það er gaman að segja frá
því að ráðgjafarviðtölin eru mikið
notuð, það er mikil ásókn og eigin-
lega öll viðtöl sem eru bókuð hjá
okkur eru nýtt.“
Hlustað á raddir þeirra yngri
Í tilefni alþjóðlega Alzheimerdags-
ins sem er í dag, þann 21. septem-
ber, efna samtökin til málstofu
sem ber yfirskriftina „Ég er enn
ég“. Á málstofunni, sem fer fram á
Grand Hóteli klukkan 14, verður
Öflug fræðsla og sveigjanleg þjónusta
Sigurbjörg Hannesdóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna, segir það geta verið mikið áfall að
greinast með Alzheimer. Samtökin veita bæði aðstandendum og þeim sem greinast ráðgjöf.
Sigurbjörg
Hannesdóttir,
fræðslustjóri
Alzheimer-
samtakanna,
segir aðstand-
endur þeirra
sem hlotið hafa
greiningu líka
þurfa ráðgjöf
og stuðning.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Ég er enn ég!
Mannréttindi fólks
með heilabilun
Í tilefni Alzheimerdagsins, sem
er í dag, verður efnt til málstofu
á Grand Hóteli, frá kl. 14-16.
Ávarp
n Valborg Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Alzheimer-
samtakanna
Setning
n Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri
Í fullkomnum heimi
n Margrét Steinarsdóttir,
framkvæmdastjóri Mannrétt-
indaskrifstofu Íslands
8 ár með Alzheimer
n Einar Þór Jónsson, aðstand-
andi og formaður Geðhjálpar
Kaffihlé
Ég er enn ég!
n Frásagnir einstaklinga með
heilabilun
Tanya og Zumba Gold dans-
flokkurinn
n Heilsuskóli Tanyu og Félag
eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni verða með dans-
skemmtiatriði
Ráðstefnuslit
n Árni Sverrisson, formaður
Alzheimersamtakana
Fundarstjóri
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Fv. alþingismaður og í stjórn
Alzheimersamtakanna
Allir velkomnir og
aðgangur ókeypis
áherslan lögð á mannréttindi fólks
með heilabilun.
Þá mun vinnuhópur þeirra
sem greinst hafa yngri með sjúk-
dóminn veita gestum innsýn í sinn
veruleika en þau standa gjarnan
frammi fyrir öðruvísi áskorunum
en þau sem eldri eru. „Þetta eru
einstaklingar sem eru snemm-
greindir en það þýðir að vera
greindur með heilabilun fyrir 65
ára aldur,“ útskýrir Sigurbjörg.
„Maður getur greinst þegar
maður er 85 ára en einhverjir
greinast jafnvel 51 árs og sumir í
hópnum eru 55 ára. Þá eru aðrar
áherslur eins og til dæmis í sam-
bandi við fjölskyldumynstur
og vinnu og hlutverk í lífinu,“
segir Sigurbjörg. „Þessi vinnu-
hópur er eftir erlendri fyrirmynd
og byrjaði í janúar á þessu ári.
Það eru núna tíu einstaklingar
með heilabilun í hópnum ásamt
mökum sínum.“
Sigurbjörg segir hópinn hittast
reglulega. „Þau hittast hérna hjá
okkur í samtökunum svona annan
hvern mánuð og markmiðið með
þessum hóp er að það sé hlustað á
raddir fólks með heilabilun.
Þetta er ekki stuðningshópur
innan Alzheimersamtakanna en
auðvitað fá þau stuðning hvert
frá öðru. Þetta er meira þannig að
þau vilja gera heilabilun sýnilegri
með því að hlustað sé á þeirra
raddir,“ segir hún. „Það er það sem
við ætlum að gera á málstofunni,
þessir sex einstaklingar segja sínar
sögu ásamt maka sínum.“
Regulegir fræðslufundir
„Þegar fólk leitar til okkar þá er
það að leita eftir upplýsingum
og stuðningi. Við erum til dæmis
með svona stuðningshópa fyrir
aðstandendur tvisvar í mánuði,
þá getur fólk bara mætt og þarf
ekkert að skrá sig, deilt sinni sögu
og hlustað á aðra,“ segir Sigurbjörg.
„Þetta er á jafningjagrundvelli,
er mjög vel sótt, og fólk hefur lýst
mikilli ánægju með að geta hist
án veika einstaklingsins en það er
mikið álag á aðstandendur.“
Mikilvæg fjáröflun
Samtökin fóru af stað með fjár-
öflun fyrir skömmu þar sem
meðal annars er hægt að festa
kaup á hálsmeni sem hannað er af
Gabríellu Ósk. Allur ágóði rennur
til styrktar starfi unga hópsins
og þeirra sem nýverið hafa hlotið
greiningu.
Þá er einnig hægt að styðja við
samtökin með ýmsum öðrum
hætti, til dæmis með einstöku eða
mánaðarlegu framlagi og geta ein-
staklingar jafnt sem fyrirtæki lagt
samtökunum lið.
Hægt er að skoða hálsmenið og
fá nánari upplýsingar á heimasíðu
samtakanna, alzheimer.is.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U REFRI ÁRIN
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
6
-8
1
B
4
2
3
D
6
-8
0
7
8
2
3
D
6
-7
F
3
C
2
3
D
6
-7
E
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K