Fréttablaðið - 21.09.2019, Síða 80
Karin Björg Torbjörnsdóttir fær lof
fyrir söng sinn í Brúðkaupi Fígarós
í Þjóðleikhúsinu. Þar leikur hún
unglinginn Cherubino.
Hvar áttir þú heima þegar þú varst
lítil og hvar áttu heima núna? Ég
ólst upp í Lundi í Svíþjóð, en bý
núna í Prag í Tékklandi. Hef f lutt
oft innan Evrópu.
Hvenær ákvaðst þú að verða söng-
kona? Ég ákvað það aldrei beint en
söng hreinar laglínur áður en ég
byrjaði að tala og söngurinn hefur
alltaf fylgt mér. Röddin leiddi mig
áfram og allt fór einhvernveginn á
sinn stað.
Hvernig tónlist hlustaðir þú á sem
barn? Þar sem mamma hlustaði oft
á klassíska tónlist ólst ég upp við
hana en þekkti líka Björk, Bítlana
og Spice girls. Klassíkin fylgdi mér
samt alltaf og ég fann mikla orku
henni, sérstaklega í strengja- og
píanó tónlist, helst saman.
Hvernig lékstu þér helst? Ég var úti
í náttúrunni. Var svo heppin að búa
í húsi með garði. Oft að klifra í trjám
og þykjast vera dýr. Við áttum ketti
og hund sem var dásamlegt! Svo
hjólaði ég út úr bænum til að synda
í skógartjörn á sumrin.
Hvenær byrjaðir þú að læra
söng? Ég byrjaði sjö ára í kór og var
hjá virtum kórstjóra þar til ég var 17
ára. Hún kenndi okkur að lesa nótur
og kynnti okkur fyrir rythma, leik-
andi létt án þess að tuða. Svo hélt
ég áfram að læra í Söngskólanum í
Reykjavík.
Hvernig er hlutverk Cherubinos?
Æðislegt! Hann hefur mikinn
húmor, er frekur á mjög sjarmer-
andi hátt og gerir allt til að njóta
lífsins.
Hvað er það geggjaðasta sem þú
hefur gert? Taka mér árshlé frá
óperusöng til að læra kvikmynda-
leiklist og kvikmyndagerð í Prag.
Hvað langar þig mest að gera? Oh,
svo margt… en eitthvað sem gefur
mér þá vissu að þegar ég skil við
þennan heim þá sé hann betri en
þegar ég kom í hann. Ég vil vinna að
vellíðan allra dýra og náttúru.
Röddin
leiddi mig áfram
Þessi einstaklega myndarlegi einhyrningur
barst okkur í pósti frá Sveinbirni Orra.
Þegar ég var lítil var ég oft að klirfra í trjám. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hvað er svart þegar þú kaupir það,
rautt þegar þú notar það og grátt
þegar þú hendir því?
Svar: Kol.
Gríngátur
Af hverju hoppar einn strákurinn
í hópnum upp og niður áður en
hann drekkur kókómjólkina sína?
Svar: Á fernunni stendur: Hristist
fyrir notkun.
Hvers vegna er heita vatnið kallað
heita vatnið?
Svar: Nú, eitthvað verður það að
heita, vatnið!
Lísaloppa rýndi í
gátubókina. „Þessi gáta er
mjög sniðug,“ sagði hún.
„Spurt er, hvar er hundur
smalans?“ Róbert klóraði
sér í kollinum. „Ég sé
engan hund, er ekki bara
verið að plata okkur?“
Lísaloppa glotti. „Nei
myndin af hundinum er
falin í myndinni.“ „Hvað
meina þú,“ spurði Róbert,
hann skildi ekkert hvað
það táknaði.
„Jú,“ sagði Lísaloppa.
„Myndin af hundinum
getur verið falinn hvar
sem er, í skýjunum,
kindunum, fötum
smalans eða grasinu,
því þetta er felumynd.“
Róberti leist ekkert
á þetta. „Úff, ég finn
aldrei þennan hund,“
sagði hann vondaufur.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
370
Getur þú
fundið hund
smalans?
?
?
?
?
ÞAR SEM MAMMA
HLUSTAÐI OFT Á
KLASSÍSKA TÓNLIST ÓLST ÉG
UPP VIÐ HANA EN ÞEKKTI LÍKA
BJÖRK, BÍTLANA OG SPICE
GIRLS.
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
D
6
-3
7
A
4
2
3
D
6
-3
6
6
8
2
3
D
6
-3
5
2
C
2
3
D
6
-3
3
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K