Fréttablaðið - 21.09.2019, Side 84
Fetar eigin slóð
Rithöfundurinn heimsfrægi Ian McEwan
ræðir í viðtali um nýjustu bækur sínar,
hætturnar sem heimurinn býr við í dag
og dramatíska fjölskyldusögu sína.
NÚ FYLGI ÉG HUGSUN-
INNI MUN BETUR EN
ÉG GERÐI Á ÞRÍTUGSALDRI
ÞEGAR ÉG VAR FULLUR AF
EFASEMDUM UM AÐ SETNING-
ARNAR VÆRU AÐ VIRKA EINS OG
ÉG VILDI.Það fór ekki fram hjá bókmenntaunnendum að breski rithöfundurinn Ian McEwan var hér á dögunum til að taka við alþjóðlegum bók
menntaverðlaunum kenndum við
Halldór Laxness. Á sama tíma kom
út í íslenskri þýðingu Árna Óskars
son skáldsagan Vélar eins og ég.
Sagan gerist upp úr 1980 þegar
Bretar hafa tapað Falklandseyja
stríðinu og Alan Turing gerir tíma
mótauppgötvun í gervigreind. Ein
aðalpersóna bókarinnar kaupir
eitt af fyrstu vélmennunum, hinn
ofurgreinda Adam. McEwan er
fyrst spurður hvort hann telji að
vélmenni verði stór hluti af lífi
okkar í framtíðinni. „Gervigreind
verður það og er nú þegar. Ég nota
vélmennið til að leika mér að hug
myndinni um það hvernig það
væri að eiga náið samband við veru
sem við höfum skapað. Við erum
reyndar órafjarri því að skapa vits
munaveru en við eigum í daglegum
samskiptum við vélar og tæki og
þar er tilfinningasamband í gangi.
Ef bíllinn bilar þá spörkum við í
hann og ef tölvan fer ekki í gang þá
hvæsum við á hana og svo fram
vegis. Við munum eiga erfitt með
að koma ekki fram við vélar eins
og þær séu mannlegar. Það nægir
okkur að þær hagi sér eins og þær
væru mannverur.“
Á önglinum
Ekki verður annað séð en að vél
mennið Adam hafi tilfinningar.
„Vélmennið segist hafa þær og
hegðar sér eins og það hafi þær,“
segir McEwan. „Allt í kringum
okkur eru dýr sen hegða sér eins og
þau hafi tilfinningar en við erum oft
mjög treg til að viðurkenna það. Ég
var veiðimaður, veiddi fisk, en svo
kom að því að ég áttaði mig á því
að það að vera á önglinum er mjög
sársaukafullt og fiskarnir hegða sér
eins og við myndum gera í þeirra
stöðu. Veiðimenn kjósa hins vegar
að velta þessu ekki fyrir sér.“
Ein persóna bókarinnar er
stærðfræðingurinn Alan Turing,
sem tókst á stríðsárunum að ráða
dulmál Þjóðverja, en um hann og
dapurleg örlög hans var gerð rómuð
kvikmynd, The Imitation Game.
„Hann fyrirfór sér eftir ofsóknir
yfirvalda vegna samkynhneigðar
hans. Hann gerði sennilega meira
en nokkur önnur manneskja til
að f lýta fyrir lokum seinni heims
styrjaldar. Hann var mjög góður
vísindamaður, sennilega frábær,
og ég vildi gefa honum lífið sem
hann aldrei átti. Ég vildi líka hafa í
sögunni mann með sterka siðferðis
kennd sem væri fulltrúi tæknibylt
ingarinnar. Turing hefði örugglega
verið í miðdepli í tölvubyltingunni
hefði hann lifað,“ segir McEwan.
Kinkar kolli til Kafka
Ný bók eftir McEwan er svo vænt
anleg á næstu dögum í Bretlandi,
The Cockroach (Kakkalakkinn)
og fjallar um Brexit. „Þetta er saga
af kakkalakka sem vaknar einn
morguninn og kemst að því að hann
er forsætisráðherra. Ég er að kinka
kolli til Kafka og bókar hans Ham
skiptin. Bókin er mjög stutt en samt
lengri en bók Kaf ka, um 20.000
orð,“ segir McEwan.
Um Brexit segir hann: „Þjóðin
hefur skaðað sjálfa sig gríðarlega
mikið. Ég veit að ég tala ekki fyrir
alla því þjóðin er þverklofin. Stjórn
málamenn og fjölmiðlaeigendur
sem vildu útgöngu lugu margoft
og voru hvorki með efnahagsleg né
pólitísk rök. Fullveldi byggist alltaf
á málamiðlunum. Þeir segja að við
höfum ekki fullt fullveldi í Evrópu
Ég er sáttari við sjálfan mig en ég var, segir þessi framúrskarandi rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
sambandinu, og það er rétt. Þegar
við förum munum við gera við
skiptasamninga um allan heim en
það mun taka langan tíma og það
verður málamiðlun með fullveldi,
eins og aðildin að NATO er mála
miðlun og Parísarsáttmálinn. Slag
orð popúlista: Tökum stjórnina, eru
byggð á ímyndun. Við verðum ætíð
að ná málamiðlun við aðrar þjóðir.
Brexit byggir á lygi sem fólk hefur
móttekið. Brexit er hluti af popúl
ískri bylgju sem við sjáum í Banda
ríkjunum, Tyrklandi, Póllandi,
Ungverjalandi og mörgum öðrum
löndum. Þar láta metnaðargjarnir
stjórnmálamenn, ríkir fjölmiðla
eigendur og auðjöfrar eins og þeir
standi með venjulegu fólki gegn
elítunni sem þeir eru þó hluti af.“
Talið berst að loftslagsbreyting
um og hann segist sammála því að
þar sé mesta hættan. „Vandamálið
er ekki lengur tæknilegt, það er
pólitískt. Popúlistum stendur á
sama um loftslagsbreytingar. Það
er mikill harmleikur að einmitt
núna þegar við þörfnumst þess
að ríkisstjórnir grípi í taumana þá
vaða uppi popúlískir stjórnmála
menn sem hafa afar takmarkaðar
hugmyndir um það hvað mannleg
velferð er. Trump er dæmi um þetta.
Juncker orðaði þetta vel þegar
hann sagði fyrir nokkrum árum:
Við vitum hvað þarf að gera en við
vitum ekki hvernig á að gera það og
ná um leið endurkjöri.“
Sáttari við sjálfan sig
McEwan hefur verið mikilsvirtur
rithöfundur í áratugi. Hann er
spurður hvort hann telji sig hafa
orðið betri rithöfundur með árun
um. „Aðrir verða að dæma um það.
Ég er sáttari við sjálfan mig en ég
var. Alls konar hugmyndir koma
til mín þegar ég skrifa. Hugsun
sem kviknar er hins vegar ekki það
sama og fullgild setning sem lýsir
þessari sömu hugsun. Nú fylgi ég
hugsuninni mun betur en ég gerði
á þrítugsaldri þegar ég var fullur
af efasemdum um að setningarnar
væru að virka eins og ég vildi.“
Á ferlinum hefur hann hlotið
ótal verðlaun og viðurkenningar,
þar á meðal Bookerverðlaunin og
verk hans hafa verið kvikmynduð.
Hann segist sérlega ánægður með
kvikmyndaútgáfuna af Atonement
(Friðþægingu) sem er að flestra mati
ein af hans allra bestu bókum. Hann
segist stoltur af því að vera fyrsti
handhafi verðlauna sem kennd eru
við Halldór Laxness og fer fögrum
orðum um Sjálfstætt fólk. „Margir
rithöfundar sem ég þekki í Banda
ríkjunum og Evrópu líta á Sjálfstætt
fólk sem meistaraverk. Ég blaðaði í
henni áður en ég kom til landsins og
ég held að hún sé á pari við Tolstoj.“
Laxness fékk Nóbelsverðlaunin
og blaðamaður nefnir að margir séu
á þeirri skoðun að McEwan eigi þau
einnig skilið. „Það er fallegt af þér að
segja það,“ svarar hann.
Spurður hvort hann lesi mikið
svarar hann: „Mest sögu og vísindi.
Það sem ég les af skáldskap er aðal
lega endurlestur á verkum sem ég
er hrifinn af eða bók sem einhver
sem ég dáist að og ber virðingu
fyrir kemur með til mín og segir:
Þú verður að lesa þetta! Þegar fólk
spyr mig hverjir séu merkilegustu
höfundarnir undir þrítugs og fer
tugsaldri og hvað sé að gerast í bók
menntaheiminum þá get ég ekki
svarað því. Ég er ekki útgefandi og
ekki gagnrýnandi. Mér finnst ekki
skylda mín að fylgjast með allri
þróun í bókmenntaheiminum. Eins
og allir rithöfundar feta ég mína
eigin slóð.“
Dramatísk fjölskyldusaga
Að lokum berst talið að drama
tískri fjölskyldusögu hans. Fyrir
allnokkrum árum kom í ljós að
McEwan átti bróður sem hann hafði
ekki vitað af. Móðir hans giftist árið
1934 og eignaðist son og dóttur með
manni sínum. Eiginmaðurinn barð
ist í seinni heimsstyrjöldinni og
kona hans átti í ástarsambandi við
David McEwan sem var einnig her
maður. Hún fæddi honum son en
hélt fæðingunni vandlega leyndri
og gaf soninn til ættleiðingar. Hún
sagði fósturforeldrunum að hún
myndi aldrei gera tilraun til að hafa
uppi á honum. Eiginmaður hennar
féll í stríðinu og hún giftist elsk
huga sínum og Ian McEwan er sonur
þeirra. Eldri sonurinn David frétti
á unglingsárum að hann væri ætt
leiddur og fullorðinn maður hafði
hann uppi á bróður sínum, Ian, og
hitti móður sína sem þá var þjáð af
Alzheimer.
McEwan segist vera í góðu sam
bandi við bróður sinn sem hann
hafi talað við rétt áður en hann
hélt til Íslands. „Þegar þetta mál
með bróður minn kom upp árið
2002, og komst í fjölmiðla, þá fékk
ég fjölda bréfa frá fólki sem átti
systur og bræður sem það hafði
ekki vitað af. Ég hitti líka fólk sem
hafði þessa sömu sögu að segja. Ég
á hálf bróður og hálfsystur og þegar
albróðir minn kom skyndilega til
sögunnar kom það okkur öllum í
mikið uppnám. Það sneri ekki að
samskiptum við hann heldur vegna
þess að við litum öll til baka og átt
uðum okkur skyndilega á sorginni
og depurðinni sem hafði verið hluti
af lífi foreldra okkar. Fjölskyldan
var svo sundruð og brotin. Eftir
þetta skildi ég sorgina sem hafði
alltaf fylgt móður minni.“
2 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
D
6
-4
6
7
4
2
3
D
6
-4
5
3
8
2
3
D
6
-4
3
F
C
2
3
D
6
-4
2
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K