Faxi - 01.10.2016, Qupperneq 8
ríkjamenn myndu byggja upp varanlega
herstöð við Keflavíkurflugvöll. Kefla-
víkurstöðin starfaði óslitið í 55 ár en árið
2006 var henni lokað.
Keflavíkurstöðin
Helsta viðfangsefni stöðvarinnar var, fyrir
utan rekstur Keflavíkurflugvallar, að reka
samfélag og fjölbreytta þjónustu við allar
deildir varnarliðsins. Starfsemi stöðvarinnar
var skipt upp í nokkur svið sem skiptu á
milli sín verkefnum við að reka alla þætti
samfélagsins á Vellinum og stöðvarinnar
samkvæmt hugmyndafræði hers og borg-
aralegra yfirvalda í Bandaríkjunum um gott
umhverfi herstöðva.
Hermenn voru að meðaltali um 3000 og
annað eins bættist við með borgaralegum
starfsmönnum og fjölskyldum hermanna.
Þannig taldi byggðakjarninn vel í kring-
um 6000 íbúa og var lengi sjötti stærsti
þéttbýliskjarni landsins. Hver hermaður
dvaldi frá einni viku upp í nokkur ár í
stöðinni. Samanlagt má því gera ráð fyrir
að um 200 þúsund Bandaríkjamenn hafi
dvalið á Vellinum í lengri eða skemmri
tíma á þeim 55 árum sem stöðin var starf-
rækt. Hersveitir varnarliðsins sem komu
hingað voru til að byrja með, að mestu
skipaðar einhleypum karlmönnum. Það
breyttist smátt og smátt, fjölskyldufólki
fjölgaði og kvenkyns hermönnum. Við
afnám herskyldu í Bandaríkjunum árið
1973 varð herinn að keppa um starfs-
krafta. Áhersla hersins á góðan aðbúnað
fjölskyldufólks jókst til dæmis mjög
mikið. Þessi þróun var augljós á Vellinum,
yfirbragðið breyttist, fjölbreyttari og
viðameiri þjónusta var veitt og framboð af
húsnæði fyrir fjölskyldufólk jókst.
Kalt stríð
Á íslandi var kalda stríðið háð víðsvegar
í samfélaginu, m.a. í sölum Alþingis og á
síðum dagblaðanna. S jaldan voru stóryrðin
spöruð. Bandaríska herstöðin á Miðnesheiði
varð táknmynd hernaðarveldis vestur-
veldanna og afstöðu íslands í hinu kalda
stríði. Andstæðingar þeirrar stefnu beindu
því sjónum sínum að henni og fjölmargar
Keflavíkurgöngur voru gengnar milli
Keflavíkur og Reykjavíkur til að krefjast
úrsagnar úr NATO og þess að herinn færi.
Þótt herstöðin hafi verið þáttur í köldu
stríði Bandaríkjanna gegn Sovétríkjunum,
þá var andstaðan gegn henni hér á landi
ekki aðeins af heimspólitískum ástæðum,
8 FAXI