Fréttablaðið - 16.10.2019, Síða 16
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Það veldur manni áhyggjum að þátttakendum á verðbréfa-markaði hefur fækkað, sem
birtist okkur í því að það hefur
dregið úr virkni og seljanleiki er
minni en áður, og það aftur veldur
því að markaðurinn er ekki að
sinna því grunnhlutverki sínu að
vera framsýnn og gefa sem réttastar
upplýsingar um verðmyndun félaga
hverju sinni,“ segir Hannes Árdal,
framkvæmdastjóri Íslenskra fjár-
festa, í samtali við Markaðinn.
Hann bendir á að þegar leiðrétt
sé fyrir Arion banka og Marel, lang-
samlega stærstu skráðu félögunum,
hafi velta á hlutabréfamarkaði það
sem af er ári dregist saman. „Hún er
núna um fimm prósent sem hlutfall
af markaðsvirði félaga í Kauphöll-
inni en var liðlega sjö prósent á sama
tíma fyrir ári,“ útskýrir Hannes.
Til að sporna við þessari þróun sé
meðal annars mikilvægt að fjölga
virkum og sjálfstæðum fjárfest-
ingasjóðum með því að heimila
þeim, eins og er lagt til í hvítbók um
framtíðarskipan fjármálakerfisins,
að taka að sér ávöxtun séreignar-
sparnaðar sem til þessa hefur aðeins
verið á forræði lífeyrissjóðanna. Þá
nefnir Hannes að útgefendur þurfi
að hlúa vel að viðskiptavökum sem
séu mikilvægir fyrir verðmyndun
auk þess sem það megi skoða að gera
skyldusparnað í lífeyrissjóði frjáls-
ari en nú er þannig að almenningur
hafi meira um það að segja hvernig
honum sé ráðstafað.
Hann segir að Íslenskir fjárfestar,
sem halda á morgun, fimmtudag,
upp á 25 ára afmæli verðbréfafyrir-
tækisins, hafi að undanförnu haldið
á lofti þeim sjónarmiðum að það sé
lykilatriði, eigi að viðhalda jafnvægi
í fjármagnsflæði til og frá landinu,
ekki hvað síst fyrir lífeyrissjóðina
ætli þeir sér að halda áfram að fjár-
festa í stórum stíl erlendis, að heima-
markaðurinn sé í lagi. „Forsenda
þess að við fáum innflæði fjármagns
á hlutabréfamarkaðinn á móti
erlendum fjárfestingum lífeyris-
sjóðanna,“ að sögn Hannesar, „er að
það sé virk verðmyndun og seljan-
leiki. Þetta eru þau atriði sem skipta
erlenda sjóði hvað mestu máli þegar
þeir líta til þess að fjárfesta á íslenska
markaðinum,“ segir Hannes.
Lífeyrissjóðir og fagfjárfestar hafa
verið að taka fjármuni úr virkri stýr-
ingu hjá hlutabréfasjóðum, auk þess
sem sjóðunum hefur fækkað með
sameiningum verðbréfafyrirtækja,
og hafa því eignir þeirra sem hlut-
fall af markaðsvirði skráðra félaga
dregist mikið saman á síðustu árum
og eru núna um sex prósent. Til
samanburðar námu eignir þeirra um
15 prósentum sem hlutfall af virði
félaga í Kauphöllinni fyrir aðeins
rúmlega þremur árum.
„Þetta þýðir með öðrum orðum,“
útskýrir Hannes, „að samkeppnin
hefur í þeim skilningi minnkað og
með þeim afleiðingum að skoðana-
skipti á markaði eru bæði einsleitari
og minni en áður.“
Á sama tíma og verðbréfasjóðum
hefur fækkað og þeir minnkað,
ásamt því að lífeyrissjóðir horfa
einkum út fyrir landsteinana í
sínum fjárfestingum, hafa umsvif
efnamikilla einkafjárfesta verið
hverfandi. Hann segir að þetta
snúist að miklu leyti um „eggið
og hænuna. Einkafjárfestar sýna
markaðinum ekki endilega áhuga
ef það er lítill sem enginn seljanleiki
og aðstæður til að selja í félögum
eða færa sig milli eignaf lokka eru
erfiðar.“
Spurður hvort það séu ekki vax-
andi líkur á því, við þessar aðstæður
á markaði, að einhver félög fari að
huga að afskráningu segir Hannes
að það sé „vissulega hætta á að þau
sjái ekki hag sínum lengur borgið
með því að vera skráð á markað ef
ávinningurinn af því er ekki lengur
augljós“. hordur@frettabladid.is
Lykilatriði fyrir fjármagnsútflæði að heimamarkaðurinn sé í lagi
Hlutafé Jubileum, sem á veit-ingastaðina Cafe Paris og Snaps, var nýverið aukið
um 30 milljónir króna. Þetta stað-
festir Birgir Þór Bieltvedt, sem á
eignarhaldsfélagið ásamt eigin-
konu sinni, Eygló Kjartansdóttur,
í samtali við Markaðinn.
Birgir segir að veitingarekstur
hafi verið erfiður síðustu misseri. Í
stað þess að skuldsetja fyrirtækið
væri ráðlegra að auka hlutafé. „Ég
kappkosta að styrkja félögin og
lækka skuldir. Þetta er liður í því,“
segir hann. Fjármunirnir muni
fyrst og fremst nýtast Jubileum og
Snaps en ekki Cafe Paris.
Samhliða jókst hlutur Jubileum
í Snaps í 85-90 prósent. Stofnendur
staðarins, Sigurgísli Bjarnason og
Stefán Melsted, eiga það sem eftir
stendur auk kaupréttar að hlutafé.
„Ég hef tröllatrú á að því að
það séu góðir tímar fram undan
á Íslandi. Það þarf bara að þrauka
þangað til og aðlaga reksturinn
breyttum forsendum,“ segir hann.
Að sögn Birgis hefur rekstur
Cafe Paris gengið vel að undan-
förnu. Sumarið haf i verið sér-
staklega gott. Framkvæmdir hafi
staðið yfir í grennd við Snaps sem
sett hafi strik í reikninginn en nú
sjái fyrir endann á þeim. Veitinga-
staðurinn sé í góðum rekstri þrátt
fyrir framkvæmdirnar og fækkun
ferðamanna.
Eigið fé Jubileum var neikvætt
um 13 milljónir króna árið 2018
sem einkum má rekja til mikils
taps hjá Cafe Paris. Jubileum tap-
aði 335 milljónum árið 2018 og 80
milljónum árið áður. – hvj
Hlutafé
Jubileum
aukið um
30 milljónir
Birgir Þór Bieltvedt.
Samkeppnin hefur
minnkað og skoð-
anaskipti á markaði eru því
bæði einsleitari og minni en
áður.
Hannes Árdal,
framkvæmda-
stjóri Íslenskra
fjárfesta
Ég hef tröllatrú á að
því að það séu góðir
tímar fram undan á Íslandi.
Það þarf bara að þrauka
þangað til.
Þetta getur orðið
hið versta mál fyrir
viðskiptavild landsins ef
ekki er brugðist skjótlega
við.
Guðmundur Kristjánsson,
stofnandi Lucinity
Viðskiptavild og orð-spor Íslands geta beðið hnek k i ef stjórnvöld bregðast ekki með skjótum hætti við því að
Ísland lendi á gráum lista FATF.
Vera Íslands á listanum getur tor-
veldað einstaklingum og fyrirtækj-
um að stofna til nýrra viðskipta hjá
erlendum fjármálastofnunum að
sögn sérfræðinga í vörnum gegn
peningaþvætti.
„Það getur orðið erfiðara fyrir
ný fyrirtæki að stofna til viðskipta
erlendis. Til að mynda geta erlendir
bankar þurft að gera sérstaklega
grein fyrir af hverju þeir samþykkja
íslensk fyrirtæki í viðskipti þegar
þau koma frá landi sem er á gráa
listanum. Auk þess geta fyrirtæki
sem eiga nú þegar í viðskiptum
erlendis þurft að færa betri rök fyrir
fjármagnsflutningum,“ segir Guð-
mundur Kristjánsson, stofnandi
fjártæknifyrirtækisins Lucinity,
í samtali við Markaðinn. Hann
stofnaði Lucinity á síðasta ári eftir
að hafa starfað sem yfirmaður sam-
skiptaeftirlits og gervigreindar hjá
fjármálarisanum Citigroup.
Í síðustu viku var greint frá því
að sérfræðingahópur FATF, sem er
alþjóðlegur hópur ríkja um aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka, teldi að enn stæðu út
af sex atriði sem gætu leitt til þess að
umbætur Íslands varðandi aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka verði ekki taldar full-
nægjandi. Verði það niðurstaðan fer
Ísland á lista yfir svokölluð áhættu-
söm þriðju lönd þar sem aðgerða-
áætlun er í farvegi.
Höftin veittu falskt öryggi
Guðmundur segir að til skemmri
tíma litið verði áhrifin af veru
Íslands á listanum lítil. Ef það dregst
hins vegar á langinn að komast af
listanum getur það valdið tortryggni
í viðskiptum og jafnvel haft áhrif á
lánshæfi fyrirtækja og stofnana.
„Þetta getur orðið hið versta mál
fyrir viðskiptavild landsins ef ekki
er brugðist skjótlega við,“ segir Guð-
mundur sem tekur fram að stjórn-
völd hafi brugðist vel við þeim
athugasemdum sem FATF hefur gert.
Samt sem áður séu enn stór atriði
sem standi út af.
„Eftir fjármálahrunið vorum við í
þeirri sérstöku stöðu að allar milli-
færslur til landsins voru grandskoð-
aðar. Það hefur ef til vill veitt okkur
falskt öryggi sem gekk þó augljóslega
ekki til lengdar. Þegar fjármagns-
höftum var aflétt og fé tók skyndi-
lega að flæða inn til landsins komu
upp nýjar áskoranir og þá er mikil-
vægt að haldið sé rétt á spöðunum.“
Ástralinn dr. Justin Bercich er yfir
gagnavísindum hjá Lucinity en hann
starfaði áður sem gagnavísinda-
maður hjá breska fjármálaeftirlitinu
(UK FCA).
„Skammtímaáhrifin verða óveru-
leg, en ef við horfum eitt, tvö eða þrjú
ár fram á veginn þá getur aðgerða-
leysi skaðað orðspor Íslands og jafn-
vel haft áhrif á mikilvæga hluti eins
og milliríkjaviðskipti. Aðgerðir til
að uppfylla kröfur FATF geta tekið
tíma og þess vegna þarf að búa svo
um hnútana að á næsta ári verði
þessi mál komin í gott horf,“ segir dr.
Bercich. „Orðspor Íslands mun ekki
bíða hnekki ef stjórnvöld bregðast
rétt við og með skjótum hætti. Þann-
ig geta þau sýnt umheiminum að
landið taki þessi mál alvarlega.“
Getum skarað fram úr
Hugbúnaðarlausnin Lucinity vinnur
úr upplýsingum um allar aðgerðir
viðskiptavina fjármálafyrirtækis
og nýtir sér gervigreind til að finna
grunsamleg hegðunarmynstur. Í dag
er lítil samhæfing milli banka sem
gerir þeim erfitt fyrir að sjá heildar-
myndina í kerfisbundnu peninga-
þvætti. Lucinity gerir bönkunum
kleift að læra hver af öðrum og þann-
ig finna brot sem annars hefði ekki
komist upp um.
„Það er tvennt sem þarf að huga að.
Í fyrsta lagi þarf að komast af listan-
um og í öðru lagi þarf að byggja aftur
upp traust. Íslenska fjármálakerfið
er frekar einsleitt og með miðlæga
grunna. Það felast því mikil tækifæri
í því að byggja upp sameiginlegar
og samþættar varnir gegn peninga-
þvætti. Ef viljinn er fyrir hendi getur
Ísland skarað fram úr á þessu sviði
og skapað hagræði í kaupbæti. Þá eru
ótalin áhrif vegna tengsla peninga-
þvættis við aðra skipulagða glæpa-
starfsemi,“ segir dr. Bercich.
Guðmundur nefnir að árlegt
umfang peningaþvættis á heimsvísu
sé metið nálægt 2.400 milljörðum
Bandaríkjadala og því séu miklir
fjármunir í húfi. Erlend glæpasam-
tök haldi úti heilu rannsóknar- og
þróunardeildunum til að finna betri
leiðir til peningaþvættis og staðsetja
veikasta hlekkinn í keðjunni.
„Ef þú ert veikasti hlekkurinn þá
leitar fjármagnið til þín og það er
nákvæmlega það sem gerðist hjá
Danske Bank í Eystrasaltslöndunum
sem var þá veikasti hlekkurinn í Evr-
ópu.“
Orðspor landsins gæti skaðast
Ef Ísland fer á gráan lista FATF er mikilvægt að stjórnvöld bregðist rétt við að sögn sérfræðinga í vörnum
gegn peningaþvætti. Erfiðara að stofna til nýrra viðskipta erlendis. Orðsporið gæti beðið hnekki.
Stjórnvöld funda beggja vegna Atlantshafsins
Stjórnvöld vinna nú hörðum
höndum að því að koma málinu í
betri farveg. Samkvæmt minnis-
blaði utanríkisráðuneytisins um
samskipti ráðherra og sendiherra
Íslands í Bandaríkjunum með
þarlendum ráðamönnum kemur
fram að sendiherrann hafi átt
fund 7. október síðastliðinn með
nokkrum embættismönnum
bandaríska utanríkisráðuneytisins
vegna málsins. Fundurinn var
haldinn sama dag og tilkynnt var
um athugasemdir FATF.
Fréttablaðið hefur áður greint
frá því að samkvæmt heimildum
blaðsins hafi fulltrúar stjórnvalda
fund í höfuðstöðvum FATF-sam-
takanna í París í þarsíðustu viku.
Vænta má niðurstöðu á fundi
fulltrúa allra aðildarríkja FATF sem
hófst í gær og lýkur á föstudag.
Guðmundur og dr. Justin Bercich hafa víðtæka reynslu af vörnum gegn peningaþvætti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
1
6
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
6
-E
8
5
C
2
4
0
6
-E
7
2
0
2
4
0
6
-E
5
E
4
2
4
0
6
-E
4
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K