Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 16.10.2019, Qupperneq 18
Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is Rekstur Iceland Sea-food International, sem stefnir á Aðallista í Kauphöllinni í kjölfar hlutafjárútboðs sem hófst í dag, hefur tekið stakkaskiptum á skömmum tíma. Til að bregða ljósi á umbreytinguna í rekstrinum segir forstjórinn Bjarni Ármannsson að virðisaukandi starfsemi fyrirtækisins hafi vaxið hratt frá árinu 2013. Árið 2013 hafi hlutfallið verið 29 prósent af veltu en hafi vaxið í 61 prósent. Virðis- aukandi starfsemin hafi áður lagt til 26 prósent af hagnaði Iceland Seafood en hlutfallið sé nú 91 pró- sent af hagnaði. Á tveimur árum hafa tekjur fyrir- tækisins aukist um 79 prósent í tæp- lega 450 milljónir evra, jafnvirði 62 milljarða króna, ef tekjuspá ársins 2019 gengur eftir. Vöxtinn má að langmestu leyti rekja til kaupa á tveimur fyrirtækjum í fyrra. Þróun tekna var svo til f löt á árunum 2013 til 2017. Keypti tvö fyrirtæki Iceland Seafood keypti 67 prósenta hlut í Oceanpath á Írlandi en lykil- stjórnendur þess fyrirtækis eiga það sem eftir stendur. Þá keypti fyrirtækið að fullu rekstur Icelandic Ibérica á Spáni og styrkti þar með verulega stöðu sína í Suður-Evrópu. Markaðssvæði Iceland Seafood er fyrst og fremst Evrópa og Bjarni nefnir að fyrirtækið sé með sterka stöðu á sínu sviði í Suður-Evrópu. Bjarni var áður á meðal hluthafa Icelandic Ibérica, hann eignaðist um 11 prósenta hlut í Iceland Sea- food við samruna Iceland Sea- food og Icelandic Ibérica og varð fyrir vikið stærsti hluthafinn. Þrjú útgerðarfyrirtæki, sem jafnframt eru birgjar Iceland Seafood, eiga ríflega 10 prósenta hlut hvert í félag- inu. Þau eru FISK-Seafood, Jakob Valgeir og Nesfiskur. Hann segir að verkefnið fram undan sé að ná fram aukinni hag- ræðingu í rekstrinum í kjölfar fyrir- tækjakaupanna í fyrra. „Við erum ekki upptekin af tekjuvexti heldur viljum við ná meiri verðmætum úr þeim viðskiptum sem við búum að í dag. Öllum nýjum viðskiptavinum er þó fagnað en áherslan verður á að auka arðsemi félagsins.“ Horfa til aukins hagnaðar Stjórnendur Iceland Seafood horfa til þess að auka hagnað fyrirtækis- ins fyrir skatta í 20 milljónir evra á næstu þremur til fimm árum. Til samanburðar var sá hagnaður rúmlega þrjár milljónir evra árið 2016, tæplega 11 milljónir í fyrra og verður um 11,0 til 11,8 milljónir evra í ár ef útgefin afkomuspá félagsins rætist. Bjarni segir að með aukinni samlegð og fjárfestingu í sjálfvirkni megi ná þeim árangri. „Markmiðið er að sameining Ice- landic Ibérica við starfsemi Iceland Seafood á Spáni muni leiða til 3 til 3,5 milljóna evra árlegs rekstrarhag- ræðis á næstu tveimur árum. Það hagræði felst einkum í tilfærslu á framleiðslueiningum, minni f lutn- ingskostnaði og fækkun í yfirstjórn. Auk þess munum við fjárfesta í ríkari mæli í rekstrinum. Með hóf- legum fjárfestingum munum við auka skilvirkni samstæðunnar. Það er ekkert eitt atriði sem eitt og sér mun ná fram þessum aukna hagn- aði en við vinnum náið með stjórn- endum á hverjum stað til að auka hagkvæmni,“ segir hann. Sem dæmi nefnir Bjarni að nýver- ið hafi verið fjárfest í f lökunarlínu frá Marel fyrir starfsemina á Írlandi í því skyni að f laka lax. Áður en fjárfest var í tækjabúnaðinum hafi fyrirtækið keypt 1.500 tonn af f lök- uðum laxi á ári. Stefnt sé að því að fjárfestingin skili sér á einu og hálfu ári. „Við rekum sjö verksmiðjur, tvær á Írlandi, tvær í Bretlandi, tvær á Spáni og eina í Argentínu,“ segir Bjarni. Iceland Seafood hefur tekið stakkaskiptum Forstjóri félagsins segir að vilji standi til að nýta gott aðgengi að fjármála- markaðnum til að vaxa enn frekar. Víða séu tækifæri til að auka skilvirkni. Brexit skapi truflun og óhagræði. Munu greiða hluta af hagnaði í arð. „Við viljum því nýta gott aðgengi að fjármálamarkaðnum til að vaxa enn frekar,“ segir Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood. „Fjármálamarkaðurinn hér skilur sjávarútveg.“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Er stefnt að auknum fjárfestingum í rekstri þeirra? „Það eru víða tækifæri til að auka skilvirkni og ná fram umtals- verðum sparnaði. Í Argentínu erum við að auka hagkvæmni og stærð rekstrarins með því að fjárfesta í aukinni vinnslugetu og frysti- geymslum. Í ljósi efnahagsumhverf- is í Argentínu þurfa fjárfestingar þar í landi að hafa tiltölulega stuttan endurgreiðslutíma.“ Ögrandi umhverfi Það mun ef laust reyna mikið á stjórnendur fyrirtækjanna á næstu misserum við að tvinna saman reksturinn og auka hagræðið? „Já, það mun gera það. Verk- efnið er á margan hátt krefjandi. Umhverfið er jafnframt ögrandi. Til dæmis verða stjórnendur í Bret- landi að bregðast við fyrirhugaðri útgöngu Bretlands úr Evrópu- sambandinu (Brexit). Samkvæmt nýjustu fréttum mun hún bresta á í lok mánaðarins, þótt það gæti breyst. Það hefur farið mikill tími og þróttur í að undirbúa það.“ Hvaða áhrif hefur Brexit á rekst- urinn? „Brexit veldur truf lun og óhag- ræði. Í Bretlandi erum við fyrst og fremst að selja frystivörur, það er því ekki um viðkvæmar ferskvörur að ræða. Hrávörurnar koma ekki frá Evrópusambandinu heldur Barents- hafinu í gegnum Noreg og Rússland og frá Asíu í gegnum Kína, Víetnam og Indland. Við höfum brugðist við með því að auka birgðir. Ef það kemur stopp í aðfangakeðjuna getum við áfram af hent fisk, þótt það sé að sjálf- sögðu bara í takmarkaðan tíma. Við höfum einnig lagt okkur fram við að laga okkur að breyttu umhverfi.“ Í hlutafjárútboði Iceland Sea- food, sem lýkur á föstudag, er 9,6 prósenta hlutur í fyrirtækinu boð- inn til sölu. Miðað við neðri mörk í útboðinu er stefnt að því að afla að lágmarki 2,1 milljarðs króna í nýju hlutafé. Miðað við það er markaðs- virði fyrirtækisins um 22 milljarðar króna. 2018 ár umskipta Hvers vegna er horft til skráningar á Aðallista Kauphallarinnar? „Þetta er eðlilegt skref í rekstri Iceland Seafood. Félagið hefur verið skráð á First North-hliðarmarkað- inn frá árinu 2016. Á þeim tíma hefur fyrirtækið í ríkari mæli lagt áherslu á virðisaukandi starfsemi nær mörkuðum sem kemur berlega fram í fjárfestingum fyrirtækisins í sterkum framleiðslueiningum stað- settum á mörkuðum sem eru dyggi- lega studdar af sterkum innkaupa- og sölueiningum, bæði á Íslandi og alþjóðlega. Árið 2018 var ár umskipta hjá Iceland Seafood þegar það keypti meirihluta í Oceanpath, sem er stærsta fyrirtækið á Írlandi í sölu á fersku sjávarfangi til smásala, og Icelandic Ibérica á Spáni. Við þann samruna er Iceland Seafood orðið stærsta félagið í sölu og vinnslu á íslenskum þorski á Spánarmarkaði og gaman að nefna það í framhaldi að Spánn er aftur orðinn stærsti markaður Íslendinga fyrir þorsk- afurðir. Markmiðið með skráningunni er að styrkja félagið og undirbúa það undir enn frekari vöxt,“ segir Bjarni. Eftir hlutafjárútboðið verður eigin fjárhlutfall Iceland Seafood um 40 prósent en árið 2016 var hlut- fallið um 20 prósent. „Þetta verður mikil og jákvæð breyting,“ segir hann. Munu greiða arð Að því búnu er stefnt að því að eiginfjárhlutfallið verði ávallt yfir 35 prósentum og að 20 til 40 prósent af hagnaði verði greidd í arð árlega. Bjarni segir að það sé nýmæli, Ice- land Seafood hafi ekki áður greitt arð með reglubundnum hætti. Hvað breyttist hjá Iceland Sea- food við þennan samruna? „Styrkur félagsins í Suður-Evrópu jókst til muna því þau félög sem hafa barist hvað harðast innbyrðis, sum sé Iceland Seafood og Icelandic Við erum ekki upptekin af tekju- vexti heldur viljum við ná meiri verðmætum úr þeim viðskiptum sem við búum að í dag. 1 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN 1 6 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 6 -F C 1 C 2 4 0 6 -F A E 0 2 4 0 6 -F 9 A 4 2 4 0 6 -F 8 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.