Fréttablaðið - 16.10.2019, Page 22
Hægt verður að
stórefla kennslu í
endurlífgun og auka
lífslíkur þeirra sem fara í
hjartastopp.
Útgefandi:
Torg ehf
Veffang:
frettabladid.is
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumaður auglýsinga:
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Það er mikill mannauður sem samtökin hafa safnað sér í gegnum tíðina, sjálf boða-
liðar, sem vinna án endurgjalds
fyrir samtökin.
Hjartaheill hafa treyst á sjálf-
boðaliða í sínum röðum frá
stofnun samtakanna. Við höfum í
því sambandi verið heppin að hafa
fengið í raðir okkar virka þátttak-
endur sem hafa mótað umhverfi
sitt og samfélagið okkar. Þeim ber
að þakka.
Nú förum við af stað með átak
til að vekja fólk til umhugsunar
um hversu mikilvægt það er að
bregðast við hjartastoppi.
Mikilvægt er að bregðast strax
við. Við höfum sent inn á hvert
heimili í landinu upplýsinga-
bækling og leggjum áherslu á það
að sem flestir kynni sér efnið.
Við höfum styrkt verkefni sem
ber nafnið BÖRNIN BJARGA, og
stuðlar að innleiðingu markvissrar
kennslu í endurlífgun í grunn-
skólum landsins.
Að sýna almennt þakklæti er
afar mikilvægt í mannlegum sam-
skiptum og felur í sér jákvæðan
hug til þeirra sem þakklætið
beinist að. Almennt þarf ekki
mikið til. Nóg er að segja orðin:
„Takk fyrir,“. Það er að minnsta
kosti ágæt byrjun.
Þakklæti er innri upplifun
og ytri tjáning. Innra þakklæti
lýtur að því sem við erum, eigum,
höfum og því sem við verðum ekki
fyrir, t.d. áföllum og að við fáum að
halda heilsu.
Þakklæti felst í því að kunna að
bera kennsl á það sem virðist sjálf-
sagt og læra að meta það mikils.
Fyrir hönd samtaka okkar vil
ég nota tækifærið og þakka fyrir
fram öllum þeim sem taka þátt í
þessu verkefni, hvort heldur með
fjárstyrk eða vinnu og hafa lagt
fram sinn skerf við að móta sögu
okkar frá liðnum tíma og gert allt
það sem við höfum framkvæmt
mögulegt.
Með hjartans kveðju,
Sveinn Guðmundsson
formaður Hjartaheilla.
Þakklæti til
þjóðarinnar
Sveinn Guðmundsson.
Bæklingnum verður dreift á öll heimili landsins. Geymið bæklinginn.
BÖRNIN BJARGA nefnist átak Hjartaheilla. Því er ætlað að safna fé til kaupa á æfinga-
dúkkum fyrir skóla landsins.
Með dúkkunum verður hægt að
ná góðum árangri í að stórefla
kennslu í endurlífgun og auka lífs-
líkur þeirra sem fara í hjartastopp.
Geymið bæklinginn.
Átakið BÖRNIN BJARGA
stuðlar að innleiðingu markvissrar
kennslu í endurlífgun í grunn-
skólum landsins þar sem áherslan
er lögð á öruggt hjartahnoð við
hjartastoppi. Átakið er unnið af
Endurlífgunarráði í samráði við
Landlæknisembættið og stutt
af frjálsum félagasamtökum og
Sjóvá.
Forsenda þess að átakið BÖRN-
IN BJARGA nái góðum árangri,
er að æfingadúkkur séu tiltækar í
sem flestum skólum um allt land,
svo kennsla í endurlífgun geti farið
fram með raunhæfum hætti.
HJARTAHEILL standa fyrir fjár-
öflun til kaupa á æfingadúkkum.
Með góðum árangri verður hægt
að stórefla kennslu í endurlífgun
og auka lífslíkur þeirra sem fara í
hjartastopp.
Hjartaheill eru landssamtök um
heilbrigði hjartans, bætta heilsu og
lífsgæði í íslensku samfélagi, með
áherslu á framfarir í forvörnum,
fræðslu og meðferð hjartasjúk-
dóma. Í samtökunum er fagfólk,
hjartasjúklingar, aðstandendur og
annað áhugafólk.
Nánari upplýsingar á hjartaheill.is
og facebook.com/hjartaheill
Þegar hringt er í síma 903 7100 er
hægt að leggja verkefninu lið með
3.500 króna fjárframlagi. Einnig er
hægt að leggja inn á reikninginn
0513 26 1600, kt. 511083 0369.
Börnin læra að
bjarga lífi fólks
Á næstu dögum kemur bæklingurinn Hjartastopp inn
á öll heimili landsins. Bæklingurinn inniheldur áríðandi
upplýsingar um viðbrögð við hjartastoppi, ásamt hvatn-
ingu um stuðning við forvarnarstarf Hjartaheilla.
BÖRNIN BJARGA. Æfingadúkkan sem safnað verður fyrir til að þjálfa börn í grunnskólum landsins.
Hjartaheill eru landssamtök um
heilbrigði hjartans, bætta heilsu og
lífsgæði í íslensku samfélagi, með
áherslu á framfarir í forvörnum,
fræðslu og meðferð hjartasjúkdóma.
Í samtökunum er fagfólk, hjartasjúkl-
ingar, aðstandendur og áhugafólk.
Munum
landssöfnun
Hjartaheilla!
1) Hringdu í 112!
2) Hnoðaðu!
3) Fáðu
hjartastuðtæki!
HJARTASTOPP
2 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RÞÚ GETUR HJÁLPAÐ
1
6
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
6
-E
3
6
C
2
4
0
6
-E
2
3
0
2
4
0
6
-E
0
F
4
2
4
0
6
-D
F
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K