Skessuhorn


Skessuhorn - 25.02.2015, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 25.02.2015, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015 CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA Aðalfundur SK ES SU H O R N 2 01 5 Aðalfundur Rauða krossins á Akranesi verður haldinn fimmtudaginn 5. mars kl. 17:15 í húsnæði deildarinnar Skólabraut 25a. Dagskrá Venjuleg aðalfundarstörf.• Örn• Ragnarsson verkefnastjóri fataflokkunar segir frá verkefninu „Föt sem framlag“ og öðrum verkefnum. Sveinn Kristinsson• formaður Rauða krossins segir frá helstu verkefnum félagsins. Ö• nnur mál. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. Stjórnin Daladeild haldinn í Dalakoti föstudaginn 27. febrúar kl. 12.00. Hvalfjarðar- ,Borgarfjarðar- og Mýradeild haldinn í Hótel Borgarnesi fimmtudaginn 5. mars kl.12.00. Steinþór Skúlason og Elías Hreinsson verða með framsögu á fundunum. Fundirnir hefjast með hádegisverði. Deildarfundir Sláturfélags Suðurlands S K E S S U H O R N 2 01 5 Á fundi sveitarstjórnar Dala- byggðar 17. febrúar sl. voru samþykktar nýjar viðmiðun- arreglur um snjómokstur í sveitarfélaginu. Í tilkynningu á heimasíðu sveitarfélagsins segir að markmið með snjó- mokstri og hálkueyðingu sé að minnka þau óþægindi sem snjór og ís veldur einstak- lingum, rekstri fyrirtækja og skólahaldi. Snjómokstri og hálkueyðingu er stjórnað af Dalabyggð og Vegagerðinni. Utan Búðardals mokar Vega- gerðin Vestfjarðaveg daglega og Skógarstrandarveg, Heydalsveg og Laxárdalsveg tvisvar í viku, á mánu- dögum og föstudögum. Vegagerð- in í samráði við bæjarverkstjóra og sveitarstjóra Dalabyggðar mok- ar helminga-mokstursvegi allt að þrisvar í viku, til dæmis Klofnings- veg og Haukadalsveg. Reglurnar kveða á um að ef þörf er á, verði heimreiðar að bæjum þar sem er föst búseta mokaðar án end- urgjalds að hámarki tvisvar á al- manaksárinu. Að öðru leyti eru heimreiðar að bæjum mokað- ar gegn greiðslu sem nemur einni klukkustund. Í Búðardal sér Vegagerðin um mokstur Vesturbrautar,Vestfjarðaveg- ar, en Dalabyggð sér um ann- an snjómokstur gatna í Búðar- dal og aðkomuleiða/bílastæða við Auðarskóla, slökkvistöð og stjórnsýsluhús. Mokstur vegna öryrkja og aldraðra er að- eins framkvæmdur samkvæmt beiðni félagsþjónustunnar. Dalabyggð greiðir ekki kostnað vegna snjómoksturs sem til hefur verið stofnað án henn- ar samþykkis að undanskildu því er beiðni um mokstur komi frá lög- reglu, slökkviliði, lækni eða sjúkra- flutningsmönnum vegna neyðar- flutninga. Skuli þá strax sinna þeim beiðnum. þá Smábátasjómenn á Akranesi og Reykjavík hafa þungar áhyggjur af því að stjórnvöld grípi nú til lang- tíma veiðibanns með línu um vetr- artímann í utanverðum Hvalfirði. „Aðkomulínubátar hafa komið inn á grunnin og firðina þegar það eru brælur og veiða þar á fullu á með- an stormarnir ganga yfir. Þetta hefur leitt til þess nú í þrígang að stjórnvöld hafa þrisvar sinnum beitt skyndilokunum í utanverðum Hval- firði nú frá áramótum vegna þess að hlutfall smáfisks eða undirmáls er of hátt í aflanum hjá þessum bát- um. Það er þá svæðið frá Hvalfjarð- argöngum inn að Grundartanga eða þar um bil sem er lokað. Þarna hefur verið ýsa en nú undanfarið nánast alfarið þorskur. Þeir voru að fá allt að um 40% undirmáls- þorsk í heildarafla á línuna þarna og máttu alveg vita að það yrði lokað á þetta,“ segir Guðmundur Elíasson. Hann gerir út línutrilluna Flugöld- una og rær frá Akranesi. Smábátaútgerð stendur veikt á Akranesi Guðmundur útskýrir að þegar þetta gerist svona oft á skömmum tíma megi eiga von á viðbrögðum stjórnvalda sem felist í svokallaðri reglugerðarlokun. Þá gefur sjávar- útvegsráðuneytið út sérstaka reglu- gerð þar sem tilteknu svæði er lok- að til langframa og um óákveðinn tíma. „Reynslan hefur kennt okk- ur að reglugerðarlokanir eru yfir- leitt komnar til að vera. Það gæti til að mynda þýtt að bannað verði að stunda línuveiðar í utanverðum Hvalfirði stóran hluta ársins á ver- tíðinni þegar þar er fiskur um vetr- artímann.“ Slík lokun yrði áfall fyrir smá- bátasjómenn á Akranesi. „Við sem gerum út héðan megum ekkert við því að okkar nærmiðum sé lokað svona með þessum hætti. Það erum ekki við sem höfum kallað þetta yfir okkur heldur aðkomumenn sem eru ekki að taka neitt tillit til okkar hagsmuna hér á Skaganum. Smábátaútgerð héðan frá Akranesi stendur höllum fæti nú þegar. Það er ekki langt í að hún leggist alfarið af ef fram fer sem horfir. Fiskmark- aðurinn á Akranesi er alveg við það að leggjast af og loka. Það er tal- að um að hann þurfi að lágmarki að geta selt þúsund tonn af fiski á ári til að geta gengið. Þetta er alveg á þeim mörkum núna. Af þessum sökum er mjög gott að geta gripið til þess að nýta nærmiðin svo sem inni í Hvalfirði, ég tala nú ekki um þegar veður eru válynd. Ef markað- urinn lokar þá er þetta bara búið að gera út og róa héðan frá Akranesi,“ segir Guðmundur. Fundað með stjórnvöldum Að sögn Guðmundar Elíassonar þá hefur veiðin inni í Hvalfirði hef- ur suma dagana verið mjög góð. „Akraberg fékk til að mynda sjö tonn á 28 bala þar um daginn. Það er oft góð veiði í utanverðum Hval- firði á þessum árstíma. Fiskurinn hefur vissulega verið frekar smár. Það er þó hægt að komast hjá því að vera með of mikið undirmál með því að leggja línuna styttra, kannski bara einn og tvo bala í hverri lögn. Við reynum að gera þetta því það þjónar ekki okkar hagsmunum að kalla yfir okkur lokanir.“ Fulltrúar smábátasjómanna frá Akranesi og Reykjavík funduðu með embættismönnum í Reykjavík vegna þessa máls á mánudag. Örn Pálsson framkvæmdastjóri Lands- sambands smábátaeigenda var með þeim á fundinum. „Það vof- ir yfir ótímabundin reglugerðalok- un í Hvalfirði. Við höfum bent á að þetta er svæði sem gengur ekki að hafa lokað allan ársins hring eða stóra hluta ársins. Það er mönnum sem stunda útgerð við innanverðan Faxaflóa nauðsynlegt að geta leitað upp í Hvalfjörð. Fulltrúar sjómanna á Akranesi og í Reykjavík komu með mjög sterk rök á þessum fundi fyrir því að varlega yrði farið í lok- anir þarna. Það er vitað að það er oft mikið af smáþorski á ákveðnum stöðum í Hvalfirði í upphafi hvers árs. Ég á von á að verði tekið tillit til sjónarmiða sjómanna þannig að lokun verði tímabundin og hamli til að mynda ekki ýsuveiðum á haust- in. Annars er það þannig að það er hrygningarstopp í þorskveiðunum í nokkrar vikur frá 1. apríl þannig að þá er sjálfkrafa friðun þarna sem annars staðar,“ segir Örn Pálsson. mþh Nýjar viðmiðunarreglur um snjómokstur í Dalabyggð Uggur meðal smábátasjómanna vegna skyndilokana í Hvalfirði Guðmundur Elíasson skipstjóri og útgerðarmaður á Flugöldunni. Smábátur frá Akranesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.