Skessuhorn - 25.02.2015, Qupperneq 15
15MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur ákveðið að fram fari
heildarendurskoðun á aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar.
Núverandi aðalskipulag rennur út 2015. Óskað er eftir hugmyndum
bæjarbúa, hvernig þeir vilja sjá bæinn vaxa og dafna.
Senda skal hugmyndir á byggingarfulltrúa
bygg@grundarfjordur.is fyrir 11. mars 2015.
Bæjarstjórinn í Grundarfjarðarbæ SK
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Aðalskipulag
GRUNDARGÖTU 30, 350 GRUNDARFIRÐI
SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501
Grundarfjarðarbær
VÉLAMAÐUR BORGARNESI
Starf vélamanns hjá þjónustustöðinni í Borgarnesi
er laust til umsóknar. Um 100% starf er að ræða.
Starfssvið
Viðhald, þjónusta og nýbyggingar vega á starfssvæði •
Vegagerðarinnar í Borgarnesi
Ýmis vinna í starfsstöð í Borgarnesi •
Menntunar- og hæfniskröfur
Almennt grunnnám•
Almenn ökuréttindi, meirapróf er æskilegt•
Vinnuvélaréttindi•
Reynsla af vegheflun er æskileg•
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt•
Góðir samstarfshæfileikar•
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar
jafnt báðum kynjum og í samræmi við mannauðsstefnu
Vegagerðarinar eru konur með umbeðnar hæfniskröfur
sérstaklega hvattar til að sækja um starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi
stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 2. mars 2015. Umsóknir berist mannauðsstjóra
Vegagerðarinnar, netfang oth@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram
persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni
sem óskað er eftir.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgeir Ingólfsson
yfirverkstjóri í síma 522-1562
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hilmar Sigvaldason er hugmynda-
ríkur Akurnesingur sem er óhrædd-
ur við að fara ótroðnar slóð-
ir. Hann er einn af þeim sem sýnt
hefur frumkvæði við að reyna að
auka ferðaþjónustu á Akranesi og
er hvergi nærri hættur. Hann er
gjarnan kallaður vitavörður á Skag-
anum, er forsvarsmaður að opnun
Akranesvita á Breið og hefur unn-
ið mikið og óeigingjarnt starf þar.
Hann hefur staðið fyrir ýmsum
sýningum í vitanum sjálfum, bæði
myndlistar- og ljósmyndasýningum
ásamt því að hann hefur staðið fyr-
ir fjölmörgum viðburðum, svo sem
tónleikum af ýmsu tagi. En áhugi
Hilmars fyrir menningarmálum er
ekki eingöngu bundinn við vitann.
Nýlega datt honum í hug að snið-
ugt væri að setja á laggirnar nokk-
urs konar „nördasafn“ á Skaganum
og hefur sú hugmynd fengið góðan
hljómgrunn meðal Skagamanna.
Ýmsir safnarar á
Akranesi
„Mér datt bara í hug að varpa þess-
ari hugmynd fram. Maður sér að
það eru allskonar óhefðbundin söfn
annars staðar á landinu þar sem
gengur bara vel. Eins og Jólahús-
ið við Akureyri, Steinasafn Petru
á Stöðvarfirði og Smámunasafnið
í Eyjafjarðarsveit. Þetta sem mér
datt í hug er eitthvað í líkingu við
Dellusafnið sem er á Flateyri. Það
þarf ekki að kópera hlutinn beint,
þetta gæti þó verið eitthvað í þess-
um dúr,“ segir Hilmar í samtali við
Skessuhorn. Hann nefnir að safnar-
ar af ýmsum toga finnist á Skagan-
um. Þeir væru jafnvel viljugir til að
koma sínum hlutum fyrir á stærra
safni. „Á Akranesi eru meðal ann-
ars myndavélasafnari, róbótasafn-
ari, kona sem býr til myndir úr frí-
merkjaafrifum og ég á sjálfur eitt-
hvað af hlutum sem tengjast vit-
um. Þetta gæti til dæmis alveg ver-
ið ágætur grunnur að stærra safni.
Svo mætti örugglega finna eitthvað
fleira ef hugmyndin fær brautar-
gengi.“
Vantar afþreyingu
Hilmar segir að til að hugmynd sem
þessi verði að veruleika þurfi fólk
að taka af skarið. Tækifærin leynist
víða og ýmislegt sé hægt að gera
með réttu hugarfari. Húsnæðismál-
in séu þó oft það sem fólk strandi
á enda geti verið kostnaðarsamt að
leigja húsnæði. „Ég sé alveg fyrir
mér að svona safn gæti átt heima á
skrifstofu Sementsverksmiðjunnar
við Mánabraut. Ég held því að bær-
inn eigi til húsnæðið, þeir eru bún-
ir að koma listamönnum þarna inn
og mér fannst því borðleggjandi að
færa eitthvað í líkingu við safn þar
inn líka. En það væri þá auðvitað
að því gefnu að Akraneskaupstað-
ur geti útvegað húsnæðið og að það
sé nothæft, ég hef ekki kynnt mér
það neitt nánar,“ útskýrir Hilmar.
Hann segir næstu skref vera þau
að kanna hvernig landið liggur. Að
athuga hvort það er einhver flöt-
ur fyrir þessu, hvort fleiri séu til í
þetta og athuga með húsnæði. Við
eigum ekki að bíða eftir að aðrir
geri hlutina á undan okkur, frekar
að gera það sjálf. Það vantar afþrey-
ingu fyrir ferðamenn í bænum, það
er ekki nóg að ferðamenn heimsæki
vitann og fari svo út úr bænum.“
Örnefnagöngur í sumar
Hilmari hefur dottið ýmislegt fleira
í hug. Ein af þeim hugmyndum
sem gæti orðið að veruleika í sumar
eru svokallaðar örnefnagöngur um
Akranes og nágrenni. Hilmar segir
að til standi að bjóða upp á þær alla
laugardaga í sumar, ef allt gengur
eftir. „Það yrði þá boðið upp á fjór-
ar mismunandi leiðir, eina í hvert
sinn. Fjórir aðilar sem þekkja vel
til á svæðinu myndu stýra göngun-
um. Mér datt í hug að það væri lík-
lega erfitt og dýrt að auglýsa einn
viðburð, eina göngu, sem yrði bara
einu sinni á árinu. Það mætti frek-
ar gera meira úr þessu, auglýsa við-
burðaröð og hafa þetta fastan lið.
Það skilar kannski meiru að hafa
svona viðburði reglulega. Fólk
veit þá af því og gæti gengið að því
vísu.“
Erlendir fjölmiðlar
heimsóttu vitann
Það eru því hugmyndir af ýmsu
tagi sem fæðast í höfðinu á Hilmari
Sigvaldasyni. Honum er umhugað
um Akranes og vill sjá meiri fjölg-
un ferðamanna í sínum heimabæ.
Varðandi nördasafnið segist hann
ekki vera búinn að spá neitt í hvort
hann fylgi sjálfur hugmyndinni eft-
ir eða eftirláti það einhverjum öðr-
um. Hann hefur sjálfur nóg fyrir
stafni, er í nýju starfi og fær mikið
af gestum í vitann. Upp á síðkast-
ið hafa alls þrettán erlendir fjöl-
miðlamenn heimsótt vitann í efnis-
öflun. Það má því búast við að vit-
arnir á Breiðinni fái enn fleiri gesti
í kjölfarið. „Kannski var bara nóg
að varpa þessari hugmynd fram. Ég
er ekki að gera þetta til að vekja at-
hygli á sjálfum mér. Það er ekki nóg
að fá hugmynd heldur þarf að láta
verkin tala. Það þarf að fylgja hug-
myndinni eftir og þora að fara vel
út fyrir rammann. Fyrst ég gat það
á sínum tíma með vitann, þá ættu
allir að geta það. Það þarf bara ein-
hver að taka af skarið,“ segir hann
að endingu. grþ
Vill fá nördasafn á Skagann
Hilmar á sjálfur safn sem tengist vitum. Hér er hann með vita-sokka sem hann lét
framleiða til styrktar Hollvinasamtökum HVE.
Garðaþjónustan Sigur-Garðar
Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu
Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð
Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663
Hellulagnir - Hleðsla - Þökulagnir - Jarðvegsskipti
Trjáklippingar - Gróðursetningar - Garðsláttur - Plöntusala
Þjónusta í 25 ár
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5