Skessuhorn - 25.02.2015, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Dr. Magnús Stefánsson Pro-
fessor Emeritus í Björgvin er
látinn. Hann var fæddur í Borg-
arnesi árið 1931, lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri vorið 1951 og stundaði
nám í norrænu við Háskóla Ís-
lands næstu tvö árin. Hann nam
Germönsk fræði við Háskólana
í Köln og Bonn, og lagði stund
á málvísindi og sagnfræði sem
meginviðfang við Óslóarhá-
skóla og varð þaðan Candida-
tus Philologiae árið 1960.
Hann var á rannsóknarstyrk
við Óslóarháskóla 1961-1962 og
lektor í Íslenzku við Norrænu
deildina þar sem hann kenndi
málvísindi. Frá 1962-1967
kenndi hann við Björgvinjarhá-
skóla og hafði einnig kennslu-
skyldu í Ósló. Frá 1968 var
hann lektor við sagnfræðistofn-
un Björgvinjarháskóla og pró-
fessor frá árinu 1992 þaðan sem
hann fjekk lausn í ársbyrjun
árið 1999.
Magnús stundaði rannsókn-
ir við Max-Planck stofnunina í
rjettarsögu í Frankfurt og við
Leopold- Wenger stofnunina
í rjettarsögu við Háskólann í
München árið 1987.
Rannsóknir Magnúsar þær
sem birtust í Sögu Íslands, út-
gágu Þjóðhátíðarsjóðs, árið
1975 (bindi ll og lll) ollu
straumhvörfum í túlkun kirkju-
sögu tímabilsins 1100 - 1360.
Ollu þær í fyrstu nokkrum
deilum, en líklegt má telja, að
helztu niðurstöður hans liggi
nú til grundvallar rannsóknum
síðari tíma.
Árið 2000 gaf sagnfræði-
stofnun Björgvinjarháskóla út
rit hans Staðir og staðamál,
rannsóknir á aðstæðum hinna
íslenzku einkakirkna og stóls-
kirkna á miðöldum. Útgáfa
þessi naut stuðnings Íslenzku
Þjóðkirkjunnar og Borgarfjarð-
arprófastsdæmis í þakklætis-
og virðingarskyni við Magn-
ús, en rannsóknir hans urðu
ómetanlegar í því mikla verki,
sem unnið var til undirbúnings
þeim aðskilnaði ríkis og kirkju
sem varð með þjóðkirkjulög-
unum árið 1997 og afhendingu
prestssetranna úr vörzlu ríkis-
ins til stofnana Þjóðkirkjunnar
árið 2007. Væri vert, að það rit
yrði þýtt og útgefið á íslenzku
hið fyrsta.
Þrátt fyrir langa útivist var
Magnús tengdur landi sínu og
æskuslóð alla tíð. Hann fylgd-
ist af áhuga með uppbyggingu
Reykholts, kirkju og Snorra-
stofu. Gaf hann Snorrastofu
verulegan hluta hins góða
bókasafn sín þegar í lifanda lífi
og ánafnaði stofnuninni því
öllu eftir sinn dag. Verður þá í
Reykholti til einhver hinn bezti
bókakostur um rjettarsögu og
kirkjurjett sem vitað er af á ein-
um stað í landinu.
Borgfirðingar og raunar Ís-
lendingar allir mega minnast
með þakklæti prýðilegs fræða-
manns, sem reyndist föður-
landi sínu næsta gagnlegur úr
fjarlægð og því ávallt nálæg-
ur í reynd. Blessuð sje minn-
ing hans fjölskyldu og frænd-
um og þeim öðrum sem hann
trega og blessuð sje hún einn-
ig öllum gegnum mönnum þar
sem hans gætir.
Geir Waage
Höf. er sóknarprestur
í Reykholti
And lát:
Dr. Magnús Stefánsson
Við árslok 2010 keyptu mæðg-
urnar Ingibjörg Sigurðardóttir og
Helga Sjöfn Ólafsdóttir þvottahús
og verslun í Grundarfirði og hófu
rekstur. Blossi ehf. heitir fyrirtæk-
ið og þar kennir ýmissa grasa. Þar
má finna þvottasjálfsala fyrir utan
en innandyra snúast tromlurnar
í stórum iðnaðarþvottavélum all-
an daginn enda reka þær efnalaug.
Ingibjörg, eða Bibba eins og hún er
jafnan kölluð, segir nokkurn stíg-
anda hafa verið í rekstrinum síðan
þær mæðgur opnuðu og þakkar hún
það að stórum hluta fjölgun ferða-
manna á svæðinu. Nú sé þokkaleg
umferð á veturna líka sem áður var
mun rólegri tími. Inni í versluninni
er svo hægt að fá ótrúlega margt.
Hvort sem manni vantar rúðu-
þurrkur, skeifur, lopa, leikföng, rit-
föng, verkfæri eða málningu. Það er
ansi breitt vöruúrval og nánast hægt
að fá allt milli himins og jarðar.
„Mamma vill hafa þessa gömlu
kaupfélagsstemningu,“ segir Helga
Sjöfn þegar hún sýnir fréttaritara
vöruúrvalið. „Það er engin önnur
svona búð hérna á svæðinu og því
reynum við að hafa fjölbreytt vöru-
úrval til að mæta þörfum sem flestra
bæjarbúa,“ segir Bibba. Yfir vetrar-
tímann eru einn til tveir starfsmenn
hjá þeim en Bibba getur sjálf unnið
minna eftir að hún lenti í slysi fyr-
ir nokkrum árum. Á sumrin eru svo
fjórir starfsmenn hjá þeim í vinnu en
þá er allt á fullu í þvottahúsinu enda
flest gistirými bæjarins fullbókuð og
gististaðirnir kaupa af þeim þvotta-
þjónustu. Já, það er skemmtilegt
að heimsækja þær mæðgur og það
er nokkuð öruggt að maður getur
fundið það sem manni vantar þarna
inni. Ef maður finnur það ekki þá er
næsta víst að annaðhvort Bibba eða
Helga Sjöfn geta reddað því.
tfk
Norræn vinnustofa um svæðis-
garða var haldin í Samkomuhúsi
Grundarfjarðar í síðustu viku. Þá
mættu forsvarsmenn svæðisgarða
frá Noregi, Svíþjóð og Danmörku
til skrafs og ráðagerða með heima-
mönnum á Snæfellsnesi. Á fimmtu-
deginum fyrir hádegi ræddi Eivind
Brenna um lykilskrefin í stofnun
fyrsta norska svæðisgarðsins í Vald-
res. Matthildur Kr. Elmarsdótt-
ir hjá Alta og Kristian Björnstad
framkvæmdastjóri norsku svæðis-
garðasamtakanna kynntu vinnu við
forsendugreiningar og undirbún-
ingsvinnu við svæðisgarða. Maria-
Louisa Lindgaard Balanga fram-
kvæmdastjóri dönsku svæðisgarð-
anna flutti erindi um stefnumót-
un við undirbúning dönsku svæðis-
garðanna. Að því loknu fór hópur-
inn svo í ferð um Snæfellsnes.
Á föstudeginum var svo áfram-
hald á fundum og aðeins léttari
dagskrá með svigrúmi fyrir umræð-
ur. Ann Katrin Jarasen forseti bæj-
arstjórnar í Torsby í Svíþjóð og for-
maður stjórnar norsk-sænska svæð-
isgarðsins í Finnskogen flutti erindi
um samstarf Norðmanna og Svía
yfir landamærin þar sem menn-
ingar- og náttúruarfurinn er nýtt-
ur til að leggja grunn að samstarfi
og verkefnum. Kristian Björnstad
fjallaði þá um hvernig Norðmenn
nýta landslag og menningararf í sínu
starfi. Eftir það var lota um vöru-
þróun í svæðisgörðum og þar tal-
aði Erling Oppheim varaformaður
norsku svæðisgarðasamtakanna og
framkvæmdastjóri Næroyfjorden
svæðisgarðs, sem er á heimsmynja-
skrá UNESCO. Hann fjallaði um
hvernig gæði svæðisins eru nýtt til
að hvetja til vöruþróunar í Næro-
yfjorden. Eivind Brenna frá Valdres
sagði svo frá því hvaða nýjar vörur
og þjónusta hafi verið þróuð í Vald-
res á síðustu árum vegna svæðis-
garðsins þar. Elisabeth Dammyr
verkefnastjóri hjá svæðisgarðin-
um Haldenkanalen flutti svo erindi
um hvernig upplifun ferðamanna
hafi verið þróuð hjá þeim og hvað
hafi verið mikilvægast í því. Eftir
hádegið fór hópurinn svo í heim-
sókn í fiskvinnslufyrirtækið G.Run
og skoðaði aðstæður þar. Eftir það
flutti Rósa Guðmundsdóttir fram-
leiðslustjóri G.Run hf erindi um
sjávarútvegsfyrirtæki á Snæfellsnesi
og tækifæri og tengsl starfseminnar
við svæðið. Að lokum voru það svo
Kristín Björg Árnadóttir formaður
framkvæmdastjórnar og Ragnhild-
ur Sigurðardóttir framkvæmda-
stjóri Svæðisgarðsins Snæfellsness
sem sögðu frá þeim áskorunum sem
felast í að tengja íbúa svæðisins við
svæðisgarðinn og að kynna stjórn-
völdum starfið. Þeir sem komu að
þessari ráðstefnu gátu nýtt sér hug-
myndir og reynslu frá hverjum öðr-
um hvað varðar uppbyggingu svæð-
isgarða og tengsl þeirra við samfé-
lagið. tfk
Rósa Guðmundsdóttir framleiðslustjóri G.Run kynnir gestunum starfsemina í
vinnslunni.
Norrænir starfsmenn svæðisgarða hittust í Grundarfirði
Ragnhildur Sigurðardóttir, Kristín Björg Árnadóttir og Björg Ágústsdóttir voru
meðal þeirra sem stóðu að ráðstefnunni.
Allt milli himins og jarðar
til í verslun Blossa
Mæðgurnar Ingibjörg Sigurðardóttir og Helga Sjöfn Ólafsdóttir í
búðinni.
Horft yfir hluta verslunarinnar.
Byggingavörur, verkfæri og áhöld stór og smá.
Ekki er laust við að kaupfélagsstemning sé í versluninni, slíkt
er vöruvalið.