Skessuhorn - 08.04.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 15. tbl. 18. árg. 8. apríl 2015 - kr. 750 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/reglulegur_sparnadur
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Er þér annt
um hjartað?
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Næstu sýningar í
Landnámssetrinu
Hallgrímur og Guðríður
Steinunn Jóhannesdóttir segir
örlagasögu Hallgríms Péturssonar
og Guðríðar Símonardóttur
Sunnudaginn 12. apríl kl. 16:00
Föstudaginn 17. apríl kl. 20:00
Skálmöld Einars
Feðginin Einar Kárason og
Júlía Margrét segja frá
atburðunum sem mörkuðu
upphaf Sturlungaaldar
Sýning föstudaginn
10. apríl kl. 20:00
Nánari upplýsingar um
sýningar á landnamssetur.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
„Loksins hafðist þessi áfangi. Tíð-
arfarið er búið að tefja fyrir okk-
ur um nokkrar vikur. Gott að við
ætluðum okkur rúman tíma,“ seg-
ir Sigurður Skarphéðinsson fram-
kvæmdastjóri Ice Cave Iceland
rekstrarfélagsins um ísgöngin í
Langjökli. Á annan í páskum var
haftið rofið í gerð ísgangahringsins
í jöklinum.
Sigurður segir að þrátt fyrir taf-
ir að undanförnu verði ísgöngin
opnuð eins og áætlanir gerðu ráð
fyrir 1. júní næstkomandi. „Ég hef
trú á því að þá verði þetta klárt og
þó það verði einhver smá frágang-
ur eftir þá tökum við á móti fyrsta
hópnum og svo í framhaldinu
hverjum af öðrum. Það eru mörg
þúsund búin að panta og þetta lítur
vel út, gæti farið fram úr áætlunum
hjá okkur strax á fyrsta ári,“ sagði
Sigurður í samtali við Skessuhorn.
Nú fer á fullt vinna við að snyrta
og ganga frá göngunum. Hringur-
inn í jöklinum er um 420 metrar og
frá jökul rönd og inn að hringum
eru um hundrað metra löng göng.
Áætlanir gerðu ráð fyrir um 15
þúsund gestum á þessu ári en sam-
kvæmt pöntunum og viðbrögðum
gætu þeir orðið fleiri. Þessi nýja af-
þreying á Íslandi hefur fengið mikla
umfjöllun erlendra fjölmiðla. „Það
eru stöðugt að berast pantanir og
við erum líka að vona að tíðarfarið
fari að lagast þannig að betra verði
að vinna við lokafráganginn,“ segir
Sigurður Skarphéðinsson.
þá
Haftið rofið í ísgöngunum í Langjökli
Þessi sögulega ljósmynd var tekin annan í páskum þegar ísgangamenn opnuðu hringinn í göngunum með því að rjúfa síðasta hafið. Ljósm.: IcecaveIceland.
Stúlknakór Akraneskirkju söng í Hallgrímskirkju
Stúlknakór Akraneskirkju tók
þátt í Söngvahátíð barnanna
sem haldin var síðdegis á
skírdag í Hallgrímskirkju í
Reykjavík. Kórinn var einn
átta barnakóra sem söng á
hátíðinni þar sem um 130
ungmenni og djasshljómsveit
fluttu nýja kirkjusöngva
með sveiflu. Mikil stemning
ríkti á þessum tónleikum og
fylltist kirkjan af glöðum
tónleikagestum á öllum aldri.
Sérstakur gestur á söngvahá-
tíðinni að þessu sinni var
Egill Ólafsson söngvari.
þá