Skessuhorn - 08.04.2015, Qupperneq 9
9MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Það sannaðist nú um miðjan mars
hversu nauðsynlegt er að hafa öfl-
ugt björgunarskip reiðubúið á ut-
anverðu Snæfellsnesi. Þetta varð
öllum ljóst þegar þegar línu- og
netabátinn Saxhamar SH tók niðri
í innsiglingunni á Rifi og varð vél-
arvana eins og greint var frá í síð-
asta tölublaði Skessuhorns. Björg-
unnarskipið Jón Oddgeir var send-
ur út frá Rifshöfn og dró Saxham-
ar að bryggju. Jón Oddgeir hefur
undanfarið verið staðsettur í Rifi
þar sem Björg, skip björgunar-
sveitarinnar Lífsbjargar hefur ver-
ið í slipp síðustu vikur í Njarðvík.
Komið var með Jón Oddgeir vestur
nokkrum dögum fyrir óhapp Sax-
hamars. Hafa þeir Páll Stefánsson
skipstjóri og Sigurður Garðarsson
lagt ómældan tíma í að standsetja
Jón Oddgeir og svo skipið fengi
haffæri. Von er á að Björgin verði
tilbúin aftur um miðjan maí. þa
Hjónin Guðmundur Ingi Hjálm-
týsson og Gíslína Hallgrímsdótt-
ir eru ekki óvön að vera fyrstu not-
endur tjaldsvæðanna á vorin. Þau
gistu fyrstu nóttina á tjaldsvæðinu
við Kalmansvík á Akranesi aðfara-
nótt 1. apríl. Sannarlega er það vor-
boði þegar ferðafarfuglarnir fara á
stjá og taka tjaldsvæðin í notkun.
Hjónin hafa ferðast ógrynnin öll í
Hobbý-hjólhýsinu. Það er búið öll-
um mögulegu þægindum. Nú um
páskana voru þau Guðmundur og
Gíslína í samfloti með vinahjón-
um sínum. Því voru tvö hjólhýsi á
tjaldsvæðinu í Kalmannsvík þenn-
an fyrsta dag aprílmánaðar þeg-
ar blaðamaður Skessuorns leit þar
við.
Víðförul hjón
Guðmundur Ingi og Gíslína hafa
verði mikið á ferðinni með hýsið
sitt. Aðeins í eitt skipti undanfar-
in fimmtán ár hefur það brugðist
að þau voru ekki á stjá um páskana.
Þau eru einnig vel kunnug Kal-
mansvík og halda vel um gistinátta-
skráningu. „Mér sýnist það vera 69
nætur,“ segir Gíslína þar sem hún
telur næturnar sem þau hjón hafa
gist í Kalmannsvík frá árinu 2013.
„Við vorum á ferðalagi í 160 nætur
árið 2013 en heldur minna í fyrra.
Það rigndi svo mikið.“ Þau hjón
nota útilegukortið. Bæði eru mjög
ánægð með aðstöðuna sem Akra-
nesbær býður uppá, þó að tjald-
stæðið hafi vissulega verði orðið
lúið undir lok ferðatímans í fyrra
vegna rigninganna þá.
Í sambandi við fólk um
allan heim
Margir þekkja þau hjón. Hjólhýs-
ið þeirra er auðþekkt af loftnetinu
sem Guðmundur Ingi setur upp til
að tala í talstöðina. Hann er í félagi
talstöðvaamatöra og segir 40 millj-
ón manns víðsvegar um heiminn
vera í þeim hópi. „Það eru um tutt-
ugu virkir radíóamatörar á Íslandi í
dag en um 400 skráðir frá upphafi,“
útskýrir Guðmundur Ingi. „Svo sit
ég hérna í hýsinu mínu og spjalla
við aðra radíóamatöra um víða ver-
öld. Lengsta sem ég hef spjallað er
við félaga minn sem er í Nýja Sjá-
landi. Allt í gegn um þetta litla tæki
og víraflækjur,“ segir Guðmund-
ur Ingi og teygir sig í talstöðina.
Hann á marga góða vini í gegn um
þennan félagskap: Þeim hjónum
var til að mynda boðið í heimsókn
til Þýskalands til vinar sem Guð-
mundur Ingi kynntist í gegn um
fjarskiptahópinn.
Eftir langan og harðan vetur
styttist sannarlega í vorið og sumar-
ið. Það sanna farfuglarnir og ferða-
farfuglarnir. eha
Björgunarskipið Jón Oddgeir í Rifshöfn.
Björgunarskip kemur sér vel í nauð
Fyrstu ferðafarfuglarnir á Akranesi
Guðmundur Ingi Hjálmtýsson er radíóamatör með vini út um víða veröld og
kallnúmerið hans er TF3IG.
Fyrsta gistinóttin á tjaldsvæðinu á Akranesi við Kalmannsvík var aðfararnótt 1. apríl.
Hjólhýsið er huggulega skreytt smámunum sem er kyrfilega haldið niðri af kenn-
aratyggjói.
Gíslína Hallgrímsdóttir heldur vel um skráningar á ferðalögum þeirra hjóna.
Atvinnuhúsnæði við Faxabraut 3 til leigu
Akraneskaupstaðar auglýsir til leigu atvinnuhúsnæði við
Faxabraut 3. Um er að ræða 94 fm2 endabil með sérinngangi og
innkeyrsludyrum. Húsnæðið er ekki fullklárað að innan og reiknað er
með að væntanlegir leigjendur komi húsnæðinu í það horf sem
þeir þurfa fyrir starfsemi sína.
Nánari upplýsingar veitir umsjónamaður fasteigna í
síma 433-1000 eða í gegnum tölvupóst á netfanginu
kristjan.gunnarsson@akranes.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5