Skessuhorn - 08.04.2015, Síða 11
11MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Sauðfjárbændur athugið!
Bændafundir verða haldnir í Félags-
heimilinu Valfelli þriðjudaginn 14. apríl
kl. 20:30 og í Félagsheimilinu Dalabúð
miðvikudaginn 15. apríl kl. 20:30.
Vonumst til að sjá sem flesta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Passíusálmar voru lesnir fyrsta
skipti í heild sinni í Borgarnes-
kirkju á föstudaginn langa. Um-
sjón með viðburðinum var í hönd-
um Steinunnar Jóhannesdóttur og
sr. Þorbjörns Hlyns Árnasonar pró-
fasts. Lesarar voru hjónin Steinunn
Jóhannesdóttir og Einar Karl Har-
aldsson, Þorbjörn Hlynur Árnason
og Anna Guðmundsdóttir, Guðrún
Jónsdóttir og Einar Pálsson, Páll
Brynjarsson og Inga Dóra Hall-
dórsdóttir og Kjartan Ragnarsson
og Sigríður Margrét Guðmunds-
dóttir. Þær Steinunn Árnadóttir og
Jónína Erla Arnardóttir sáu síðan
um tónlistarflutning milli sálma.
Sr. Þorbjörn Hlynur segir að allt
hafi tekist afar vel. „Það var ágæt-
is þátttaka. Þetta var mjög merkileg
reynsla. Sjálfur hef ég aldrei verið
viðstaddur lestur Passíusálmanna
í heild sinni. Það var sterk upplif-
un. Mér sýnist á öllu að lestur Pass-
íusálmanna sé eitthvað sem muni
halda áfram og verða endurtekið í
Borgarneskirkju.“
Sigríður Margrét Guðmunds-
dóttir sem er ein þeirra sem lásu
sálmana í gær tekur í sama streng
og Sr. Þorbjörn Hlynur. „Þetta
tókst mjög vel. Fólk kom flest og
hlustaði á nokkra sálma. Það voru
mjög margir í kirkjunni um miðjan
daginn. Sjálf hafði ég ekki kynnst
Passíusálmunum svona náið áður.
Ég ætlaði mér aldrei að vera allan
tímann en þegar ég var komin vildi
ég helst sitja áfram og hlusta. Það
var þannig um fleiri.“
Sigríður Margrét segist eiga
von á því að þetta verði endurtek-
ið að ári. „Þetta var fyrst og fremst
gert að eigin frumkvæði þess fólks
sem tók þátt í viðburðinum. Okk-
ur fannst líka öðrum þræði tilvalið
að gera í tengsl við sýningu Stein-
unnar Jóhannesdóttir í Landnáms-
setrinu þar sem hún segir frá lífi
Hallgríms Péturssonar og Guðríð-
ar Símonardóttur eiginkonu hans.
Hallgrímur Pétursson bjó einnig á
Vesturlandi þegar hann samdi Pass-
íusálmana þar sem hann var prest-
ur að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Hann hafi síðan mjög mikil tengsl í
sunnanverðum landshlutanum. Það
sést meðal annars á því að þegar
hann hafði lokið við að semja sálm-
ana sendi hann þá þremur konum
að gjöf sem allar bjuggu á Vestur-
landi,“ segir Sigríður Margrét. Hér
vísar hún til þess að Hallgrímur
Pétursson ritaði sálmana upp eigin
hendi í handrit og sendi til þessara
kvenna með tileinkunum til þeirra.
Konurnar voru þær Ragnhild-
ur Árnadóttir að Ytra Hólmi við
Akranes, Helga Árnadóttir í Híta-
rdal og Kristín Jónsdóttir í Einars-
nesi við Borgarnes. Nokkru síðar
sendi Hallgrímur svo fjórða hand-
ritið til Ragnheiðar Brynjólfsdótt-
ur biskups í Skálholti. Þessar hand-
ritasendingar urðu líklega til þess
að sálmarnir björguðust óbreytt-
ir frá hendi höfundar því eintak
Ragnheiðar biskupsdóttur hefur
varðveist fram á okkar daga.
mþh
Konur í Lionsklúbbnum Þern-
unni á Hellissandi stóðu fyrir ár-
legu páskaeggjabingói sínu síðasta
sunnudag fyrir páska. Þessi við-
burður er orðinn að skemmtilegri
hefð í bæjarfélaginu. Ávallt er vel
mætt bæði af börnum og fullorðn-
um og engin breyting varð á því í
ár. Gestir spiluðu bingó af hjartans
lyst og skemmtu sér vel. Í hléinu
sté söngkonan unga Alda Dís Arn-
ardóttir á svið og söng tvö lög fyr-
ir bingógesti. Henni var klappað lof
í lófa enda frábær söngkona þarna
á ferð. Alda Dís tekur þátt í Ísland
Got Talent-hæfileikakeppninni og
er þar komin í úrslit. þa
Að kvöldi skírdags frumflutti Stein-
unn Jóhannesdóttir leikkona og rit-
höfundur flutning sinn á örlaga-
sögu hjónanna Hallgríms Péturs-
sonar og Guðríðar Símonardóttur.
Það var á Sögulofti Landnámsset-
ursins í Borgarnesi.
Salurinn var fullsetinn áheyrend-
um þar sem Steinunn sagði frá stór-
merku lífi þessara 17. aldar hjóna af
innlifun og þekkingu. „Þetta var
skýr, greinargóð og oft mjög áhrifa-
mikil frásögn. Þó að Steinunn dái
Hallgrím sem sálmaskáld og mann-
eskju er það þó Guðríður sem verð-
ur sterkari í huga áheyrandans eft-
ir sýninguna, enda hefur Steinunn
kynnt sér hana og ævi hennar eins
vel og hægt er að hugsa sér. Í minn-
inu situr mynd af konu á níræðis-
aldri sem hefur misst allt: tvo eig-
inmenn, fimm börn. Alein stend-
ur hún uppi að lokum, orðin „allra
kerlinga elst“, í horninu hjá eft-
irmanni Hallgríms í Saurbæ. Það
væri gaman að vita hvað hún hugs-
aði þá, hvað í hennar ævintýralega
lífi sat fastast í henni. Var það ástar-
bríminn í Kaupmannahöfn forðum
– eða kannski sólarhitinn, litirnir
og framandi kryddin í Barbaríinu?“
skrifar Silja Aðalsteinsdóttir meðal
annars í leikdóm sínum á vef Tíma-
rits Máls og Menningar.
Næsti flutningur Steinunnar í
Landnámssetrinu verður sunnu-
daginn12. apríl næstkomandi
klukkan 16. Þriðja sýning er síðan
föstudaginn 17. apríl klukkan 20.
mþh
Hlýtt á lestur Passíusálmanna í Borgarneskirkju á föstudaginn langa. Þarna er
það Einar Karl Haraldsson sem les sálmana.
Passíusálmar lesnir í Borgarneskirkju
Steinunn Jóhannesdóttir að lokinni frumsýningu í Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Steinunn Jóhannesdóttir
frumsýndi fyrir fullum sal
Alda Dís Arnardóttir syngur í hléinu.
Páskaeggjabingó á Sandi
Vinningshafi stærsta eggsins á páskabingóinu tekur því úr höndum Guðrúnar
Reynisdóttur Lionskonu.
Nokkrar fermingar voru á Vestur-
landi um páskana, bæði á skírdag og
annan í páskum. Á skírdag var fermt
í messu í Ingjaldshólskirkju á Snæ-
fellsnesi. Að þessu sinni voru fermd
sjö ungmenni, þau Aníta Elvan Sæ-
björnsdóttir, Ásbjörn Nói Jóns-
son, Benedikt Björn Sveinbjörns-
son, Guðrún Elvan Vigfúsdóttir,
Kristinn Fannar Liljuson, Mikael
Atli Óskarsson og Stefanía Bláfeld
Viðarsdóttir. Öll eru búsett á Rifi,
Hellissandi og í Ólafsvík. Ferming-
um er þó ekki lokið í Ólafsvíkur- og
Ingjaldshólsprestakalli. Næst verð-
ur fermt í Ólafsvíkurkirkju þann
19. apríl. Ein verður fermt á Hvíta-
sunnudag í báðum kirkjum. þa
Ungmennin sem fermdust á skírdag í Ingjaldshólskirkju.
Fermt á skírdag
í Ingjaldshólskirkju