Skessuhorn - 08.04.2015, Page 13
13MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Grímnir setur upp krimma í gömlu fiskvinnsluhúsi
„Það er eins og maðurinn sagði,
þetta verður „busy mánuður,“ segir
Hinrik Þór Svavarsson nýútskrifað-
ur leikstjóri úr Listaháskóla Íslands.
Hann mætti fyrir um þremur vik-
um til Stykkishólms í þeim tilgangi
að setja upp leikrit hjá Leikfélaginu
Grímni. Fyrst í stað var ætlunin að
setja upp spunaverk en síðan kom
til skjalanna gamall krimmi. Svo
er að sjá að hann hafi aðeins ver-
ið sýndur hjá einu leikfélagi á Ís-
landi áður. Það var hjá leikklúbbn-
um Kröflu í Hrísey í lok áttunda
áratugarins. Leikritið heitir „Beðið
í myrkri.“ Það er eftir breska leik-
ritaskáldið Fredrick Knott í þýð-
ingu Lofts Guðmundssonar. Efni
verksins var einnig bíómynd á sjö-
unda áratug liðinnar aldar. Í þeirri
mynd sú kunna leikkona Audrey
Hepburn í aðalhlutverkinu. „Já
þetta er gamalt „film noir“. Þessi
Fredrick Knott er svo sem ekkert
mjög þekktur en hann samdi líka
leikrit sem hét „Dial M for mur-
der“ og Alfred Hitchcock gerði síð-
an spennumynd eftir,“ segir Hinrik
Þór Svavarsson leikstjóri.
Skemmtilegt fléttuverk
Stefnt er að frumsýningu á „Beð-
ið í myrkri“ ekki seinna en í byrj-
un maímánaðar. Þetta skýrir hvers
vegna Hinrik Þór talar um anna-
saman mánuð. Æfingar hófust fyr-
ir rúmum hálfum mánuði og ganga
að hans sögn vel. Hinrik Þór segir
að um skemmtilegt fléttuverk sé að
ræða, „plott“ drifna sakamálasögu.
Aðalpersónan er blind kona sem
dregst inn í fléttu smáglæpamanna
í Lundúnaborg. Þeir reyna að kom-
ast yfir dúkku fulla af eiturlyfjum
sem fyrir mistök hefur hafnað hjá
hjónum sem ekkert vita um málið.
Þeir narra eiginmanninn í burtu og
halda að eftirleikurinn verði þeim
auðveldur þar sem konan er blind.
En þegar myrkrið skellur á hefur
hún forskot á hina sjáandi. Hinrik
Þór segir að meira verði ekki gefið
upp að sinni. Hann segist hafa not-
ið tímans vel í Stykkishólmi frá því
hann kom þangað í síðasta mán-
uði. „Þessi tími hefur verið frábær
en þetta er mitt fyrsta verkefni sem
leikstjóri. Það er mjög ögrandi og
líka að þetta er í fyrsta skipti sem
ég bý út á landi. Núna er ég með
fallegasta umhverfi sem hægt er að
hugsa sér. Breiðafjörðurinn blasir
við út um stofugluggann og útsýni
í átt að Vatnasafninu,“ segir Hin-
rik Þór sem hefur fram til þessa að
mestu alið manninn á höfuðborg-
arsvæðinu.
Umbreyta hráu húsi í
leikhús
Hinrik Þór segir að vinnan við
leikritið sé farin á fullt og mik-
ill áhugi meðal félaga í Grímni.
Hlutverk eru sex í leikritinu, þar
af tvö kvenhlutverk. Æfingar hafa
verið í leikfélagshúsinu í Hljóm-
skálanum í Stykkishólmi en ætl-
unin er að sýna leikritið í húsnæði
gamla fiskvinnsluhússins Rækj-
uness við Neskinn. „Við reiknum
með að fara inn í Rækjunes næstu
dagana. Þá fer allt á fullt í vinnu
við leiksýninguna. Það er gríðar-
lega spennandi og skemmtilegt að
komast inn í hrátt húsnæði eins og
við gerum núna og umbreyta því í
leikhús. Ætli við gerum það ekki
þannig að fólk þekki það ekki á eft-
ir. Við erum að fara í spor kollega
míns Kára Viðarssonar sem hefur
verið að gera frábæra hluti í Frysti-
klefanum í Rifi. Þetta verður mjög
spennandi,“ segir Hinrik Þór.
Hugmynd um listamið-
stöð í Rækjunesi
Það er fyrirtækið Skipavík sem á
Rækjuneshúsið sem er alls er um
2500 fermetrar að stærð. Í stærst-
um hluta þess er iðnaðarstarfsemi,
fiskmarkaður og verbúðir. Sigurjón
Jónsson einn af eigendum Skipa-
víkur sagði í samtali við Skessuhorn
að hugmyndin væri að breyta með
tíð og tíma hluta hússins í eins kon-
ar listamiðstöð reynist áhugi fyrir
því. Sá hluti er um 700 fermetrar og
hefur mörg síðustu árin verið nýtt-
ur sem geymslur. Sigurjón sagði að
leikfélagið fengi nú til afnota hluta
af þessu plássi en einnig væri hug-
myndir um að skapa þarna aðstöðu
fyrir listafólk. Of snemmt væri þó
að úttala sig um það frekar en von-
andi reyndist áhugi í samfélaginu
fyrir því. „Það er alla vega ætlunin
að reyna að lyfta menningarlífinu
aðeins upp,“ segir Sigurjón. þá
Hinrik Þór Svavarsson leikstjóri.
Atvinna
Hótel Borgarnes óskar eftir að ráða starfsfólk í
móttöku, aðstoð í sal og við þrif á herbergjum.
Vinsamlegast sendið umsóknir á
info@hotelborgarnes.is.
Upplýsingar í síma 856-1619.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Frystiklefinn í Rifi handhafi
Eyrarrósarinnar
Frystiklefinn í Rifi hlaut Eyrar-
rósina 2015, verðlaun fyrir fram-
úrskarandi menningarverkefni á
landsbyggðinni. Kári Viðarsson
leikari er eigandi og framkvæmda-
stjóri Frystiklefans. „Það er frá-
bær viðurkenning og mikill heiður
að fá þessi verðlaun. Þetta eru ein-
hver stærstu menningarverðlaun
sem veitt eru á landinu,“ sagði Kári
í samtali við Skessuhorn.
„Það er rosalega gaman að fá
svona klapp á bakið frá þeim sem
eru í valnefndinni og sjá um að
veita Eyrarrósina því þetta er fólk
sem horfir yfir allt landið og skoð-
ar það sem er í gangi. Gaman er að
það taki eftir því sem um er að vera
hér,“ bætir hann við.
Verðlaun nýtast vel
Handhafi Eyrarrósarinnar hverju
sinni hlýtur að launum flugmiða og
verðlaunafé að upphæð 1.650.000
krónur. „Það hjálpar mér að gera
meira af skemmtilegum hlutum
en ég hafði ætlað mér. Ég hef allt-
af farið með skynsemina að vopni í
hverja baráttu og öll verkefni. Þetta
gerir mér kleift að fara aðeins hrað-
ar, gera aðeins meira og aðeins fyrr
en ég hafði ætlað mér,“ segir Kári.
Hann vill nýta tækifærið og
koma fram þökkum til íbúa Snæ-
fellsbæjar. „Ég er afskaplega þakk-
látur þeim sem hafa hjálpað mér
í gegnum tíðina og sérstaklega
heimamönnum fyrir að mæta vel á
þá viðburði sem hafa verið í boði
og styðja þá listamenn sem vilja
koma hingað. Margir listamenn
vilja koma því þeir hafa heyrt góða
hluti. Þeim þykir æðislegt að geta
komið í svona lítinn bæ og feng-
ið góða mætingu. Það er fyrst og
fremst fólkinu hérna að þakka,“
segir hann og vonast til að það
haldi áfram á næstu misserum.
Hefur í nægu að snúast
Kári Viðarsson er önnum kafinn.
„Ég er að vinna í sumardagskránni
núna. Það verður vikudagskrá
frá júní og fram í ágúst, viðburð-
ir nánast á hverjum degi, bæði
kvölds og morgna og samtals tíu á
viku. Síðan verða sumartónleikar
hjá okkur á sumardaginn fyrsta þar
sem Mammút og Alda Dís, heima-
maðurinn sem er að gera það gott
í Ísland Got Talent, munu koma
fram,“ segir hann glaður í bragði.
Eins og áður sagði telur Kári að
verðlaunin muni veita sér byr und-
ir báða vængi. „Þetta kemur sér
mjög vel, þegar öllu er á botninn
hvolft þá er þetta vinnan mín. Þó
ég sé listamaður þá er þetta alvöru
vinna og meira að segja mjög mik-
il vinna. Ég held að flestir séu bún-
ir að átta sig því. Að fá svona verð-
laun hjálpar rosalega mikið til að
maður geti haldið áfram að gera
skemmtilega og góða hluti,“ seg-
ir Kári að lokum.
kgk
Kári Viðarsson leikari, leikstjóri,
eigandi og framkvæmdastjóri
Frystiklefans í Rifi.
Skagadívur halda
tónleika á Akranesi
Næstkomandi sunnudagskvöld, 12.
apríl, mun söngsveitin Skagadívur
halda tónleika í Tónbergi í samstarfi
við lista- og menningarfélagið Kal-
man. Skagadívur skipa fjórar sópr-
ansöngkonur auk píanóleikara sem
allar rekja ættir sínar upp á Akra-
nes. Þetta eru þær Erla Björk Kára-
dóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdótt-
ir, Ingibjörg Ólafsdóttir, Þóra Björns-
dóttir og Hrönn Þráinsdóttir píanó-
leikari. Tónleikarnir á sunnudaginn
verða fyrsta skipti sem þær koma fram
undir þessum formerkjum. Allar hafa
þær hins vegar unnið saman við ýmis
verkefni, bæði sjálfstætt og í Íslensku
Óperunni. „Þessi hópur er eiginlega
stofnaður baksviðs í Óperunni. Við
komum að uppsetningu á Don Carlo
og einhver kastaði þessari hugmynd
fram í hálfgerðu gríni,“ segir Hanna
Þóra í samtali við Skessuhorn.
Dagskrá tónleikanna verður í léttum
dúr að sögn Hönnu. Tónlistin verð-
ur ekki dramatísk. „Þetta verða létt-
ari lög en við syngjum kannski vana-
lega, óperettur, dúettar, einsöngvar og
einhver söngleikjalög fá að fljóta með.
Við ætlum til dæmis að syngja eitt lag
úr söngleiknum Show Boat,“ seg-
ir hún og bætir því við að henni þyki
frábært að Kalman hafi tekið að sér að
halda utan um tónleikana. „Þá get-
um við dívurnar bara einbeitt okkur
að tónlistinni,“ segir hún og hlær. „Ég
hvet að sjálfsögðu alla Skagamenn til
að mæta á sunnudaginn klukkan átta,
þar sem við ætlum að skemmta bæði
sjálfum okkur og öðrum, og sjá hvað
við eigum mikið af góðum söngkon-
um. Það er nefnilega dálítið athyglis-
vert hvað Akranes hefur getið af sér
hlutfallslega margar sópransöngkon-
ur. Kannski er það fjallið, Akrafjallið
er díva,“ segir Hanna Þóra að lokum
og brosir. kgk
Skagadívurnar. F.v. Þóra, Inga, Hanna Þóra, Hrönn og Erla
Tónbergi 12. apríl kl. 20
SKAGADÍVUR!
Skagadívur er hópur óperusöngkvenna sem allar eru ættaðar eða eiga ættir að rekja á Akranes. Þær eiga það
sam eigin legt að starfa sem slíkar og hafa unnið mikið saman bæði sjálfstætt sem og með Íslensku Óperunni.
Ætla þær nú að gleðja og skemmta sínu fólki, Skagamönnum. Þetta eru þær Erla Björk Káradóttir sópran, Hanna
Þóra Guðbrandsdóttir sópran, Ingibjörg Ólafsdóttir sópran, Þóra Björnsdóttir sópran. Með þeim leikur Hrönn Þráins-
dóttir á píanó en hún á einnig ættir sínar að rekja á Akranes.
Aðgangseyrir kr. 2.500,- / Kalmansvinir kr. 2.000,-
Miðasala við innganginn
Ingibjörg Þóra Erla Björk Hanna Þóra Hrönn