Skessuhorn - 08.04.2015, Side 15
15MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Rúmlega aldargamalt hús af Akranesi öðlast nýtt líf í Grundarfirði
Fornfrægt íbúðarhús af Akra-
nesi gengur nú í endurnýjum líf-
daga vestur í Grundarfirði. Það var
byggt árið 1908, heitir Bjargar-
steinn og stóð við Vesturgötu í 104
ár. Í mars 2013 var það svo tekið
af grunni sínum og flutt í Borgar-
nes þar sem það var gert upp að
utan. Nú hefur Bjargarsteinn verið
seldur til Grundarfjarðar þar sem
unnið er hörðum höndum að því
að húsið verði hluti af nýjum veit-
ingastað sem fundinn hefur verið
staður á sjávarbakka með frábæru
útsýni yfir sjálfan Grundarfjörðinn
og yfir til fjallahringsins við bæinn
þar sem Kirkjufellið er frægast.
Verður veitinga- og
kaffihús
Blaðamaður Skessuhorns hefur
litið við í heimsókn í Grundarfirði
til að sjá nýja veitingahúsið sem
þar er verið að byggja upp. Iðn-
aðarmenn eru að störfum. Þarna
stendur Bjargarsteinn á nýjum
grunni í nýju umhverfi sem er allt
annað en það stóð í rúma öld við
Akraneskirkju. Þrátt fyrir nýtt um-
hverfi og nýja bárujárnsklæðningu
er þetta litla og vinalega hús samt
auðþekkt þeim sem man það sem
hluta af bæjarmyndinni frá árun-
um á Akranesi.
„Við Selma Rut Þorkelsdótt-
ir konan mín og ég, fundum þetta
fallega hús í Borgarnesi í fyrra og
fluttum það hingað í Grundar-
fjörð. Húsið höfðum við komið
auga á einhvern tímann þegar við
áttum leið um Borgarnes þar sem
það stóð nýuppert til sölu við tré-
smiðju SÓ húsbygginga þar sem
það var endurnýjað. Við kíktum
inn um gluggana og sú hugmynd
kviknaði að gera úr því veitinga-
hús. Fólk hváði við í fyrstu því hús-
ið var talið alltof lítið til slíks sem
það og er svona eitt og sér. Til að
hægt yrði að nýta það í veitinga-
rekstur yrði auðvitað að bæta húsa-
kosti við það. Við höfum nú hann-
að og hafið byggingu á veitingastað
hér í Grundarfirði þar sem Bjarg-
arsteinn verður miðpunkturinn.
Þetta verður bæði kaffihús og veit-
ingastaður með spennandi matar-
konsepti,“ segir Gunnar Garðars-
son veitingamaður.
Blanda gömlum og
nýjum húsum
Við Bjargarstein er svo búið að
steypa grunn að því sem á að verða
viðbyggð veitingastofa. Gam-
all fiskhjallur sem þarna stóð fær
að vera áfram, sem og beitninga-
skúr. Ásamt gamla íbúðarhúsinu
frá Akranesi mun þetta gefa rétt
yfirbragð veitingarstaðar í íslensku
sjávarþorpi. Allt þetta verður
hluti af nýja veitingastaðnum sem
Gunnar, Selma og foreldrar henn-
ar eru að koma á fót ásamt Einari
S. Valdemarssyni.
Sjálfur er Gunnar að vinna í
húsinu ásamt Olgu Sædísi Ein-
arsdóttur tengdamóður sinni þeg-
ar Skessuhorn lítur við. Olga býr
í Grundarfirði ásamt eiginmanni
sínum Þorkeli Gunnari Þorkels-
syni múrarameistara. „Hann er
byggingastjóri hér og stýrir fram-
kvæmdaferlinu við uppsetninguna
á staðnum. Síðan mun hann sjá
um húsakostinn. Ég er hins veg-
ar matreiðslumaður. Konan mín er
svo áhugabakari og kemur til með
sjá um allan bakstur ásamt tengda-
mömmu,“ segir Gunnar kankvís á
svip.
Gamall draumur
að rætast
Það er ákveðin forsaga að þessum
nýja veitingastað í Grundarfirði.
„Við Selma Rut höfum verið með
veitingarekstur í Narfeyrarstofu
í Stykkishólmi undanfarin fjögur
ár með Einari. Við kynntumst öll
á sínum tíma á Bifröst þar sem ég
vann sem kokkur, og hófum rekst-
urinn í Stykkishólmi. Okkar leigu-
samningur á húsnæði Narfeyrar-
stofu rennur út eftir sumarið í ár.
Þar höfum við þá verið með rekst-
ur í fimm sumur. Einnig höfum
við rekið veitingastaðinn Pláss-
ið, sem var áður Fimm fiskar, í
Hólminum. Allt hefur þetta gefið
okkur dýrmæta reynslu og þekk-
ingu. Þar sem við erum að hætta
með Narfeyrarstofu í ár og leigu-
samningurinn á húsnæði Plássins
rennur út 2016 án þess að við vit-
um enn hvort hann endurnýjist, þá
höfum við verið að hugsa okkur til
hreyfings og litið eftir einhverju í
staðinn,“ útskýrir Gunnar.
Stofnun nýs veitingastað-
ar í Grundarfirði varð niðurstað-
an. „Við ætluðum alltaf að stofna
veitingahús hér í bænum þar sem
Selma Rut er héðan. Aðstæð-
ur réðu því þó að við byrjuðum
að sinni í Stykkishólmi. Gamli
draumrinn um stað í Grundarfirði
kviknaði svo aftur þegar við sáum
þetta gamla og fallega hús í Borg-
arnesi.“
Stefna á opnun í sumar
Tengdaforeldrar Gunnars þau
Olga Sædís og Þorkell Gunnar eru
að fullu þátttakendur í þessu verk-
efni og búsett í Grundarfirði. „Við
fórum að líta í kringum okkur eftir
staðsetningu hér í Grundarfirði til
að reyna að sjá hvar væri skemmti-
legast að setja niður svona stað.
Þessi staður hér er mjög hentug-
ur. Við erum í bænum, við sjó-
inn og horfum yfir til Kirkjufells.
Það er afskaplega fallegt hérna og
mikið líf. Það er ekki óvenjulegt
að sjá háhyrninga synda á firðin-
um hér fyrir framan. Um daginn
sást til arnar hér í fjörunni,“ segir
Olga Sædís.
Þau Olga og Gunnar segja að
gamla húsið Bjargarsteinn komi til
með að rúma lítið eldhús og stofu
fyrir kaffiveitingar. Á efri hæðinni
þar sem farið er upp um gaml-
an og þröngan stiga eru lítil her-
bergi undir súð. Þau megi nýta
sem fundarherbergi og eða koní-
akstofu. Til hliðar við Bjargarstein
verður svo nýbyggður veitingasal-
ur sem á að rúma 40 til 45 gesti í
einu. „Þetta verður fyrst og fremst
góður veitingastaður. Við verðum
með gott fagfólk í matreiðslu. Við
vonumst til að opna í júní ef allt
gengur upp bæði varðandi fram-
kvæmdir og leyfisveitingar. Veit-
ingastaðurinn á að heita Bjargar-
steinn eins gamla húsið hét þegar
það stóð á Akranesi. Okkur þykir
það fallegt nafn sem hljómar vel.“
mþh
Bjargarsteinn stendur á sjávarbakka í Grundarfirði þaðan sem horfa má vestur
yfir fjörðinn að Kirkjufelli í allri þess dýrð. Vinstra megin á myndinni má sjá
gamla hjallinn sem verður hluti af veitingastaðnum Bjargarsteini. Grunnur
veitingaskálans er svo hægra megin.
Gömlu húsin sem Akranes hafnaði
Tvö gömul hús, bæði yfir eitt
hundrað ára, hafa verið flutt frá
Akranesi frá árinu 2012.
Fyrra húsið er Bjargarsteinn
sem nú er að öðlast nýtt hlutverk
í Grundarfirði. Bjargarsteinn var
byggður árið 1908 og stóð alla
tíð við Vesturgötu gengt Akra-
neskirkju og á lóðinni sem er við
hlið safnaðarheimilis kirkjunnar.
Í grein eftir Gísla S. Sigurðsson
í Árbók Akurnesinga 2004 kem-
ur fram að sama fólk úr sömu fjöl-
skyldu hafi búið í húsinu á ára-
bilinu 1922-1963. Hjónin Jós-
ef Einvarðsson og Christel Ein-
varðsson keyptu það þá og bjuggu
þar með börnum sínum allt fram
um 2010. Akraneskirkja keypti þá
húsið í því skyni að fjarlægja það
svo fjölga mætti bílastæðum við
Akraneskirkju og safnaðarheimil-
ið Vinaminni. Fyrirtækið SÓ hús-
byggingar í Borgarnesi fékk að
hirða húsið gegn því að fjarlægja
það af lóðinni. Það hefur sér-
hæft sig í að gera upp gömul hús.
Það var og gert við Bjargarstein í
Borgarnesi og húsið síðan selt til
Grundarfjarðar þar sem það er í
dag. Bílastæði er nú á lóð Bjargar-
steins á Akranesi.
Hitt húsið sem hefur farið frá
Akranesi er Vindhæli sem stóð
við Vesturgötu 51, nálægt horni
þeirrar götu og Krókatúns. Vind-
hæli var reist 1910. Þar bjó lengi
Jón Sigurðsson smiður ásamt Sig-
ríði Lárusdóttur konu sinni. Hann
þótti merkilegur smiður sem reisti
mörg hús á Akranesi. Í kjallaran-
um hafði hann trésmíðaverkstæði
og smíðaði þar meðal annars allar
líkkistur sem notaðar voru í bæn-
um. Vindhæli var í fyrra flutt að
Hvítárvökkum í Borgarfirði þar
sem það hefur staðið síðan. Ekkert
er á lóð þess húss við Vesturgötu í
dag. mþh
Bjargarsteinn tekinn af lóð sinni á Akranesi. Vindhæli þar sem það stóð fyrr í vetur á Hvítárbakka og beið framtíðar.
Gunnar Garðarson og Olga Sædís Einarsdóttir fyrir utan Bjargarstein.