Skessuhorn - 08.04.2015, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Pennagrein
Pennagrein
Í 13.tölublaði Skessu-
horns 2015 var birtur undirskriftarlisti
þar sem fólk var að mótmæla fyrirhug-
uðum framkvæmdum hjá Laugafiski.
Ég velti fyrir mér þankagangi þeirra
sem skrifa undir slíkan lista, sérstak-
lega þess fólks sem ekki á möguleika á
að verða fyrir óþægindum vegna lykt-
armengunar á sínu heimili.
Ekki man ég hvaða ár Grandi
yfirtók HB en síðan þá hefur verið í
gangi stöðug endurbygging og lag-
færingar á öllum húsakosti fyrirtækis-
ins. Nú þegar þessum lagfæringum er
að mestu lokið og Grandi vill ráðast
í brýnasta verkefnið sitt hér á Akra-
nesi, sem eru endurbætur á aðstöðu
Laugafisks til að koma í veg fyrir lykt-
armengun frá hausaþurrkuninni með
nýbyggingu sem gerir kleift að vinna
allt framleiðsluferlið undir einu þaki.
Ég vil trúa því að miðað við metn-
að þeirra Grandamanna verði sett up
framleiðslulína með besta fáanlega
lyktarvarnarbúnaði sem til er. Það sem
ég hef séð til þeirra við endurbætur og
varnir til að koma í veg fyrir lyktar-
mengun og óhreinindi frá síldarverk-
smiðjunni sannfærir mig um að hugur
fylgi máli því þær framkvæmdir eru til
fyrirmyndar. Það er ekki nema um ár
síðan Grandi keypti starfsemi Lauga-
fisks og alveg frá fyrsta degi hafa þeir
talað um að byggja yfir þá starfsemi
til að unnt sé að sameina vinnsluferl-
ið undir einu þaki. Nú þegar Grandi
er með mikil áform um uppbyggingu
á starfsemi sinni á Akranesi, uppbygg-
ingu sem mun skila fjölda nýrra at-
vinnutækifæra, finnst mér miður að
verða vitni af þeim samblæstri gegn
fyrirtækinu sem ég tel mig verða vitni
að.
Ég er viss um að núna séu einhverj-
ir farnir að hugsa um hvort ég eigi
einhverra hagsmuna að gæta í þessu
máli. Áður en lengra er haldið er best
að taka það skýrt fram að svo er ekki.
Við, ég og konan mín sem er verk-
stjóri hjá Granda hér á Akranesi, eig-
um ekki svo mörg ár eftir á vinnu-
markaðinum og uppbygging Granda
hér í bæ stendur vonandi miklu leng-
ur en það.
Sumir tala þannig að fáir ferða-
menn komi á Akranes vegna lyktar frá
Laugafiski. Ég ætla að leyfa mér í því
sambandi að benda á Vestmannaeyj-
ar. Þar eru tvær fiskimjölsverksmiðj-
ur og hausaþurrkun en samt er Herj-
ólfur alltaf fullur af ferðamönnum.
Það hlýtur því að vera eitthvað ann-
að en lyktin sem fælir ferðamennina
frá Akranesi.
Varðandi skrif, m.a. Benedikts Jón-
mundssonar, gegn fyrirhugaðri upp-
byggingu á Laugafiski þá minnir mig
að hann hafi setið í bæjarstjórn Akra-
ness og um leið verið einn af eigend-
um HB, a.m.k. óbeinn eigandi, þeg-
ar HB átti Laugafisk og stjórnaði
því hvar fyrirtækinu var komið fyr-
ir í bænum. Honum hefði átt að vera
í lófa lagið að beita sér gegn hausa-
þurrkun þá.
Að lokum vil ég hvetja bæjaryfir-
völd á Akranesi til að standa í lapp-
irnar og styðja Granda-menn í fyrir-
hugaðri uppbyggingu hér á Akranesi
og þá sérstaklega vegna þeirra úrbóta
sem þeir ætla að gera á vinnsluferli
Laugafisks. Í heildina vinna á fjórða
hundrað manns hjá fyrirtækinu, bara
hér á Akranesi, og við hljótum að
horfa með velþóknun á að störfum
fjölgi með aukinni uppbyggingu. Við
Skagamenn höfum ekki efni á því að
láta fámennan hóp beygja bæjaryfir-
völd í duftið í þessu máli.
Valgeir Valgeirsson
Akurnesingur sem er ekki sama um
uppbyggingu atvinnulífsins til framtíðar.
Laugafiskur hf. – vangaveltur vegna
undirskriftalista gegn fyrirtækinu
Það er dýrt að byggja á Íslandi. Vax-
andi kröfur samvæmt byggingarreglu-
gerðum um frágang og búnað hafa gert
það dýrara og dýrara. Þá eru lóða- og
gatnagerðargjöld orðin einn af stærri
kostnaðarliðnum við nýbyggingar,
fyrir utan almennan byggingakostnað,
vinnu og efni.
Helstu kostnaðarliðir við eignarhald
á fasteignum er fjármagnskostnaður,
fasteignaskattar og viðhald.
Lóða- og gatnagerðagjöld og fast-
eignaskattar hafa hækkað mikið á síð-
ustu árum, vegna erfiðs rekstrar sveita-
félaga, sem nú verða að nýta allar leið-
ir til aukningar tekna. Ekkert bendir
til þess að hægt verði að lækka þessa
liði á næstu árum vegna slæmrar stöðu
margra sveitafélaga.
Ekkert bendir heldur til þess að í
bígerð séu aðgerðir af hálfu stjórn-
valda sem lækka fjármagnskostn-
að. Með styttingu lánstíma og banni
við vísitölutryggingu lána er líklegt
að greiðslubyrði lána hækki frekar en
lækki frá því sem nú er. Enginn fram-
tíðarsýn eða stefnumótun er í efna-
hags- og gjaldmiðilsmálum sem líklegt
er að leiði til lækkunar vaxta. Þvert á
móti er líklegt að vextir fari hækkandi
með vaxandi óvissu, stefnuleysi og sér-
hagsmunagæslu í efnahagsmálum.
Leiðin sem virðist eiga að fara er að
ríkið niðurgreiði bæði stofnkostnað
og rekstrarkostnað, hvort sem um sé
að ræða eigið húsnæði eða leiguíbúð-
ir. Með stofnstyrkjum á að niðurgreiða
nýbyggingu húsnæðis, með nýtingu
séreignar til greiðslu lána er verið að
niðurgreiða vaxtakostnað, með vaxta-
bótum er verið að niðurgreiða vaxta-
kostnað og með húsaleigubótum er
verið að niðurgreiða bæði stofnkostn-
að og vexti.
Hverning mikið skuldsettur rík-
issjóður á að fjármagna allar þess-
ar niðurgreiðslur getur líklega eng-
inn skýrt.
Ef lækka á húsnæðiskostnað fjöl-
skyldna í landinu verður að lækka
vexti, lækka lóða-
og gatnagerðagjöld
og einfalda byggingarreglugerðir og
þar með byggingarkostnað. Niður-
greiðslur úr ríkissjóði á þessum lið-
um er tilfærsla milli aðila en ekki raun-
veruleg lækkun kostnaðar.
Eini sýnilegi valkosturinn við að
breyta þessu er að klára ESB viðræður
og taka upp nýjan gjaldmiðil. Viður-
kenndan gjaldmiðil sem ekki þarf him-
inháa vexti sér til halds og trausts.
Þeir sem geta glaðst að stefnu-
leysinu eru hinir svokölluðu „hræ-
gammar“ erlendu kröfuhafarnir sem
eiga tvo af þremur stóru bönkunum.
Þeir fá áfram háa vexti, að hluta til með
óbeinum greiðslum úr ríkissjóði. Þau
sem þurfa að hafa áhyggjur eru börn-
in okkar og barnabörn. Þau munu erfa
landið, skuldirnar og bera fjárhags-
lega ábyrgð á skattaafsláttum núver-
andi ríkisstjórnar.
Borgarnesi, 6. apríl 2015.
Guðsteinn Einarsson.
Hvað þarf til að lækka
húsnæðiskostnað á Íslandi?
Freisting vikunnar
Eftir óhemjuhátt liðinna páska
er nauðsynlegt að koma böndum
á sætulöngun og bjúginn sem er
ekki langt undan eftir matarveisl-
ur miklar. Því er freisting vikunn-
ar að þessu sinni hreinsandi morg-
undrykkur sem bætir meltingu og
hjálpar við að lækka sýrustig líkam-
ans (gera hann basískari). Drykk-
urinn er vatnslosandi og hefur því
áhrif og minnkar bjúg. Nytsam-
legasti kostur drykkjarins er að
hann vinnur gegn sætulöngun og
hjálpar því í fráhvörfum súkkulað-
isvalls páskanna.
Blandan:
1 hluti engiferskot
1 hluti móðuredik
2 hlutar sítrónusafi
Best er að nota lífræna safa til
blöndunnar eða að djúsa sjálfur
engifer og sítrónurnar. Hægt er að
blanda í stóra flösku því blandan
geymist vel í ísskáp. Svo er bland-
an þynnt jafnóðum í vatn eða tapp-
að á minni flöskur og þá er drykk-
urinn tilbúinn til drykkjar.
Til drykkjar
1-3 msk af blöndu í stórt glas af
vatni, á fastandi maga í morguns-
árið.
Ljósm. Emilía Ottesen
Hreinsandi morgundrykkur
Héldu glæsilega skemmtun
fyrir bæjarbúa
Nemendur Grunnskóla Snæfells-
bæjar skemmtu bæjarbúum í Snæ-
fellsbæ af hjartans lyst síðustu dag-
ana fyrir páskafrí. Þá voru haldnar
árshátíðir Lýsuhólsskóla, bæði 1. til
4. bekkjar og 5. til 7. bekkjar.
Árshátíðirnar voru með hefð-
bundnu sniði. Nemendur á Lýsu-
hóli voru með kaffisölu að sýningu
lokinni og 5. til 7. bekkur dansaði af
mikilli innlifun. 1. til 4. bekkur en-
daði sína árshátíð á að syngja saman
nýjan íslenskan texta við lag Phar-
rell Williams – Happy. Textann
gerði Kristín Helga Guðjónsdót-
tir. Árshátíðirnar voru hinar skem-
mtilegustu og mjög vel heppnaðar.
Mikil vinna bæði nemenda og
starfsfólks lá þeim að baki og hún
skilað sér svo sannarlega í frábæ-
rum flutningi.
þa
Krakkarnir flytja dagskrá sína í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík sem var fullsetið af
aðdáendum.
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500