Skessuhorn - 08.04.2015, Page 23
23MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hjólakeppnin Jökulmílan á Snæ-
fellsnesi hefur notið sífellt meiri
vinsælda með ári hverju. Á síð-
asta ári voru þátttakendur tæplega
tvö hundruð og fjölgaði þá veru-
lega frá árinu áður. Búist er við enn
fleiri þátttakendum í ár. Sú breyt-
ing verður á keppninni núna að í
hálfri jökulmílu verður hjólað frá
Grundarfirði í Stykkishólm og til
baka sem er reyndar er rúmlega
hálf lengsta vegalengdin í keppn-
inni, eða 78 kílómetra. Stykkis-
hólmsbúar og gestir þeirra kom-
ast því í meiri snertingu við þennan
viðburð en til þessa. Áður var hjól-
að í hálfri Jökulmílu frá Búðum í
Grundarfjörð og í heilli Jökulmílu
er ekki hjólað inn til Stykkishólms.
Jökulmílan fer fram í Grundar-
firði 20. júní næstkomandi en þar
er ræst í allar vegalengdir. Hún er
einn af lengstu hjólreiðaviðburðum
sem skipulagðir eru árlega á Íslandi.
Hringurinn meðfram strandlengju
Snæfellsness, vestur fyrir Jökul og
til baka um Vatnaleið er um 162 km
langur, eða rétt rúmlega 100 mílur.
Jökulmílan er því „100 mílureið”
eða á ensku „Century Ride” sem
er vinsæl tegund hjólreiðaviðburða
víða um heim. Eins og tíðkast með
slíka viðburði vilja skipuleggjend-
ur Jökulmílunnar höfða til breiðs
hóps hjólreiðamanna. „Við skorum
á þig að reyna Jökulmíluna á þín-
um eigin forsendum óháð því hvað
aðrir kynnu að hjóla hana hægt eða
hratt,“ segir í tilkynningu á heima-
síðu Jökulmílunnar en þar er hægt
að sjá allar nánari upplýsingar um
keppnina. þá
Meistaramót eldri borgara í Borg-
arbyggð í pútti 2015 fór fram í
Eyjunni í Brákarey þar sem allir
léku við alla 36 holur (bæði karl-
ar og konur). Keppnin hófst í janú-
ar og stóð fram í mars. Yfirleitt var
leikið tvisvar í viku. Keppendur
voru 13 talsins þar af fjórar kon-
ur. Fengu keppendur tvö stig fyrir
unnin leik ein eitt fyrir jafntefli.
Guðmundur Bachmann var
í fyrsta sæti í karlaflokki. Hlaut
hann 20 stig. Hann vann níu leiki,
gerði tvö jafntefli en tapaði ein-
ungis einum leik. Lék á 772 högg-
um. Í öðru sæti var Þorbergur Eg-
ilsson með 18 stig. Hann vann níu
leiki en tapaði þremur. Lék hann á
769 höggum. Guðmundur A. Ara-
son og Ingimundur Ingimundar-
son voru jafnir með 16 stig. Guð-
mundur varð þriðji á 791 högg-
um með átta sigra og fjögur töp
þar sem hann vann Ingimund í leik
þeirra á milli.
Í kvennaflokki varð Jytta Juul
hlutskörpust með 19 stig. Hún
vann níu leiki, gerði eitt jafntefli
en tapaði tveimur. Í öðru sæti var
Anna Ólafsdóttir með 13 stig. Hún
vann sex leiki, gerði eitt jafntefli en
tapaði fimm leikjum. Lilja Ólafs-
dóttir var í þriðja sæti með 5 stig.
Hún vann tvo leiki, gerði eitt jafnt-
efli en tapaði níu leikjum. Samtals
voru leiknir 78 leikir (eða 3008
holur) og margir þeirra voru jafn-
ir og spennandi.
Karlalið ÍA í knattspyrnu held-
ur í æfingaferð til Danmerk-
ur á morgun fimmtudag og mun
dvelja þar fram á sunnudag við
æfingar í bækistöðvum danska úr-
valsdeildarliðsins FC Nordsjæll-
and. Ferðin verður nýtt til að slípa
hópinn enn betur saman en fram-
undan eru 8-liða úrslit í Lengju-
bikar og aðeins tæpar fjórar vik-
ur í að keppni í Pepsídeildinni
byrji. Skagamenn léku æfinga-
leik við KR í Akraneshöllinni sl.
miðvikudag. Leikurinn var jafn
en það voru gestirnir sem skorðu
eina markið í leiknum, þegar fyrri
hálfleikur var rúmlega hálfnaður.
Minnstu munaði að Skagamönn-
um tækist að jafna í seinni hálf-
leiknum þegar Þórður Þorsteinn
Þórðarson komst einn í gegn
en KR-ingar björguðu á síðustu
stundu.
þá
Árlegt Stefánsmót í skotfimi var
haldið miðvikudaginn 1. apríl. Þetta
var þriðja árið sem mótið er hald-
ið í inniaðstöðu Skotvest í Brák-
arey í Borgarnesi. Að þessu sinn var
keppt með 22 kalibera rifflum á 25
metra færi. Verkefnið á þessa móti
var að virkja listræna vitund skot-
glaðra. Skotið var á loftskífur sem
snúið var öfugt og sá sem handmál-
aði flottasta „broskallinn“ með blý-
kúlum hlaut fyrstu verðlaun. Dóm-
nefnd var skipuð öllum keppendum
og þeim sem gátu viðrað listfengi
sitt og gefið stig eftir smekk. Stef-
ánsmótsmeistarinn að þessu sinni er
Guðmundur Símonarson og vann
hann með töluverðum yfirburðum.
Í öðru sæti var mótshaldarinn Stef-
án Ingi Ólafsson og í því þriðja Jón
Sigurðsson. Fengu sigurvegararnir
vegleg páskaegg að launum.
EBM
Um páskana heldur U19 ára lands-
lið kvenna í knattspyrnu til Frakk-
lands og leikur í milliriðli fyr-
ir lokakeppni Evrópukeppninnar.
Hún fer fram fer í Ísrael í sumar. ÍA
á tvo fulltrúa í hópnum sem held-
ur til Frakklands. Þetta eru þær Al-
dís Ylfa Heimisdóttir og Aníta Sól
Ágústsdóttir. Þá var Skagastúlk-
an Guðrún Karítas Sigurðardótt-
ir, sem nú leikur með Stjörnunni,
einnig valin í hópinn sem og Berg-
lind Hrund Jónasdóttir sem hefur
verið á láni hjá ÍA nú á vormánuð-
um.
Þjálfari U19 ára landsliðs kvenna
er Þórður Þórðarson. Hann hefur
áður þjálfað bæði kvenna- og karlal-
ið ÍA. Þá er Hjálmur Dór Hjálms-
son aðstoðarþjálfari og Margrét
Ákadóttir liðsstjóri.
kgk
Jökulmílan líka í Stykkishólm í ár
Verðlaunahafar í Meistaramóti eldri borgara í Borgarbyggð í pútti. Á myndina
vantar Önnu Ólafsdóttur. Ljósm.: Þórhallur Teitsson.
Meistaramót eldri
borgara í pútti
Aníta Sól
Ágústsdóttir
Tvær ÍA stúlkur í U19 ára landsliðið
Aldís Ylfa
Heimisdóttir
Eldri borgarar í Borgarbyggð
kepptu í vetur einu sinni í mánuði
í móti sem hlaut heitið „Miðsvetr-
armót“. Fór það fram í janúar til
mars. Leiknar voru 36 holur hverju
sinni eða samtals 108. Í karlaflokki
varð Ingimundur Ingimundar-
son hlutskarpastur með 185 högg.
Í öðru sæti var Þórhallur Teitsson
með 190 högg. Guðmundur Bach-
mann og Guðmundur A. Arason
urðu jafnir með 191 högg. Sá fyrr-
nefndi vann í bráðabana með einu
höggi eftir 21 holu. Jytta Juul vann
kvennaflokkinn á 191 höggi. Í öðru
sæti varð Ásdís B. Geirdal með 203
högg og Lilja Ólafsdóttir í þriðja
sæti með 224 högg.
Verðlaunahafarnir þrír á Stefánsmótinu.
Stefánsmótið í skotfimi í þriðja sinn
Verðlaunahafar eldri borgara í Borgarbyggð í Miðsvetrarmóti í pútti. Ljósm.: Indriði Björnsson.
Miðsvetrarmót eldri borgara í pútti
Skagamenn í æfingaferð til Danmerkur